Tíminn - 05.05.1994, Blaðsíða 10
aö berst ýmis póstur inn
um dyralúguna þessa daga
í Reykjavík og víðar. Guö-
mundur Andri Thorsson rithöf-
undur sagði í „Rimsíramsi" sínu
á Rás eitt þarsíðustu helgi frá
sendingu, sem þeim hjónum
barst einn daginn inn á heimil-
ið, og vakti frásögn hans nokkra
athygli. Guðmundur Andri hef-
ur gefið Tímanum góðfúslegt
leyfi til að birta útvarpsspjall sitt
um lyklanámskeið 30-þúsund-
klukkustunda-mannsins frá
Stjómunarfélaginu. Millifyrir-
sagnir og myndir em blaðsins.
Ég er lestróhólisti. Mig þjakar
taumlaus lestrarfíkn, stjómlaus
lestur á efni sem mig varðar ekk-
ert um og vekur ekki nokkum á-
huga minn, og segir mér ekki
neitt. Ég les á sjampóbrúsa,
þvottavélabæklinga, kexpakka,
Moggann. Ég er að vísu ekki
jafn illa haldinn af þessum sjúk-
dómi og maöur sem ég veit um
og horfir öllum stundum á
textavarpið í sjónvarpinu - en
ég les allan þann mslpóst sem
inn á heimilið berst. Allan.
Það rak því heldur betur á
fjömrnar hjá mér þegar ég fékk
upp í hendurnar feikilega orð-
margan bækling frá Stjómunar-
félagi íslands, sem hét hvorki
meira né minna en „Leiðin til
árangurs". Hann er litprentaður
á vandaðan gljápappír og fram-
an á honum er mynd af manni
á fjallstindi. Að vísu var pésinn
ekki ætlaður niér heldur kon-
unni minni, og mun hafa verið
sendur öllum konum hér í vest-
urbænum - ef ekki öllum kon-
um í Reykjavík - en marga skák-
ina við páfann hefur hann létt
mér; þarna er eitt og annað sem
hægt er að láta sálu sína þenkja
um. Hér er til dæmis setning
um kosti myndbandaþjálfunar,
sem ég hef mölbrotið heilann
um án þess að komast að niður-
stööu:
„Þú lærir og manst í miklu
mæli af hraðvirkri, raunhæfri
kynningu á gagnlegri hæfni og
kraftmikilli stjórnunartækni."
Kannski hef ég ekki „lært og
munað í nógu miklu mæli af
hraðvirkri raunhæfri kynningu
á gagnlegri hæfni og kraftmik-
illi srjórnunartækni" til að vera
fyllilega fær um aö meðtaka
þennan boðskap og yrði alveg
með á nótunum eftir nokkur
námskeið í gagnlegri hæfni, en
gagnvart þessu stend ég eins og
gagnvart harðsnúnasta algebru-
dæmi. Þótt líf mitt lægi við,
gæti ég ekki snúið þessu til ís-
lenskrar tungu.
Hvert er erindi Stjórmmarfé-
lagsins til kvenna hér í Reykja-
vík? Það er að bjóða þeim á
námskeið í fullkomnun, því
eins og allar konur vita þá em
þær afskaplega misheppnaöar.
Námskeiðið er kennt við fugl-
inn Fönix eða „Phoenix" upp á
móðurmál námskeiðsins,
ensku, en fuglinn sá lifði í
fimmhundmð ár, fór svo og dó
og nýr Fönix reis úr þeirri ösku
til að fljúga hærra en aðrir fugl-
ar. Hér er sem sé verið að lofa
fólki nýju lífi, nýjum ham, og
að fljúga svo með himinskaut-
um.
Þróub hæfni
í feitletruðum inngangi er að
finna orörétt þessa lýsingu á
námskeiöinu:
„Hvað aöskilur afreksfólk
(peak performers) frá fjöldan-
um? Það er ekkert leyndarmál.
Afreksfólk hugsar og hegðar sér
einfaldlega á árangursríkari
hátt. Það streymir frá því metn-
aður, persónutöfrar og sjálfs-
traust. Það afrekar miklu. Nú
býðst þér tækifæri til að tileinka
þér þessa þróuðu hæfni, eigin-
leika og viðhorf sem allir afreks-
menn og konur hafa. Á Phoenix
námskeiðinu lærir þú það sem
til þarf (the winning edge) til að
ná árangri og skara fram úr. Þú
lærir hin heillandi mynstur yfir-
burða, sem gera venjulegu fólki
kleift að ná framúrskarandi ár-
angri ... í vinnunni og einkalífi.
Taktu ákvörðun núna um að
gera þínar æðstu vonir að vem-
leika. Phoenix námskeiðið sýnir
þér hvernig þú átt að fara að
því."
Þetta er svolítið eins og samið
af Kristjáni heiti ég Ólafssyni,
svo mjög þarf íslenskur höfund-
ur ab grípa til enskrar tungu til
ab koma því frá sér sem hann
eða hún vildi raunvemlega sagt
hafa - viröist satt að segja eiga
nokkub langt í land með að
verða „peak performer" á ís-
lenska tungu. Enda er þetta ætt-
að frá Ameríku, hannab þar og
hugsað, og ber þess ærin merki.
