Tíminn - 09.10.1993, Síða 10

Tíminn - 09.10.1993, Síða 10
10 Tíminn dagur. júní 1993 Dagar Dinos Zoff taldir hjá Lazio? Ekkert er leikið í ítölsku 1. deildinni á morgun vegna landsleiks ftala og Skota í næstu viku. Síðasta miðvikudag voru leiknir fyrri leikirnir í 2. umferð bikarkeppninnar á Ítalíu og urðu þar mörg óvænt úrslit Seinni leikimir fara fram 27. október og eiga nokkur 1. deildariið erfitt verkefni fyrir höndum ef þau ætla sér áfram í keppninni. Atalanta Atalanta sigraði 2. deildarlið Cosenza, 2-0, á heimavelli í bikamum. Franc- esco Guidolin beitti nýrri vamarað- ferð í leiknum, spilaði svæðisvöm og leikkerfið 5-3-2, og eftir leikinn sagð- ist hann mjög ánægður með árangur- inn. Mauro Valentini og Simone Pa- van komu inn í vömina í stað Tebald- os Bigliardi og Giuseppe Minaudo og Carlo Perrone kom inn á miðjuna í stað Pierluigis Orlandini. Franck Sauzée kom Atalanta yfir á 32. mínútu með glæsilegu marki og Simone Pa- van innsiglaði sigurinn tveim mínút- um fyrir leikslok. umferð fyrir 3. deildarliði Pemgia og átti þess vegna frí í vikunni. Þeir léku þó æfingaleik gegn utandeildarliði frá Genúa. Claudio Maselli þjálfari er óánægður með sóknarleik sinna manna og hefur ákveðið að gefa Hol- lendingnum John van’t Schip tæki- færi til að sanna getu sína á nýjan leik. Internazionale Inter keppti í Lucca gegn heima- mönnum í Lucchese á miðvikudags- kvöld og komst yfir strax á 3. mínútu þegar Mirko Táccola, fyrrum leikmað- ur Inter, skoraði sjálfsmark. En leik- urinn var flautaður af aðeins sex mín- útum síðar vegna mikillar rigningar. Andrea Silenzl hefur leikið gífurlega vel með Tórínó og hafa heyrst raddir um aö hann eigi skilið sæti i landsliöinu, en Arrígo Sacchi landsliösþjálfari er ekkl á sama máli. Glanfranco Zola, sem nú leikur meö Parma, hefur veríö valinn í ftalska landsllölö aö nýju eftir átján mánaöa fjarveru, en landsliöið mætir Skotum á mlðvlkudag. Cagliari Cagliari átti í miklum vandræðum með 2. deildarlið Cesena á Sardiníu á miðvikudaginn. Liðið var heppið að sleppa með 1-1 jafntefli, en mikil rangstöðulykt þótti af marki Cagliari, sem Julio Cesar Dely Valdes skoraði. Cremonese Cremonese gerði 2-2 jafntefli við ná- granna sína í Brescia á miðvikudag- inn. Luigi Simoni, þjálfari Cremo- nese, lagði mikla áherslu á sóknarleik- inn og spilaði með þrjá menn í fremstu víglínu. Slóveninn Matjaz Florjancic og Argentínumaðurinn Gustavo Dezotti áttu mjög góðan leik ásamt hinum efnilega Andrea Tentoni f framlínunni. Tentoni skoraði síðara mark liðsins í leiknum og er það skoð- un margra að hann eigi heima í lands- liðshópi ítala. Talið er líklegt að hann verði seldur til Lazio eða Juventus fyr- ir næsta leiktímabil. Foggía Foggia fékk 3. deildarlið TViestina í heimsókn, en náði einungis 2-2 jafnt- efli. Foggia stillti upp sínu sterkasta Iiði, að undanskildum Luigi di Biagio, sem er meiddur. Genúa Genúa féll út úr bikarkeppninni í 1. Juventus Juventus náði aðeins jafntefli á heimavelli gegn 2. deildarliði Venezia. Leikurinn endaði 1-1 og það var Ro- berto Baggio sem skoraði mark Iiðsins úr vítaspymu. Króatíski framherjinn Zoran Ban kom inn í liðið í stað Andreas Möller, sem á við meiðsli að stríða. Hann vakti þó ekki mikla hrifn- ingu með frammistöðu sinni, ekki frekar en aðrir leikmenn liðsins. Lazio Lazio tapaði á heimavelli fyrir 3. deildarliði Avellino, 0-2. Nú er talið mjög líklegt að Dino Zoff, þjálfari liðs- ins, verði rekinn, enda hefur liðinu gengið mjög illa það sem af er tímabil- inu. Mikið hefur verið um meiðsli hjá Lazio og undir lok fyrri hálfleiks varð framherjinn Pierluigi Casiraghi að fara af velli vegna