Tíminn - 22.09.1993, Side 2

Tíminn - 22.09.1993, Side 2
2 Tíminn Miðvikudagur 22. september 1993 Horfur á að bændur verði að farga tíundu hverri kind í haust: Greiðslumark til sauðfjárbænda verður 7.670 tonn Landbúnaðarráðherra hefur samkvæmt tillögu framkvæmdanefnd- ar búvörusamninga ákveðið að greiðslumark til sauöfjárframleiö- enda haustið 1994 skuli vera 7.670 tonn. Þetta er um 6% minna greiðslumark en er á þessu hausti. Greiðslur til bænda munu mið- ast við 7.400 tonn þar sem 270 tonn, eöa sem svarar 55 milljónum króna, fara til afsetningar innanlands á birgðum kindakjöts. Greiðslumark á þessu hausti er 8.150 tonn. Skerðingin er því 480 tonn. Þetta segir hins vegar ekki alla sög- una. Beinar greiðslur til bænda koma til með að miðast við 7.400 tonn þar sem 270 tonn fara til að kosta afsetningu birgða kindakjöts sem safnast hafa upp vegna sölusam- dráttar. Mismunurinn á 8.150 tonn- um og 7.400 tonnum er 750 tonn. Þetta er um 9,2% samdráttur. Þetta þýðir að bóndi sem á 400 ær verður að slátra um 40 ám í haust. Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, sagðist sætta sig við niðurstöðu búvöru- samninganefndar, en sagðist þó ekki vera yfir sig ánægður með hana. TII- laga Framleiðsluráðs var að greiðslu- markið yrði ákveðið 7.800 tonn. Fulltrúar bænda héldu fast í þessa tölu og því dróst að ganga frá greiðslumarki, en það á lögum sam- kvæmt að liggja fyrir 15. september. Um tíma var talið líklegt að bændur myndu fara með málið í gerðardóm en til þess kemur ekki. Ágreiningurinn um greiðslumarkið snerist ekki síst um hvemig ætti að taka tillit til kjötútsölu sem ríkið stóð fyrir í fyrrahaust. Bændur töldu að í forsendum útreikninga greiðslu- marksins viktaði kjötsala á fyrstu sex mánuðum þessa árs of mikið. Hauk- ur sagði að menn hefðu orðið sam- mála um að nota áfram þá reikni- formúlu sem nú hefði verið notuð. Það þýddi að ef sala á þessu verðlags- ári hefði verið vanmetin þá kæmi hún bændum til góða síðar. Haukur sagði að fúlltrúar bænda f búvörusamninganefnd hefðu látið bóka að þeir myndu áfram reyna að sækja til ríkisins fjármagn sem bændur telja að ríkið skuldi bændum vegna kjötútsölunnar frá því í fyrra. Þar er um einar 50 milljónir að tefla. Búvörusamninganefnd bókaði einn- ig sameiginlega að við mótun reglu- gerðar um greiðslu atvinnuleysis- bóta til sjálfstætt starfandi atvinnu- rekenda yrði að taka tillit til bænda, en bændur hafa í nokkur ár greitt tryggingagjald í Atvinnuleysistrygg- ingasjóð án þess að eiga kost á því að fá atvinnuleysisbætur. -EÓ Stéttarfélag verkfræðinga segir að nokkuð sé um að raflagnir séu hannaðar af mönnum sem ekki hafa menntun til þess: Sveitarfélög brjóta ákvæði byggingarlaga Stéttarfélag verkfræðinga hefur sent öllum sveitarfélögum f landinu bréf þar sem þess er krafist að ákvæði byggingariaga um menntun bygg- ingafulltrúa verði virL Félagið telur sig hafa heimildir fyrir því að stun félög bijóti byggingarlög. Félagið segir ennfremur að við raflagna- hönnun séu ákvæði byggingarreglu- geröar þverbrotin. Frá þessu er greint í fréttabréfi Stéttarfélags verkfræðinga. í 21. grein byggingarlaga segir að byggingafulltrúi skuli vera arkitekt, byggingafræðingur, byggingatækni- fræðingur eða byggingaverkfræðing- ur. Verkfræðingar telja sig hafa heim- ildir fyrir því að þessu ákvæði sé ekki framfylgt í öllum sveitarfélögum og Jress vegna hafi öllum sveitarstjóm- um verið send skrifleg mótmæli. Verkfræðingar telja einnig að ákvæði byggingarreglugerðar séu þverbrotin við hönnun raflagna. í reglugerðinni segir að aðaluppdrætti og séruppdrætti af húsum og öðmm