Tíminn - 24.08.1993, Qupperneq 3
Þríöjudagur 24. ágúst 1993
Tíminn 3
Trúlega hafa markaðsaðstæður fýrir íslenskt kjöt á erlendri grundu aldrei verið jafn
hagstæðar og nú. Aðalfundur kúabænda:
Ekki öruggt að fallegur
kjötbiti sé góð vara
Bændur á Austuríandi
skora á umhverfisráð-
herra:
Erlendur Garðarsson kjötútflytjandi sagði á aðalfundi kúabænda í
gær að trúlega Iteföu markaðsaðstæður fyrir íslenskt kjöt erlendis
aldrei verið jafn hagstæðar og um þessar mundir. Hann sagði að
eriendir neytendur biðu ekki eftir því að íslenskir framleiðendur
tækju til hendinni og fari að starfa skipulega á eriendum mörkuð-
um, heldur yrðu menn að vera tilbúnir til að leggja ýmislegt á sig til
að reyna að ná árangri í útflutningsmálum.
í erindi sfnu sagði Erlendur að
það væri einkum tvennt sem gerði
það að verkum að samkeppnis-
staða íslendinga á erlendum kjöt-
mörkuðum væri góð um þessar
mundir. í fyrsta lagði væri það lið-
in tíð að það væri hægt að treysta
því að fallegur kjötbiti væri góð
vara.
„Innihaldsrannsóknir hafa sýnt
að aukaefni svo sem lyfjaleyfar,
skordýraeitur, illgresiseitur,
hormónar og þungmálmar eru í
svo ríkum mæli í kjötinu að á
sumum stöðum er farið að vara við
kjötneyslu án gegnumsteikingar
eða suðu.“
Sigurður Bjarnason býður ferðamönnum upp á:
Kerruferðir upp
á Ingólfshöfða
Erlendur sagði að erlendis væru
neytendur tilbúnir að greiða
hærra verð fyrir vöru sem þeir
væru öruggir með og væri hrein af
öllum aukaefnum.
Einnig taldi Erlendur að leggja
ætti ríka áherslu á sérstöðu ís-
lenska kjötsins við markaðssetn-
ingu þess erlendis. Sem dæmi
benti hann á að víða þar sem
nautakjöt væri í boði á evrópskum
veitingahúsum væri t.d. argent-
ískt nautakjöt sér á listanum og
jafnframt á hærra verði.
-grh
Söfnun og nýting úrgangs-
plasts er áhugaefni bænda á
Austurlandi. A aðalfundi Bún-
aðarsambands Austuriands var
samþykkt áskorun til nýskip-
aðs umhverfisráðherra um að
vinna nú strax að þvf, f sam-
starfi við sveitarstjórnir, að
koma á föstu skipulagi við
söfnun og nýtingu úrgangs-
plasts sem til fellur í landbún-
aði. Ályktun um þetta mál var
samþykkt samhljóða.
Formanni Stýrimannafélags íslands, sem jafnframt
var stýrimaður á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi, hef-
ur verið sagt upp störfum:
Rekinn
Amgunnur Ýr opnar sína 7. einkasýningu:
„Himnar“ aö Hulduhólum
Arngunnur Ýr opnaði sýningu aft Ýr kallar verkin „Himnar".
Hulduhólum í MosfeUsbæ á laugar- Þetta er 7. einkasýning listakon-
daginn. unnar en auk þess hefur hún tekið
Á sýningunni verða 26 olíumálverk þátt í fjölmörgun samsýningum
unnin á striga, léreft eða tré en þau bæði heima og erlendis.
voru öll gerð á þessu ári. Amgunnur -GKG.
Nýtt tímarit:
Allt sem snýst
Nýtt tfmarit hefur hafið göngu sína hér á nefna að í tímaritinu er stórt bflamark-
landi og hefur það hlotið nafnið ,AHt aðstorg, auk minni torga með báta, flug-
sem snýst", markaðstorg viðskiptanna. vélar, bamavagna og margt fleira. Rit-
Markmið útgefanda er að skapa mark- stjóri og útgefandi tímaritsins er Ólafúr
aðstorg þar sem kaupendur og seljendur M. Jóhannesson og faest blaðið á 70 sölu-
geta komist í samband og átt viðskipti stöðum Skeljungs um land allt, hjá þeim
meðnýjaognotaðahluti.Semdæmimá semauglýsaíblaðinuogvíðar. -PS
vegna
þátttöku í
kiaradeilu
,J\ér finnst ekki ólíklegt að það
megi álykta sem svo að þessi deila
hafi haft áhrif á þessa ákvörðun
stjórnar Herjólfs aft segja Jónasi
upp störfum. Ef svo er þá er það af-
skaplega alvarlegur hlutur ef menn
eigi það á bættu að missa atvinnuna
ef þeir beita sér í kjaradeilum fyrir
sitt stéttarfélag með löglegum að-
gerðum," segir Guðlaugur Gísla-
son, framkvæmdastjóri Stýri-
mannafélags íslands.
