Tíminn - 19.04.1994, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.04.1994, Blaðsíða 5
Þri&judagur 19. apríl 1994 ■» t iff fM itirY ^IIP8P» 5 Goðsögnin um Haffj arðará Stjóm Veibifélags Hlíbarvatns og Ámi Snœbjömsson, hlunnindarábunaut- u/ Búnabarfélagsins. Talib frá vinstrí: Einar Hallsson, Hallkelsstabahlíb; Ámi, Sigurbur Helgason, Hraunholtum, og Cubmundur Albertsson, Heggsstöbum. (Ljósm. Einar Hannesson) Oddastabavatn og fjœr sést Hlíbarvatn í Hnappadal. (Ljósm. Einar Hannesson) Ein af þeim laxám hér á landi, sem virtist sveipuð sérstök- um ævintýraljóma fyrr á ár- um, er Haffjaröará í Hnappadals- sýslu. Menn töluðu um að hún væri óvenju öflug laxveiðiá, lík- legast sú besta á landinu. Hún væri ávallt sneisafull af laxi og goösögn um þessa dularfullu lax- veiöiá varð til með árunum. Fjölbreytt svæöi Upptök Haffjarðarár sjálfrar eru í Oddastaðavatni, sem er í 16 km fjarlægö frá sjó, en efsti hluti ár- innar nefnist Höfðaá og er 3 km að lengd. Áin fellur í sjó í Hafurs- firöi, sem er inn af Faxaflóa. Efstu drög vatnakerfisins em upptök lækja sem falla í Hlíðarvatn, en úr því fellut Hraunholtaá 19 km frá sjó, en hún á ós í Oddastaðavatni, sem fyrr var nefnt. Einnig má nefna Amá, sem kemur úr Svína- vatni.er liggur fast við þjóðveginn um'Heydal og fellur í Oddastaða- vatn. Laxveibin öll kemst á eina hendi Skýringar á goðsögn um Haf- fjaröará er að leita í því ab öll lax- veiöi í ánni var á einni hendi um langt skeiö. Thor Jensen, hinn kunni athafnamaöur til lands og sjávar, keypti skömmu eftir alda- mótin allan veiðirétt í ánni; ann- aö hvort var um jaröimar sjálfar að ræöa eða veiöiréttinn sem skil- inn var frá viðkomandi jöröum. Veiöirétturinn í ánni varö síðar sérstök fasteign, sem er einstakt hér á landi. Sögu þessari fylgdi einnig aö áin hafi veriö laxlaus eöa laxlítil þeg- ar Thor Jensen keypti veiöirétt- inn. Fljótlega hefur laxastofninn í ánni eflst og meö tímanum komst það orö á, ab áin væri ávallt full af fiski, sem fyrr segir. Vafalaust hafa menn tengt þaö því ab svo vel væri fariö meö ána, sem víst er. Lengst af þeim tíma, Veibihúsin vib Haffjarbará. VEIÐIMÁL EINAR HANNESSON sem áin var í höndum Thorsar- anna, veiddu þeir þar sjálfir og þeirra gestir. Ótrúlega mikil eigna- umsýsla Thor Jensen keypti á sínum tíma á einu bretti tæplega 15 jaröir vib vatnakerfi Haffjaröarár og reynd- ar víðar á Snæfellsnesi. Og þannig eignaðist hann stóran hluta af veiðiréttindum í ánni á fyrsta ára- tugi aldarinnar. Sá aöili, sem seldi honum þessar eignir, var einmitt sá sami og haföi selt Campbell hinum skoska ungann úr veibi- réttindum í Langá nokkm fyrr. Á öðmm tugi aldarinnar keypti Thor Jensen síðan þaö sem á vantaöi meö veiðiréttindin í allri ánni, sem hann haföi reyndar haft á leigu. Þetta vom eignir sem Hítardalskirkja haföi átt. Jafn- framt seldi Thor ábúendum á nokkmm jaröa hans þær, m.a. sem land áttu að stöðuvötnum á svæöinu, en undanskildi veiöirétt sem snerti laxveiöina. Afkomend- ur Thors Jensen seldu veiðirétt- indin, Haffjarbará h.f., fyrir nokkmm árum tveimur athaftia- mönnum í Reykjavík, auk nokk- urra jarða sem land eiga aö ánni. Hin seinni ár hefur þessi þekkta og vinsæla laxveiöiá veriö leigö út, á sama hátt og aörar ár. Opin- berar skýrslur sýna aö laxveiöin í ánni er meö svipuðum hætti og í öðrum hliöstæðum ám, eins og eölilegt er: tæplega 700 laxa árleg meðalveiöi á árunum 1974-1993. Á sínum tíma byggöi Thor Jensen veiðihús, rauöu húsin, við ána, sem enn em í notkun og sjást skammt ofan viö þjóðveginn viö Haffjaröará. Ágreiningur og málaferli Tvo seinustu áratugi hefur veriö uppi ágreiningur milli eigenda veiðiréttarins og jaröa viö Haf- fjaröará og hinsvegar heima- manna og málaferli hafa risiö út af ýmsu, eins og stærö félags- svæöis veiðifélags og heimamenn hafa verið áhugasamir um. Einnig varöandi sölu jaröa og veiöirétt- inda, sem sveitarstjómir á svæð- inu hafa taliö að þær ættu for- kaupsrétt á. Ekki em enn komnar lyktir í málaferlin. Nokkrir jarðar- eigendur ætluðu aö nýta sér heimild um innlausn á veiöirétt- indum sem höföu veriö skilin frá jörðum þeirra á sínum tíma, en tvær jaröir náöu réttindunum þegar fyrrgreind sala fór fram laust fyrir 1990, en annaö náöist ekki fram vegna formgalla á