Tíminn - 09.10.1993, Side 15

Tíminn - 09.10.1993, Side 15
Laugardagur 9. október 1993 Tíminn 15 BRÁÐ OG VEIÐIMAÐUR Lelkfétag Reykjavfkur, Borgarieikhúslð: ELÍN HELENA. Höfundun Ami Ibsen. Hljéðmynd: Hilmar Öm Hilmarsson. Leikmynd og búnlngar: Guðrún S. Har- aldsdóttlr. Lýslng: Lárus Bjömsson. Leikstjóri: Ingunn Asdfsardóttir. Frum- sýrrt á Lltfa svfðinu 6. október. „Elín Helena, svona ung ertu í dag,“ kvað Steinn Steinarr. Leikrit Áma Ibsen á raunar ekkert nema nafnið sameiginlegt með kvæði Steins um ungmeyjuna ástföngnu. En nafnasamsetningin er sérkenni- leg vegna þess að þetta mun í raun vera sama nafnið; þannig hefur eyj- an St Helena verið kölluð Elínarey á íslensku. í leikriti Áma eru þrjár konur, systumar Elín og Helena og dóttirin Elín Helena. Og svo nátengt er líf þeirra allra að þær mega kall- ast þríhymingur. Síðan er í leiknum klassískur ástarþríhvmingur: Elín — Rikki — Helena. Áhorfandinn sér fljótt að hann er efnisuppistaða leiksins, en samt tekst höfundi að halda spennu vakandi og leiða til óvæntrar niðurstöðu. Og svo er annað atriði í þessu sem miklu skiptir: stríðið sem eyðilagði Rikka. Við sjáum á þessu að Ámi Ibsen færist talsvert í fang í leikriti sínu. Það væri ofmælt að segja að allt félli í ljúfe löð. Þannig fannst mér stríðs- reynsla Rikka og ástarsaga hans og systranna ekki falla alls kostar sam- an. Samt er Elín Helena gott leikrit, vel skrifað og hugvitssamlega, svo að heildaráhrif þess urðu sterk. Og í sýningu Leikfélags Reykjavíkur er Iögð rækt við verkið af góðri fag- mennsku og alúð. Ingunn Ásdísar- dóttir er vandvirkur og næmur leik- stjóri, af þessari sýningu að dæma. Viðfangsefni Áma í þessu leikriti er manneskjan andspænis skuggum fortíðarinnar. Elín Helena vill grafa upp óþægilega hluti úr eigin lífi og sinna nánustu. Hún hafði í bemsku búið í Ameríku hjá foreldmm sín- um, faðirinn var bandarískur her- maður. Þegar hún er fimm ára yfir- gefur móðirin Elín Rikka, sem þá var tekinn að halda við systur henn- ar. Elín fer til íslands með dótturina og þar elst hún upp. Móðirin slítur öll tengsl við föður stúlkunnar, hann er henni dáinn, og á systur sína leggur hún hatur. í þessu and- rúmslofti vex Elín Helena upp. Nú er hún fullorðin kona og krefst svara um uppmna sinn, flýgur vestur þótt móðirin reyni ákaft að hindra það, enda er hún veik og segist deyja ef dóttirin fari. Leikritinu vindur síðan fram í nú- tíðarmyndum af eftirgrennslan El- ínar Helenu, sem íþaettar em atrið- um úr fortíðinni. Spumingin er þessi: hverjum skín gott af því að sannleikurinn sé leiddur í Ijós? Þetta er klassískt viðfangsefni sem Ibsen glímdi mjög við, til dæmis í Villi- öndinni, þar sem læknirinn er lát- inn birta þessa niðurstöðu: „Ef þú tekur lífsblekkinguna frá venjulegri manneskju, þá rænir þú hana ham- ingjunni um leið." Kannski er niðurstaðan hjá Elínu Helenu sú sama, kannski hefur hún þó öðlast einhverja gleggri sýn á nánasta umhverfi sitt. Höfundurinn skilur við hana með þá vitneskju sem hún vildi fa fram, og hver hún er verða áhorfendur að komast að sjálfir. Verkið er opið, hér em leidd- ar fram dramatískar aðstæður án þess reynt sé að binda fyrir neitt, en það er forsenda þess að verk lifi á sviðinu. Ámi Ibsen er ekki að fést við raun- sæislega félagslega skoðun á efnivið sínum. Leikrit hans fjallar ekki um það sem hefði getað orðið ef aðstæð- ur í þjóðfélaginu væm aðrar. Per- sónur em fjórar, þrjár konur og einn karl. Elín Helena er hin frjálsa nú- tímakona, sem hefur haslað sér völl í þjóðfélaginu. En hún ber með sér báðar hinar, móður sína og móður- systur, Elínu og Helenu. Sjálf vill hún ekki verða móðir, getur það kannski ekki. Hvað á hún við að stríða? „Það er tóm innan í mér, mammal" segir hún. „Einhver dauð- ur blettur, eitthvert drep, sem ekk- ert nema sannleikurinn getur lækn- að.‘‘ Og um vesturför sína segir hún: „Þessi ferð er farin til að rjúfa þögn- ina, til þess að sefa... til þess að lífið verði... gott.