meiðsla. f hans stað kom Marco di Vaio, 17 ára framherji úr unglingaliðinu, inn á, en hann átti slakan leik, eins og flestir félagar hans í Lazio. Vömin var sérstaklega slök og greinilegt að liðið þarf að styrkja hana þegar markaðurinn opnar í byrjun nóvember. Búist var við að Paul Gascoigne léki með Lazio í leiknum, þar sem hann var nýbúinn að ná sér af meiðslum á hásin. En á æfingu á þriðjudaginn snéri hann sig illa á hné og verður frá keppni í þrjár vikur í við- bót. Lecce Lecce tapaði fyrir Udinese, 2-0, á úti- velli. Nedo Sonetti, þjálfari Lecce, gaf Davide Torchia, 33 ára markverði, tækifæri á að spreyta sig og hafði Gi- useppe Gatta á varamannabekknum. Eftir leikinn átti Sonetti fund með stjómarmönnum félagsins, þar sem framtíð hans hjá félaginu var rædd. AC Milan AC Milan tók á móti Vicenza á San Siro og sigraði ömgglega, 3-0. Fabio Capello gerði miklar breytingar á liði sínu og leyfði þeim mönnum, sem lít- ið hafa spilað til þessa, að spreyta sig. Mario Ielpo tók stöðu Sebastianos Rossi í markinu, en fékk lítið að gera. Cristian Panucci lék sem hægri bak- vörður í stað Mauros Tassotti og stóð sig mjög vel og Capello sagði eftir leik- inn að hann yrði kominn í landsliðið innan skamms. Stefano Nava lék f stöðu vinstri bakvarðar, Filipo Galli var miðvörður og Angelo Carbone og Femando de Napoli komu inn á miðj- una. Útlendingamir Florin Raducioiu, Dejan Savicevic og Brian Laudmp léku saman í fremstu víglínu, en Zvonomir Boban og Jean-Pierre Papin vom hvíldir. Stefano Eranio var besti maður liðsins, stjómaði leiknum á miðjunni og skoraði þriðja markið. Hin mörkin skomðu Angelo Carbone og Florin Raducioiu. Napólí Napólí gerði aðeins markalaust jafnt- efli gegn Ancona, sem féll í 2. deild síðasta vor. Napólí varð fyrir mikilli blóðtöku f leiknum, þegar Daniel Fonseca þurfti að fara af leikvelli meiddur um miðjan fyrri hálfleik. Lið- ið hefur verið að leita sér að framherja til að spila við hlið Fonseca og efstur á óskalistanum er Massimo Agostini, leikmaður Ancona. Búist er við að hann verði keyptur í byrjun nóvember og þótti oft ótrúlegt hvemig hann fór með marktækifærin fyrir framan mark Napólí á miðvikudaginn. Parma Parma átti ekki í miklum erfiðleikum með 2. deildarlið Palermo á miðviku- daginn. Parma sigraði 2-0, þrátt fyrir að hafa hvílt nokkra lykilmenn í vöm- inni. Markvörðurinn Luca Bucci, landsliðsbakvörðurinn Antonio Ben- arrivo og miðverðimir Luigi Apolloni og Lorenzo Minotti vom allir teknir út úr liðinu, en það kom ekki að sök, því þeir Baílotta, Balleri, Matrecano og Maltagliati áttu allir góðan leik. Landsliðsmennimir Alessandro Melli og Gianfranco Zola skomðu mörk liðsins í síðari hálfleik. Piacenza Piacenza fékk 3. deildarlið Pemgia í heimsókn og átti ekki í miklum vand- ræðum með að sigra, 3-1. Marco Ferr- ante og Gianpietro Piovani skomðu tvö fyrstu mörk Piacenza, en þriðja markið var sjálfsmark Donadonis, leikmanns Pemgia. Reggiana Reggiana tapaði í Flórens á miðviku- daginn fyrir 2. deildarliði Fiorentina, 3-0. Reggiana hefur gengið illa í byrj- un tímabilsins og Marchioro þjálfari gerði miklar breytingar á liði sínu fyr- ir leikinn. Chembini, Esposito, Cata- nese, Pacione og Lantignotti komu allir nýir inn í liðið og lykilmenn á borð við Morello, Scienza og Ekström vom á meðal þeirra sem vom hvíldir. Róma Róma Iék gegn Padova á fimmtudags- kvöld og náði aðeins jafntefli gegn 2. deildarliðinu. Róma lék án Giuseppes Giannini, Walters Bonacina og Silvanos Bene- detti, sem allir vom í leikbanni, og Ro- bertos Muzzi sem er meiddur. Sampdoria Sampdoria, sem hefur byrjað leik- tímabilið mjög vel, náði aðeins