mannvirkjum megi einungis gera arkitektar, byggingafræðingar, tæknifræðingar og verkfræðingar, hver á sínu sviði. Verkfræðingar segja að eins og stað- an sé í dag hanni rafvirkjar og raf- virkjameistarar raflagnir í stómm stfl. Dæmi séu um að arkitektar hanni raflagnir og leggi inn hjá bygg- ingafulltrúum og rafveitum til sam- þykktar, en arkitektar hafi enga þekk- ingu á rafmagni. Stéttarfélag verk- fræðinga hefur hafið aðgerðir til að koma í veg fyrir þetta. -EÓ Hætta skal að miða lán við lánskjaravísitölu „Neytendasamtökin telja mikilvægt aö eigið fé heimilanna, ein- staklinganna og fyrírtækjanna sé ekki eyðilagt með því að gervi- heimur lánskjaravísitölunnar fái óhindrað að eyðileggja íslenskt efnahagslíf," segir m.a. í nýlegrí samþykkt samtakanna um afnám vísitölubindingar lána. NS telja nauðsynlegt að nú þegar verði hætt að miða lán við lánskjara- vísitölu eða þá að útreikningi vísitöl- unnar verði breytt svo að hún mæli allar breytingar, lækkanir jafnt sem hækkanir á markaðnum, enda sé önn- ur viðmiðun röng. Neytendasamtökin benda á að vaxta- taka af lánum sem bundin eru láns- kjaravísitölu sé óeðlileg. Þannig séu vextir á greiðsludegi miðaðir við upp- færðan höfuðstól í stað þess að reikna breytingu höfuðstólsins yfir allt tíma- bilið. „Þetta þýðir að því hærri sem verðbólgan er, þeim mun meira er vaxtaokrið". Neytendasamtökin hafa bent á að skuldir íslenskra heimila hafi vaxið gífurlega á undanfömum árum. Ástæða þess sé m.a. sú, að þorri fjár- festingalána sé bundinn lánskjaravísi- tölu. Á sama tíma og fasteignaverð lækki og dragi úr hagvexti með með- fylgjandi kjararýmun þá hækki láns- kjaravísitalan. Þetta stafi af því að við útreikning vísitölunnar séu mikilvæg- ir þættir undanskildir, svo sem verð- breytingar á fasteignum. „Neytendasamtökin telja gildandi reikningsgmndvöll lánskjaravísitöl- unnar rangan og telja jaftiframt ólík- legt að hægt sé að finna reiknings- gmndvöll fyrir slíka vísitölu sem mæli allar þær hræringar sem gerast á markaðnum. Því er hætta á að lang- varandi vísitölubinding leiði til stöðn- unar og afturfarar, svo sem raun hefur orðið hér á landi.“ -HEI Þór Jónsson, nýráðinn ritstjóri Tfmans. Tímamynd Pjetur. Þór Jónsson, nýráðinn ritstjóri Tímans: Ætlunin er að ná til breiðari „Þetta verkefni leggst Ijómandi vel í mig og ég hlakka til að taka til starfa. Það verður ekki umbylting á blaðinu heldur þróun og ég hef trú á að sígandi lukka sé best,“ segir Þór Jónsson, ný- ráðinn rítstjórí Tímans, sem ætlar blaðinu að ná til breiðarí hóps en veríö hefur á miðju og vinstrí væng stjómmálanna. Hann segir að fréttastefna blaðsins eigi aö vera óháð öllum hagsmunaöflum. Hann segist ekki hafa heyrt að til standi að breyta nafni blaðsins. Eins og komið hefur fram gekk stjóm Mótvægis, útgáfufélags Tím- ans, frá ráðningu ritstjóra á fundi sínum í gærmorgun og stóð valið á milli Þórs og þriggja annarra um- sækjenda. Þór Jónsson mun taka til starfa á næstu vikum. Hann er 29 ára gam- all og nam fjölmiðlafræði við Blaða- mannaháskólann í Stokkhólmi og lauk þaðan prófi vorið 1991. Hann var blaðamaður á Tímanum árin 1986 til 1988 og var fréttaritari Stöðvar 2 og Bylgjunnar 1990 til 1992. Þór vill að Tíminn nái til breiðari hóps en verið hefur. „Ég álít að skortur sé á blaði með þessum breiða grundvelli þar sem eigi að- gang fólk sem alla jafna á ekki greið- an aðgang að öðrum öflugum fjöl- miðlum. Þá er ég að tala um fólk á þessu sviði stjómmála á miðju og vinstra megin við miðju," segir Þór. Um fréttastefnu blaðsins segir Þór: „Hugmyndin er sú að ritstjóm frétta sé óháð og hún verður að þora að beina spjótum sínum hvert sem er. Það er ritstjóra að standa vörð ásamt fréttastjóra um það sjálfstæði gagnvart alls konar hagsmunaöflum og þá ekki síst eigendum þessa blaðs.