Tíminn - 12.08.1994, Page 1
SÍMI
631600
78. árgangur
STOFNAÐUR 1917
Föstudagur 12. ágúst 1994
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
148. tölublað 1994
Sigrún Magnúsdóttir stýrir
borgarráöi og undirbýr
borgarráösfundi:
Þrír stjór-
ar og tveir
/ /i
í fru
Tímamynd JAK
1/ f •fj.# ' f_| ^
VarUOarSKlltin I nValTirOinUm um ab krœkHngar kunniab vera eitrabir eru nú horfin og fólk er farib ab tína sér
krœkling ab nýju. í gær var Elín Björk jóhannsdóttir ab kanna krœklingafjöruna vib Hvítanes.
Eblilegt oð landsfundur Alþýöubandalagsins fjalli um sameiningu félagshyggjuflokkanna.
Árni Þór Sigurbsson:
Rætt um a6 flýta
landsfundi um ár
Athygli hefur vakið að Sigrún
Magnúsdóttir, pólitískur oddviti
Reykjavíkurlistans, hefur verið
staðgengill borgarstjóra eftir að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór í
frí, en ekki Jón G. Tómasson
borgarritari sem verið hefur staö-
gengill borgarstjóra fram að
þessu. Tíminn spurði Sigrúnu
hvort þetta væru nýir siðir með
nýjum herrum?
„Borgarstjóri gegnir í raun tví-
þættu hlutverki. Hann er bæbi
pólitískur leiðtogi og jafnframt
æðsti embættismaður borgarinn-
ar. Sá sem tekur við sem æðsti
embættismaður borgarinnar, þeg-
ar borgarstjóri er í fríi, er tvímæla-
laust Jón G. Tómasson borgarrit-
ari. Hins vegar vill svo til ab Jón
G. Tómasson er í fríi þessa viku.
Þannig að Ingibjörg Sólrún fól
mér að stýra borgarráði, sitja
morgunverbarfundi með embætt-
ismönnunum sem eru til undir-
búnings borgarráðsfundum og sjá
svo um ásamt ritara borgarstjóra
þau erindi -sem berast hingað.
Hvað varbar stjórn borgarráðs þá
er þab ekkert nýtt að næsti maður
stýri borgarráöi í fjarveru borgar-
stjóra. Það hefur alltaf tíðkast,"
segir Sigrún Magnúsdóttir. ■
Bíllinn fór
í tvennt
Yfirbyggbur pallbíll valt á vegin-
um á milli Garbs og Sandgerbis
snemma í gærmorgun. Þar voru á
ferbinni tveir ungir piltar, 15 og
16 ára, sem höfðu ákveðið að æfa
sig í ökuleikni á meðan foreldr-
arnir eru á ferðalagi. Ekki vildi
betur til en svo að yfirbyggingin
losnaði frá bílnum þannig að
hann endaði í tvennu lagi. Pilt-
arnir sluppu betur frá atvikinu en
ætla mætti. Annar var fluttur á
sjúkrahús í Keflavík en meibsl
hans reyndust minniháttar. Hinn
slapp ómeiddur. ■
Árni Þór Sigurbsson, formabur
kjördæmisrábs Alþýbubanda-
lagsins í Reykjavík, segir ab
fyrst verib sé ab tala um sam-
einingu félagshyggju- flokk-
anna sé eblilegast ab landsfund-
ur flokksins verbi kallabur sam-
an til þess ab fjalla um málib.
Hann segir ab naubsynlegt sé
fyrir forystu flokksins ab hafa
skýrt umbob frá landsfundi um
þab hvort raunverulegur vilji sé
fyrir sameiginlegu frambobi
innan Aþýbubandalagsins.
„Ef menn eru að tala um félags-
hyggjusamstarf á landsvísu, sem
vel kemur til greina, þá þarf ab
sjálfsögðu ab kalla saman lands-
fund til að ræba málefnagrund-
völl slíkrar hreyfingar. Þab þarf ab
ræba um hvað á að kjósa og til
hvers menn ætla að vera meb
svona sameiningu. Alþýbubanda-
lagið þarf að gera það upp við sig
hvort í slíku samstarfi sé ab finna
þær róttæku áherslur sem við vilj-
um tryggja. Það á ab vera reglu-
legur landsfundur á næsta ári og
það er ekkert því til fyrirstöbu að
hann sé fljótlega í upphafi árs til
þess að ræða þessi mál ábur en
gengið verður til kosninga," segir
formaður kjördæmaráðsins í
Reykjavík.
