Tíminn - 07.10.1993, Síða 5

Tíminn - 07.10.1993, Síða 5
Fimmtudagur 7. október 1993 Tíminn 5 Ingibjörg Ólafsdóttir: Það þarf að efla og styrkja Landssamtök hjartasjúklinga Landssamtök hjartasjúklinga eru þessa dagana að nálgast merk tímamót, þ.e.a.s. 10 ára afmælið. í sjálfu sér er 10 ára aldur ekki sérstaklega merkilegur, en við nánari athugun er það ekkert smáræði sem unnið hefur verið í þessum samtökum á þessu tíma- bili. Bjartsýnisfólkið, sem fór í hjartaaðgerðir til London og komst til heilsu á ný, fjölskyldum sínum og allri þjóðinni í heild til heilla, lét ekki deigan sfga, en stofnaði þessi merku samtök. Fyrst og fremst til að halda hóp- inn, styrkja og styðja hvert annað og vinna að málefnum hjarta- sjúklinga. Koma upp aðstöðu til þjálfunar og framhaldsþjálfúnar, fara í gönguferðir saman og síð- ast en ekki síst, reyna að koma af stað og vinna að undirbúningi hjartaskurðlækninga á íslandi. Ná eyrum landsmanna og þá ekki síst forráðamanna þjóðarinnar. Þessir forkólfar áttu góða stuðn- ingsmenn, þar á meðal hjúkrun- arfólk og lækna, sem voru þess vel vitandi, að við áttum af- bragðsfólk til að takast á við verkefnið. Og sigurinn vannsL Árið 1986 fóru af stað fyrstu hjartaaðgerðirnar og strax með mjög góðum árangri, svo að eftir var tekið. Leitað hefur verið eftir því frá grannþjóðum okkar, að senda fólk hingað í aðgerðir og kostnaður við þessar aðgerðir er mun lægri hér en á umræddum stöðum. En við höfum nóg með okkar fólk, og sú sorglega stað- reynd að fækka þurfti s.l. sumar um 2 aðgerðir á viku úr 6 að- gerðum í 4, og að það sé ófram- kvæmanlegt að fjölga aftur í 6 á viku, er í raun og veru illskiljan- legt. Og biðlistinn lengist, en á s.l. vori, þegar þessi fækkun hófst, var þetta mun betra. Það er varla hægt að hugsa þá hugsun til enda, hvað getur gerst, ef svo heldur fram sem horfir. En hvað er til ráða? Það er hæg- ara sagt en gert. Við vitum að efnahagsvandinn er mikill og að mörgu er að hyggja. En við vit- um einnig að samstaða og sam- vinna fær miklu áorkað. Lands- samtök hjartasjúklinga eru lýs- andi dæmi um framtak einstak- linga, sem ákváðu að láta einskis ófreistað til að koma hugmynd- um sínum á framfæri og láta hjólin fara að snúast, og þetta var í rauninni barátta uppá líf og dauða. Það þarf að efla Landssamtökin og félög hjartasjúklinga á hinum ýmsu stöðum á landinu. Þeir þurfa fleiri hjálpartæki og þrek- hjól inn í heilsugæslustöðvamar og fleiri stuðningsmenn inn í hópinn á hinum ýmsu stöðum á landinu. Dagana 8. og 9. október n.k. munu Landssamtökin minnast þessa 10 ára áfanga, og þessi mál verða til umræðu víða og til um- fjöllunar í fjölmiðlum. í dag eru um 2.400 manns félag- ar í Landssamtökum hjartasjúk- linga. í þeim hópi eru bæði hjartasjúklingar og stuðnings- menn þeirra. Landssamtökin eru því opin öllu hugsandi fólki, og óska eftir stuðningi þess. Sam- einaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. Ég óska Landssamtökum hjartasjúklinga allra heilla um ókomin ár. Höfundur er hjúkrunarfræöingur. Leó E. Löve: Auðvitað TÍMINN í öllum heimsálfum bera virtustu dagblöð nafnið Tíminn. Flest eru á ensku, eins og til dæmis The New York Times. Það er að sjálfsögðu til marks um ágæti nafnsins hversu víða það hefur fest rætur og nýtur trausts vinsælda. íslensku hljómar nafnið vel, er stutt og laggott og lýsandi um svo ótal margt sem varðar líðandi stund jafnt sem liðna. Það