Tíminn - 21.12.1993, Blaðsíða 5
i'riojuuagur zi. uesemDer IVV3
5
Landsmenn iðnir við kortin
Hátt í 8.5 milljarðar
kr. með kreditkortum
Búast má við að landinn versli
fyrir hátt í 12 milljarða kr. fyrir
jólin og þar af um 8.5 milljarð
með kredidkortum. Hátt í 90.000
kort eru nú í notkun og að sögn
Magnúsar Finnssonar, formanns
kaupmannasamtakanna, hófst
eiginleg jólaverslun ekki fyrr en
nýtt kortatímabil gekk í garð.
Hann segir að hljóðið í kaup-
mönnum sé gott og samdráttur sé
minni en þeir áttu jafnvel von á.
Á síðasta ári velti verslunin að
talið var um 100 milljörðum kr„
8 milljörðum. kr. í meðalmánuði
en 12 miUjörðum í desember, að
sögn Magnúsar.
Magnús segir að verslun fyrir
þessi jól virðist ætla að vera meiri
en kaupmenn bjuggust við mið-
að við efnahagssamdrátt í þjóðfé-
laginu.
.Þetta lofar góðu og við erum
bjartsýnir,' segir hann en telur þó
að verslun verði eitthvað minni
en var í fyrra. Hann segir að eðli-
lega sé mestur samdráttur í sölu á
dýrum vörum.
Aðspurður um hvort búast
megi við minni bóksölu í ár þar
sem flest bókaforlög auglýsa ekki
í sjónvarpi nema í litlum mæli,
telur Magnús að bóksala verði
ekki minni en verið hefur.
Svo virðist sem landinn sé ið-
inn við plastkortin að vanda.
Magnús bendir á að verslun með
kreditkort miðað við veltu sé
hæst í desembermánuði. í meðal-
316 einstakl-
ingar hafa þegið
3.500 supur
hjá Samhjálp á þessu ári
Samhjálp reiknar með að gefa
gestum sínum kringum 5.000
súpur og um 100.000 kaffibolla á
þessu ári. Kaffistofa samtakanna
er opin alla virka daga ársins,
Umtals-
verður
sparnaður
Leiða má líkur að því að hægt
sé að spara allt að 650 þúsund til
1150 þúsund krónur á ári í elds-
neytiskostnaði meðal skuttogara
með notkun Cleanbum brennslu-
hvata. En það lætur næni að sami
togari noti um 1,5 miUjónir Ktra af
eldsneyti á ári með tilheyrandi ol-
íukosmaði upp á 16-25 milljónir
króna, eftir því hvaða eldsneyti er
notað. Hinsvegar er talið að heild-
arolíukostnaður fiskiskipaflotans
nemi um 4 milljörðum króna á
ársgrundvelli.
Petta eru m.a. niðurstöður af
samstarfsverkefni LÍÚ, tæknideild-
ar Fiskifélagsins, Fiskveiðasjóðs og
Vélskóla íslands á noktun Clean-
bum - brennnsluhvatanum um
borð í frystitogaranum Snorra
Sturlusyni RE sl. sunjar. Jafnframt
sýndu mælingar á mengandi snef-
ilefnum merkjanlega lækkun
þeirra.
Það var styrkveiting frá Um-
hverfisráðuneyti sem hleypti þessú
verkefni af stokkunum. Framhald-
ið ræðst svo af þvf hvort frekari
styrkveitingar fáist
Þrátt fyrir að ýmis bætiefni og
búnaður tfl að draga úr eldsneytis-
kosmaði sé á markaðnum hafa út-
gerðarmenn verið tregir til að nota
þau um borð í skipum sínum. Það
helgast m.a. af því að útgerðar-
menn hafa haft ákveðnar efa-
semdir um ágæti þessara efna og
búnaðar og því þótti ástæða til að
gera nákvæma og faglega úttekt af
óháðum aðilum. -GRH
mánuði er verslað fyrir 40 til
50% með korti en í desember allt
að 70% að sögn Magnúsar.
