Tíminn - 05.05.1994, Qupperneq 11

Tíminn - 05.05.1994, Qupperneq 11
Fiirfi'fttudagufcS^maí 1994 11 Jón V. Hjaltalín bóndi í Brokey Fæddur 8. júlí 1895 Dáinn 17. apríl 1994 Laugardaginn 23. apríl s.l. var gerö frá Stykkishólmskirkju út- för Jóns Bergs Vigfússonar Hjaltalín, bónda í Brokey, og var hann lagöur til hinstu hvílu meöal ættingja sinna í Narfe- yrarkirkjugarði. Jón fæddist í Brokey 8. júlí 1895 og var hann því tæplega 99 ára þegar hann lést. Foreldrar hans voru óðalshjónin í Brokey, Kristjana G. Kristjánsdóttir og Vigfús Jónsson Hjaltalín. Jón var elstur 8 systkina og eru nú aðeins á lífi Vilhjálmur, Lilja og Eygló. Látin eru Laufey, Lára, Hildur og Kristín. Jón liföi mestu byltingatíma í sögu þjóöarinnar, sem taldi 74.508 íbúa við fæöingu hans, en 264.922 við lát hans. Fyrstu bamsárin ólst Jón upp í torfbæ, eins og þjóöin haföi gert um aldir. Ariö 1902 reisti faðir hans stórt tvílyft timburhús og þar var heimili Jóns næstu 50 árin. Jón byrjaði snemma aö vinna viö bústörfin, sem voru mjög margbreytileg við eyjabúskap- inn. Á þessum tíma vom vélar ekki komnar til aö létta störfin. Eyjarnar sem tilheyra Brokey skipta mörgum tugum og milíi þeirra var fariö á árabátum, sem Jón stjómaöi vel og örugglega, þótt straumar væm varasamir og mikiö um boöa og sker. Þaö var því mikil bylting þegar vél- bátur var smíöaöur árið 1927, enda var hann nefndur „Léttir". í Brokey var stundaður sauð- fjárbúskapur, nautgripir vom aðeins til aö fullnægja heimilis- þörfum, 15-20 manns vom í heimili. Selveiðar og hrogn- kelsaveiöar vora stundaðar og önnur hlunnindi nýtt, svo sem æöardúnn, egg, fugl, mótekja og fleira. Heyskapur fór fram í mörgum eyjum, þar var slegið með orfi og ljá, heyið þurrkaö, bundið í bagga, borið á bakinu niður í bát, síöan var tekiö til ár- anna og róið heim í vör. Þar var heyið tekiö upp úr bátnum, híft meö spili upp kletta og dregiö meö hestum heim að hlööum. Erfiðið var mikið, enda uröu viöbrigðin mikil þegar vélar komu til aö létta störfin. Bátar vom smíðaðir og gert viö eldri báta. Brú var byggö yfir á næstu eyju, Noröurey. Þar sem flæði- hætta var fyrir kindur, vom hlaðin upp sker. Víöa vom hlaðnar vörður á hólum og hæöum og em þær góð leiða- merki. Margt var starfaö og reynt að nýta allt sem til var. Samvinna og samhjálp var að- alsmerki þessa fólks sem í eyjun- um bjó og þannig var sigrast á öllum vandamálum sem aö steðjuðu. Stundum vom ísalög svo mikil á vetmm að ekki varð komist í kaupstað í tvo til þrjá mánuði á ári. Jón var smiður góður, söng- maður og spilaði á orgel. Hann tók mikinn þátt í félagsstörfum, var stjórnarmaður í Kaupfélagi Stykkishólms um árabil, sýslu- nefndarmaður fyrir Skógar- strandarhrepp mjög lengi og lagði ævinlega gott til mála. Ennfremur var hann í hrepps- nefnd, skólanefnd og sóknar- nefnd og var þannig virkur fé- lagsmálamaður, þótt hann nyti ekki nema þriggja mánaða far- t MINNING kennslu í æsku. Liðtækur ljós- myndari var hann og er mynda- safn hans geymt á Þjóðminja- safninu. Þjóðin var á hraðri leið til frelsis og háleitar hugsjónir fylltu hugi fólksins, ekki síst í ungmennafélagshreyfingunm, en þar tók Jón fullan þátt í störf- um Ungmennafélagsins Trausta. Áriö 1941, þegar Jón var orð- inn hálffimmtugur, fékk hann stærsta happdrættisvinning lífs- ins þegar hann giftist eftirlif- andi eiginkonu, Ingibjörgu Páls- dóttur. Þeirra böm em: Vigfús, maki Margrét Ásgeirs- dóttir. Páll, maki Ásta Jónsdóttir. Bergur, maki Ásdís Herrý Ás- mundsdóttir. Bamabömin em 9 og bama- bamabörnin 5. Áriö 1941 hættu foreldrar Jóns, Kristjana og