Tíminn - 09.09.1993, Blaðsíða 12

Tíminn - 09.09.1993, Blaðsíða 12
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTT OG FERSKT DAGLEGA reiðholtsbakarí VÖLVUFELU 13-SlMI 73655 labriel HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum Qjvarahlutir Hamarshöfða 1 Tímiiui FIMMTUDAGUR 9. SEPT. 1993 Framkvæmdanefnd um debetkort: Nauðsyn að stemma stigu við vaxandi kreditkortaviðskiptum „Með upptöku debetkorta er m.a. stefnt að þv( að beina greiðslu- háttum í landinu inn á heillavænlegri braut, en segja má að kredit- kortaviðskipti séu orðin meiri en æskilegt getur talist. (f þeim eru Islendingar orðnir margfaldir heimsmeistarar) Það er í raun aö verða mjög nauðsynlegt að stemma stigu við hratt vaxandi kredit- kortaviðskiptum, sem hafa íþyngjandi áhrif á rekstur kaupmanna og munu að óbreyttu kosta enn meiri þjónustugjöld en greidd eru i dag.“ Þessi athyglisverða lýsing á íslensk- um kreditkortaviðskiptum kemur fram í „Nokkrum staðreyndum" frá Framkvæmdanefnd um debetkorL Nefndina skipar framkvæmdastjóri Visa-ísland, Einar S. Einarsson, ásamt bankastjórunum Halldóri Guðbjam- arsyni og Bimi Bjömssyni. Markmið þessarar nefndar er að „selja" þjóðinni debetkort Þau eiga nú að hafa til að bera alla þá ofurkosti, sem kreditkortunum hafa verið eign- aðir til þessa auk fjölda annarra. Nefndin boðaði fréttamenn fyrirvara- laust til fundar í gær í kjölfar heilsíðu- auglýsingar í Mogga; „Látum ekki ráð- ast að okkur með korti og klóm“. En þar skora Kaupmannasamtök íslands og fjöldi stórra samstarfsaðila þeirra á neytendur og kaupmenn að standa gegn einokunarhugmyndum bank- anna, sem hyggist spara sér 800-900 milljónir með upptöku debetkorta. fs- lenskur almenningur verði hins vegar að afla sér allt að 1.400 milljóna við- bótartekna til að standa undir viðbót- arkostnaði vegna kortanna. Nefndin segir stefnt að því að koma kortunum sem fyrst á markað, væntanlega í október eða nóvember. Seljendum vöm og þjónustu verður gert að greiða 0,5-1,596 þjónustugjald vegna viðskiptanna. En neytendur verða mkkaðir um 800- 1.200 kr. fast árgjald og þess utan 10 króna gjald vegna hverrar greiðslu með kortinu (þ.e. millifærslu af reikningi neytanda inn á reikning seljanda). Þótt debetkortanefndin segi að fólk muni hafa frjálst val, verður ekki bet- ur séð en debetkortunum verið troðið inn á hvem mann, hvort sem hann vill eða ekki. Ekki aðeins ætla bankamir a.m.k. að þrefalda kostnað neytenda af hverjum notuðum tékka (í um 30 kr. af þeim 55 sem hann er sagður kosta). Heldur mun það væntanlega hafe enn meira afgerandi áhrif að bankamir ætla að afleggja núverandi bankakort. Nefndarmenn viðurkenna að það verði til þess að nær enginn muni taka við tékka frá öðmm en þeim sem geta framvísað debetkorti. Fólki sem vinn- ur á algengasta vinnutíma og kemst þar með ekki í banka á afgreiðslutíma til að taka út peninga virðist því tæp- ast komast hjá að kaupa sér debetkort. Á debetkortanefndarmönnum var að skilja að allir ættu að græða á nýjung- inni. „Debetkortin munu þegar á allt er lit- ið kosta neytendur svipað og tékkavið- skiptin núna og kaupmenn og þjón- ustuaðila fljótlega — minna en ekki neitt!" Blaðamaður