Tíminn - 05.10.1993, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 5. október 1993
Tíminn 13
■ DAGBÓK
Sjöttu og síöustu Haust-
tónleikar SeKosskirkju
Tónleikar til minningar um dr. Pál
ísólfsson verða í Selfosskirkju í kvöld,
þriðjudag, kl. 20.30. Hörður Áskelsson
leikur á orgel og Margrét Bóasdóttir,
sópran, syngur.
Efnisskrá: 1. Forspil um sálmalagið
„Hin mæta morgunstundin". 2. Ostinato
et fugetta. 3. Sálmur úr Gullna hliðinu.
4. Chaconne um upphafsstef Þorlákstíða.
5. Maríuvers. 6. Forspil um sálmalagið
„Víst ertu Jesú kóngur klár“. 7. Sálmun
„Víst ertu Jesú kóngur klár“.
Eitt hundrað ár verða liðin frá fæðingu
Páls ísólfssonar þann 12. okL n.k.
Háskólafyrirlestur
Dr. Preben Meulengracht Serensen,
kennari í norrænum fræðum við Háskól-
ann í Árósum, flytur opinberan fyrirlest-
ur í boði Heimspekideildar Háskóla fs-
lands miðvikudaginn 6. október kl. 17.15
í stofú 101 í Odda.
Fyrirlesturinn ber heitið Hvort grætr
þú nú, Skarphéðinn? — Om form og
etik i islændingesagaeme. Hann verður
fluttur á dönsku.
Preben Meulengracht Sorensen var
sendikennari f dönsku við Háskóla ís-
lands 1966-1970. Hann hefur síðan verið
kennari við Árósaháskóla, en einnig
starfað við rannsóknir og kennslu við
háskólana í Óðinsvéum, Ósló og Kali-
fomíuháskóla í Berkeley. Nýlega hefur
hann verið skipaður prófessor í norræn-
um fræðum við Óslóarháskóla og tekur
við því embætti 1. janúar nk. Hann
dvelst nú um mánaðartíma sem gistik-
ennari við Heimspekideild.
Preben Meulengracht Sorensen hefur
verið mikilvirkur þýðandi og bók-
menntagagnrýnandi og hefúr unnið
mikið starf við kynningu íslenskra nú-
tímabókmennta í Danmörku. Rann-
sóknasvið hans er íslenskar fombók-
menntir. Á því sviði hefur hann auk
fjölda greina birt bækumar Saga og
samfund 1977, Norront nid 1980 og nú
síðast doktorsritið Fortælling og ære.
Studier i islændingesagaeme, sem hann
varði við Árósaháskóla í júní sl.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
L.A. í Ieikferð um Norðuriand:
Feröin til Panama
Leikfélag Akureyrar hefur að undan-
fömu sýnt bamaleikritið „Ferðin til
Panama" víðsvegar um Norðurland við
góðar undirtektir ungu kynslóðarinnar,
en frumsýning var í Grímsey 19. septem-
ber sl. Næstu sýningar verða á morgun
miðvikudag (6. okt.) f Þelamerkurskóla
kl. 11 og á Ólafsfirði kl. 15. Á laugardag-
inn kemur verða tvær sýningar á Dalvík,
kl. 14 og 16, og síðan heldur Ieikhópur-
inn sem leið liggur á Austurland og sýn-
ir í næstu viku á Egilsstöðum og Vopna-
firði.
í helstu hlutverkum em Dofri Her-
mannsson, Sigurþór Albert Heimisson,
Anna María Gunnarsdóttir og Aðalsteinn
Bergdal. Ingunn Jensdóttir er leikstjóri
sýningarinnar, Anna G. Torfadóttir er
höfundur leikmyndar, búninga og dýra-
gerva og Ingvar Bjömsson er ljósahönn-
uður.
Afmælis- og
minningar-
greinar
Þeim, sem óska birtingar á
afmælis- og/eða minningar-
greinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur
dögum fyrir birtingardag.
Þær þurfa aö vera vélritaöar.
Augfýsingasímar Tímans
680001 & 686300
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágreraii
í dag kl. 17 í Risinu: Leshópur um Sturl-
ungu. Sagan verður lesin og skýrð.
Kvenfélag Bessastaðahrepps
Fyrsti fúndur vetrarins kl. 20.30 í kvöld í
hátfðasal íþróttahússins. Nýir félagar
velkomnir.
