Tíminn - 19.04.1994, Page 8

Tíminn - 19.04.1994, Page 8
8 ®áZmmXakm » Þri&judagur 19. apríl 1994 Keilugrandi 1 í Reykjavík, en þaö húsnœöi er taliö henta undir matvœlagarö, eí slíkur garöur yröi staösettur í Reykjavík. Tímanum er raunar kunnugt um aö áhugi sé fyrir slíkum garöi víöar á landinu, meöal annars á Akureyri. í Mcitvœlagaröi vœri aöstaöa til þess aö þróa nýjungar í fullvinnslu matvœla. Grímur Valdimarsson: „Ekki nóg ab tala um ab efla matvælaibnabinn" slenskt sjávarfang býður upp á gífurlega möguleika. Kæfa úr trjónukrabba, rækjuhrognakavíar, svil og þurrkaðir sundmagar eru með- al þeirra framandi afurða sem menn hafa prófað. Þeir sem hafa áhuga á að reyna fyrir sér í framleiðslu þessara eða ann- arra álíka framandi afuröa þurfa að hafa aðgang að full- kominni aðstööu til þess að þróa framleiðsluna. Hjá Rann- sóknarstofnun fiskiönaðarins er áhugi á því að koma upp tæknigarði á sviði matvælaiðn- aðar þar sem hægt væri að leigja út slíka áöstöðu. Hús SÍF að Keilugranda 1 í Reykjavík er talið henta starfseminni vel og þegar hefur verið unnin kostn- aöargreining við breytingar á húsnæðinu. Matvælagarður í Reykjavík yrði mikil lyftistöng fyrir matvælaiðnaðinn í land- inu og ekki síst atvinnulíf borg- arbúa. Tilraunavinnsla Fullvinnsla sjávarafurða, ný- sköpun og vöruþróun í mat- vælaframleiðslu eru oft nefnd- ar sem leiðir til að efla íslenskt atvinnulíf og auka verðmæti hráefnisins um leiö. Þessar leiö- ir eru hins vegar ekki raunhæf- ar nema fyrirtæki og einstak- lingar hafi aðstöðu til þess að þróa nýjungar í framleiðslunni, scm uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til matvælafram- leiöslu. Slík aðstaða er ekki til á íslandi nú. „Það gerist sem betur fer oft að erlendir kaupendur falist eftir nýjum vörum sem þarf þá aö gera tilraunasendingar af. Þá er nauðsynlegt að hafa aðgang að Crímur Valdimarsson, forstjóri R.F. réttum tækjabúnaði og aðstöðu sem uppfyllir kröfur um hrein- læti og búnaö því þær kröfur eru jafnstrangar þótt aðeins sé um litla tilraunasendingu að ræða," segir Grímur Valdimars- son, forstjóri Rannsóknarstofn- unar fiskiðnaðarins, en hann er einn af hugmyndasmiðunum að matvælagarði í Reykjavík. „Fólk kaupir sífellt meira af matvælum sem þurfa lítillar matreiðslu viö. Vömþróun get- ur líka verið í þá átt að höfða til ákveðinna hópa neytenda sbr. „krakkafisk" sem var settur á markaðinn hér nýlega. Þá er fiskhakk mótað eins og bangsi eða aðrar fígúrur og þakið brauðmylsnu." Ýmsir abilar leiddir saman Tæknigarðar em til víða er- lendis og einn slíkur er á ís- landi, Tæknigarður Háskóla ís- Teikning af Keilugranda, sem Matvœlagaröi. lands. Tilgangurinn með tæknigörðum er aö leiða sam- an háskóla, rannsóknastofnan- ir, fyrirtæki, uppfinningamenn og aðra frumkvööla og skapa þeim vettvang til þróunar- starfs. Hugmyndir um sérstak- an matvælagarð em ekki nýjar af nálinni en Grímur Valdi- marsson segir aö nú sé rétti tíminn til þess að hrinda hug- myndinni í framkvæmd. „Astæðumar til þess em tvær. í fyrsta lagi hefur EES-samning- urinn valdiö því að þörf fyrir- tækja hefur aukist til þess að geta þróað nýjar hugmyndir og látið reyna á þær viðskiptalega. Aðstaða til slíkra tilrauna er ekki til núna nema hjá einu fyrirtæki, íslenskum sjávaraf- urðum hf. á Kirkjusandi. Með sérstökum matvælagarði væri komin lausn á þessum vanda og um leið væri ýtt undir ný- sköpun í matvælaiðnaði. í öðm lagi hefur þróunarstarf í ís- lenskum matvælaiðnaði eflst mjög á undanfömum ámm og þess vegna hafa menn öðlast dýrmæta þekkingu á ferlinu, sem þeir höföu ekki fyrir nokkmm ámm. Segja má að al- mennur skilningur ríki á því nú að vöruþróun verður ekki stunduð nema í nánum tengsl- um við markaðinn. Matvæla- garðurinn yrði þannig til þess að örva það starf sem er þegar hafið. Sum fyrirtæki hafa haft þá stefnu að leggja stund á vöm- þróun í framleiðslufyrirtækjun- um sjálfum. En eftir því sem vöruþróun verður flóknari verður það erfiðara viðfangs. Mikilvægast er að matvæla- garðurinn uppfylli öll skilyrði um hönnun. Til dæmis gera reglur Evrópusambandsins ráð fyrir því aö hráefni og fullunn- ar vörur séu aldrei geymdar í sömu kæligeymslum o.s.frv. Þetta krefst þess vegna mikils húspláss og fjárfestingar." Keilugrandi 1 Rannsóknarstofnun fiskiðn- aðarins og aörir eiga nú þegar ýmis tæki sem em nauðsynleg við slíkt tilraunastarf en eins og er hefur stofnunin ekki hús-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.