Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 7
Laugardagur 9. október 1993
Tíminn 7
biðlaun til baka?
„Ég afsala mér frekari biðlaun-
um.“
Viltu ekki svara spumingunni?
„Ég afsala mér frekari biðlaun-
um. Er það ekki alveg skýrt sam-
kvæmt orðanna hljóðan? Þannig
var það í tilkynningu minni og sé
ekki að það þurfi frekari skýringa
við.“
—Einu sinni sagöi Vilmundur
löglegt en siölausL Ert þú oröinn
sami spillti kerfispólitíkusinn og
Vilmundur gagnrýndi á sínum
túna?
„Ég segi ekki að mér hafi komið á
óvart viðbrögð fjölmiðla og raun-
ar fólks við ýmsum verkum mín-
um hér í ráðuneytinu. Þetta hefur
hins vegar sagt mér að það er
ákaflega auðvelt að gera úlfalda úr
mýflugu og gera aukaatriði að að-
alatriði. Ég hef til að mynda tekið
eftir því í umræðum um þessi
leikskólamál að það hefur enginn
sýnt áhuga á að spyrja Sóknarkon-
una í eldhúsum ríkisspítala hvers
vegna hún hefúr ekki haft forgang
fyrir sín böm í leikskólum ríkis-
spítalanna. Það hefur enginn haft
fýrir því að spytja sveitarstjórnar-
menn út um land sem ekki hafa
notið þessarar þjónustu.“
—Nú er sagt að þetta sé stýri-
tæki spítalanna...
„Hver segir það? Ég er ekki sam-
mála því að þetta eigi að vera
stýritæki spítalanna. Leikskólar
eru fyrir bömin sem á þeim eru."
—Engu að síður hefur það verið
sagt að þetta sé það tæki sem
spítalamir nota til að laða til sín
starfsfólk sem hann annars fengi
ekki.
„Sé þetta hluti af kjömm hjúkr-
unarfræðinga með böm hljóta
75% hjúkrunarfræðinga, sem
ekki njóta þessara kjara og em
bamlausir eða eiga uppkomin
böm, að spyrja hvar þeirra kjara-
bætur séu.“
—Aðrar starfsstéttir Landspítala
eru 30 talsins samkvæmt upplýs-
ingum hjúkrunarforstjóra. Þess-
ar stéttir eiga einnig böra á leik-
skólunum. Hjúkrunarfræðingar
eru fjölmennasta stéttin. Er ekki
eðlilegt að þeir nýti um 50% af
þeim rýmum sem í boði eru?
J’að er ekki þannig. Allir hjúkr-
unarfræðingar sem hafa þörf fyrir
leikskólapláss hafa forgang."
—Nú fer þetta eftir deildum og
það er ekki sama hvar hjúkrunar-
fræðingar ráða sig. Þeim er sagt
að þeir fái ekki dagvistanými
nema þeir séu á ákveðnum deild-
um.
Flestir þeirra starfa því á bráða-
deildum Landspftalans.
„Ég tel það ekki eðlilegt að spítöl-
um sé stjómað á þennan veg. Ef
það þarf að umbuna fólki sérstak-
lega á að gera það fyrir opnum
tjöldum. Það á að taka á þessum
atriðum í kjarasamningum."
—Finnst þér gagnrýni Vilmund-
ar ekkert eiga við, sé Ld. höfð f
huga stöðuveiting forstjóra
Tryggingastofnunar og biðlauna-
þátturinn?
„Ég átti alltaf gott samstarf við
Vilmund. Við unnum mikið sam-
an á Alþýðublaðinu í blaða-
mennsku. Ég ætla ekki að ræða
mál á þessum nótum. Ég hef
stundum sagt: Hvað hefðu fjöl-
miðlar gert hefði Karl Steinar
ekki sótt um TVyggingastofhun?
Það virtist sem fjölmiðlar væm
nánast búnir að afskrifa mögu-
Ieika eins hugsanlegs umsækj-
enda fyrirfram. Ég leit bara ískalt
á málið og fullyrði að Karl Steinar
mun valda þessu verkefni mjög
vel og sé einfaldlega hæfur í þetta
starf. Það er mergurinn málsins.“
lægsta verðið
eða besta búnaðinn
*V/Wl VICT. R WF ASC
486SX/25 MHz 486DSX/33 MHz
innifalið í verði: innifalið í verði:
r • 4MB innra minni 1 J • 4MB innra minni *
• 130MB harður diskur • 107MB harður diskur < 15ms
• Cirrus skjákort, 1MB • Local Bus Cirrus skjákort,1MB
(einnig Local Bus) • 14" 1024x768 Nl, 72Hz,
• 14" 1024X768 Nl, 72Hz, lággeislaskjár, flöktlaus
lággeislaskjár, flöktlaus • 3.5" disklingadrif
• 3.5" disklingadrif • Hljóðlát vifta
• Hljóðlát vifta • 1 árs ábyrgð
• 1 árs ábyrgð
Kynningarverð
Bravo LC-2 486SX/25MHZ
innifalið í verði:
• 4MB innra minni
• 120MB harður diskur < 15ms
• Local Bus Cirrus skjákort, 1MB
• AST14" 1024x768 Nl, 72Hz,
lággeislaskjár, flöktlaus
• 3.5" disklingadrif
• Hljóðlát vifta, 238 pinna PGA sökkull
• 3ja ára ábyrgð
ll
Microsoft Word 2.0 og Excel 4.0
á tilboðsverði með hverri tölvu
kr.39.900.-
og meiri ábyrgð
ef þú vilt
Komdu í verslun okkar eða hringdu í sölumenn
og fáðu nánari upplýsingar
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík Sími 63 3000
Greiðsluskilmálar Glitnis,
Helgi Þórhallsson
Tímamynd Árai Bjaraa