Frá Tónlistarfélagi
Borgarfjaröar
Fimmtudaginn 7. október kl. 21 gengst
Tónlistarfélag Borgarfjarðar fyrir minn-
ingartónleikum í Borgameskirkju um
Pál ísólfsson í tilefrii aldarafmælis hans.
Fram koma Ingibjörg Marteinsdóttir,
Þorgeir Andrésson og Lára Rafnsdóttir.
Flutt verða sönglög eftir Pál, sem þjóð-
in þekkir og ann.
Forvitnileg námskeiö hjá
Rauöa krossinum
Fræðslumiðstöð Rauða kross íslands
hefur gefið út rit sem hefúr að geyma
upplýsingar um námskeið'og fræðslu-
starf á vegum RKÍ, Ungmennahreyfing-
ar RKÍ og deilda, sem eru 50 talsins, á
haustönn. Mest ber á hefðbundnum
námskeiðum sem tengjast skyndihjálp
og almennri fræðslu um Rauða krossinn,
en einnig er bryddað upp á nýjungum.
f byrjun október verður vikunámskeið
fyrir sendifulltrúa í Munaðamesi. Nám-
skeiðið fer fram á ensku og er til undir-
búnings þeim sem hyggja á hjálparstörf á
neyðarsvæðum þar sem stríðsástand rík-
ir eða náttúruhamfarir hafa gengið yfir.
Til þess að verða gjaldgengur sendifull-
trúi er skilyrði að hafa sótt sendifulltrúa-
námskeið. Þá fer fram í byrjun október
námsstefna um alnæmi sem haldin er í
samvinnu við Landsnefnd um alnæmi-
svamir og Alnæmissamtökin.
Fyrirhugað er að halda námsstefnu um
almannavamir. Á henni er fjallað um
heildarskipulag hjálparliðs Almanna-
vama ríkisins. Markmiðið er að útskrifa
flokksstjóra í fjöldahjálparstöðvar. í nóv-
ember verður þráðurinn f stjómunar-
fræðslu fyrir deildir tekinn upp að nýju
þar sem frá var horfið í vor.
Á vegum URKÍ verða haldin tvö grunn-
námskeið, annað fyrir byrjendur en hitt
fyrir þá sem starfað hafa innan vébanda
URKl sem sjálfboðaliðar. Þá verður nám-
skeið fyrir þá sem vilja gerast sjálfboða-
liðar Vinalínunnar. Þátttakendur þurfa
að vera 25 ára eða eldri. Einnig verður
Gambíukvöld þar sem kynnt verður sjálf-
boðastarf ungmenna í Gambíu.
Ástæða er til að minna á, að bókasafn
RKÍ, sem hefur að geyma margvíslegar
upplýsingar um hjálparstarf, þróunar-
mál, skyndihjálp, flóttafólk og fleira, er
opið á venjulegum skrifstofútíma á aðal-
skrifstofu félagsins að Rauðarárstíg 18 í
Reykjavík.
Birgir Bjömsson sýnir
í Gallerí Sævars Karls
f dag, þriðjudaginn 5. okL, kl. 17- 19
opnar Birgir Bjömsson sýningu á mál-
verkum í Gallerí Sævars Karls. Þetta er
önnur einkasýning Birgis í Gallerí Sæv-
ars Karls og ber hún heitið „Nýjar mynd-
ir“.
Birgir er fæddur í Reykjavík 29. janúar
1961. Hann stundaði nám við forskóla
M.H.T. 1981-82, við auglýsingadeild
Myndlista- og handíðaskóla Islands
1982-85 og við Vestlandets Kunstaka-
demi í Bergen 1986-88. Hann fékk styrk
frá Norska utanríkisráðuneytinu og For-
eningen Norden 1987-88.
Hann hefur haldið fjórar einkasýningar
og tekið þátt í þremur samsýningum,
hér á landi og í Noregi.
Sýningin í Gallerí Sævars Karls stendur
til 27. okt. Hún er opin á verslunartíma,
á virkum dögum frá kl. 10-18 og á laug-
ardögum frá kl. 10-14.
Útgáfutónleikar
í Bústaöakirkju
Annað kvöld, miðvikudagskvöld, heldur
hljómsveitin „Guðný og Drengimir" sína
fyrstu útgáfutónleika í tilefni af nýút-
komnum geisladisk og kassettu sem
hlotið hefur nafnið „Sálmur í C“.
Hljómsveitina skipa þau Óskar Einars-
son píanóleikari, Páll E. Pálsson bassa-
leikari og Guðný Einarsdóttir söngkona.