Hann segir að jólaverslunin
hefjist því ekki af alvöru fyrr en
með nýju kortatímabili en það
var um 10 þ.m. Hann hefur haft
spumir af því að yfir 90.000 krít-
arkort séu nú í umferð. Sé miðað
við hveija 1.000 íbúa eru íslend-
ingar í þriðja sæti Evrópuríkja
hvað varðar vinsældir þeirra.
Debetkort bcuikanna hafa ver-
ið umdeild og hafa mætt harðri
andstöðu samtaka kaupmanna
sem flestir veita þeim ekki við-
töku. Magnús segir að viðskipta-
vinir hafi ekki kvartað vegna
þessa. „Það er undantekning ef
svo er og þá eru það helst starfs-
menn bankanna. Það er engum
akkur í að nota þau og þeim fylg-
ir bara kostnaður,' segir Magnús
og telur að dýrar auglýsingar
bankanna vinni frekar á móti
notkun debetkorta heldur en
hitt. „Fólkið sér hvers lags voða-
legt bruðl þetta er með peninga
bankanna og hefur ekki samúð
með því," segir Magnús.
-HÞ
Nýr for-
maður
SUF
Formannsskipti hafa farið
fram í Sambandi ungra fram-
sóknarmanna. Sigurður Sig-
urðsson, sem verið hefur for-
maður SUF, hefur látið af emb-
ættinu vegna fyrirsjáanlegra
anna í nýju starfi. Við for-
mannsembættinu hefur tekið
varaformaður SUF, Einar
Krislján Jónsson. Nýr varafor-
maður hefur verið kjörinn og
er hann G. Valdimar Valde-
marsson.
þannig að meðaltalið er kringum
400 kaffibollar á dag, ásamt lítils-
háttar meðlæti, eins og það er
orðað í fréttabréfi Samhjálpar.
Reiknað er með kringum 22.000
komum í félagsmiðstöðina á'
þessu ári.
Þrjú ár eru síðan samtökin
hófu að gefa súpu og samlokur
einu sinni í viku á kaffistofunni
við Hverfisgötu. Um síðustu ára-
mót var súpukvöldunum svo
fjölgað í tvö í viku. Við úttekt
þessara þriggja ára kemur í ljós að
316 einstaklingar hafa þegið
kringum 3.500 súpur. Það eru
um 11 súpur á mann að meðal-
tali. Nú í nóvember s.l. var síðan
ákveðið að gera tilraun með að
hafa fimm súpukvöld vikulega
yfir kaldasta tíma vetrarins. Að
fenginni reynslu er nú reiknað
með að súpugjöfum fjölgi í kring-
um 5.000 á ári, þ.e. í kringum 30
hvert kvöld að meðaltali. Algeng-
ast er að menn þiggi tvo stóra
diska af matarmikilli súpu ásamt
tveim samlokum með ýmiskonar
áleggi.
-HEl
Sendiherra Breta, Michael Hone, veitir móttöku mótmælaályktun útifundar viö breska sendiráöið [ gær.
Oþolandi framferði Breta
Mótmælafundur við breska
sendiráðið í gær gegn starfs-
leyfi Shellafield- stöðvarinnar
„Við mótmælum harðlega þeirri
ákvörðun breskra stjórnvalda að
veita Thorp endurvinnslustöðinni í
Shellafield starfsleyfi. Bresk stjóm-
völd gera sig sek um óþolandi fram-
ferði,' segir í ályktun mótmælafund-
ar sem haldinn var fyrir framan bres-
ka sendiráðið í gær en þar var þess
krafist að starfsleyfið yrði afturkallað
þegar í stað.
Meðal fundarboðenda voru hel-
stu forsvarsmenn launþegasamtaka,
rithöfunda og ýmissa umhverfis-
vemdarsamtaka. Þar á meðal vom
Benedikt Davíðsson, forseti ASt og
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB.