Vigfús, búskap í Brokey og við tóku Jón og Ingi- björg og bróðir hans Vilhjálmur og eiginkona hans Jóhanna Guðjónsdóttir, sem er frænka Ingibjargar konu Jóns. Kristjana og Vigfús vom í Brokey til dauðadags og nutu frábærrar umönnunar tengdadætra sinna. Vigfús andaðist 90 ára árið 1952 og Kristjana andaðist 94 ára 1968. Bræðumir í Brokey og konur þeirra bjuggu þar myndarbúum um þrjátíu og sex ára skeið. Byggt var nýtt íbúðarhús, keyptar dráttarvélar og fleiri tæki, skuröir grafnir með skurð- gröfu og tún ræktuð, því nú átti að hætta að flytja hey milli eyja. Rafmagnið hélt innreið sína og síminn kom. Allt varð bjartara og léttara. Gestagangur var mik- ill, höfðinglegar veitingar fram bornar, ferðamönnum liösinnt og upplýsingar veittar um eyja- líf og sögu kynslóöanna. Ingibjörg og Jón fluttu til Stykkishólms 1977 og keyptu sér lítið hús að Bókhlöðustíg 10, til vetrarsetu. Húsið stendur hátt og úr gluggum þess gat Jón fylgst meö mannlífinu í Stykkis- hólmi og bátsferðum milli eyja. Á sumrin dvöldu þau hjón í Brokey í nánd við fjölbreytt dýralíf og gróskumikinn eyja- gróður. í Stykkishólmi nutu þau hjón návistar barna sinna, barnabarna og fjölbreyttrar starfsemi eldri borgara. Jón var hress og kátur til síð- ustu stundar. Að kvöldi 17. þ.m. bauö hann góða nótt og lagði síðan upp í hinstu för. Ég votta Ingibjörgu, börnum og öömm aðstandendum innilega samúð. Með Jóni frænda er genginn góður og réttsýnn maður, mikill samvinnumaður. Blessuð sé minning hans. Vigfús Gunnarsson DAGBÓK IFimmtudagur ^ I mai 125. dagur ársins - 240 dagar eftir. 18. vika Sólris kl.4.43 sólarlag ki. 22.08 Dagurinn lengist um 6 mínútur Féiag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni, tvímenningur, kl. 13 í dag í Risinu. Tryggvi Ólafsson sýnir í Listasafni ASÍ Laugardaginn 7. maí n.k. verður opnuð sýning á verkum listmál- arans Tryggva Ólafssonar í Lista- safni ASÍ aö Grensásvegi 16A. Sýningin opnar kl. 16 og stendur til mánudagsins 23. maí. í sýningarskrá stendur m.a.: „Tryggvi ðlafsson er úr hópi þekktustu núlifandi listamanna íslenskra. Eftir nám viö Handíða- og myndlistarskólann í Reykja- vík stundaði hann nám við Lista- akademíuna í Kaupmannahöfn. Þar hefur hann búið síöan, í sem næst þrjá áratugi, unniö aö list sinni og jafnframt kennt við aka- demíuna." Nú er Tryggvi aö koma heim siglandi yfir hafið með fjölda mynda í farteskinu og ætlar að opna stóra og fjölbreytta sýn- ingu í salarkynnum Listasafns ASI. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14-19. Lokaö á miðviku- dögum. Allir velkomnir, ókeypis að- gangur. Vorsýning Stóöhesta- stöövarinnar í Gunnars- holti Laugardaginn 7. maí verður hin árlega vorsýning Stóöhestastööv- ar ríkisins í Gunnarsholti á Rang- árvöllum. Hefst sýningin kl. 14 með hópreiö félaga úr hesta- mannafélaginu Geysi. Síöan verða sýndir þeir hestar sem tamdir hafa verið og þjálfaðir í stöðinni í vetur, auk nokkurra úrvals stóðhesta af Suðurlandi. Einnig veröur kynning á ungfol- um, en nokkmm bráðefnilegum folum er enn óráðstafað til notk- unar nú í sumar. Eftir sýninguna verður kvenfé- lagiö Unnur með kaffisölu í Gunnarsholti. Fimm listamenn frá Þrándheimi sýna í Hafn- arborg Laugardaginn 7. maí kl. 14 verb- ur opnuö í Hafnarborg í Hafnar- firði sýning á verkum fimm lista- manna frá Þrándheimi í Noregi, sem kalla sig Gmppe 5. Hér er um ab ræða þá Hákon Bleken, Ramon Isem, sem nú er látinn, Halvdan Ljosne, Lars Tiller og Roar Wold. Þessir listamenn sýndu fyrst saman undir nafninu Gmppe 5 í Þrándheimi fyrir um þrjátíu ámm og vakti hópurinn strax mikla athygli