Tíminn - 12.08.1994, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 12.-ágúst 1994'
©Mwimí
Töðugjöld
á Hellu
Undirbúningur ab Töbu-
gjaldahátíbinni, sem halda á
dagana 19.-21. ágúst n.k. ab
Hellu og í nærsveitum, er nú
Iangt á veg kominn.
Töðugjöldin verða fjölbreytt
bænda- og fjölskylduhátíð með
ýmsum skemmtunum, íþrótt-
um, sýningum og uppákomum
auk landbúnaðar- og vörukynn-
inga.
Af helstu dagskráratriðum má
nefna eftirfarandi: í samvinnu
við Meistaramatsveina land-
búnaöarins veröur mikil sæl-
keraveisla bænda að Laugalandi
í Holtum. KK sextett ásamt Ellý
Vilhjálms og Ragnari Bjarnasyni
kemur saman, eftir áratuga hlé,
sérstaklega af þessu tilefni og
leikur fyrir stórdansleiki bænda.
Rangárvalladeild hestamanna-
félagsins Geysis sér um hesta-
sýningar, hestaferðir o.fl. Stór-
sveit Harmonikkufélags Rangæ-
inga leikur fyrir dansi á harm-
onikkuballi. Hljómsveitin
Pláhnetan verður með ýmsar
uppákomur og unglingadans-
leik að Hvoli. Flugbjörgunar-
sveitin á Hellu hefur umsjón
með Heklugöngunni miklu auk
þess að sjá um varðeld og flug-
eldasýningu. Fjölbreyttar flug-
sýningar verða og spennandi og
óvenjulegt fallhlífastökk. Sér-
stakt barnaleikhús með ýmsum
nýstárlegum leiktækjum verður
sett upp. Opið hús verður á golf-
vellinum á Strönd. Landgræösla
Dagur heita
vatnsins
Nesjavallavirkjun verbur
til sýnis sunnudaginn
14. ágúst
Vatn, bæði heitt og kalt, er ein
helsta náttúruauðlind íslend-
inga. Reykvíkingar búa sérlega
vel í þeim efnum. Heita vatnið
frá Nesjavöllum og öðrum
vatnshitasvæðum í landi
Reykjavíkur og í Mosfellssveit
sér íbúum á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir ódýrri, þægilegri og
umhverfisvænni húshitun.
Sunnudaginn 14. ágúst er Dag-
ur heita vatnsins og þá býður
Hitaveita Reykjavíkur alla vel-
komna að skoöa mannvirkin á
Nesjavöllum.
Skoöunarferðir verða um orku-
verið með leiðsögn þar sem
gestum er m.a. skýrt frá upp-
byggingu þess og hvernig kalt
vatn er hitað í allt aö 90°C meö
jaröhitavatni og gufu sem getur
orðib meira en 200°C, og það
loks leitt til höfubborgarsvæðis-
ins.
Að lokinni skobun er boðið í
ökuferð um Hengilssvæðið þar
sem, meðal annars, gestir finna
fyrir þeim ógnar krafti sem býr í
iðrum jarðar og brýst fram í
einni af borholunum á svæð-
inu.
Hitaveita Reykjavíkur býður
gestum einnig til kaffidrykkju
og meðlætis í Nesbúð á Nesja-
völlum.
Aðkomuleiðir: Ekið er af Suð-
urlandsvegi, um Hafravatnsleið
milli Miðdals og Dals, ab að-
veituæðinni. Þaðan er ekib eftir
Nesjavallavegi meðfram að-
veituæðinni að orkuverinu.
Vegurinn er meb bundnu slit-
lagi.
Eftir Grafningsvegi, sunnan
eða norðan frá. ■
ríkisins verður með opið hús í
Gunnarsholti. Nokkrir bændur
verða með opin bú, þar á meöal
nokkur þekktustu hrossaræktar-
bú landsins. Ýmsar íþrótta-
keppnir verða, m.a. rafmagns-
girðingastökk og Magnús Ver
hefur umsjón meb keppninni
„Sterkasti maður og kona Suður-
lands". Fjölbreyttur handverks-
markaður og grænmetistorg
veröa einnig á Töbugjöldum.
