Tíminn - 05.05.1994, Page 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Fimmtudagur 5. maí 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
84. tölublað 1994
Islenskir
íslenskir
fánar
Frá vinstri sjást þau Baldur Valgeirsson, framkvœmdastjóri Ibnþróunarfélags Norburlands vestra, Ingólfur Margeirsson, fulltrúi í þjóbhátíbarnefnd, og
Svanhildur Gubjónsdóttir, framkvæmdastjóri Saumastofunnar á Hofsósi, vib alíslenskan fána íDillonshúsi í Árbœ ígær. Tímamynd cs
Búist viö oð línur fari oð skýrast um framtíö helstu fyrirtœkja í skipaiönaöi í þessum mánuöi:
Loönuskip utan til viðgeröa
Á sama tíma og íslensk
stjómvöld, sjóðir og hags-
munaaöilar í skipaiðnaöi
leita leiða til aö örva verk-
efnastöðu iðnaöarins, sigla
útgeröarmenn með skip sín
utan til viðgerða og endur-
bóta. Loðnuskipiö Júpiter er
á leið til Póllands og Súlan
EA er í Færeyjum.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
sem gerir út Júpiter ásamt öðr-
um, var verkefnið boðið út og
niðurstöður þess vom þær að
mun ódýrara þótti að sigla
skipinu til Póllands en láta
vinna verkið hér heima.
Þótt verkefnastaða málm- og
skipaiðnaðar sé mun betri um
þessar mundir en oft áöur, þá
em engin langtímaverkefni í
augsýn og það hræðir menn.
Auk þess er 40 milljóna fram-
lag ríkissjóðs, sem veitt var
fyrr í vetur til að bæta sam-
keppnisstööu atvinnugreinar-
innar, uppurið og óvíst hvort
frekari smðnings sé að vænta
úr ríkissjóði. Hinsvegar er það
mat manna í greininni að
breyttar lánareglur Fiskveiöa-
sjóðs og Iðnlánasjóðs til að
örva verkefnastöðu málm- og
skipaiðnaðar sé skref í áttina.
Þá er búist við að línur fari að
skýrast í málefnum Slipp-
stöðvarinnar Odda hf. á Akur-
eyri en aðalfundur fyrirtækis-
ins verður væntanlega á morg-
un, fösmdag. Nauðasamning-
ar fyrirtæksins em að renna út
og ef að líkum læmr munu ný-
ir eigendur taka við fyrirtæk-
inu innan skamms. Að fmm-
kvæði Iðnlánasjóös og iðnað-
arráðuneytisins munu í gær
hafa átt sér stað viðræður á
milli forráðamanna fyrirtækj-
anna Þorgeirs og Ellerts hf. á
Akranesi, Stálsmiðjunnar hf. í
Reykjavík og Skipasmíða-
stöðvar Njarðvíkur um aukna
samvinnu þeirra.
Öll þessi þrjú fyrirtæki að við-
bættri skipasmíðastöð Marsell-
íusar á ísafirði em í greiðslu-
stöðvun. Fastlega er búist við
að það muni skýrast til muna í
þessum mánuði hver framtíb
þessara þriggja fyrirtækja á
Faxaflóasvæðinu verður og
jafnvel fleiri fyrirtækja í skipa-
iðnaði.
Eins og kunnugt er hemr
starfsfólki í atvinnugreininni
fækkað um helming frá árinu
1987 vegna þess að hlutur iðn-
aðarins í skipasmíðum, endur-
bótum og viðgerðum hemr
minnkað vemlega. Á sama
tíma hafa útgerðarmenn í vax-
andi mæli farið meb þessi
verkefni til útlanda vegna þess
að þar nýtur skipaiönaður rík-
isstyrkja og annarrar opinberr-
ar fyrirgreiðslu. ■
Reykjavíkurborg, Samtök
iðnaðarins, og þjóðhátíðar-
nefnd fengu í gær afhent sýn-
ishom af íslenskum fánum
sem saumaöir em á Sauma-
stom Hofsóss, en hún er eini
íslenski framleiðandinn á ís-
lenska fánanum.
Fánamir sem afhentir vom í
gær eiga að beina athygli við-
takendanna að þessari fram-
leiðslu og minna á að á 50 ára
lýðveldisafmæli sé vib hæfi að
nota íslenskan íslenskan fána.
Búast má vib að fáninn muni
blakta óvenju víða í ár og að
margir telji sig þurfa að endur-
nýja fánann sinn. Saumastofan
á Hofsósi og Iðnþróunarfélagið
í kjördæminu hafa lagt áherslu
á að starfsemi lítilla iðnfyrirtkja
sem þessa á Hofsósi styrki þar
atvinnulíf en atvinnuleysi er
nokkuö.