Fönixnámskeiöið mun upp-
fundiö af Brian Tracy, sem hefur
stafina C.P.A. og E á eftir nafn-
inu sínu, en þess er getið að þeir
stafir séu „æðsta viðurkenning
Þetta er svolítið eins og
samið afKrístjáni heiti
ég Ólafssyni, svo mjög
þarf íslenskur höfundur
að grípa til enskrar
tungu til að koma því frá
sér sem hann eða hún
vildi raunverulega sagt
hafa - virðist satt að
segja eiga nokkuð langt í
land með að verða „peak
performer" á íslenska
tungu.
tyriT opinbera ræöumennsku".
Á myndum lítur Brjánn þessi út
eins og frambjóðandi - við sjá-
um mynd af traustvekjandi og
myndarlegum jakkalakka á stór-
um skjá að veifa höndunum á
þennan hátt sem þeir kenna í
stjómmálaskólunum og undir
er íslenskur texti: „... hvað þér
finnst um sjálfan þig." Að öðru
leyti minnir hann um sumt á þá
gúrúa sem stundum hafa hing-
að borist handa fólki í föður- og
umsjárleit - lögð er í kynningu
gríðarleg áhersla á feikilega víð-
feðma menntun hans. Þannig
segir orörétt í bæklingnum:
„Brian hefur lagt meira en
30.000 klukkustundir í nám í
sálarfræði, heimspeki, hagfræði,
stjórnmálafræöi, félagsfræði og
viðskiptum." Nú veit maður
ekki hvort hann leggur fram
stimpilklukkukort sem bevís
upp á sína menntun, en óneit-
anlega er þab frumlegur mæli-
kvarði á menntun að skrifa hjá
sér tíma - yfirleitt notast fremur
menn vib titla á borð við B.A.,
magister eða jafnvel doktor. Þó
veit maður aldrei hvemig þeir
fara að þessu þarna í Amer-
íkunni.
En hinn lúsiðni og gagn-
menntaði Brian hefur samt ekki
Bceklingur sem kynnir
stjórnunarnámskeib.
bara legiö yfir bókum sína ótrú-
lega vellukkuöu ævi, ef marka
má bæklinginn, því þar stendur
ennfremur þetta um hann: „Bri-
an hefur að baki farsælan starfs-
feril í sölu-, markaðs-, fjárfest-
inga-, innflutnings- og dreifing-
ar-, fasteignaþróunar-, bifvéla-,
þjálfunar- og stjórnunarráð-
gjöf." Tilvitnun lýkur. Hann
hefur þannig veriö milli þess að
mennta sig í meira en 30.000
klukkustundir á þönum við að
ráða öðmm heilt um bifvélar og
hvað þá heldur annað. Og ekki
er nóg með það, því auk alls
þessa hefur hann gefið sér tíma
til að starfa í meira en áttatíu
löndum í sex heimsálfum og
verið að skipuleggja þetta nám-
skeið sem reykvískar konur eiga
nú kost á, en það er samkvæmt
bæklingnum orðrétt „árangur
tuttugu ára rannsóknarstarfs á
árangri og velgengi um allan
heim". Þetta skil ég þó - þetta
merkir að hann hafi verið í tutt-
ugu ár aö rannsaka árangur og
velgengni - og nú getur hann
sumsé deilt með okkur niður-
stöðum sínum á myndböndum,
en eins og við munum var kost-
urinn við þá aöferð að „þú lærir
og manst í miklu mæli af hrað-
virkri, raunhæfri kynningu á
gagnlegri hæfni og kraftmikilli
stjómunartækni".
Sjö lyklar aö já-
kvæöum breyting-
um á sérhverju sviöi
Það er svolítið erfitt að átta sig
á þessu, en mér sýnist aö 27
myndbandsþættir eigi að breyta
hinum misheppnuðu íslensku
konum í fuglinn Fönix. Og hver
þáttur býður upp á nokkur at-
riði, sem viðkomandi þarf að
leggja á minnið eins og möntm
og tauta meb sjálfum/ri sér á
erfiðum stundum, geri ég ráð
fyrir. Minnisatriðin heita hér að
sjálfsögðu yfirleitt „lyklar" upp
á ný-ísl-ensku. Þannig þurfum
við að læra „sjö lykilatriði að
velgengni" ... „sjö huglæg lög-
mál til aö ná fram jákvæðum
breytingum á sérhverju sviði lífs
þíns"... „fjögurra þrepa ferli til
að losna undan ótta og áhyggj-
um'... „fimm huglæg lögmál til
að breyta lífi þínu"... „fimm
lykilatriði við að setja sér mark-
mib"... „tólf þrep til að ná
markmiðum sínum"... „sjö lyk-
ilskref í átt aö gagnlegri per-
sónulegri tímastjómu" ... „fjög-
ur mikilvæg atriði og þrjá lykla
að skapandi lausn vanda-
mála"... „sjö lykla til að geta
aukið orkuþína" ... „sex lykilat-
riöi að farsælum samböndum"
... „tvö lykilatriði sem stuðla að
því að böm verði afreksfólk" ...
og síðast en ekki síst: „fjórar
leiðir til að segja bömunum
þínum aö þú elskir þau".
