Tíminn - 16.08.1994, Qupperneq 9
Þri&judagur 16. ágúst 1994
9
Afstaöa Finna og Svía skiptir sköpum fyrir Norbmenn:
Fylgjendum Evrópusambands-
aðildar fjölgar í Noregi
Ekki er ósennilegt aö úrslitin í
þjóðaratkvæðagrei&slu Finna
og Svía um ESB-aðild landanna
ráði úrslitum í þjóðaratkvæða-
greiðslunni í Noregi um sama
mál en hún verður haldin á eft-
ir hinum fyrrnefndu.
Samkvæmt nýgerðri skoðana-
könnun MMI, sem birt var í Af-
tenposten á laugardag, munu
46 prósent atkvæðabærra
Norðmanna greiða ESB- aðild-
inni atkvæ&i sitt ef frændþjóð-
irnar í austri hafa ákvebiö að
styðja aðild landa sinna. 37
prósent eru á móti a&ild Nor-
egs óháð því hvað Svíar og
Finnar gera. 17 af hundraði eru
óákveðin.
Ef aðeins eru taldir þeir sem
tóku afstöðu eru fylgjendur að-
ildar 55.4 prósent en andstæð-
ingar 44.6%. Ekki hefur fyrr
mælst svo mikill stubningur
við aðild Noregs að Evrópu-
sambandinu.
Guro Fjellanger, fram-
kvæmdastjóri „Nei við ESB",
segir að á næstunni muni
hreyfingin Ieggja áherslu á að
ef Svíar samþykki ekki aðild
þýði það ekki að Norðmenn
verði að gerast aðilar að sam-
bandinu. Tor Wennesland hjá
Evrópuhreyfingunni segir að
niðurstaða skoðanakönnunar-
innar sýni að úrslit þjóðarat-
kvæöagreiöslunnar séu enn
óráðin.
Dagbladet norska greindi frá
því á sunnudag að könnun
MMI sýndi að á sama tíma og
fylgjendur ESB-aðildar væru að
vinna á þá færi fylgið við flokk-
ana sem styðja aðildina
minnkandi. Verkamannaflokk-
urinn myndi í dag fá 37.4% at-
kvæða en það er 2.8% minna
en í síðustu kosningum. Kristi-
legi þjóðarflokkurinn kæmi til
með að auka fylgi sitt um rúm
tvö prósent miðað við síðustu
kosningar og fengi 7.5% ef kos-
ið yrði núna.
Norska þjóbin virðist samt
ekki á því að minnihlutastjórn
Verkamannaflokksins þurfi að
fara frá þó að Norðmenn hafni
aðild að Evrópusambandinu.
Samkvæmt áðurnefndri könn-
un eru aðeins 17 af hundraði
þeirrar skoðunar að Gro Harl-
em Brundtland eigi að biðjast
lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt ef nei-in verða fleiri en já-
in þegar talið verður upp úr
kjörkössunum þann 28. nóv-
ember næstkomandi. ■
Haldiö upp á Woodstockafmœliö í rigningu og drullu:
Allt í góöum gír þrátt
fyrir algjöra ringulreib
Ærlegt
skinn
Thomas Krúger, sósíal-demó-
krati, gubfræðingur, og æsku-
lýðsmálaráðherra í sambands-
landsstjórninni í Berlín, leggur
sig allan fram í kosningabarátt-
unni fyrir þjóðþingkosningarnar
í október.
Krúger hefur látið hengja upp
eitt þúsund veggspjöld í kjör-
dæmi sínu Lichtenberg með
mynd af sjálfum sér klæðalaus-
um. Ástæðuna segir hann sterka
stöðu PDS, arftaka Kommúnista-
flokks Austur-Þýskalands, í Berl-
ín. Ef sósíal-demókratar ætli að
eiga möguleika þurfi þeir að láta
sér detta eitthvað frumlegt í hug.
í vibtali við þýska vikuritið Der
Spiegel sagðist æskulýðsráðherr-
ann ekki eiga von á að ganga
fram af kjósendum. Hann sagbi
ab Austur-Þjóbverjar væm lausir
vib pempíuskap. I austurhlutan-
um hefði stripl eða nektarmenn-
ing verið töluvert algengt á dög-
um Þýska alþýöulýðveldisins. ■
Saugerties, Reuter
Hátíðarhöldunum í tilefni af
aldarfjórðungsafmæli Wood-
stockhljómleikanna lauk aðfara-
nótt mánudags meb hljómleik-
um söngvarans Peters Gabriel.
Stemmningin í lokin var með
besta móti þrátt fyrir rigningu og
rok á laugardag og sunnudag.
Hljómleikagestir gagnrýndu þá
sem stóðu fyrir hljómleikunum
af ýmsum ástæbum en þeir sem
héldu út dagana þrjá sem hátíðin
stóð yfir vom flestir sammála um
að hún hefði verið algjört æði.
Talið er að um 350.000 manns
hafi verið á hljómleikasvæðinu
við bæinn Saugerties í New York-
fylki þegar flest var. Margir fóm
heim í fússi á laugardag þegar í
ljós kom að mkka átti það fólk
aftur um miðaverð sem leyft
hafði sér að gista utan hljóm-
leikasvæöisins.