er því ekkert undarlegt að Tíminn sé öfundaður af nafninu og ýmsir kunni að vilja blaðinu miður vel. Þessar línur eru settar á blað til þess að leiða að því rök, að Tíminn eigi að halda áfram að heita hinu sígilda góða nafni, en heyrst hafa raddir um að einhverjir vilji breyta nafni blaðsins. Verðmæti Svo sem að framan greinir eru verðmæti í hinu góða nafni. Hversu mikið er erfitt um að segja, en líkt og með önnur nöfn eða vörumerki leitast menn við að meta slíkt til fjár við sölu verð- mætisins. Ég var í hinni svokölluðu bráða- birgðastjóm Mótvægis h.f., sem undirbjó breytingu úr útgáfufélagi í einkaeign Framsóknarflokksins í hlutafélag sem almenningur ætti kost á að eiga. Sennilega var ég sá stjómarmanna sem hvað best þekkti til markaðs- setningar og sölu á prentuðu, út- gefnu efni. Var mér því ljóst að erf- itt kynni að vera að sannfæra menn um að verðmæti í eignum Tímans Þessar tínur eru settar á blað til þess að leiða að því rök, að Tíminn eigi að halda áfram að heita hinu sígilda góða nafni, en heyrst hafa raddir um að ein- hverjir vilji breyta nafni blaðsins. væri meira en lá fyrir í áliti aðila sem fengnir höfðu verið til að meta það. Sannfæra, segi ég, því ég taldi að nýja félagið væri að gera mjög góð kaup og því væri fjárfesting í hlutafélaginu vænlegur kostur. Þá var mér bent á að nafnið væri utan við þær fjárhæðir sem nefnd- ar hefðu verið. Til stæði að Fram- sóknarflokkurinn leigði það til óafturkallanlegra afnota. Ástæða þess var sú, að með því móti gæti fyrri eigandi tekið við nafninu að nýju, ætti Mótvægi h.f. ekki fram- tíð fyrir sér, eða vildi selja nafnið, sem þá yrði selt hæstbjóðanda. Ég féllst á að þetta væri sanngjöm niðurstaða. Óháð ritstjóm í fjölmiðlaheiminum hafa grand- varir menn af því áhyggjur að aug- lýsendur reyni að hafa áhrif á fréttamiðlun. Er þetta vegna þess að stórir auglýsendur eru mikil- vægir fyrir afkomu fjölmiðla og í hinum harða heimi viðskiptanna er öllum brögðum beitt. Vegna ýmiss konar þrýstings er fréttastjómm þess vegna oft vandi á höndum. En hvemig verður sá vandi til? Jú, stór auglýsandi hefúr sam- band við fjölmiðilinn og segist munu auglýsa gegn tilteknum skilyrðum, annars muni hann ekki auglýsa. Að þetta sé vandi er öllum Ijóst. En hvemig horfir það við ef aug- lýsandinn segir: Ég ætla að auglýsa hjá ykkur fyrir svo og svo háa fjár- hæð á ári, óháð því hvemig fiöl- miðillinn flytur fréttir sínar eða hagar störfum sínum á annan hátt? Það er jafn Ijóst að hér verður enginn vandi á höndum fyrir fjöl- miðilinn. Það verður ekki reynt að hafa áhrif á hann með hótunum eða öðmm þrýstingi. Þetta er staða Tfmans gagnvart Framsóknarflokknum. Flokkurinn kaupir auglýsingar, óháð því hvað stendur í blaðinu, og borgar fyrir- fram. Tíminn á að heita sama nafni hér eftir sem hingað til. Hann á að vera heiðarlegur gagnvart lesendum sínum sem öðmm; hann á umfram allt að vera sjálfstæður. Engin ástæða er til að ætla ann- að og ég óska blaðinu, lesendum þess öllum, starfsmönnum og ekki síst hinum unga ritstjóra alls hins besta með ferskan, sjálfstæð- an og umfram allt heiðarlegan fjölmiðil. Höfundur er lögfræölngur og forstjóri. Allt í óvissu um Sjálfstæðisflokkinn og formann hans Morgunblaðið birti 3ja blaðsíðna viðtal við Davíð Oddsson forsætis- ráðherra 19. sept sl. Vel ígmndaðar spumingar vom lagðar fyrir hann, en lítið um bein svör. Það er þolin- mæðisverk að lesa