Árni Þór segir aö samkvæmt
skipulaginu séu framboðsmálin í
höndum kjördæmisrábanna og
því hafi kjördæmisrábin allt um
það að segja hvernig stillt verður
upp á listann, nema annað verði
ákveði sérstaklega.
„Framboðsmálin eru verkefni
hvers kjördæmisrábs fyrir sig.
Hins vegar ef forusta flokksins er
af einhverri alvöru að tala um
sameiginlegt framboð, þá er það
grundvallaratribi að hún hafi til
þess skýrt umboð og það ætti hún
ab geta fengið á landsfundi,"
sagði Árni Þór Sigurðsson ab lok-
um. ■
Norbmenn setja reglugerb sem bannar íslendingum einum veibar á Svalbarbasvœbinu:
Stjómvöld sýni festu
„Vib göngum ekkert út frá þess-
ari reglugerb sem einhverjum
varanlegum og eilífum hlut. Vib
hljótum ab ganga út frá því ab
vib eigum þarna rétt eins og abr-
ar þjóbir í N- Atlantshafi, en sitj-
um ekki hjá einir þjóba. Þab er
ekkert réttlæti í þeirri lausn,"
segir Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hrabfrystistöbvar
Þórshafnar hf.
„Norðmenn átta sig á því um leiö
og þeir heyra harðan tón
frá íslenskum stjórnvöldum,
enda ætla ég rétt að vona að
stjórnvöld hafi kjark til að svara
þessu og sýni frumkvæbi og festu í
málinu, sem hefur skort til þessa
en láti ekki Norðmenn vaða yfir
okkur meb digurbarkalegum mál-
flutningi," segir Jóhann A.
Norðmenn gáfu út í gær nýja
reglugerð um veibar á Svalbarba-
svæðinu og samkvæmt henni
virðst íslendingum einum þjóða
vera bannaö að stunda þar fisk-
veiöar. í reglugerðinni, sem tekur
formlega gildi í dag, eru strangari
viðurlög við landhelgisbrotum en
verið hafa og víðtækari heimildir
fyrir strandgæsluna til að láta til
skarar skríba. Þannig geta norsk
stjórnvöld gert skip upptæk, auk
afla og veiöarfæra.
Samkvæmt reglugerðinni fá
Norðmenn, Rússar, Grænlending-
ar og Færeyingar ákvebnar veiði-
heimildir á svæðinu, auk þess sem
gert er ráð fyrir möguleika ESB-
þjóða til að stunda þar veibar.
Jóhann A. segir að þótt Norð-
menn hafi fullveldi yfir Svalbarba-
svæbinu samkvæmt Svalbarða-
sáttamálanum, þá geti þeir ekki
sett lög sem séu yfir hann hafin og
tekib sér vald til ab ákveöa hvaba
abildarþjóðir að Svalbarðasáttmál-
anum megi stunda veiðar á svæð-
inu. Hann minnir jafnframt á að-
alregla sáttmálans gangi út á það
að þab megi ekki mismuna þjóð-
um sem eru aöilar að Svalbarða-
sáttmálanum.
„Þeir hafa ekki heimild til þessa
samkvæmt mínum skilningi,"
segir Jóhann og telur að framund-
an sé mikið verk hjá stjórnvöldum
með stuðningi lögfróbra aöila að
fara yfir þessa hluti og kanna þá til
hlítar.
Hann segir jafnframt að þab sé
Norbmanna að ákveba hvort
reynt verður á ákvæbi reglugerð-
arinnar meb því að taka skip og
færa til hafnar. Jóhann A. segist
þó ekki trúa því að óreyndu ab
Norðmenn láti strax til skarar
skríða og taki skip.
Ágætis afli hefur verib á Sval-
barðasvæðinu en þar hefur norsk-
um strandgæsluskipum fjölgað
mikið á síðustu dögum og því
hafa íslensku togararnir verib ab
færa sig yfir í Smuguna. En þar
hafa aflabrögð verið meb ágætum
upp á síðkastið. ■