“ Þór vísar til þess að oft hafi frétta- stefna blaðsins þó verið hörð og boðar þá steftiu áfram. „Ég tel hins vegar nauðsynlegt að þetta sjálf- stæði sé fyrir hendi og að blaðið verði vettvangur fyrir miðju- og vinstrifólk og aðra hópa," bætir hann við. Þór segir að jafhvel þó að vilji hafi staðið til að gera álíka breytingar áður á blaðinu, hafi það liðið fyrir það að vera flokkspípa og enginn hafi treyst því að blaðið væri opið. hóps „Þetta traust þarf að ávinna sér og virðingu til þess að breiðfylking geti myndast um blaðið. Þetta hefúr ver- ið flokksmálgagn og það hefur ekki farið fram hjá neinum," segir Þór. Hann vill lítið tjá sig um á þessu stigi hvaða útlitsbreytingar lesend- ur Tímans munu geta átt von á en segir þó að byrjað verði á að létta út- lit blaðsins. „Ég hef kallað það að gefa blaðinu andlitslyftingu," segir Þór en bendir jafnframt á að ekki standi til að umbylta því. „Ég tel rétt að þróa blaðið frá því sem það er núna. Ég er að koma inn í fyrirtæki sem nú þegar er rekið og byggir á vissum gmnni. Hér er ekki ætlunin að beygja af leið og búa til nýtt blað," segir Þór. Um efnistök blaðsins segir Þór: „Þetta á að verða alhliða upplýsinga- miðill. Þama er ætlunin að hafa góða menningarumfjöllun ásamt því að hafa góðar fréttaskýringar." Hann segir að breyttu blaði fylgi óhjákvæmilega mannabreytingar en eins og kunnugt er var starfs- mönnum blaðsins sagt upp störfum á dögunum. Þór segir að þessi mál skýrist á næstunni. -HÞ Formannaskipti í stjórn Mótvægis hf. Jón Sigurðsson hefur sagt af sér stjómarformennsku í Mótvægi hf., útgáfufélagi Tímans. Jíú er lokið mikilvægum fyrsta áfanga í starfi fé- lagsins. Ég taldi rétt að nýr formaður væri í takt við meirihluta stjómar svo og framkvæmdastjóra og ritsljóra í næstu áföngum,“ segir Jón m.a. um ástæður þessa. Jón vildi ekki svan því hvort hann væri óánægður með að ekki skyldi vera talað við alla um- sækjendur um stöðu ritstjóra. Stein- grímur Cunnarsson varaformaður hefur tekið við stjórnarformennsku. Jón segist ekki vera á leið út úr stjóm blaðsins þrátt fyrir þetta. Hann segir að engar deilur hafi verið um afsögn sína. Jón segist hafa haft aðrar hugmyndir um framtíðarhorfúr blaðsins en aðrir í stjóminni og félaginu. Þar vísar hann m.a til greinar sem hann skrif- aði í blaðið þann 14. september s.l. Þar leggur Jón m.a áherslu á efnis- Jón Sigurðsson, fráfarandl stjómarformaður Mótvægls hf. umfjöllun blaðsins sem hann vill kalla greinablað fremur en fréttablað Þar sagði Jón m.a: „Tíminn er að jafnaði vel skrifað blað, ekki hnökralaust að útliti, en yfirleitt vandað að efni og efnismeðferð svo langt sem það nær. Það þari að efla sjálfstraust starfs- manna blaðsins með því að viðra störf þeirra og minnast þess sem vel er gert.“ Þess má geta að Birgir Guðmunds- son, fréttastjóri Tímans, var meðal umsækjenda en umsókn hans hlaut ekki stuðning. Jón tekur fram að- spurður að í því felist á engan hátt vanmat á störfum og hæfileikum Birgis. Fram hafi komið áhersla á að fa utanaðkomandi mann til starfsins. Jón vill taka fram að Þór Jónsson, ný- ráðinn ritstjóri, hefði fengið hreinan meirihluta í stjóminni. „Eg var þátt- takandi í að mynda þann meirihluta og það er enginn ágreiningur um það. Það sem er um að ræða er að ákveðn- um áfanga í starfsemi fyrirtækisins er lokið. Það er nýr áfangi að hefjast," segir Jón. -HÞ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.