“ Auðvitað verður ferðin ekki til þess að lífið verði betra. En hvað er gott líf? Ef til vill má segja að í leikritinu standi rökhyggja og sannleikskrafa ungu konunnar gegn óreiðu tilfinn- inganna hjá systmnum tveimur, áköfum kenndum þeirra hvorrar til annarrar og til Rikka. En í þeim til- finningahita, sem allur stafar af sambandinu við Rikka, felst spenna leiksins og höfundi tókst að halda henni vakandi allt verkið. Elín Hel- ena fer hægt af stað, en náði brátt tökum á áhorfandanum, sem sýn- ingin hélt sfðan til loka. Sigrúnu Eddu Bjömsdóttur hef ég ekki séð leika svo viðamikið hlut- verk fyrr. Hún er vaxandi leikkona og hefur lagt ágæta rækt við hlut- verkið, allar áherslur hennar í því virtust mér vel gmndaðar, svo að persónan varð sannfærandi. Hlut- verkið er raunar skýrast lagt upp af hálfu höfundarins, hún er hinn gmnlausi hugsjónamaður. Sama má segja um hlutverk Helenu, sem Hanna María Karlsdóttir fór með á látlausan hátt, hún hefur stjórnast af ást sinni á Rikka. Hlutverk Rikka er trúlega erfiðast og að sumu leyti er það óráðnast eða margbrotnast frá höfundarins hendi. Þorsteinn Gunnarsson hefur unnið hlutverkið mjög vandlega og náði sérlega góð- um tökum á lokaatriðinu þar sem Rikki er í hjólastól og horfinn á vit heimspekilegra hugleiðinga og gleymsku. Þama er hvert smáatriði í látbragði og hreyfingum vandað. En stjama sýningarinnar er Margr- ét Helga Jóhannsdóttir, sem bætti í persónusafn sitt enn einni hinna jarðbundnu, þungu, tilfinningaríku alþýðukvenna sem bera fjölskylduna á herðum sér. Elín er í viðjum hat- urs síns á systurinni, og vel sýndi Margrét Helga viðbrögð hennar undir lokin þegar blekkingarhjúpn- um er svipt burt. Litla sviðið býður upp á ýmsa möguleika, sem vel vom nýttir, og ljósabeiting Lámsar Bjömssonar á sérstakt Iof skilið. Leikritið um Elínu Helenu er stíl- fært drama og sýningin hneigist samkvæmt því til táknræns stíls. Það sést á notkun á dauða fuglinum, sem er þeytt inn á sviðið í byrjun og kemur síðan aftur fyrir í átakasen- um. Þessi veiðibráð getur táknað hvaða persónu leiksins sem er. Allar em þær í spomm fuglsins sem fang- aður er. Systumar eru fangar ástar sinnar — og haturs. Rikki er að sönnu veiðimaður, en hann er líka bráð stríðsins, ofurseldur tilfinn- ingalegri klofnun og dauða, lifir af en deyr þó. Elín Helena er síðan á valdi sannleiksleitar sinnar, systum- ar verða báðar á vissan hátt bráð hennar. í leiknum sem lífinu sjálfu skiptir fólkið hlutverkum. Sá sem var veiðimaður í gær er bráð í dag. í þessum tvísæja skilningi nær leik- ritið dramatísku lífi á sviði Borgar- leikhússins. Gunnar Stefánsson Ert þú að tapa réttindum? Eftírtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðfélögum yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1992 og 1993: Lífeyrissjóður Austurlands Lífeyrissjóðurinn Björg Lífeyrissjóður bókagerðarmanna Lífeyrissjóður Bolungarvíkur Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar Lífeyrissjóður framreiðslumanna Lífeyrissjóðurinn Hlíf Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar Lífeyrissjóður Iðju Lífeyrissjóður matreiðslumanna Lífeyrissjóður Norðurlands Lífeyrissjóðurinn Sameining Lífeyrissjóður sjómanna Lífeyrissjóður Sóknar Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahúsum Lífeyrissjóður stéttarfélaga í Skagafirði Lífeyrissjóður Suðumesja Lífeyrissjóður trésmiða á Akureyri Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurlandi Lífeyrissjóður verkamanna á Hvammstanga Lífeyrissjóður verksmiðjufólks Lífeyrissjóður verkstjóra Lífeyrissjóður Vestfirðinga Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga Lífeyrissjóður Vesturlands Sameinaði lífeyrissjóðurinn FAIR ÞU EKKI YFIRLIT, en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember n.k. Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefha: ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI ÖRORKULÍFEYRI Gættu réttar þíns r I lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyr- issjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum, skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega, er við- komandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundveili iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.