Tíminn - 09.09.1993, Side 6

Tíminn - 09.09.1993, Side 6
6 Tíminn Fimmtudagur 9. september 1993 ísland sigraði Lúxemborg með minnsta mun í gær 1-0. En samt: Mikíir yfirburðir íslenska A-landsliðið í knattspymu sigraði lið Lúxemborgar í gærkvöldi á Laugardalsvelli með minnsta mögu- lega mun eða 1-0. Þrátt fyrir aðeins eins marks sigur var sigur íslands aldrei í hættu enda voru yfirhurðimir miklir. Þessi sigur landans þýðir að bestum árangri í undankeppni HM er náð eða sem nemur 50%. Sigurinn þýðir líka að góður möguleiki er á að Island færíst upp um styrkleikaflokk þegar raðað verður í Evrópukeppni landsliða í haust. íslendingar voru meira með boltann í fyrri hálfleik og oft var góða spila- mennsku að sjá. Liðið hélt boltanum vel og oft á tíðum gekk boltinn manna á milli án þess að leikmenn Lúxem- borgar kæmu við boltann. En þessi góða spilamennska bar ekki árangur þegar komið var að vítateig andstæð- inganna enda vöm Lúxemborgara þétt fyrir. Það vantaði að sóknarmenn ís- lendinga reyndu að spila sig fría og bjóða sig og það varð oft rauninn að miðjumenn liðsins þurftu að gefa sendingar upp homin sem einfaldlega ekki gengu upp. Amór Guðjohnsen fékk þrjú tækifæri í fyrri hálfleik til að gera mark og það hættulegasta á loka- mínútunni þegar hann skallaði af markteig en markvörður Lúxemborg- ara, Paul Koch, varði vel en sendingin til Amórs kom frá Ólafi Þórðarsyni. Sóknarþungi íslendinga var meiri í seinni hálfleik og til að mynda fengu þeir á annan tug homspyma en enga í fyrri hálfleik. Amar Gunnlaugsson fékk dauðafæri á 49. mínútu á miðj- um vítateignum en viðstöðulaust skot hans fór framhjá. Sigurmark leiksins kom síðan á 54. mínútu. Rúnar Krist- insson þmmaði þá að marki en mark- vörður Lúxemborgara varði en missti boltann frá sér. Þórður Guðjónsson náði þá boltanum og sendi á Amar Gunnlaugsson sem var felldur við markteiginn og færeyski dómarinn, Nemus Napoleon Djurhuus, dæmdi umsvifalaust vítaspymu. Haraldur Ingólfsson tók vítið og skoraði ömgg- lega. Þetta var markið sem gerði gæfumuninn í leiknum og tryggði ís- lenska landsliðinu þriðja sætið í riðl- inum og svo ofarlega hefur fslenskt landslið aldrei lent. Vamarmennimir Hlynur Birgisson og Guðni Bergsson fengu báðir ágæt færi til að skora á lokamínútunum en skot þeirra misstu marks. Sigurður Jónsson var bestur í ís- lenska liðinu og tapaði aldrei návigi og er geysilega mikilvægur fyrir liðið, bindur saman vöm og sókn. Haraldur Ingólfsson var góður á vinstri kantin- um og átti nokkrar góðar sendingar sem oft gerðu usla í vöm Lúxemborg- ar. Guðni Bergsson var sterkur í vöm- inni og fór ekkert framhjá honum. Birkir Kristinsson hafði lítið að gera og fékk td. aðeins þrjú skot á sig í fyrri hálfleik, ef skot skyldi kalla. Aðrir leik- menn liðsins gerðu of mörg mistök og hefðu getað valdið vandræðum ef and- stæðingamir hefðu verið sterkari. Ás- geir Elíasson verður án efa ráðinn áfram sem þjálfari liðsins enda árang- ur hans sá besti frá upphafi. Annað