inn- lausninni. Tvö veiöifélög em þegar starf- andi á vatnasvæði Haffjarðarár: Veiöifélag Hlíöarvatns, en for- maöur þess er Siguröur Helgason, Hraunholtum, og Veiöifélag Núp- ár, en formaöur þess er Svanur Guömimdsson, Dalsmynni. Nefnd veiöifélög munu væntan- lega veröa deildir innan heildarfé- lags um vatnasvæöi Haffjaröarár, sem lög gera ráð fyrir aö stofnað verði. Misrétti út yfir gröf og dauöa Ég ætla að nota tækifærið og byrja þetta spjall á játningu. Þaö er nefnilega þannig, aö þótt fomsta Alþýöuflokksins sé nú um stundir ýmist í höndum kjána, sem fá mig til aö leggja trúnað á Hafnarfjarðarbrandara sem bláköld sannindi, eöa ójafnaðarmanna, þá er ég flokksbundinn krati. Ástæða þess, aö ég lufsast enn í flokkn- um, heitir Jóhanna Siguröar- dóttir. Svo mim um fleiri. Því rak mig í rogastans um daginn, þegar mér barst í hendur frumvarp hennar til laga um húsaleigu- bætur. Haldiö þiö ekki aö Jó- hanna Siguröardóttir, vonar- stjama jafnaðarstefnunnar inn- an Alþýðuflokksins, hafi með vægast sagt afgerandi hætti snú- ist til liös viö ójafnaöarmennina í flokksforustunni. Og ekki nóg meb þaö, heldur beinir hún spjótum sínum aö þeim, sem síst geta bmgðist til vamar. Hvab ég sé eiginlega að fara? Jú, þriöja málsgTein sextándu greinar þessa frumvarps hljóöar svo: „Við andlát leigjanda fellur réttur til húsaleigubóta niður. Brottfall réttinda miðast við lok andlátsmánaöar." Svo mörg vom þau orð. Hér er ekki aðeins vegið aö vamarlausu fólki, heldur er yfir- gnæfandi meirihluta þjóðarinn- ar stjakað út fyrir lög og rétt. Eöa skyldi Jóhanna Sigmðar- dóttir ekki gera sér ljóst, aö frá landnámstíð hefur um ein milljón manna búið á íslandi? Af þeim em sjöhundmö og fimmtíu þúsundir lámar, þ.e.a.s. þrír fjórðu hlutar allra ís- lendinga fyrr og síðar. Og hinu má heldur ekki gleyma, aö hver einasti kjaftur, sem lífsanda dregur nú um stundir, mun fyrr eöa síöar hætta því og leggjast í djúpa gröf meö tæmar kristilega vísandi í átt til æðri heima. Þeir leigjendur, sem á annaö borö fá rétt til þessara húsaleigubóta, njóta hans því aöeins skamma SPJALL Pjetur Hafstein Lárusson hríð og það mun skemmri en margur hyggur. Þau hafa verið æöi þung, sum höggin sem Hafnarfjaröar- brandarinn í heilbrigðis- og tryggingarábuneytinu hefur veitt sjúkum og farlama íbúum þessa lands, og ekki hef ég orðið þess var, aö láglaunafólk telji sig standa í sérstakri þakkarskuld viö formann Alþýðuflokksins. En það mega þeir þó eiga, kumpánamir Guðmundur Ámi Stefánsson og Jón Baldvin Hannibalsson, sem og allir þeirra nótar innan flokksins, að látnum hafa þeir leyft aö hvOa í friði. Með því að svipta látið fólk rétti til húsaleigubóta er Jó- hanna Siguröardóttir félags- málaráðherra því að neyða Al- þýöuflokkinn til að stíga enn eitt skrefiö á helgöngu hans áleiðis að napri gröf auðhyggj- unnar. Þab, ab þeir dauðu eigi samkvæmt fmmvarpi þessu að halda bótarétti út andlátsmán- uð sinn, breytir hér engu um, nema síður sé. Með því ákvæði frumvarpsins er höfuðið raunar bitiö af skömminni, því þar er meira að segja dauðum mis- munað. Eða hvers eiga þeir að gjalda, sem deyja í mánaðarlok og telj- ast því bótalausir þegar frá fyrsta degi í öðrum heimi, með- an þeir, sem geispa golunni rétt eftir mánabamót, fá húsaleigu- bætur nær allan fyrsta mánuð- inn í nýrri vist, hvort heldur hún Jóhanna þarf aö senda þeim bætumar upp eða niöur? í stuttu máli sagt, þá stuðla orð þessa frumvarps og andi þess bæði að misrétti milli lifandi og dauðra og eins milli dauðra inn- byröis. Orðuniun má vissulega breyta í meðförum Alþingis, en eftir er ab sjá hvort andinn reynist ódauðlegur. En svona eftir á að hyggja, þá hafa fróðir menn tjáð mér, ab ráðherrar semji lagafrumvörp ekki prívat og persónulega, aö minnsta kosti ekki frá oröi til orðs, heldur láti þeir undirsáta sína í ráöuneytunum um þaö. Því má vera, að Jóhanna Sigurb- ardóttir hafi, þrátt fyrir allt, ekki snúið baki við jafnabarstefn- unni, hvorki hér megin grafar né á æðri stöðum tilverunnar. En þá er það klárt mál, ab í fé- lagsmálaráðuneytinu starfa menn, samkvæmt þeirri reglu sem ég orðaði eitt sinn svo í heldur kaldhæðnislegri ljóða- hendingu: „Orð eru til allrar markleysu fyrst."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.