Tíminn - 24.08.1993, Síða 11

Tíminn - 24.08.1993, Síða 11
Tfminn 11 Þriöjudagur 24. ágúst 1993 Heimsmeistaramótið í Hollandi: Tóku mótið í nefið Frá Áma Gunnars- syni í Hollandi íslendingar eru ótvíræðir sigur- vegarar heimsleika íslenska hests- ins sem lauk í Hollandi á föstudag. íslenska landsliðið hreppti fem gullverðlaun í íþróttakeppnunum og tvenn í kynbótasýningum. Sig- urbjöm Bárðarson var stigahæsti einstaklingur mótsins. Hann sigr- aði í samanlögðu á Höfða með ein- kunnina 8.08. Önnur í röðinni var þýska hestakonan Jolly Schrenk með slétta 8 í einkunn. Reynir Aðalsteinsson stóð sig frá- bærlega á mótinu en hann vann sig upp úr tölti B2 upp í A-úrslit í fimmgangi og hafnaði þar í öðm sæti á hestinum Skúmi frá Geirs- hlíð. íslenski landsliðshópurinn var þreyttur en að vonum ánægður eftir erfiða keppni á sunnudags- kvöld þegar úrslit lágu fyrir. Þetta var sætur sigur eftir fremur slakan árangur á síðustu tveimur heims- meistaramótum eða eins og annar af íslensku farastjómnum orðaði það að keppni lokinni: „Við tókum þetta mót í nefið frá A til Ö.“ Þess má geta að nánar verður fjallað um Heimsmeistaramótið í sérstöku aukablaði Tímans síðar í vikunni. fslenskir fréttamenn fylgdust grannt með mótinu og hér má sjð kunnug- legt sjónvarpsfólk að störfum og I baksýn er enginn annar en Guðlaugur Tryggvi Karisson, hestafréttarítarí Tímans. Bikar hampað, Sigurbjöm Bárðarson var ánægður á slgurstund. Sfðasta mótsdaginn rígndi mlkiö eftir aö veöríö haföl leikiö við mótsgestl allan tfmann. Búist við 1.600 tonna birgðum af kindakjöti í byrjun sláturtíðar: Sala kindakjöts minnkað um 1.300 tonn milli ára Samstarfshóp um sölu á lambakjöti sýnist nú blasa við að aðeins um 7.100 tonn af kindakjöti seljist á innanlandsmarkaði á því verð- lagsári sem nú er að Ijúka. Þetta er kringum 1.300 tonnum minni sala heldur en þrjú næstu ár þar á undan. Ahrifamesta ástæða þessa sam- dráttar er talin mjög mikil verð- lækkun á lambakjöti í ágúst í fyrra, sem skilaði þá mjög mikilli sölu f ágústmánuði (1.560 tonum), en að sama skapi minni næstu mánuðina á efdr (þ.e. fyrstu mánuðum þessa verðlagsárs), „þar sem varan fór að langmestu leyti til kjötvinnslna og verslana en komst ekki alla leið til neytenda". Og af þessu leiðir að enn einu sinni standa menn nú frammi íyrir miklum birgðum eða um 1.600 tonnum, þann 1. september, þ.e. f byrjun sláturtíðar. Þetta kom fram f yfirliti Bjöms Jónssonar um sölu á kindakjöti á að- alfúndi Landssamtaka sauðfjár- bænda sem haidinn er á Hvanneyri 23. og 24. ágúst. ,Á síðustu fjórum árum hefur rík- isvaldið freistast til þess að vera með útsölur á kindakjöti í águst til að minnka birgðir í upphafi nýs verð- lagsárs. Með þessum aðgerðum hef- ur sölu verið haldið uppi með sífellt meirí tilkostnaði og birgðavandan- um verið ýtt yfir á nýtt verðlagsár í stað þess að lausna hafi verið leitað," segir Bjöm. í tölulegu yfirliti kemur fram að síðustu fjögur árin hafa á bilinu 60% til 80% af allri kinda- kjötssölu águstmánaðar verið á til- boðsverði. Það hlutfall fer hins veg- ar niður í 12-13% á yfirstandandi verðlagsári. Þá segir Bjöm að kostnaðurinn við að halda sölunni uppi hafi farið vax- andi á undanförnum árum. Há- marki hafi hann náð á síðasta verð- lagsári þegar nærri þriðjungur framleiðslunnar, eða um 2.400 tonn, var seldur á lækkuðu verði. Þær verðlækkanir hafi kostað um 160 milljónir kr., eða sem svarar 5,6% af heildsöluverðmæti. Á því verðlagsári sem nú er að ljúka hefúr hlutfall tilboðskjöts minnkað niður í um 900 tonn, eða um og inn- an við helming þess sem það var á árunum 1989/1990 og aðeins rösk- lega þriðjung af tilboðssölu síðasta verðlagsárs. Og niðurgreiðslur á þessu verðlagsári hafa þó minnkað enn meira, eða niður í 40 milljónir kr. Bent er á, að í framangreindum töl- um um sölusamdrátt „er eftir að taka tillit til aukins magns af heima- slátruðu kjöti á markaðnum, sem flestir eru sammála um að hafi auk- ist verulega." - HEI HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI Staöa heilsugæslulæknis er hér meö auglýst laus til umsóknar. Stööunni fýlgir 25% aðstoöarlæknisstaöa hjá FSÍ. Umsækjandi þarf að vera sérfiræðingur í heimilislækn- ingum. Umsóknarfrestur er til 30. september 1993 og umsókn- um skal skila á þar til gerðum eyðublööum. Staðan er veitt frá 1. nóvember 1993 eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Einar Axelsson, yfirlæknir HFÍ, í símum 94-4500 og 94-4307. Heilsugæslustöðin ísafiröi. £júferahúsid í Húsnvík s.f. Hjúkrunarfræðingar Deildarstjórí óskast frá 1. október næstkomandi á 30 rúma blandaða sjúkradeild. Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar eöa eftir sam- komulagi. Komið ( heimsókn eða hringið og kanniö aðstæður og aöbúnað. Upplýsingar veitir Aldís Friðriksdóttir hjúkrunarforstjóri í sfma 96-41333.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.