Hraunverksmiðjan sýnir „Lista-
verk náttúrunnar", höggmyndir
og skartgripi úr Hekluhrauni
auk þess að vera með sýningu á
einstökum eldgosamyndum.
Töbugjöldin hefjast með þvi að
dráttarvélalest bænda kemur á
mótssvæðið, en mibsvæði
Töðugjaldanna verður á Gadd-
staöaflötum vib Hellu, auk þess
sem ýmiss dagskráratriði verba
að Laugalandi í Holtum, golf-
vellinum á Strönd, flugvellinum
á Hellu og víðar.
Tööugjöldin eru hluti af átaks-
verkefni í atvinnumálum í vest-
urhluta Rangárvallasýslu og er
undirbúningurinn unninn í
samstarfi fjölmargra aðila; fé-
laga, fyrirtækja, stofnana, sveit-
arfélaga og einstaklinga. Mark-
mið hátíbarhaldanna er m.a. að
kynna framleiðslu héraðsins,
menningu, náttúru og mögu-
leika til útivistar, frístunda og
framkvæmda. ■
Draumasmibjan: Pétur Einarsson, Gubný Ragnarsdóttir, Margrét Kr. Pétursdóttir og Gunnar Gunnsteinsson.
Draumasmiðjan
sýnir um helgina Sölku Völku og ástina — leiklestur
Draumasmiðjan hefur í sumar
unnið að uppsetningu leiklest-
urs á Sölku Völku eftir Halldór
Laxness, í leikgerö og leikstjórn
Péturs Einarssonar. Að Drauma-
smiðjunni standa 4 leikarar:
Pétur Einarsson, Margrét Kr.
Pétursdóttir, Gunnar Gunn-
steinsson og Guðný Ragnars-
dóttir.
Laxness, Salka Valka og ástin er
leiklesin dagskrá, um 120 mín-
útna löng, flutt í leikhúsinu
Lindarbæ á þýsku, sænsku og
ensku. Hægt er að fá sýninguna
flutta sérstaklega á íslensku fyrir
hópa sem eru 60 manns eða
fleiri, eða þá að sýningin er seld
á föstu verði. Sýningar verða
fluttar a.m.k. einu sinni í viku á
hverju tungumáli, en bætt verð-
ur við sýningum eftir þörfum.
Leiklesturinn hefur verib flutt-
ur á ensku á föstudagskvöldum
kl. 20.00 og á þýsku á sama tíma
á laugardagskvöldum. Sýning-
um á þessum tungumálum
verður fram haldið út ágúst-
mánuð. Flutningurinn tekur
um 2 klst. Sérstök aukasýning á
íslensku verður n.k. sunnudags-
kvöld, 14. ágúst, kl. 20.00. Sýn-
ingar eru í Lindarbæ. ■
Nýfundið ljóð Bólu-Hjálmars flutt
á fyrsta niðjamóti skáldsins
- sem haldib verbur í
Bólu / Blönduhlíb í
Skagafirbi.
Þótt meira en hundraö ár séu
libin frá dauba Hjálmars Jóns-
sonar skálds, sem kenndur hef-
ur verib vib bæinn Bólu í
Blönduhlíð, hafa afkomendur
hans aldrei komið saman til
móts. Fjölskyldan dreifbist vítt
um og hafa nibjarnir, sem
orbnir eru á annab þúsund,
aldrei hist meb formlegum
hætti. Eftir tvö ár verbur hald-
ib upp á tvö hundrub ára
minningu skáldsins og vilja af-
komendurnir hefja undirbún-
ing meb könnun í eigin libi.
Því fer fjarri að verk skáldsins
hafi fallið í gleymsku. í sumar
hefur staðið sýning á skáldverk-
um og listmunum Bólu-Hjálm-
ars á Sauöárkróki og áhugi er fyr-
ir yfirlitssýningu á verkum hans
eftir tvö ár.