Formanni Stýrimannafélags ís-
lands, Jónasi Ragnarssyni stýri-
manni á Vestmannaeyjaferjunni
Herjólfi hefur verið sagt upp og hef-
ur hann látið af störfum eftir að hafa
unnið sinn samningsbundna upp-
sagnarfrest.
Að mati samstarfsmanna Jónasar
um borð í Herjólfi var hann látinn
fara vegna þess hversu hart hann
beitti sér í kjaradeilu stýrimannanna
fyrr á árinu sem hafði í för með sér
margra vikna verkfall. Það var síðan
leyst með lagasetningu á Alþingi og
var deilunni svo vísað til gerðar-
dóms. Dómurinn kvað nýlega upp
úrskurð sinn og lækkaði undirmenn
í launuml
Sævaldur Elíasson, stýrimaður á
Herjólfi, og fyrrum samstarfsmaður
Jónasar vildi ekkert láta hafa eftir sér
um málið og vísaði á Stýrimannafé-
lag íslands. Hann sagðist þó ekki
vita annað en að sá stýrimaður sem
Jónas leysti af á Herjólfi væri hættur
hjá félaginu og líklegt að annar yrði
ráðinn í hans stað.
Hvorki náðist í Jónas Ragnarsson í
gær né í stjórnarformann Herjólfs.
-grh
Annað sumarið í röð býður Sig-
urður Bjarnason í Hofsnesi nú
ferðamönnum í ferð upp á Ing-
ólfshöfða og flytur þá í kerru
sem hann dregur á gömlu drátt-
arvélinni sinni.
„Ferðin tekur 3-4 klukkutíma. Þeg-
ar upp á höfðann er komið eru sögu-
staðimir skoðaðir ásamt lundanum
og hvalnum. Ég hef alltaf farið með
kunningja þessa ferð en í fyrra fór ég
að færa út kvíamar og bjóða útlend-
ingum að koma með. Oftast fylgir
fararstjóri ferðamannahópunum",
segir Sigurður. Þjóðverjar em í
meirihluta en einnig hafa margir
Frakkar nýtt sér ferðimar. Lagt er af
stað fyrir neðan flugvöllinn á Fagur-
hólsmýri og standa ferðamennimir
á kemmni alla leiðina. Sigurður
segir þá aldrei kvarta yfir Jwí enda
þyki þeim svo skemmtilegt að koma
upp á höfðann.
„Þetta er eini ferðamátinn þessa
leið því jarðvegurinn er þurr sandur
sem er erfiður venjulegum bílum,"
segir Sigurður.
Hann hætti búskap sökum aldurs
fyrir nokkru og datt þá í hug að fara
út í ferðamannaþjónustuna og segir
skárri kost „að fá peningana beint
heldur en að standa í að hafa rolluna
sem millilið." Sigurður starfar jafn-
framt sem vitavörður í Ingólfshöfða.
„Það hefur ríkt mikil ánægja með
ferðimar út í höfðann og hef ég far-
ið með allt frá 5-50 manns þangað í
einu. Fólk verður að panta ferðimar
fyrirfram. í sumar hafa um það bil
800 manns komið með mér upp á
höfðann," segir Sigurður. „Venju-
lega byija ferðirnar fyrir alvöm í júlí
Úr Ingólfshöfða.
og þeim lýkur þegar fólk hættir að
sækjast eftir þeim á haustin."
-GKG.
Meiriháttar
STÓR-ÍHSAU
Bjóðum HANKOOK sumarhjólbarða
fyrir fólksbíla með 40% afslætti.
Frábærir hjólbardar - einstakt tækifæri
Verðsýnishom:
155R12 Kr. 2130,- 185/70R13 Kr. 2790,-
145R13 " 1990,- 175R14 " 2970,-
155R13 " 2260,- 185/70R14 " 2990,-
165R13 " 2370,- 195/70R14 " 3360,-
175/70R13 " 2570,- 165R15 " 2690,-
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 - sími 683080