Fánamir frá Hofsósi em mjög
vandaðir og em í umbúðum
sem ætlast er til að notaðar séu
til að geyma hann í á milli þess
sem hann er dreginn að húni.
Með fánanum fylgja ítarlegar
leiðbeiningar um alla notkun,
fánastærð, fánatíma, hvernig
eigi að draga fána að húni, af
húni og í hálfa stöng, hvernig
eigi ab leggja hann á líkkistu
o.s.frv.
Saumastofan á Hofsósi fram-
leiöir að jafnaöi um 500 fána á
ári en þar starfa auk Svanhildar
Guðjónsdóttur þrjár konur í
hlutastarfi. Svanhildur hefur
saumað íslenska fánann frá
1973, fyrst hjá Kaupfélagi Skag-
firöinga en síban tók hún rekst-
urinn á leigu þegar fyrirhugab
var að leggja starfsemina nibur
fyrir nokkrum ámm vegna
harðnandi samkeppni við inn-
flutta fána. ■
Heföbundin 1. maí-hátíö á vegum borgarstjórnar
stefndi í aö veröa „tveir meö öllum":
Árni og Davíö einir
með eldri borgurum
Forsœtisnefnd Alþingis hefur enn ekki ákveöiö hvaöa mál veröa tekin fyrir á hátíöar-
fundi Alþingis á Þingvöllum 17. júní:
Stefnir í óefni hjá forsætisnefnd
Ekkert liggur fyrir og engar
upplýsingar er aö fá frá for-
sætisnefnd Alþingis um
hvaða þingmál á að taka fyr-
ir á Þingvallafundinum 17.
júní.
Samkvæmt heimildum Tím-
ans hefur verið rætt í forsætis-
nefnd ab leggja fram þings-
álykmnartillögu um mann-
réttindakafla stjómarskrárinn-
ar en engar ákvarðanir liggja
fýrir.
Þingmenn sem Tíminn ræddi
vib í gær sögðu það vera
skyldu háttvirts Alþingis að
leggja fram á fimmtíu ára af-
mæli lýðveldisins mál, sem
breið samstaba væri um í þing-
inu. Nú væri tíminn að renna
út og engin umræða hefði far-
ið fram um þetta mál. Þab væri
hneyksli og fyrir neðan virð-
ingu Alþingis aö láta mál eins
og þetta reka á reiðanum og
„ætla svo að ákveða það með
einhverjum flumbrugangi á
síðusm klukkutímum þings-
ins," eins og einn þeirra orbaði
það.
„Það verður horft til þess ut-
an úr heimi hvað Alþingi ís-
lendinga gerir ab tillögu sinni
á þessum mikla hátíðarmndi
en á þessari smndu virðist allt
stefna í það að málið komi
fram illa undirbúið og verði
bæði þingi og þjóð til hneisu,"
sagði heimildarmaður Tímans
innan Alþingis sem fylgist
grannt með störfum forsætis-
nefndar. ■
Á árunum 1978-1982 tók borg-
arstjóm Reykjavíkur upp þann
sið að bjóða öllum þeim sem
sjötugir yrðu á árinu í 1. maí-
kaffi. Þessi góði siður hemr
haldist síðan og hafa borgar-
miltrúar verið ásamt borgar-
stjóra í hlutverki gestgjafa. Þess-
ar samkomur hafa jaman þótt
vel heppnaðar.
Á sunnudaginn bar hinsvegar
svo við að Ámi Sigfússon sendi
ekki út boðskort til borgarfulltrúa
eins og venjan er heldur sendi
hann persónulegt bréf til allra
þeirra sem sjötugir veröa á árinu
og bauð þeim í Ráðhúsið 1. maí
þar sem hann ásamt Davíð Odds-
syni tók á móti gestunum. Ekki
var gert ráb fyrir að aðrir borgar-
miltrúar yrðu þar í hlutverki gest-
gjafa eins og venja hefur verið.
Þessi nýbreymi hefur ekki mælst
vel fyrir hjá öömm í borgarstjóm-
inni. Timinn hemr upplýsingar
um að mörgum finninst óviðeig-
andi að tveir borgarmiltrúar, Ámi
og Davíö, skáki öðram fulltrúum
til hliðar og taki einir á móti 300
gestum.
Samkvæmt heimildum Tímans
er mikil óánægja með þessa uppá-
komu innan Sjálfstæðisflokksins
og finnst borgarfulltrúum meiri-
hlutans að gróflega hafi verið
gengið fram hjá þeim í þessu
máli. Þrír borgarmiltrúar mættu
þó í kaffið án þess að hafa fengib
boösbréf. „Boöflennurnar vora
Katrín Fjeldsted, Guðrún Ög-
mundsdóttir og Sigrún Magnús-
dóttir. ■