Allir eru velkomnir á samkom-
una laugardaginn 13. ágúst kl.
13.30, sem verður haldin við
minnismerki um skáldið, sem
var reist við Bólu 1955.
Þar mun sr. Hjálmar Jónsson,
prófastur, minnast hjónanna
Hjálmars Jónssonar og Gubnýjar
Ólafsdóttur, Þorsteinn Ásgríms-
son á Varmalandi veitir leiðsögn
um kennileiti í nágrenninu,
Kristján Runólfsson á Sauðár-
króki les nýfundið ljób eftir
Bólu-Hjálmar og Hjálmar Kristi-
ansen á Selfossi flytur ávarp.
Karlakórinn Heimir syngur og
Jóhann Már Jóhannsson syngur
einsöng. Ævar Kjartansson
stjórnar samkomunni.
Klukkan 17.00 sama dag verður
fjölskyldumenningarvaka í fé-
lagsheimilinu á Blönduósi með
upplestri m.a. á ljóbum þeirra af-
komenda sem gefið hafa út
Ijóðabækur. Sigríður Sigfúsdóttir
í Forsæludal flytur frumort ljób
en hún er ein þeirra sem hefur
haft forgöngu um samkomu-
haldib. Lítillega verður kvebið af
rímum, kvartettsöngur o.fl.
Veislustjóri er séra Hjálmar Jóns-
son á Sauðárkróki.
Þess er vænst að sem flestir
niðjar Bólu-Hjálmars komi til
samkomunnar með vísu í far-
teskinu. ■
Félagsmálastjórar á Norburlöndum:
„Lífib er saltfiskur"
Á næstu þriðjudagstónleikum í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar 16. ágúst leika Sigrún Eövaldsdóttir fiðluleikari
og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari. Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20.30 og standa í um það bil klukkustund. Á efnisskrá eru eftir-
talin verk; Leos Janacek: sónata fyrir fiblu og píanó, Dvorak/Kreisl-
er: þrír slavneskir dansar nr. 1 í g-moll, nr. 2 í e- moll og nr. 3 í G-
dúr og sónata fyrir fiblu og píanó eftir Maurice Ravel.
Frá árinu 1986 hafa þær Sigrún og Selma margsinnis leikið saman
á tónleikum, m.a. á tónlistarhátíð ungra einleikara í Helsinki árið
1986, á tónleikaferð um Þýskaland 1988 og í Litháen og Skotlandi
1992. Þær hafa leikib inn á tvo geisladiska saman, Cantabile 1992
og Ljúflingslög 1993. ■
Samtök félagsmálastjóra á
Norðurlöndum halda nú í
fimmta sinn ráðstefnu um fé-
lagsleg málefni sem eru efst á
baugi hverju sinni, nú í sam-
vinnu við NOPUS.
Að þessu sinni eru það Samtök
félagsmálastjóra á Islandi sem
bjóba alla, sem starfa að eða eru
tengdir málefninu, velkomna á
ráðstefnu 9.-12. ágúst n.k.
í bókinni Salka Valka eftir
nóbelsskáldib okkar Halldór
Kiljan Laxness stendur: „Ég skal
ekki neita því að margt gæti far-
ib betur hér í plássinu, en það
er nú svona að þegar öllu er á
botninn hvolft þá er lífib þó
umfram alt saltfiskur en ekki
draumaríngl...."
Þessi tilvitnun endurspeglar
með ljósum hætti hugmynda-
fræbi fjórða áratugarins, þegar
baráttan við atvinnuleysið var
daglegt brauð. En hvernig er
þessum málum háttað í velferb-
arþjóðfélagi okkar í dag? Er at-
vinna og atvinnurétturinn þab
sem okkur þykir mikilvægast?
Hvaða áhrif hefur atvinna á til-
gang og innihald lífsins?
Þessum veigamiklu spurning-
um og mörgum öðrum komum
vib til með að velta fyrir okkur
á ráðstefnunni okkar í Reykja-
vík. ■