Tíminn - 05.05.1994, Síða 7

Tíminn - 05.05.1994, Síða 7
Fitnnptudagur 5, maí 1994 y ipp 7„ Aöalfundur KS fyrir áriö 1993: Viðunandi afkoma Frá Guttormi Óskarssynl, fréttaritara Tímans á Saubárkróki Laugardaginn 23. apríl s.l. var abalfundur Kaupfélags Skag- firöinga haldinn í Selinu á Sau&árkróki. Á fundinum áttu rétt til fundarsetu rúmlega 60 kjömir fulltrúar deilda, auk deildarstjóra 12 félagsdeilda. Einnig sátu fundinn stjóm fé- lagsins, kaupfélagsstjóri og framkvæmdastjóri Fiskiöj- unnar- Skagfir&ings h.f. A& venju voru allmargir gestir á fundinum og sérstakur gestur hans var Steingrímur Her- mannsson, f.v. forsætisráöherra og nýráöinn seðlabankastjóri. Stjómarformaöur, Stefán Gestsson á Amarstööum, minntist í upphafi fundar þeirra félagsmanna er látist höfðu frá síöasta aöalfundi. Vottuöu fundarmenn minningu þeirra viröingu sína með því að rísa úr sætum. Fundarstjórar vom kjörin þau María Björk Ásbjarnardóttir og Þórarinn Magnússon. Stjórnarformaöur geröi í skýrslu sinni til fundarins grein fyrir störfum stjómarinnar frá síöasta aðalfundi, helstu málum sem hún heföi tekið til meö- ferðar og afgreiðslu þeirra. For- maöurinn fór einnig nokkmm oröiun um hræringar í þjóðlíf- inu og áhrif þeirra á stööu og rekstur kaupfélagsins. Kaupfélagsstjóri, Þórólfur Gíslason, flutti aö vanda fróö- lega skýrslu um rekstur og stööu KS. Þar kom m.a. fram, að rekst- ur félagsins sjálfs hefði veriö nokkuð viðunandi á síðasta ári. Rekstrarafgangur næmi rúmum 20 milljónum króna, en þegar tekið heföi verið tillit til afkomu Fiskiöjunnar-Skagfiröings h.f., væri hinsvegar um halla aö ræöa, sem næmi um 28 millj. króna. Ástæöur fyrir lakari af- komu sjávarútvegsfyrirtækj- anna á s.l. ári kvað hann liggja einkum í þrennu. í fyTsta lagi heföu gengisfellingar valdið þeim vemlegu óhagræöi, birgðir hefðu verið talsvert miklar framan af ári, en verðþróun á erlendum mörkuðum óhagstæð og síöast en ekki síst væm afla- heimildir afskrifaöar. Kaupfé- lagsstjóri kvaö fjármunamynd- un í rekstri kaupfélagsins hafa verið rúmar 140 millj. króna miöaö viö um 120 m.kr. 1992. Lausafjárstaöa væri nokkuð góö og veltufjárhlutfall í árslok væri 1,82 á móti 1,77 í árslok 1992. Eiginfjárhlutfall félagsins væri nánast óbreytt, eöa rúm 50%. Afskriftir eigna námu á árinu 81,2 millj. króna, en vom 73,6 milljónir árið áður. Fjárfestingar vom um 100 millj. króna á ár- inu. Föstum starfsmönnum heföi fjölgað lítillega á árinu og heföu verið 188 í árslok, eöa 4 fleiri en áriö áður. Heildar launagreiöslur hækkuöu þrátt fyrir það ekki milli ára. Heildar- velta KS og fyrirtækja þess væri rúml. 4,3 milljarðar króna. Kaupfélagsstjóri geröi aö svo búnu grein fyrir afkomu hinna ýmsu rekstrarsviöa fyrirtækis- ins, en þar var ekki um miklar breytingar að ræöa frá fyrra ári. Nýbreytni í hinum hefðbundna rekstri væri fyrst og fremst fersk- graspökkunin í graskögglaverk- smiðjunni og gasskynjarafram- leiösla rafmagnsverkstæöis. Dálítil aukning varö í slátmn sauðfjár og mikil aukning í slátmn nautgripa. Einnig varö aukning í móttekinni mjólk hjá mjólkursamlaginu. Hann las síöan og skýrði reikninga félags- ins. Aö lokum þakkaöi kaupfélags- stjóri félagsfólki, stjóm og starfsmönnum samstarf á liðnu ári og óskaöi fundarmönnum góðs og gleðilegs sumars. Einar Svansson, framkvæmda- stjóri Fiskiöju Sauöárkróks og Skagfirðings h.f., flutti síðan yf- irgripsmikla og fróölega skýrslu um rekstur fyrirtáekjanna á s.l. ári. Fram kom m.a. í skýrslu hans, aö Fiskiðjan hafði tekið viö rúmum 9.700 smálestum af bolfiski til vinnslu í verksmiöj- um sínum og væri það metár. Hann geröi grein fyrir aö frá ár- inu 1987 heföi þetta magn nú þrefaldast. Einar geröi grein fyr- ir þróun fiskvinnslu og útgeröar og útflutningsmálum sjávaraf- urða almennt og fjallaði síöan um hvernig þessi mál horfðu við Fiskiöjunni-Skagfiröingi h.f. Tekist heföi að halda uppi mik- illi vinnu á s.l. ári í verksmiöj- um fyrirtækisins og vinna alla virka daga frá kl. 6 aö morgni til 22 aö kvöldi á tveimur vöktum. Ef hinsvegar svo færi fram sem horföi meö breytingar á lögum Þórey og Dem- irev kjörin best í blakinu Lokahóf Blaksambands Islands var