langloku af þessu tagi, og þó skulu helstu atriðin rakin f stuttu máli. Fyrst minntust spyijendur, sem vom tveir, á slæma útkomu f nýleg- um skoðanakönnunum. Davíð gaf þá skýringu, að Sjálfstæðisflokkurinn tapi fylgi, þegar hann hefir stjómar- forustu. Ætti ekki að vera erfitt að skilja ástæður þess. Þá var að því vikið af spyrjendum, að fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi far- ið dvínandi með svipuðum hætti og orðið hafi hjá stóm flokkunum í Evrópu, sem reyni að beita nýjum vinnubrögðum. Davíð svaraði því til, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi náð fram sínum málum, sigrað komm- únismann og einnig Sambandið, sem sé ekki lengur ógnvaldur í at- vinnulífinu. Þvf kunni sumir að halda, að hann hafi ekki lengur hlut- verki að gegna. Spyrjendur ítreka, að margir hægri flokkar eigi í vandræðum með sig einmitt vegna hmns kommúnism- ans. Davíð segir: „Varist eftirlíking- ar.“ Alþýðuflokkurinn hafi nefnilega talið sig hafa nálgast stefhu Sjálf- stæðisflokksins, sem hefði því enga stefnu núna. Enn vilja spyrjendur ekki gefa sig og telja nýjar átakalínur vera að myndast, en gamla flokkakerfið að riðlasL Davíð skaut sér á ný bak við Alþýðuflokkinn, sem hann kvað lengi hafa notað þetta áróðursbragð. Gerðist hann nú reiður og sagði, að Alþýðuflokkurinn hafi í fyrsta sinn í stjómarsamstarfinu verið „virkilega óheiðarlegur". Hann bætti því við, að hugtak Sjálfstæðisflokksins um „stétt með stétt" gildi enn og nái til bænda líka. Spurt er þá, hvort Sjálfstæðisflokk- urinn sé orðinn málsvari sérhags- munahópa fremur en heildarsjónar- miða. Davíð svaraði ekki, en masaði almennt um sjávarútveg og land- búnað. Þá kvörtuðu spyrjendur um léleg boðskipti milli flokksfomstu og flokksmanna. Þarviðurkenndi Davíð klaufaskap og ásakaði Morgunblaðið, sem styddi Sjálfstæðisflokkinn ekki eins og áður. Spyrjendur segja erfitt að festa hendur á stefnu flokksstjómar og vilja fá að vita, hver sé hans „pólit- íska sannfæring". Davíð telur enn á ný, að þama sé áróður andstæðing- anna á ferðinni. Nú er Framsóknar- flokkurinn, en ekki Alþýðuflokkur- inn, sökudólgurinn, enda hafi Stein- grímur Hermannsson kallað sig „sjóðvitlausan frjálshyggjumann". Loks er spurt, hvert sé mikilvæg- asta málefni landsfundarins í næsta mánuði. Svar Davíðs: „Landsfundur- inn mun ekki ræða neitt eitt mál.“ Þó kvaðst hann gera sér vonir um, að hugað verði að breytingu á kjör- dæmaskipuninni í átt til hlutfalls- kosninga. En það hefir sem kunnugt er verið aðal baráttumál smáflokk- anna í landinu, sem fá sig síður kosna f kjördæmum. Önnur atriði viðtalsins fjölluðu um dægurmál. „Við höfum farið erfiðu leiðina," sparað, ekki hræddir við breytt EB, etc. Hvað stendur upp úr? Ekkert. Flokksformaðurinn er tómur og hef- ir ekki neitt haldbært fram að færa um stefnu flokks síns eða eigin stefnu. Þetta er gamli borgarstjórinn í Reykjavík, sem vann það eitt sér til ,frægðar“ að byggja tvö óþörf og rán- dýr hús fyrir lánsfé á verðbólgutíma. Fjölskyldur sem kenndar eru við „Kolkrabbann" fylktu liði á síðasta landsfund Sjálfstæðisflokksins til að kjósa hann formann í stað Þorsteins. Hann hefir nú endurgoldið það: flutt skatta frá fyrirtækjum yfir á einstak- linga, brotið niður velferðarkerfið og fellt gengið tvívegis. Allt hefir hækk- að og hækkar enn, nema vinnulaun- in. Samvinnumaður

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.