í ályktuninni er bent á að með-
höndlun geislavirkra úrgangsefna og
vinnsla eldsneytis fyrir kjamorkuver
á strönd Bretlands auki stórlega
hættuna á óbætanlegum skaða. Sagt
er að starfsleyfið gangi á skjön við al-
þjóðlega samninga um vamir gegn
mengun sjávar frá strandstöðvum og
fari gegn grundvallarreglum sem
reynt hefur verið að koma á í um-
gengni við náttúm jarðar og um-
hverfi.
„Hér er verið að stíga spor í ranga
átt. Við álítum að sú umhverfismála-
stefna sem bresk stjómvöld marka
með starfsleyfinu fyrir Shellafield
stöðina feli í sér alvarlegt skeytingar-
leysi og ógnun við lífsafkomu íslend-
inga og í raun ger þau sig sek um
óþolandi framferði gagnvart öllum
nágrönnum sínum við Atlantshafið
og börnum framtíðar,' segir og í
ályktuninni.
Þess er krafist að bresk yfirvöld
afturkalli þegar í stað þetta starfsleyfi
og geri samhliða því ráðstafanir til að
draga úr orkuvinnslu í kjamorku-
verum.
-HÞ
Blaðamenn mótmæla
samningum Fróða
S,tjórn Blaðamannafélags ís-
lands hefur sent frá sér álykt-
un þar sem lýst er yfir van-
þóknun á þeim samningum sem
forráðamenn útgáfufyrirtækisins
Fróða hf. hafa gert við starfsmenn
fyrirtækisins um 3% launalækkun
á komandi ári og ekki síður þeirri
ákvörðun fyrirtækisins að ætla að
lækka einhliða greiðslur til annarra
greinahöfunda um 8%.
Vakin er athygli á því að þessi
ákvörðun er tilkynnt aðeins örfá-
um dögum eftir að Fróði hf. keypti
útgáfuréttinn á þeim tímaritum
sem Samútgáfan Korpus gaf út fyrir
gjaldþrotið í síðasta mánuði, en
með þeim kaupum tryggði Fróði
hf. sér nánast einokun á trmarita-
markaðinum hérlendis.
„f krafti þessarar einokunar og
almenns samdráttar í atvinnumál-
um hefur fyrirtækið nú þvingað
fram launalækkun starfsmanna og
boðar jafnframt einhhða stórlækk-
un á öflu öðru aðkeyptu efití,' segir
í ályktun stjómar Blaðamannafé-
lagsins.
Hjá Fróða starfa engir fastráðnir
launamenn við blaðamennsku og
engir kjarasamningar em á milli
Blaðamannafélagsins og Fróða,
heldur starfa blaðamenn þár eftir
sérstökum innanhúss-verktaka-
samningum. Það er mat Blaða-
mannafélagsins að þessir samning-
ar eigi ekkert skylt við almenna
verktakastarfsemi. Samningamir
sýni hversu almennt og víðtækt
réttleysi viðkomandi starfsmanna
Fróða er.
„Stjóm Blaðamannafélagsins ít-
rekar andúð sína á stöðu réttinda-
og kjaramála Fróða hf. Um leið
hvemr félagið alla félagsmenn sína,
jafnt fastráðna sem lausamenn, ttí
að hunsa einhliða ákvörðun Fróða.
Jafnframt minnir stjóm félagsins á,
að félagar í BÍ eiga enn ógreidd
hundruð þúsunda í verktaka-
greiðslur vegna tölublaða af Húsum
og híbýlum og Vikunni, sem Fróði
hf. yfirtók af Samútgáfunni-Koipus
fyrir réttum mánuði.' -EÓ
Bændur
Haugsuga óskast. Má vera bæöi meö vatnsdælu eöa spjalda-
dælu. Þarf að vera a.m.k. 6 m3. Staðgreiösla í boði.