haldið síðastliöinn laugar- dag. Stúdentarnir Þórey Har- aldsdóttir og Zdravko Demirev vom kjörin best í kvenna- og karlaflokki. Efnilegust kvenna var valin Dagbjört Víglunds- dóttir, Þrótti Nes., en efnilegast- ur karlanna var kjörinn Ólafur H. Guðmundsson, Þrótti R. Þor- valdur Sigurðsson var útnefnd- ur besti dómarinn. Þá voru nokkrar tölulegar stað- reyndir íslandsmótsins upplýst- ar. Jón Árnason, Þrótti R., átti flestar uppgjafimar sem gáfu stig (31) og Metta Helgadóttir, um stjóm fiskveiða, samfara auknum niðurskurði aflaheim- ilda og vaxandi erfiðleikum viö aö fá fluttan inn óunninn fisk, yrði slíkt til muna erfiöara í næstu framtíð. Einar gerði grein fyrir vaxandi hlutdeild fullvinnslu sjávar- fangs hjá fyrirtækinu, en það sem af er þessu ári hefur lang- mestur hluti vinnslunnar veriö vara, sem væri nánast tilbúin fyrir neytendur. Stefnt væri aö því aö taka í notkun vélasam- stæöu á árinu til þess að fram- leiða tilbúna fiskrétti. Aö lokinni skýrslu Einars flutti Steingrímur Hermannsson er- indi og verður greint nánar frá efni þess síðar. Aö svo búnu tóku viö umræður um skýrsl- urnar. Vom þær hinar gagnleg- ustu og kom fram hjá ræöu- mönnum almenn ánægja meö þær aðgerðir, sem kaupfélagið og fyrirtæki þess hafa staöið fyr- ir til þess að halda uppi atvinnu í byggðarlaginu og hversu fjár- hagur þess væri í raun traustur þrátt fyrir abstæður í þjóðfélag- inu. Úr stjóm áttu aö ganga ab þessu sinni þeir Ámi Sigurðsson og Stefán Guðmundsson, en þeir vom báðir endurkjömir. Evrópukeppni unglingalandsliba: Ísland-Portúgal á Valbjarnarvelli íslenska unglingalandsliöiö, skipaö leikmönnum 18 ára og yngri, leikur gegn landsli&i Portúgala á Valbjamarvelli n.k. sunnudag, 8. maí, og hefst leikurinn klukkan 17. Þetta er fyrri viðureign liöanna í 16 liða úrslitum í Evrópu- keppni landsliða, en seinni leik- urinn fer fram ytra þann 15. maí n.k. Fjómm dögum áöur mun íslenska libið spila æfinga- leik viö U-18 landslib Spánverja á Spáni, þar sem heimilt verður að nota allt aö sjö varamenn. Eins og kunnugt er, þá vann ís- lenska unglingalandsliðið liö Wales og Eistlands í riðlakeppn- inni sl. haust, en Portúgal vann liö Pólverja og Tékka. Meðal leikmanna íslenska liðs- ins em leikmenn eins og Eiður Smári Guðjohnsen Val, Sigur- vin Ólafsson Stuttgart, Guðni Rúnar Helgason Sunderland og Björgvin Magnússon Werder Bremen. Þjálfari liðsins er Guðni Kjartansson. ■ Noröurland: Mokveiði af vænum þorski „Það er bullandi fiskur héma. Netabátamir, sem enn eiga ein- hvem kvóta, em að fá hérna mokafla af góbum og algengum norðlendingi, þorski um fjögur kíló að þyngd," segir Gunnlaugur Konráðsson, kvótalaus smábáta- sjómaður á Árskógsströnd. Hann segir aö bátar frá Kópa- skeri og Hauganesi hafi verið að landa allt að 20 tonnum eftir nóttina. Þá segir hann að það séu einnig mjög góð aflabrögð inni á Akureyrarpolli og dæmi um að tveir menn hafi fengið þar alit aö 6-7 tonn yfir daginn. Auk þess séu grásleppukarlarnir ab koma með „helling" af fiski sem þeir fá í grá- sleppunetin. ÍS (51), í kvennaflokki. í smass- inu skoraði Bjarni Þórhallsson, KA, flest stigin (97) og í kvenna- flokki var það Oddný Erlends- dóttir í Víkingi (109). Áki Thor- oddsen, KA, varði flest skot and- stæöinganna í hávörninni (49), en Ragnhildur Einarsdóttir, Sindra (33), og Jóna Harpa Vig- gósdóttir, Þrótti Nes. (33), hjá konunum. Gottskálk Gizurar- son, Stjömunni, var með bestan heildarárangur (151) úr þessum þremur flokkum hjá körlunum, en hjá konunum var Oddný Er- lendsdóttir best, þegar allt var lagt saman (161). ■ P>MVIFTUR OQ HITA Staölaöar einingar hítablásara frá Novenco til loftræsingar og lofthitunar í íbúöarhús, skemmur, bílskúra, veitingahús og verkstæöi. Höfum einnig þakblásara og þakhettur fyrir skemmur, skrifstofubyggingar, verkstæöi o.fl. Novenco er dönsk gæðavara. Veitum tæknilega ráögjöf viö val á loftræsibúnaði og hitablásurum. RAFVÉLAVERK- STÆÐI FÁLKANS Mótorvindingar, dæluviögerðir og allar almennar rafvélaviðgerðir. Þekking Reynsla Þjónusta® FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8-108 reykjavIk SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.