Tíminn - 25.03.1994, Page 9
Föstudagur 25. mars 1994
tWIHIIW
9
Delors segist ekki hrceddur vib ósamkomulag
Evrópubandalagsríkjanna:
Deilur betri en
veikt samkomulag
París, Reuter
Reuter
Forsetaframbjóðandi myrtur
Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópubanda-
lagsins, segist ekki óttast afleið-
ingar deilna um vægi atkvæða í
ráðherraráði bandalagsins.
Engin hœtta segja
rússnesk yfírvöld:
Tveir rúss-
neskir kjam-
orkukafbátar
rekast á:
Moskva, Reuter
Tveir rússneskir kjamorkukaf-
bátar rákust saman í gær en
skemmdir urðu óverulegar eftir
því sem fréttastofari Itar-Tass
greindi frá í gær. Engin slys
urðu á áhöfnum kafbátanna og
ekki er vitað til þess aö spjöll á
umhverfinu hafi hlotist af
óhappinu.
Rússneska fréttastofan hafði
heimildir sínar úr aðalstöðvum
sjóhersins en þess var ekki getið
hvar eða hvenær atburðurinn
heföi átt sér staö. Ekki var held-
ur frá því skýrt hvort kafbátam-
ir hefðu verið knúnir með
kjamorku eða með kjamorku-
eldflaugar innanborðs. ■
Hann segir að sagan sýni að
deilur séu betri en veikburða
samkomulag sem enginn sé
ánægöur með.
Bretar og Spánverjar hafa sett
sig upp á móti því aö það hlut-
fall atkvæða sem nauðsynlegt er
til að hindra framgang mála í
ráðherraráðinu, haldist óbreytt
eftir inngöngu EFTA-ríkjanna
fjögurra, Austurríkis, Finnlands,
Svíþjóðar og Noregs.
„Þó að ég vilji frekar samkomu-
lag en ósætti, óttast ég ekki
átök, sem væm betri en veik-
burða samkomulag," sagði Del-
ors í viðtali við franska dagblað-
ið InfoMatin.
Delors sagði að allt frá því að
■ Rómarsáttmálinn tók gildi árið
1957 hefði þurft 30% atkvæða í
ráðherraráðinu til að stöðva mál
sem pieirihlutinn er fylgjandi.
„Binding neitimarvaldsins við
23 atkvæöi hefði þaö markmið
að veikja möguleika Evrópu-
bandalagsins til að taka ákvarð-
anir með auknum meirihluta.
Það yrði t.d. erfiðara að stýra
sameiginlegri landbúnaöar-
stefnu bandalagsins eða láta
fjárlögin spegla almennan vilja
til að ýta undir þrótm svæða-
myndunar, en Frakkar myndu
hagnast mjög á því," sagði Del-
ors.
Vopnaðir menn, sem talið var
aö væm óeinkennisklæddir
lögreglumenn, leiða ungan
mann á brott þaðan sem Luis
Dohaldo Colosio, forsetafram-
bjóðandi í Mexíkó, var myrt-
ur.
Ungi maðurinn er talinn hafa
myrt frambjóðandann. Mann-
fjöldinn hafði barið hann illi-
lega áður en óþekktir vopnað-
ir menn gátu forðað honum á
brott.
Colosio, sem vax talinn nokk-
uð öruggur með aö ná kjöri,
var skotinn í höfuð og maga af
stuttu færi. Hann var fluttur
með hraði á sjúkrahús, þar
sem hann lést nokkmm
klukkustundum síðar.
Stjómmálaskýrendur segja að
morðið geti haft veruleg áhrif
á þróun mála í Mexíkó og
Norður- Ameríku. Þeir segja aö
svo geti farið að fríverslunar-
samningur Bandaríkjanna,
Kanada og Mexíkó, NAFTA,
geti átt erfitt uppdráttar í
Mexíkó eftir lát Colosios sem
var einn helsti baráttumaður-
inn fyrir gerð samningsins.
Evrópuþingiö segir nýja Gatt-samkomulagib spor í rétta átt:
Vill bæta umhverfis-
og félagsmálaákvæb-
um í alþjóðasamninga
Brussel, Reuter
Evrópuþingið fjallaði í gær um
nýjan heimsviöskiptasamning
og stofnun (World Trade Org-
anisation) sem á að sjá um að
honum veröi framfylgt. Þing-
menn lögðu ríka áherslu á að í
framtíðinni yrði þess gætt að
slíkir samningar hefðu ákvæði
um félags- og umhverfismál.
Til aö þingið geti samþykkt
Norska, sænska og
finnska veröa opin-
ber tungumál innan
Evrópubandalagsins
Norðurlandamálin þrjú koma til
með að verða jafn rétthá og
tungumálin níu sem nú teljast til
opinberra mál í starfsemi Evrópu-
bandalagsins þegar Noregur, Sví-
þjóð og Finnland verða aðilar að
bandalaginu.
í fréttatilkynningu frá norska ut-
anríkisráðuneytinu er greint frá
að Evrópubandalagið hafi skuld-
bundiö sig til að sjá um þýðingar
á öllum lögum bandalagsins og
opinberum skjöliun .yfir á norsku.
Tekið veröur tillit til þess að
norska bókmálið og nýnorska séu
jafnrétthá ,mál í Noregi. Búist er
við aö aöildin aö Evrópubanda-
laginu muni styrkja stöðu ný-
norskunnar sérstaklega í laga-
máli. ■
samninginn verður helmingur
alha þeirra sem eiga sæti (260)
að greiða honum atkvæði sitt.
Áður en atkvæðagreiðslan fer
fram verða þingmönnum
kynntir allir þættir samnings-
ins.
Leon Brittan, sem fer með við-
skiptamál innan framkvæmda-
stjómar Evrópubandalagsins,
sagði að unnið væri af krafti að
því aö koma Heimsviðskipta-
stofnuninni (WTO) á laggimar.
Hann sagði að fulltrúar fram-
kvæmdastjómarinnar ynnu að
málinu af fullum krafti og stofn-
unin myndi bæði fjalla um við-
skipti og umhverfismál.
Evrópubandalagsríkin vilja
stofnsetja valdamikla nefnd í
tengslum við nýja samninginn
og telja að hún eigi að hafa
stjómmálaleg áhrif. Mörg ríki
þriðja heimsins em mótfallin
því aö slík nefnd verði stofnuö.
Þingheimur lét í ljós ósk um að
ný aðferð til að leysa deilumál
yröi til þess aö ríki gætu komist
hjá einhliða vamaraðgerðum
sem brytu í bága viö reglur Gatt-
samkomulagsins.
' í skýrslu grísku stjómarinnar,
sem lögð var fyrir þingið, var
skorað á framkvæmdastjómina
að sjá til þess að ákvæði um um-
hverfismál yrðu ekki til þess að
hindra innflutning frá löndum
þriðja heimsins.
MEST NOTflflfl STRASÆTAIBANDARKJUNUM OG KAMADA
GEMDSÆTTHEÐ
SWEET'N |pW
ROKRAS
^ SÖLUDEILD
☆ NOTAST SEM SYKUR, MEÐ LÁGMARKS KALORÍUINNIHALDI.
☆ LEYSIST AUÐVELDLEGA UPP í KÖLDUM OG HEITUM DRYKKJUM.
☆ EKKERT AUKABRAGÐ - FRÁBÆRT í MATARGERÐ OG BAKSTUR UPP AÐ 180°.