Vart þarf að kynna drengina tvo, en þeir
eru landsfrægir fyrir hæfni sfna á tónlist-
arsviðinu. Guðný Einarsdóttir söngkona
hefur sungið með þeim drengjum um
árabil, en saman hafa þau fengið frábær-
ar viðtökur og dóma þeirra er hlýtt hafa
1
„Sálmur í C“ hefúr að geyma marga af
þekktari sálmum kristinnar kirkju, nú
flutta í nýrri, bráðskemmtilegri djassút-
setningu hljómsveitarinnar. Þeim til að-
stoðar koma fram á disknum og tónleik-
unum þeir Einar Valur Scheving
trommuleikari og Sigurður Flosason
sem blæs í saxófón.
Tónleikamir verða haldnir í Bústaða-
kirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Aðgangur
er ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Þær settu svip
sinn á 20. öldina
í enska vikublaðinu Hello! var
nýlega heilmikil úttekt á konum
sem með einum eða öðrum hætti
hafa skilið eftir sig skýr spor og
sett svip sinn á 20. öldina. I
þeim hópi eru konur sem hafa
látið til sín taka á því sem næst
hvaða sviði sem er. Þar er sagt
frá frægasta kvennjósnara fyrri
heimsstyrjaldarinnar, Mata Hari,
sem galt fyrir með lífi sínu þó að
lítið hafi verið gert úr njósnaaf-
rekum hennar. Þar er sagt frá
þekktum hugrökkum konum,
sem hafa haft brennandi áhuga á
að bæta heiminn og breyta hon-
um og álitið stjórnmálin heppi-
legasta vettvanginn til þess. Og
vettvangurinn sá er ekki hættu-
laus, sumar týndu frelsinu og
aðrar jafnvel lífinu. Og þar er
sagt frá vísindakonum og frum-
kvöðlum á ýmsum sviðum, li-
stakonum. Plássið Ieyfir ekki að
nánar sé skýrt frá þeim öllum í
bili, en smám saman næstu daga
birtum við myndir og nánari upp-
Iýsingar um konur og verk
þeirra, sem ekki mega falla í
gleymsku nú á tímum örrar fjöl-
miðlunar.
R0SA
LUXEMBURG
Rosa fæddist í Póllandi 1871, en
hrökklaðist þaðan vena starfa
sinna í byltingarflokki sósíalista.
Hún settist síðar að í Þýskalandi
þar sem hún lét mikið að sér
kveða í þýska sósíaldemókrata-
flokknum. Hún var kennari í
stjórnmálahagfræði og 1913 gaf
hún út „The Accumulation of
Capital" þar sem hún sýndi fram á
að ómögulegt væri að safna upp
höfuðstól endalaust í kapitalísku
kerfi. Hún ritaði líka ritgerðir, s.s.
„Sozialreform oder Revolution".
Eftir að alþjóðleg samtök sósíal-
ískra flokka og verkalýðsfélaga
(Annað alþjóðasambandið) fór út
um þúfur í fyrra stríði, stofnaði
hún, ásamt Karl Liebknecht,
Spartakusbund (Spartakusbanda-
lagið) sem tók afstöðu með bylt-
ingu og gegn hernaðarsinnum.
Meðan hún varð að dúsa í fangelsi
(1915-1916, 1916-1918), hélt hún
áfram að skrifa og tók aftur til við
byltingarstarfið þegar hún var lát-
in laus í byltingunni í nóvember
1918. Hún hleypti af stokkunum
byltingarblaðinu „Die rote Fahne“
og var meðal stofnenda þýska
Kommúnistaflokksins (1918).
Rósa tók þátt í uppreisn Spartak-
ista (janúar 1919) og var að lok-
um handtekin og ráðin af dögum
þegar uppreisnin var bæld niður í
sama mánuði. Á meðfylgjandi
mynd má sjá Rósu á strætum
Berlínar. Myndin var tekin aðeins
fáum vikum áður en þessi óþreyt-
andi málsvari kommúnismans var
ráðinn af dögum.
Þolinmæðin þrautir vinnur allar
í níu ár beið Haraldur, þá krónprins Noregs, eftir að fá að eiga Sonju
Haraldsen. Biðin var þeim þung — en allt fór vel að lokum. Nú halda
þau upp á 25 ára brúðkaupsafmæli sitt — silfurbrúðkaup. Hamingj-
an geislar af þeim, núverandi konungi og drottningu Noregs.