Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 2. október 1993
Tíminn 3
Af hverju leyfði Gallup ekki Kópavogsbúum og Hafnfirðingum að segja álit sitt á tillögum Umdæmanefndar?
Kópavogsbúar nær öllum öðrum
hrifnari af sameiningu en...
Kópavogsbúum og Hafnfirðingum var ýtt út úr viðamikilli skoð-
anakönnun Gallups á hug landsmanna til sameiningar sveitarfé-
laga. Svör við fýrrí spumingu Gallups leiddi glöggt í Ijós að Kópa-
vogsbúar voru nær öllum öðrum hlynntari því að sveitarfélög sam-
einuöust og stuðningur Hafnfirðinga var líka með mesta móti.
En af einhverjum óskýrðum
ástæðum leyfði Gallup hins vegar
hvorki Kópavogsbúum né Hafn-
firðingum að láta í ljós álit sitt á
tillögum Umdæmanefndar varð-
andi sameiningu þeirra eigin bæj-
arfélaga, þ.e. þeirri tillögu nefnd-
arinnar að þessir bæir skuli ekki
sameinast öðrum.
„Markmið rannsóknarinnar var
að kanna viðhorf fólks til samein-
ingar sveitarfélaga,“ segir í inn-
gangi Gallups í umræddri könnun
sem gerð var fyrir Samráðsnefnd
um sameiningu sveitarfélaga núna
í september sl.
í fyrsta lagi var fólk spurfc Ertu
hlynnt(ur) eða andvíg(ur) samein-
ingu sveitarfélaga í einstökum
byggðarlögum?
Þessari spumingu fengu allir að
svara. Svörin leiddu m.a. í ljós að
með einni undantekningu (Vest-
urlandi) var fylgi við sameiningu
sveitarfélaga hvergi meira en í
Kópavogi. Yfir 84% Kópavogsbúa
sögðust hlynntir sameiningu og
Sameining sveitarfélaga:
Kynning
á Suður-
nesjum
Umdæmisnefnd Suðumesja efnir nú
í október og nóvember til borgara-
funda um sameiningu sveitarfélaga.
Fundur hefur verið haldinn í Höfn-
um en næstu fundir verða í Vogum
14. okfc, Grindavík 18., Sandgerði
25., Garði 4 nóv., Njarðvík 8. nóv., og
Keflavík 11. nóvember.
mjög stór meirihluti (74%) Hafn-
firðinga reyndist sama sinnis.
Vesturland var líka eini Iandshlut-
inn þar sem færri vom andvígir
sameiningu en einmitt í Kópabogi
(7%) og Hafnarfirði (11%).
Önnur spumingin hljóðaði svo:
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) til-
lögum um sameiningu sveitarfé-
laga í þinni heimabyggð?
Athyglisvert er að þessari spum-
ingu fengu hvorki Kópavogsbúar
né Hafnfirðingar að svara og vom
þar með útilokaðir frá því að láta í
ljós álit sitt á eigin sameiningar-
málum, í könnun sem þó er gerð
fyrir Samráðsnefnd um samein-
ingu sveitarfélaga.
Tillögur Umdæmanefndar Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu (SSH) um sameiningar-
mál á svæðinu vom fjórar. Tillaga
tvö hljóðaði svo: „Kópavogur, sem
hefur sveitarfélagsnúmer 1000,
yrði áfram sjálfstætt sveitarfélag."
og fiórða tillagan: „Hafnarfjörður
(1400) verði óbreyttur."
Af því yfirgnæfandi fylgi við sam-
einingu sveitarfélaga sem fram
kom meðal Kópavogsbúa og Hafti-
firðinga í svömm við fyrri spum-
ingunni virðist allt eins mega ætla
að mikill meirihluti íbúa í þessum
bæjum sé mjög andvígur fyrr-
nefndum tillögum Umdæma-
nefndar, þ.e. tillögum um að þeir
skuli ekki sameinast öðmm. Er
það ekki að minnsta kosti merki-
legt að Gallup skyldi ekki gefa
þeim, eins og gefið var íbúum ann-
arra sveitarfélaga, kost á því að Iáta
í ljós álit sitt á tillögum Umdæma-
nefndar?