í norsku lista- lífi, enda þótt listamennimir hefðu þegar skapað sér nafn hver í sínu lagi. Þetta var í fyrsta sinn að bær utan Óslóar varð mið- punktur í framsækinni listsköp- un og hópurinn — Gmppe 5 — varðaði veginn fram á við í norskri listasögu. Sýningin í Hafnarborg er haldin í samvinnu sendiráös Noregs á íslandi og Hafnarborgar. Þrír listamannanna, þeir Bleken, Ljosne og Wold, em komnir til landsins í tilefni sýningarinnar ásamt Sigve Gramstad frá norska menntamálaráöuneytinu og fleiri gestum. Þess má geta aö sunnudaginn 8. maí verður opn- ub sýning í Norræna húsinu á myndskreytingum Hákons Blek- en vib skáldsögu Knuts Hamsun, Leyndardóma. Sendiherra Noregs á íslandi, hr. Nils Dietz, opnar sýninguna, en hún verður opin frá kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga. Listasafnib á Akureyri: 3 nýjar sýningar opn- aöar um helgina Laugardaginn 7. maí kl. 16 verða opnaðar 3 sýningar í Listasafn- inu á Akureyri. Listasafnið er opiö alla daga vik- unnar, nema mánudaga, frá 14- 18. Sýningamar standa til 1. júní. í austursal sýnir Klaus Dieter Francke ljósmyndir frá íslandi. Klaus Francke fæddist í Hamborg 1935 og býr enn í fæöingarborg sinni. Hann nam arkitektúr og vann sem arkitekt um níu ára skeið. Á þessum ámm ferðaöist hann mikið. Eftir ab Francke sagði skilib viö arkitektúrinn hef- ur hann unniö sem „free-lance" ljósmyndari og unnið fyrir mörg þekkt feröatímarit, þeirra á með- al MERIAN og GEO. Síðan 1975 hefur hann einkum unniö að gerð ljósmyndabóka. í miðsal em sýnd verk úr eigu Akureyrarbæjar. Sýndar verða nokkrar nýlegar myndir sem Menningarsjóður Akureyrarbæj- ar hefur fest kaup á. Höfundar em m.a. Eyjólfur Einarsson, Birg- ir S. Birgisson, Kristín Gunn- laugsdóttir, Gubmundur Á. Sig- urjónsson og Tryggvi Ólafsson. í vestursal verður sýning sem hlotið hefur nafnið „Hin mann- lega mósaikmynd". Hér er um aö ræða sameiginlegt verkefni allra grunnskóla á Eyjafjarbarsvæð- inu, sem lagt var fyrir nemendur af myndmennta- eða bekkjar- kennumm. Nemendur gátu gert eina eba fleiri myndir og flestir geröu fleiri en eina. Þetta em sjálfsmyndir, myndir af vinum og félögum eða, eins og krakk- amir segja sjálf, „bara myndir af einhverjum krökkum". Mynd- irnar em teiknaðar með svörtum penna og litaðar með tússlitum. Myndlistasýning nem- enda Myndlistaskólans í Hafnarfiröi Laugardaginn 7. og sunnudag- inn 8. maí gengst Myndlistaskól- inn í Hafnarfirði fýrir sýningu á myndverkum nemenda, sem unnin hafa veriö á vorönn. Sýn- ing nemenda yngri en 16 ára veröur haldin í húsnæði skólans að Strandgötu 50, 2. hæð. Sýning nemenda í framhaldsdeild skól- ans veröur haldin í Listamibstöö- inni í Straumi við Reykjanes- braut. Hún er haldin í tengslum við opnun nýrra gestavinnu- stofa, sem formlega verða teknar í notkun í Listamiöstöðinni laug- ardaginn 7. maí. Sýningamar verða opnar frá kl. 14-18 báöa dagana og em allir velkomnir. APÓTEK Kvöld-, nætur- og holgidagavarsla apóteka I Reykjavik frá 29. april tll 5. mal er i Garös apóteki og Lyfjabúðinni löunni. Þaö apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frí kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 aö morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnu- dögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eni gefnar i slma 18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands erstarfræktumhelgarogá stórhátiöum. Simsvari 681041. Hafnarfjöröur Hafnarfjaröar apólek og Noröuibæjar tek era opin á virkum dögum frá M. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek era opin virka daga á opnunartima búöa. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. A kvöldin er opiö I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, tl Id. 19.00. A helgidögum er opiö frá Id. 11.00-12.00 og 20.00- 21.00. A ööram tlmum er lyfjafræöingur á bakvakl Upplýs- ingar era gefnar I slma 22445. Apótek Keflavíkun Op'rö virka daga frá Id. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og almenna fridaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga frá Id. 8.00- 18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30-14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30. Opiö er á laug- ardögum og sunnudögum kl. 10.00-1200. Akranes: Apötek bæjarins er opið virka daga tl Id. 18.30. A laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. W. 13.00-14.00. Garöabær Apótekið er opiö rámhelga daga Id. 9.00- 18.30, en laugandaga Id. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1.maí1994. ^ Mánaðargreióslur Elli/örorkulifeyrir (gmnnlífeyrir).......... 12.329 1/2 hjónalifeyrir............................11.096 Full tekjutrygging ellilifeyrisþega........ 22.684 Full tekjutrygging örorkulffeyrisþega........23.320 Heimilisuppbót................................7.711 Sérstök heimilisuppbót........................5.304 Bamalifeyrir v/1 bams...................... 10.300 Meölagv/1 bams .....................:.......10.300 Mæðralaun/feóralaun v/1 bams..................1.000 Mæöralaun/feðralaun v/2ja bama................5.000 Mæöralaun/feðralaun v/3ja bama eöa fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaöa .............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaöa ...........11.583 Fullur ekkjulifeyrir....................... 12.329 Dánarbætur i 8 ár (v/slysa)..................15.448 Fæöingarstyrkur..............................25.090 Vasapeningar vistmanna.......................10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170 Daggreiöslur Fullir fasöingardagpeningar................1.052.00 Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20 Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings................665.70 Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80 GENGISSKRÁNING 04. mai 1994 kl. 10.54 Opinb. vtðragengl Gengl Kaup Sala skr.fundar Bandaríkjadollar 70,43 70,61 70,52 Steriingspund 106,13 106,41 106,27 Kanadadollar 50,78 50,94 58,86 Dönsk króna ....10,916 10,948 10,932 Norsk króna 9,841 9,871 9,856 Sænsk króna 9,245 9,273 9,259 Finnskt mark ....13,173 13,213 13,193 Franskur franki ....12,468 12,506 12,487 Belgiskur franki ....2,0746 2,0812 2,0779 Svissneskur franki. 50,16 50,32 50,24 Hollenskt gyilini 38,04 38,16 38,10 Þýskt mark 42,72 42,84 42,78 Itölsk lira ..0,04428 0,04442 0,04435 Austurriskur sch 6,071 6,091 6,081 Portúg. escudo 0,4149 0,4163 0,4156 Spánskur peseti ....0,5201 0,5219 0,5210 Japansktyen 0,6944 0,6964 0,6954 103,36 103,70 103,53 SérsL dráttarr 100,30 100Í60 100,45 ECU-EvrópumynL... 82,26 82,52 82,39 Grísk drakma 0,2899 0,2909 0,2904 KROSSGÁTA 1 2 3 1 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 1 17 18 J 19 70. Lárétt 1 tímabil 4 eindagi 7 stilltur 8 traust 9 japlabi 11 kaun 12 knettina 16 klampa 17 nægilegt 18 mjúk 19 lækkun Lóðrétt 1 fátæk 2 smálúða 3 tuskan 4 fuglsins 5 hagnað 6 þreyta 10 hlé 12 skrokk 13 þjaki 14 ílát 15 þræta Lausn á síðustu krossgátu Lárétt I vot 4 sjá 7 æki 8 kór 9 langaði II dáö 12 hirðing 16 æða 17 sói 18 far 19 tal Lóðrétt 1 væl 2 oka 3 tindrar 4 skaðist 5 jóð 6 ári 10 gáb 12 hæf 13 iða 14 nóa 15 gil

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.