Tímans fær hins vegar ekki betur séð en að neytendur sem notað hafa tékka í hófi muni hafa a.m.k. þrefalt meiri kostnað af notkun debetkorta en þeir hafi af notkun tékka nú. En áframhaldandi hófleg tékkanotkun verði hins vegar a.m.k. fimm sinnum dýrari en til þessa — þ.e. ef fastagjald fyrir debetkort er reiknað með. Að viðskiptin kosti „minna en ekki neitt" fyrir kaupmenn og þjónustuað- ila byggist hins vegar á þeirri spá debetkortanefndar að staðgreiðsluvið- skipti muni stórlega vaxa. Fólk muni þannig á föum árum færa nærri helm- „Athugun hefur sýnt að kostnaður við hvem tékka sé f kringum 55 krónur eöa jafnvel melri, en neytendur borga nú bara 10 krónur," sagöl Halldór Guðbjamarson, bankastjóri og formaður debetkortanefndar, sem hér er ásamt Elnart S. Einarssyni, framkvæmdastjóra Visa island. Tfmamynd Áml BJama ing þess sem það ella greiðir með kreditkortum yfir á debetkortin. Minnkandi þjónustugjöld og vaxta- kostnaður af kreditkortaviðskiptum muni því gera meira en vega upp á móti kostnaði kaupmanna af debet- kortaviðskiptunum. Það má hins vegar velta fyrir sér, hvers vegna almennur neytandi skyldi ffekar staðgreiða með debetkortinu sínu og þurfa að borga 10 kr. fyrir, en að borga með kreditkortinu sínu og fá þannig úttektina lánaða vaxtalaust í allt að 45 daga og án sérstaks þjón- ustugjalds? - HEI Lyst hf. lætur undan innlendum og norrænum þrýstingi og mun inn- heimta lögboðin gjöld af starfsmönnum: Samið til að tryggja frið „Staðan var orðin þannig að við áttum orðið afskaplega erfitt með að ganga ekki til svona samkomulags. En ég vona aö þetta verði góð lausn fyrír báða aðila. Við erum raunverulega að ganga að þeirra kröfum til þess að fá frið til að opna okkar veitingastað. Við eigum eftir að ganga til sérkjarasamninga við FSV sem hentar eðli okkar starfsemi. Þannig að við erum bjartsýnir á að þetta sé komið Deila Lystar hf. við Félag starfsfólks í veitingahúsum virðist vera leyst. Fyrirtækið hefur ákveðið að ganga að kröfum verkalýðshreyfingarinnar og ætlar að innheimta stéttarfélags- gjald, sjúkra- og orlofssjóðsgjald. Svo virðist sem hótanir norrænna verkalýðsfélaga um aðgerðir gegn McDonalds hér heima og ytra hafi ráðið úrslitum í þessari deilu. Að mati forráðamanna Lystar hf. voru of miklir hagsmunir í húfi og því létu þeir undan kröfum verkalýðs- hreyfingarinnar. Á samningafundi forráðamanna Lystar hf., umboðsaðila McDonalds á íslandi í gær með fulltrúum frá Fé- lagi starfsfólks í veitingahúsum og ASÍ var gert samkomulag um að ganga til samninga um kaup og kjör starfsmanna Lystar hf. á grundvelli almennra kjarasamninga og laga. Jafnframt óskaði Lyst hf. eftir því að gengið yrði til sérkjarasamninga um tiltekin atriði vegna eðlis starfsemi fyrirtæksins og hefjast þær viðræður væntanlega í dag. Ingvar Ásgeirsson, aðstoðarveit- ingastjóri McDonalds á fslandi, segir að það sé erfitt að segja til um hvort þessi slagur við verkalýðshreyfing- una hafi skaðað fyrirtækið og þá sér- staklega ímynd þess. Hann segir að þetta hafi allavega ekki verið sú aug- lýsing sem fyrirtækið hafi verið að sækjast eftir. -grh ...ERLENDAR FRÉTTIR... JERÚSALEM — Lögreglan beítti