væri KSÍ til vansa. Théo Malget var bestur Lúxemborg- ara. Fjölnir og Höttur í þriðju deild Fjölnir og Höttur tryggðu sér í gær- kvöldi sæti í þriðju deild. Höttur lagði Ægi að velli á Egilsstöðum 5-4, en Höttur vann einnig fyrri leikinn 2-0. Þegar tíu mínútur voru til leiks- loka var staðan 1-4 Ægi í vil, en heimamenn náðu að skora fjögur mörk. Mörk Hattar gerðu þeir Hörð- ur Guðmundsson, sem gerði tvö, og þeir Heimir Hallgrímsson, Grétar Eggertsson og Leifur Sveinsson eitt mark hver. Á Fáskrúðsfirði sigruðu Fjölnismenn, KBS 2-1 en þeir unnu einnig fyrri leikinn 5-1. Þeir Þor- valdur Logason og Jón Þór Þórisson gerðu mörk gestanna en Vilberg Jónasson gerði mark KBS. Tíminn óskar Fjölni og Hetti til hamingju með árangurinn. Fjölnir leikur í fyrsta sinn í þriðju deild, en Höttur lék síðast í þriðju deild árið 1981. Getraunir: ÍA og KR á alþjóðlegum getraunaseðli Á mánudaginn hefst sala á fyrsta Eurotips seðli ársins sem á em 14 valdir leikir úr Evrópuknattspym- unni sem leiknir verða 15. og 16.september. Að þessu sinni taka Austurríkismenn, Danir, Svíar og ís- lendingar þátt í Eurotips og verða með sameiginlegan fyrsta vinning en einnig verður greitt fyrir 2., 3. og 4. vinning á íslandi. Alls verða átta Eurotips seðlar fyrir áramót. Á þess- um fyrsta seðli em tvö íslensk fé- lagslið, KR sem tekur þátt í Evrópu- keppni félagsliða og mætir MTK Búdapest 16. september klukkan 17.30 á KR-velIi og ÍA sem mætir Feyenoord á Laugardalsvelli klukk- an 20 þann 15. september. Þeir sem ætla að tippa á þessum seðli verða að hafa skilað getraunaseðlinum fyrir klukkan 16.55 þann 15. september. Amar Gunnlaugsson stóð sig þokkalega og fiskaði m.a. vítaspymuna sem tryggði fslendingum sigur. Tímamynd Pjetur Frjálsar íþróttir-10.000 m hlaup: Junxia setti heimsmet Kínverska stúlkan Wang Junxia setti í gærdag heimsmet í 10.000 m hlaupi á frjálsíþróttamóti í Beijing í Kína. Junxia hljóp metrana tíu þús- und á 29.31,78 mínútum og var þar Franska knattspyman: Mónakó í staó Marseille Það verður lið Mónakó sem tekur sæti Marseille í Evrópukeppni meistaraliða en upphaflega átti Mó- nakó að keppa í keppni félagsliða. Andstæðingar Mónakó, sem lenti í 3. sæti f frönsku knattspymunni í fyrra, verða grísku meistaramir AEK Aþena. Auxurre tekur sæti Mónakó í keppni félagsliða en í gær var talið líklegt að Auxurre tæki sæti Mar- seiile en svo varð nú ekki. með fyrst kvenna til að hlaupa vega- lengdina á undir 30 mínútum. Gamla metið á átti norska stúlkan Ingrid Kristiansen sem var 30.13,74 og var það met sett fyrir sjö árum. Árangur kínverskra stúlkna í ýms- um hlaupum að undanfömu hefur vakið mikla athygli en eins og kunn- ugt er sigmðu kínverskar stúlkur í 1.500 m, 3.000 m og 10.000 m hlaupum á síðasta heimsmeistara- móti í Stuttgart. Leiddar hafa verið líkur að því að að kínversku stúlk- umar neyti ólöglegra lyfja til að ná góðum árangri. Kínversk íþróttayf- irvöld halda því hinsvegar fram að kínverskar stúlkur þoli miklar og harðar æfingar