Mest hrós fékk New York fylkis-
lögreglan sem tók til sinna rába
þegar skipulag hljómleikahaldar-
anna hmndi eins og spilaborg
strax á öðmm degi. Rok og rign-
ing á laugardag og aðfaranótt
sunnudags varð til þess að
hljómleikasvæbið varð eitt alls-
herjar dmllusvað. Þeir gestanna
sem ekki yfirgáfu hljómleikanna
létu það ekki á sig fá og nutu þess
ab velta sér upp úr dmllunni í
leik eða keppni um hver gæti
rennt sér lengst liggjandi á baki
eöa maga. ■
Efnahagsuppsveifla í Finnlandi
eykur ekki líkur á verðbólgu
Helsinki, Reuter
Efnahagslífið í Finnlandi virbist
á góðri leib með að ná sér eftir
einhverja mestu lægb sem þab
hefur verið í. Samkvæmt upp-
lýsingum sem hagstofan kynnti
í gær hefur þenslan ekki orðið
til þess að hleypa verðbólgunni
á skrið.
„Efnahagsútlitib er mjög bjart"
segir Tarja Heinonen, hagfræð-
ingur finnska bankans Postip-
ankki. Hagfræbingar eru al-
mennt þeirrar skobunar að ekki
sé nauðsynlegt að fara ab dæmi
sænska seðlabankans sem
hækkaöi vexti í liðinni viku til
að fyrirbyggja aukna verðbólgu.
Verbbólgan er óvíða lægri í Evr-
ópu en í Finnlandi, hún var
1.6% í júlí miöað vib árið ábur
en var 1.3% í júní.
Samkvæmt upplýsingum
finnsku hagstofunnar jókst iðn-
aðarframleiðsla í Finnlandi á
milli ára um 11.9 prósent í júní.
Þó ab flestum þyki þetta mikib
var aukningin samt minni í júní
en í maí þegar hún var 15.7 pró-
sent.
Þetta er mikil breyting frá þvi
sem verið hefur á síðustu árum.
í byrjun tíunda áratugarins
dróst þjóðarframleibsla Finna
saman um IS'.af þundraöi. á
þriggja ára tímabili. Það var
mesta lægð í finnsku efnahags-
lífi frá því að Finnar lýstu yfir
sjálfstæði árið 1917.
Atvinnuleysi er enn gífurlegt í
Finnlandi jrrátt fyrir batnandi
efnahag. I júní voru 17.9%
vinnufærra Finna án vinnu. Það
er nokkuð minna atvinnuleysi
en verið hefur að undanförnu
en með því mesta sem gerist í
Norður-Evrópu.
Þekktasti hrybjuverkamabur
síbari ára undir lás og slá:
Sjakalinn
Carlos
handtekinn
Khartoum, Reuter
Stjórnvöld í Súdan greindu frá
því í gær að Illich Ramirez Sanc-
hes, öðru nafni Carlos, hefði
verið handtekinn fyrir
skemmstu þar í landi en fram-
seldur til Frakklands að kröfu
frönsku ríkisstjórnarinnar.
Mohamed Khier, innanríkis-
ráðherra Súdans, sagði að Carl-
os, eða Sjakalinn eins og hann
er oft nefndur, hafi verið hand-
tekinn af súdönsku öryggislög-
reglunni. Hann hafi unnið að
áætlun um að ráðast gegn er-
lendum fyrirtækjum í Súdan.
Carlos, sem er fæddur í Ve-
nesúela, hefur síðastliðin 20 ár
verið efstur á lista lögregluyfir-
valda víða um heim yfir eftir-
lýsta hryðjuverkamenn. ■
Þjóöverjar
vilja ekki fá
Zhirinovsky
í heimsókn
Moskva, Reuter
Þýsk stjórnvöld ætla ekki að
leyfa rússneska þjóðernissinn-
anum Vladimir Zhirinovsky ab
heimsækja Þýskaland á næst-
unni. Þetta var haft eftir emb-
ættismönnum þýska utanríkis-
ráðuneytisins í gær.
Zhirinovsky hótaði á sínum
tíma að ráðast á Þýskaland með
kjarnorkuvopnum. Þýsk yfir-
völd neituðu honum um vega-
bréfsáritun í desember sl. og
báru því við að vera hans í
landinu gæti verið andstæð
hagsmunum ríkisins.
Astæðan fyrir ósk Zhirinov-
skys um vegabréfsáritun í þetta
sinn var þing hægriöfgaflokks-
ins Deutsche Volksuninon
þann 24. september. ■
Vinningstölur
laugardaginn
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
: 1. 5af5 2 7.658.527
2. 4afll tf 10 110.460
3. 4af5 290 6.570
4. 3af5 9.706 458
Heildarvinningsupphæð þessaviku: 22.772.302 kr.
m /Œw >
É UPPLýSINGAR: SíOl^VARI 91 -'6815,11 WKKULÍNi} 991002,