háþrýstivatnsbunum og kylfum til að dreifa mörg þúsund gyðingum sem lokuðu götum við skrifstofur forsæt- isráðherrans til að láta I Ijós and- stöðu slna við friðarsamning Israela við PLO. MÚSKAT — Jassir Arafat, leiötogi PLO, hefur kennt skilyrðum fsraela um að hafa valdið töfum á gagn- kvæmri viöurkenningu PLO og Isra- ela. WASHINGTON — Þegar aðeins voru eftir tveir dagar af núverandi lotu friöammræðna I Miö-Austur- löndum tilkynntu samningamenn Israela og Sýriendinga að engin lausn hefði fundist I þrátefli þeirra um Gólanhæðir. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR — Alija Izetbegovic, Bosniuforseti, leggur málstað sinn fyrir Bandarlkjaforseta til að ná betri friðarsamningum fýrir múslima, jafnvel þó að það heföi I för með sér loftárásir á Serba um- hverfis Sarajevo. Hann hvatti örygg- isráðiö til aö hóta loftárásum til að koma á tafariausu vopnahléi og beita valdi gagnvart þeim sem hindra ferðir flutningalesta með hjálpargögn. SARAJEVO — Bardagar geisuöu I hverfi múslima I borginni Mostar ( suðvesturhluta landsins og sjúkra- húsið á staðnum var sneisafullt að þvl er útvarpiö f Bosnlu hermdi. Átta manns vom drepnir. S.þ. sagöi aö allir þrfr strfðsaðilam- ir I Bosnlu starfræktu fangabúðir og vlsuðu til mddalegra og niðuriægj- andi aöstæöna I búðum þar sem Bosnlu-Króatar hafa keppinauta slna, múslima, I haldi. TASHKENT, Úzbeklstan — Fimm- tán flóttamenn hafa verið myrtir I fyrrverandi sovéska lýöveldinu Tad- sjikistan sem hindrar tilraunir S.þ. til aö koma aftur til slns heima tugum þúsunda Tadsjika sem flýöu til Afg- anistan eftir borgarastriöið I fyrra, að sögn embættismanna S.þ. NÝJA DELHI — Yfir 15 milljónir verkamanna og bænda um allt Ind- land ætla I eins dags verkfall I dag til aö mótmæla efnahagsumbóturn sem þeir óttast að fækki störfum og dragi úr niðurgreiðslum til bænda- býla. RlGA — Jóhannes Páll páfi kom til Lettlands frá grannlandinu Litháen I gær I öðmm áfanga vikulangrar ferðar um Eystrasaltslöndin sem hmn kommúnisma Sovétrlkjanna gerði mögulega. WASHINGTON — Yfirvöld I Rúss- landi hafa afhent skjöl sem gefið er til kynna að sýni fram á að Norður- Vletnamar hafi haft I haldi mörg hundmð fleiri bandarlska strlös- fanga á ámnum upp úr 1970 en þeir viðurkenndu, að sögn bandariska hermálaráðu- neytisins. JÓHANNESARBORG — Suður- Afrikumenn stigu stórt skref I átt til lýðræöis I gær þegar samþykkt vom lög til að koma á fót fjölflokkastofn- un til aö hafa eftiriit með þróun fram aö kosningum allra kynþátta I apríl nk. EDINBORG — Fjórar milljónir kvenna munu deyja úr eyðni á árinu 2000, og meira en ein milljón mun smitast á llöandi ári einu, að þvf er háttsettur embættismaður Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar sagði I gær. AGOO, Fllippseyjum — Mörg þús- und Filippseyingar buðu monsún- rigningum birginn og flykktust til Agoo-bæjar I norðurhluta landsins I þeirri von aö koma auga á það sem sjáendur halda fram að sé enn ein sýnin á Marlu mey. DENNI DÆMALAUSI vn „Þú ætti að verða þér úti um vasapeninga og pa þarftu ekki vandræðast við að gera þessar fjárhags- og tekjuáætlanir. “

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.