Tíminn - 08.06.1994, Blaðsíða 1
SÍMI
631600
78. árgangur
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
106. tölublað 1994
Lýöveldishátíbin á
Þingvöllum:
90 erlendir
fjölmibla-
menn
Nú þegar hafa 90 erlendir
fjölmiblamenn tilkynnt
komu sína á lýbveldishátíö-
ina á Þingvöllum 17. júní.
Flestir koma frá Norburlönd-
unum, en einnig hafa til-
kynnt þátttöku fréttamenn
frá stórum stjónvarpsstöbv-
um eins og t.d. CBS.
Þjóbhöfbingjar Norðurlanda
munu flytja stutt ávörp í tilefni
50 ára afmælis lýbveldisins.
Fyrst talar Margrét Þórhildur
Danadrottning, þá Carl Gústaf
Svíakonungur, síöan Haraldur
Noregskonungur en síðastur
talar Martti Athissari, forseti
Finnlands. Fulltrúum frá öllum
ríkjum, sem áttu hér fulltrúa
við stofnun lýðveldisins árið
1944, hefur verið boðið að vera
við athöfnina svo og fulltrúum
þeirra landa sem hafa sendiráð
hér á landi. ■
Þjóðhátíðar-
vebur enn
á huldu
Ekki er enn hægt að spá fyrir um
veður á þjóðhátíðardaginn 17.
júní.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands er þess ekki að
vænta að hægt verið að segja til
um þjóðhátíðarveðrið fyrr en í
byrjun næstu viku, en þær lægðir
sem koma til með að stjóma
skini eöa skúmm 17. júní hafa
ekki litið dagsins ljós ennþá. ■
íslandsbanki þurfti enn ab
leggja 374 milljónir á af-
skriftareikning útlána janú-
ar/apríl í ár:
90 millj. kr.
hagnaður
„Hagnaður hefur tekið við af tap-
rekstri. Þótt fjárhagserfiðleikar
fjölda viöskiptavina séu enn
miklir og framlög á afskrifta-
reikning því enn of há, benda
tölur fyrstu fjögurra mánaða árs-
ins til þess að ástandið fari batn-
andi," segir í upplýsingum frá ís-
landsbanka. Þar segir að nærri 90
milljóna hagnaöur hafi verið á
bankanum fyrstu fjóra mánuði
ársins, þrátt fyrir aö rúmlega 370
milljónir króna hafi verið lagöar
á afskriftareikning á tímabilinu.
Á þeim reikningi (til að mæta
áætluöum útlánatöpum) vom
nær 3.060 milljónir la. í apríllok,
eöa sem svaraði 6,4% af öllum
útlánum, áföllnum vöxtum og
ábyrgðum. Um 155 milljóna kr.
arðgreiðslur til hluthafa vom
gjaldfæröar í apríllok. Banka-
stjómin segir eiginfjárhlutfallið
þrátt fyrir þaö 10,2% fyrir bank-
ann og dótturfyrirtæki hans. Eig-
ið fé íslandsbanka sé tæplega
4.500 milljónir. ■
Er æðar-
fuglinn
ónæmur
fyrir eitri
Ein aðaluppistaðan í fæðu æð-
arfuglsins er kræklingur og hjá
æöarfugli í Hvalfiröi væntan-
lega eitraður kræklingur. Sem
kunnugt er gaf Hollustuvemd
út viðvömn á dögunuin um að
hætta væri á að tvö tiltekin eit-
ur hefði safnast fýrir í kræklingi
í Hvalfirði, DSP-eitur og PSP-eit-
ur. Samkvæmt nýjustu fréttum
er PSP-eitrið, sem veldur löm-
unareinkennum, nú í meira
magni í skelfiski en hitt. Mikil
umræða hefur skapast um þessa
kræklingaeitrun og telja ýmsir
sem blaöið ræddi við í gær að
þetta geti ekki verið í fyrsta sinn
sem slík efni safnist fyrir í kræk-
lingi þótt menn hafi ekki vitað
af því fyrr.