marka- lausu jafntefli á heimavelli gegn Pisa. Hollenski snillingurinn Ruud Gullit náði sér ekki á strik í leiknum og sömu sögu er að segja af félögum hans í liðinu. Roberto Mancini fékk gullið tækifæri til að tryggja heimamönnum sigur, en Ambrosio, markvörður Pisa, varði frá honum vítaspymu. Tórínó Tórínó gerði góða ferð til Ascoli og sigraði 3-1. Enn einu sinni var það framherjinn stóri, Andrea Silenzi, sem var maðurinn á bak við sigur liðs- ins. Hann skoraði tvö mörk í leiknum og var besti maður vallarins. Háværar raddir em nú í Tórínó um að hann eigi skilið sæti í ítalska landsliðinu, en Arrigo Sacchi virðist ekki vera á sama máli. Udinese Udinese náði sér loks á strik og sigr- aði Lecce 2-0. Það var ungur fram- herji, Willy Pittana, sem var maðurinn á bak við sigur liðsins. Hann kom inn á sem varamaður í upphafi síðari hálf- leiks og skoraði fyrra mark liðsins á 61. mínútu og var besti maður liðsins ásamt Stefano Desideri og Roberto Sensini. Pittana hefur lítið getað æft með liðinu í vetur, þar sem hann gegnir nú herskyldu. Marco Branca innsiglaði sigurinn tólf mínútum fyrir leikslok. Fiorentina Fiorentina féll í 2. deild síðasta vor, en hefur sýnt það á þessu tímabili að lið- ið á heima meðal þeirra bestu. Á mið- vikudaginn sigraði liðið 1. deildarlið Reggiana með miklum yfirburðum, 3- 0. Þjóðverjinn Stefan Effenberg hefur verið í miklum ham að undanfömu og er jafhan besti maður liðsins. Argent- ínski framherjinn Gabriel Batistuta missti af fyrstu leikjum liðsins vegna Iandsleikja Argentínu í undankeppni HM, en er nú kominn í slaginn á ítal- íu að nýju og farinn að skora grimmt Hann skoraði tvö mörk á miðvikudag- inn og tileinkaði hann annað markið Francesco Baiano, félaga sínum hjá Fiorentina sem er nú meiddur og leik- ur sennilega ekki með liðinu fyrr en í febrúar. Liðið varð þó einnig fyrir miklu áfalli á miðvikudag, þegar aga- nefhd ítalska knattspymusambands- ins dæmdi Massimo Orlando, leik- stjómanda liðsins, í þriggja leikja bann vegna brottvísunar gegn Padova fyrir skömmu. Landsliðið Arrigo Sacchi landsliðsþjálfari hefur valið 21 manns hóp fyrir leikinn gegn Skotum. Þrír nýliðar em í hópnum, enda mikið um meiðsli meðal ítalskra landsliðsmanna. Roberto Mussi, hægri bakvörður Tórínó, tengiliður- inn Antonio Conte frá Juventus og Giovanni Stroppa, Ieikstjómandi Foggia, koma allir inn í hópinn í fyrsta sinn, auk þess sem Gianfranco Zola er valinn að nýju eftir 18 mánaða fjar- vem. Dino Baggio frá Juventus kemur aftur inn eftir að hafa verið í banni í síðasta leik og Alessandro Bianchi kemst beint í hópinn eftir að hafa misst úr síðustu átta mánuði vegna meiðsla. Þeir Demetrio Albertini, Gi- anluigi Lentini og Paolo Maldini frá AC Milan em allir meiddir og sömu sögu er að segja af Giuseppe Signori og Digo Fuser frá Lazio og þeim Ro- berto Mancini og Alberigo Evani frá Sampdoria. Annars er hópurinn sem hér segir: Markverðin Luca Marchegiani (Lazio) og Gianluca Pagliuca (Sampdoria). Vamarmenn: Franco Baresi (AC Mil- an), Alessandro Costacurta (AC Mil- an), Antonio Benarrivo (Parma), Dani- ele Camasciali (Fiorentina), Marco Lanna (Róma) og Roberto Mussi (Tór- ínó). Miðjumenn: Dino Baggio (Juventus), Antonio Conte (Juventus), Stefano Er- anio (AC Milan), Roberto Donadoni (AC Milan), Antonio Manicone (Inter), Alessandro Bianchi (Inter), Giovanni Stroppa (Foggia) og Daniele Zoratto (Parma). Framhetjar: Roberto Baggio (Juvent- us), Marco Simone (AC Milan), Aless- andro Melli (Parma), Gianfranco Zola (Parma) og Pierluigi Casiraghi. SÆVAR HREIÐARSSON SKR/FAR UMITALSKA B0LTANN

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.