Gagnlegt. Ætli ég þyrfti ekki
hátt í þúsund klukkustundir til
að geta munað og haldið að-
greindum öllum þessum lykl-
um, og þó er aldrei að vita hvab
maður er fær um þegar maður
hefur „lært og munað í miklu
mæli af hraðvirkri raunhæfri
„sjö lykla til að geta
aukið orku þína" ... „sex
lykilatríði að farsœlum
samböndum" ... „tvö
lykilatríði sem stuðla að
því að böm verði afreks-
fólk" ... ogsíðasten ekki
síst: „fjórar leiðir til að
segja bömunum þínum
að þú elskir þau".
kynningu á gagnlegri hæfni og
kraftmikilli stjórnunartækni".
Og vissulega er eftir nokkm ab
slægjast. Þú lærir af Brian Tracy
CPAE, svo fátt eitt sé talið,
„hvernig hugur þinn starfar" ...
„hvernig þú getur haft stjórn á
gæðum lífs þíns með hugsunum
þínum" ... „hvernig opna má
fyrir orkuna í undirmeðvitund
þinni og hvernig þú getur frels-
að sjálfan þig frá skoðunum
sem hefta þig og fengiö vald á
huga þínum með því að nota
reyndar aðferðir". Einhvern
veginn virkar þetta síðasta eins
og skrautpakkningar utan um
annað og ljótara orð, sem er
heilaþvottur - en við skulum
Fimmtudagur 5>maí 1994^
G ubmundur
Andrí Thorsson.
ekki fást um þab, því þú lærir
„hvemig og hvers vegna ytri
veröld þín er einungis endur-
speglun af innri veröld hugsana
og tilfinninga" ... „hvemig þú
getur breytt grunngerð þinni"
... „hvemig nota má sjónmynd-
un (visualization) til ab marka
ímynd hins fullkomna sjálfs í
undirmeðvitund þinni". Ég
endurtek: „... marka ímynd
hins fullkomna sjálfs í undir-
meðvitund þinni". Vib skulum
muna að hér talar maður með
30.000 klukkustunda nám aö
baki og vib verðum að treysta
því að þetta merki eitthvað,
komumst kannski ab því þegar
við höfum lært „að tvöfalda
hæfileika heilans", eins og okk-
ur er lofað, og lært megmn,
bætt mataræði, þolfimiæfingar,
ab hætta að reykja og ekki síst
„... hvernig ýta má létt vib nátt-
úrulegum tilhneigingum lík-
ama þíns í átt ab betri heilsu og
meiri orku". Við læmm að
„takast á við hina sex stóm
streituþætti (the Big six stress-
ors)" og læmm að „nota stað-
gengnislögmálið (the law of
substitution)" og „Lögmál
óbeins átaks" læmm vib líka
„(the Law of indirect Effort)" og
„hvemig vera má vinsæl og
metin að verðleikum". Brian
telur ekki eftir sér að kenna okk-
ur ástina, kenna okkur að verða
foreldrar, afhenda okkur lykil-
inn að hamingjusömu fjöl-
skyldulífi og loks er það þáttur
númer tuttugu og sjö sem heitir
„að finna tilganginn með líf-
inu".
Rétt nýting á staö-
gengnislögmálinu
Og allt í einu er þetta fariö að
hljóma svolítiö kunnuglega.
Bíðum nú aöeins við, var ekki
einhvern tímann einhver annar
sem átti afl til að veita okkur
hjálpræði í allri okkar neyð? Það
er greinilegt að stjómendur
Stjórnunarfélags íslands telja sig
hafa fundið sjálfan Messías,
hafa aö minnsta kosti beitt
„staðgengnislögmálinu" gagn-
vart þeim sem hingað til hefur
verið talinn verðskulda þá nafn-
gift. Það er þeirra mál. Og eigin-
lega er ég að vona að það sé líka
þeirra mál, ef þau halda að þau
geti enn einn ganginn verið að
reyna að telja konum trú um að
þær séu ómögulegar og mis-
heppnaöar og glataðar og verði
að bæta sig, og geti breyst í ofur-
konur með því að horfa á
nokkrar myndbandsspólur þar
sem einhver Kani malar um að
„marka ímynd hins fullkomna
sjálfs í undirmeövitundinni".
Við hin, sem vitum að fólk er
stundum latt og stundum kátt
og stundum klárt og stundum
heimskt, stundum fúlt og
stundum fyndið, stundum
svangt og stundum satt, stund-
um fallegt og stundum ljótt og
stundum flott, stundum í svona
skapi, svona skapi, eða í svona
skapi - við sem vitum að fólk er
stundum svona og stundum
hinsegin, en yfirleitt „alveg lygi-
lega gott", vib verðum bara ab
beita „staðgengnislögmálinu"
gagnvart svona sendingum frá
Stjórnunarfélaginu. Því enginn,
ekki einu sinni maður sem seg-
ist hafa lært heima í 30.000
klukkustundir, getur fært okkur
óskasteininn. ■