Æðarfugli virðist ekki veröa
meint af eitrinu og ekki er vitað
til að fuglinum hafi orðið meint
af kræklingaáti áður, sem bend-
ir til að hann kunni að vera
ónæmur eða að eitrið virki ekki
á hann í því magni sem það er í
skelfiskinum nú. Fuglafræðing-
ar og dýralæknar sem Tíminn
ræddi við í gær vildu ekki kveða
upp úr um það hvers vegna æð-
urinn virðist hvorki fá lömun-
areinkenni né niðurgang, þrátt
fyrir kræklingaátið.
Æbarfuglinn íHvalfirbi lœtur vib-
varanir Hollustuverndar sem vind
um eyru þjóta og heldur áfram ab
borba krœkling þótt eitrabur sé.
Og hann kemst upp meb þab!
Tímamynd CS
Gubmundur Arni Stefánsson kemur til greina sem nœsti varaformabur. Gunnlaugur Stefánsson alþingismabur:
Nú styttist óbum í flokksþing
Alþýðuflokksins og svo virbist
sem kosningabarátta formanns-
efnanna sé nú í hámarki. Tím-
inn hafbi samband vib Gunn-
laug Stefánsson í Heydölum og
spurbi hann hvemig hann mæti
stöbuna á þessari stundu og
hvort Gubmundur Ámi kæmi
til greina sem formabur meb Jó-
hönnu?
„Mér finnst það vera of mikil ein-
földun ab setja máliö upp þannig
ab varaformaðurinn þurfi að vera
með annað hvort Jóni eða Jó-
hönnu. Ég held reyndar aö þessi
uppstilling hafi verið fundin upp
hjá fjölmiðlum frekar en að þetta
sé eitthvab sem alþýðuflokksfólk
vill. Það hefur komiö til tals að
Guðmundur Ámi komi til greina
sem varaformaður, en ekkert frek-
ar með Jóhönnu. Hann kemur til
greina sem varaformabur fyrir Al-
þýðuflokkinn en ekki sem varafor-
maður fyrir einhvem ákveðinn
formann. Ég veit reyndar ekki
hvort hann sækist neitt etir því,
þið verðið bara að spyrja hann
sjálfan," sagði Gunnlaugur.
Gunnlaugur var spurður hvort
hann væri í liöi meb Jóhönnu, þar
sem ungir jafnaðarmenn sem em í
andstöbu við hann í Evrópumál-
um em stuðningsmenn Jóns Bald-
vins.
„Jóhanna hefur tekið undir af-
stöðu mína sem ég kynnti í eld-
húsdagsumræðum á þingi og tek-
ið heilshugar undir þá skoðun
sem þar kemur fram og ég fagna
hennar ummælum. Aftur á móti
tel ég að Jón Baldvin hafi verib
misskilinn. Hann hefur ekki lýst
yfir stuöningi sínum á tafarlausri
aðild að Evrópubandalaginu.
Hann hefur viljaö skoða þessa val-
kosti alla mög rækilega og það
hafa abrir stjórnmálaflokkar einn-
ig viijað gera. Mín skoöun er alveg
skýr og hún er sú að þessi þjób á
ekki samleib með öðmm þjóðum í
Evrópubandalaginu. Okkar þjóð
er þannig úr garöi gerð, þannig
skapi farin og þannig að upplagi,
að hún getur aldrei afsalab sér
sjálfstæbi sínu, auðlindum og
málefnum. Þessi umræða um Evr-
ópumálin er svo skammt á veg
komin og þessar skoðanakannanir
sem hafa verið gerbar byggja á
mjög veikum gmnni og ég held að
fólki sé ekki alveg kunnugt um
hvað felst í aðildinni sem slíkri og
ég held að ungir jafnabarmenn
eigi eftir aö þroskast um leiö og
þeir kynna sér málið betur," sagöi
Gunnlaugur ennfremur. Gunn-
laugur vildi ab lokum taka fram að
bæði væra Jóhanna og Jón Bald-
vin mjög hæf til aö gegna forystu-
hlutverki fyrir Alþýbuflokkinn.
„Þaö er skiljanlegt þegar svo hæft
forystufólk býðst til starfa ab
flokksfólki sé vandi á höndum.
Það er heldur ekkert óeölilegt við
þaö að kosningar um formann fari
fram á flokksþingi í lýðræðis-
flokki," sagði Gunnlaugur Stefáns-
son ab lokum. ■