Hlutfall þeirra sem sögðust
hlynntir sameiningu samkvæmt 1.
spurningu og 2. spumingu var
sem hér segir:
Spurn Spurn
1 2
ReykjavySeltj.nes. .. ....81% 76%
Seltjarnames 47%
Mosfellsbær 67% 60%
GarðabTBessast.hr.. 84% 75%
Kópavogur ....84%
Hafnarfjörður 74%
Suðumes ....78% 69%
Vesturland ....94% 81%
Vestfirðir .... 52% 48%
Nl. vestra ....71% 63%
Nl. eystra ....68% 57%
Austurland ....66% 70%
Suðurland 64% 52%
Suðumes ....78% 69%
Austurland hefur þá sérstöðu að
þar virðast fleiri hlynntir samein-
ingu sinna eigin sveitarfélaga við
önnur en sameiningu annars staðar
á Iandinu. Að öðm leyti er mismun-
ur á svömm við 1. og 2. spumingu
hvergi yfir 13%. Af því mætti álykta,
að meira en 70% Kópavogsbúa og
yfir 60% Hafnfirðinga gætu verið
því hlynntir að sameinast öðmm
sveitarfélögum á sínu svæði, eða fcd.
hverjir öðmm. Almennum bæjarbú-
um virðist hins vegar allar bjargir
bannaðar með að koma skoðunum
sínum á framfæri, þar sem ekki er
gert ráð fyrir að þeir fái að kjósa um
tillögur Umdæmanefndar, og þeim
var ekki einu sinni gefið tækifæri til
að láta álit sitt í ljós í skoðanakönn-
un, sem unnin er fyrir Samráðs-
nefnd um sameiningu sveitarfélaga.
Vestfirðir voru eina kjördæmið þar
sem fleiri (52%) vom andvígir en
hlynntir sameiningu í sinni heima-
byggð. Á Seltjarnamesi vom hóp-
arnir hnífjafnir (47% í hvomm)
og á Suðurlandi var mjótt á mun-
unum því 45% lýstu sig andvíg. Á
Austurlandi var meira en þriðji hver
andvígur. Andstaða var líka töluverð
á Norðurlandi (35% og 28%). Nær
fjórðungur var andvígur samein-
ingu á Suðumesjum og meira en
fimmti hver í Garðabæ og Bessa-
staðahreppi. Aðeins 6. hver Reykvík-
ingur er andsnúinn því að sameinast
Nesinu Mosfellsbæ, Kjalamesi og
Kjós og einungis 10. hver Vestlend-
ingur er á móti sameiningartillög-
um þar. - HEI
Samvinnubókin
8% nafnvextir 8,16% ársávöxtun
Arsávöxtun á síðasta ári var 6,92%
Raunávöxtun á síðasta ári var 5,35%
Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirdinga
*
Dagur frímerkisins
í tilefni af Degi frímerkisins 9. október verður frímerkjasýning í Kringlunni dagana 6.-9. október.
Landgræðsluvélin Páll Sveinsson fer í póstflug frá Reykjavík til
Akureyrar á Degi frímerkisins. í tilefni af því verður sérstakur póst-
stimpill í notkun og verður tekið við bréfum til kl. 13.00 laugard.
9. okt. á pósthúsunum R-1 í Pósthússtræti 5, R-3 í Kringlunni. Auk
þess veitir Frímerkjasalan Ármúla 25 nánari upplýsingar. Einungis
er tekið við ábyrgðarbréfum með sérstöku aukagjaldi (kr. 160),
sem rennurtil Landgræðslu ríkisins.
Á Degi frímerkisins koma út ný frímerki tileinkuð gömlum
flugvélum, svo og frímerkjablokk til minningar um hópflug ítala
fyrir 60 árum. Verður hvorttveggja til sýnis og sölu á sýningunni
í Kringlunni.
DMÍUK KKlMtKKISINX ■t.OKTÖÖEK W5 • \>Xt> KH tvn
FRlMERKJASALAN
PQOTML
IVMthölf K445, 128 Rcykjavík, Siml 636051
PÓSTUR OG SÍMI