mun betur og það spili líka inn í að t.d. Junxia sé frá þorpi sem er langt yfir sjávarmáli og því sé þol hennar mikið og það sé fyrst og fremst ástæðan fyrir frábær- um árangri þeirra. r HM í handbolta: ísland vann Grikkland íslenska landsliðið í handbolta, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, sigraði það gríska í gær 32-20 á HM. Staðan í hálfleik var 18-10. Páll Þór- ólfsson gerði 8 mörk, Dagur Sig- urðsson 6, Patrekur Jóhannesson 5 og Aron Kristjánsson 5. Ingvar Ragnarsson markvörður var besti maður liðsins og varði 18 skot. Undankeppni HM: Úrslit 1. riðill Skotland-Sviss...........1-1 Staöan Sviss.........8 5 3 019-513 Portúga!.......74 2 114-410 Ítalía........74 2 1 15-6 10 Skotland......8 3 3 2 10-9 9 Malta.........9117 3-213 Eistland......7016 1-171 Nssti leikun 22. sept. Eist- land-ítalfa 2. riðill England-Pólland..........3-0 Staðan Noregur......752 020-3 12 England .........8 4 3 1 19-6 11 Holland......7 3 3 1 17-8 9 PóIÍand......63 21 8-6 8 Tyrkland.....8116 7-17 3 San Marino ....8 017 1-32 1 Næstu leikin 22. sept. San Mar- Íno-Holland, Noregur-Póliand. 3. riðiD Albanía-Danmörk..........0-1 N.írland-Lettland........2-0 Írland-Litháen...........2-0 Staðan írland.......10 73 017-2 17 Danmörk.....10 64 014-1 16 Spánn........9531 18-2 13 Ríriand.....105 2 313-1112 Litháen ....12 2 3 7 8-21 7 Lettland.....12 0 5 7 4-21 5 Albanía.....11 12 8 5-21 4 Næsti leikun 22.sept Albanía- Spánn. 4. riðill Waies-TékkiySlókvakía....2-2 Færeyjar-Rúmenía .. .........,.0-4 Staðan Beigfa ......8 7 01 15-3 14 Rúmenía......8512 25-10 11 TékkL/Sló....834118-9 10 Wales........842 216-1010 Kýpur........8215 8-13 5 Færeyjar....100 0101-38 0 Næstu lefidr: 13. okt Rúmenía- Belgía, Wales-Kýpur. 5. riðfll Ísland-Lúxemborg.........1-0 Ungverjaland-Rússland....1-3 Staðan Rússland.......7 5 2 0 15-3 12 Grikkiand......6 4 2 0 6-1 10 ísland.........83 2 3 7-6 8 Ungverjal......7115 5-113 Lúxemborg......6 015 1-13 1 Nssti leikun 12. okt Lúxem- borg-Grikkland 6. riðill Finniand-Frakkland.......0-2 Búlgaría-Svíþjóð.........1-1 Staðan Frakkland....8 6 1114-5 13 Svíþjóð .....8 521 15-5 12 Búlgaría.....84 2 213-8 10 Austurríki...73 0412-10 6 Finnland ....8 116 4-14 3 fsrael.......7 0 2 5 5-21 2 Næstu leikÍR 13. okt Frakk- land-ísrael, Búlgaría-Austur- ríkí, Svíþjóð-Finnland. Þýska knattspyraan: GÍadbach-Leverkusen ****** v*J2**2 Dortmund-Leipzig.........0-1 Niimberg-Karlsruhe ......1-1 Wattenscheid-Duisburg....0-2 Köin-Dresden.............0-1 Hamborg-Stuttgart........3-2 Eyfólfur Sverrisson skoraði fyrra mark Stuttgart Kaiseslautem-Schalke.....0-0 Frankfurt-Freiburg........3-0 ítalska knattspyrnan: Juventus-Sampdoria........3-1 Atalanta-Reggiana........2-1 Genúa-Cagliari...........1-1 InterMiIan-Cremonese......2-1 Lazio-Parma ......... ..2-1 Lecce-Foggta .......................0-2 Napoli-Torino............0-0 Piacenza-AC Milan........0-0 Udinese-Roma.............0-0

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.