Tíminn - 09.10.1993, Síða 14
Tíminn
Laugardagur 9. október 1993
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða ieikskólastjóra viö nýjan leikskóla við Viðarás er
laustil umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson framkvæmda-
stjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deildarstjóri í
síma 27277.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 sími 27277
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á
neðangreinda leikskóla:
Sæborg við Starhaga sími 623664
Fálkaborg við Fálkabakka sfmi 78230
Nánarí upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 sími 27277
Ragnar V. Björgvinsson
Valgerður Sveinsdóttir
i»
II
Lanqholt II • 801 Selfoss • lceland
Tel: 354 (9)8-21061
Fax: 354 (9)8-23236
FÓDRÚri - HESTAFERÐIR - SALA
RIDING TOURS - SAtf - EXPORT
m
KVIKMYNDAHATIÐ I REYKJAVIK
Liubov
Astin (Liubov) ★★ 1/2
Handrlt og lelkstjóm: Valerf Todorov-
sky.
Aðalhlutverk: Evgenl Mlranov, Natalla
Petrova og Dlmitri Marianov.
Háskólabió.
Öllum leyfð.
Sasja (Miranov) og Vadim (Mari-
anov) eru bestu vinir en ólíkir. Þeir
fara á fjörurnar við tvo kvenmenn
en gengur misjafnlega því Vadim er
þaulreyndur kvennamaður en Sasja
er óframfærinn og veit ekki aiveg
hvernig hann á að ná takmarki sínu
sem er að missa sveindóminn með
Mösju (Petrova). Hún er Gyðingur
en hann Rússi og fordómar spila
mikið inn í samskipti þeirra. Þau
verða ástfangin en samband þeirra
virðist dauðadæmt vegna fortíðar
Mösju og hún hefur í þokkabót sótt
um að komast til ísraels.
Þetta er athyglisverð mynd og
gefur nokkra innsýn í líf venjulegs
fólks í Rússlandi. Það er dæmigert
fyrir ástand mála þar að tæknilega á
myndin talsvert í land til að gæðin
verði svipuð og á Vesturlöndum.
Til dæmis er myndin talsett sem
gerir talmál alltaf fremur hallæris-
legt þótt maður venjist því fljótlega.
Það kemur á óvart að mikið er af
fyndnum atriðum því yfirleitt er dá-
lítið þunglyndislegt yfirbragð á
rússneskum myndum. Það er samt
tekið á raunveruleikanum þótt að-
ferðin sé oftast sú að gera grín að
honum og myndin fær sjálfsagt
aukastig fyrir áhrifamátt f augum
íslendinga.
Leikaramir standa sig vel og þá
sérstaklega Miranov og Marianov
en sá síðarnefndi nær góðu flugi f
kostulegum samskiptum sínum við
kvenþjóðina. Öra Markússon
Nakinn
Naklnn (Naked) ★★★1/2
Handrit og leikstjóm: Mike Leigh.
Aöalhlutverk: David Thewlis, Leslie
Sharpe og Katrin Cartlldge.
Háskólabió.
Öllum leyfö.
Hér segir af utangarðsmanninum
Johnny (Thewlis) sem í upphafi sög-
unnar kemur til Lundúna. Hann er
skrítið eintak af manneskju og flæk-
ist um í norðurhlutanum í borginni
á meðal fátæklinga, róna og glæpa-
manna. Johnny er víðlesinn og kald-
lyndur en vonleysið einkennir hann
þó mest. Hann hittir á ferðum sín-
um ótrúlegasta fólk, allt frá góðleg-
um gamlingja til siðspillts ofursa-
dista sem er sú ógeðfelldasta per-
sóna sem undirritaður hefur séð í
kvikmynd.
Það er stundum ekki þægilegt að
sitja undir þessari mynd og Mike
Leigh hlífir áhorfandanum ekkert
þegar hann dregur upp mynd af því
þjóðfélagi í Bretlandi sem sést yfir-
leitt ekki í kvikmyndum. í samsetn-
ingu atriða „róar“ hann ekkert sögu-
þráðinn niður eftir senur sem hafa
mikil áhrif heldur dembir oft öðrum
strax á eftir. Hann gerir þetta ekki
með ofbeldi heldur sýnir frekar per-
sónur sem erfitt er að finna ekki til
með og gerir þær oft einnig mjög
broslegar í allri sinni eymd. Johnny
er margslungin persóna og ógleym-
anleg öllum sem sjá og er það ekki
síst David Thewlis að þakka sem fer
hamförum í leik sínum. Hann hlaut
verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Cannes sem besti karlleikarinn og
það var meira en lítið verðskuldað.
Öra Markússon
MAN Á ÍSLANDI
r
Aratugum saman hafa M AN vörubifreiðamar sannað ágæti
sitt við erfíðar aðstæður á íslenskum vegum
Við eigum ávallt fyrirliggjandi-ýmsar gerðir M AN vörubifreiða með
mjög skömmum fyrirvara.
Vörubiffeiðar ffá 6-26 tonn í heildarþunga, með og án ffamdrifs,
vélarstærðir 100-500 hestöfl á sérlega hagstæðu verði.
Hafið samband við sölumenn í síma 91-677102
KRAFTUR - ÖRYGGI - ENDING
ATHUGIÐ NÝTT HEIMILISFANG AÐ VAGNHÖFÐA 1
ICD A ETI ID - VAGNHÖFÐA 1
IVÍlMr lUllF REYKJAVÍK
BLAÐBERA VANTAR
SELTJARNARNES
EIÐISMÝRI - SKELJAGRANDI
KEILUGRANDI - SELBRAUT
AUSTURSTRÖND - VESTURSTRÖND
LINDARBRAUT - MELBRAUT O.FL.