Tíminn - 25.08.1994, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 25. ágúst 1994
9
Félagsmálalöggjöf ESB til endanlegar samþykktar:
Hitnar undir Bretum
Brussel, Reuter
Svo gæti fariö aö vatnaskil yröu í
haust í stefnu Evrópusambands-
ins í félagsmálum þegar Bretar fá
lokatækifæri til aö taka þátt í sam-
eiginlegri félagsmálalöggjöf sam-
bandsins.
í skýrslu framkvæmdastjórnar
ESB kemur fram aö ef ríki sam-
bandsins samþykktu ekki fjöld-
ann allan af lagafrumvörpum um
félagsmál fyrir áramót myndi
stjórnin íhuga að beita félags-
málaályktun Maastrichtsam-
komulagsins til að koma á nýrri
félagsmálalöggjöf innan ESB.
Ef þetta gengi eftir stæöu Bretar
fyrir utan lagasetninguna vegna
sérstaks samkomulags sem þeir
geröu við hin ESB ríkin í Maast-
richt um að þeir þyrftu ekki að
taka þátt í sameiginlegri félags-
málalöggjöf sambandsins sem þá
var samið um.
Bretar hafa borið því viö aö þeir
séu ekki samkeppnisfærir á
heimsmarkaði ef aukinn kostnaö-
ur lendi á fyrirtækjum landsins
vegna nýrrar lagasetningar. Fram-
kvæmdastjórnarmenn segja það
ekki ná nokkurri átt að draga úr
félagslegri þjónustu og -öryggi til
aö standa betur aö vígi í sam-
keppni við ríki utan Evrópu. ■
Nawaz Sharfi, fyrrverandi forsœtisráðherra Pakistans og leiötogi stjórnarandstöbunnar í landinu, ávarpar mann-
fjölda íþeim hluta Kasmír sem er hersetinn af Pakistan.
Deilt um kjarnorkuvopnaeign
Framtíbarsýn: Teiknari norska stór-
blabsins Verdens Cang telur þetta
geta orbib framtíb frœndþjóbanna
Noregs og íslands; einar í EES,
saman í Smugunni.
Öldungadeildin
setur Clinton stól-
inn fyrir dyrnar
Washington, Reuter
Frumvarp Clintons Bandaríkja-
forseta um ný og umfangsmikil
lög, sem eiga aö draga verulega úr
tíöni glæpa, situr fast í öldunga-
deild þingsins. Þingmenn Demó-
krata og Repúblikana saka hvorir
aðra um pólitískan leikaraskap
vegna hins umdeilda frumvarps.
Repúblikanar vilja ekki sam-
þykkja frumvarpið, sem á aö
kosta þjóðina 30 milljarða banda-
ríkjadala, nerna eftir þó nokkrar
breytingar.
Demókratar halda því fram að
Repúblikanar vilji ganga að frum-
varpinu dauðu vegna þrýstings
frá Landssambandi rifflaeiganda
sem eru mjög óhressir með
bann við notkun 19 hálfsjálf-
virkra skotvopna. ■
Reuter
Miklar deilur hafa blossað
upp í Pakistan aö undanförnu
vegna ásakana Nawaz Sharifs,
leiðtoga stjórnarandstöðunn-
ar, um að Pakistan hafi í fór-
um sínum eitt stykki kjarn-
orkusprengju. Sharif segir að
kjarnorkusprengjan sé geymd
í Kasmír, þeim hluta landsins
sem Pakistan hefur hersetið.
Mikill ótti hefur gripið um sig
í Evrópu vegna tíðra frétta af
plútonsmygli. Hvorki virðist
ljóst hvaðan efnið kemur, þó
að Rússar liggi undir grun, né
hvert það fer en ýmislegt þyk-
ir benda til þess að Pakistan sé
Israelsstjórn fylgjandi fastasetu Þjóöverja í Öryggisráöi Sþ:
Þjóöverjar vilja betri
samning ESB og ísraels
Bonn, Reuter
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, lýsti því yfir í gær að Þjóð-
verjar ætluðu að sjá til þess í for-
mannstíö sinni innan Evrópu-
sambandsins að ísrael fengi betri
samninga við sambandið en nú
eru í gildi. Kohl kom þessu á
framfæri í tilefni heimsóknar
Shimonar Peresar til Þýskalands.
Israelar em mjög áfram um að
koma meiri landbúnaðarafurð-
um á markað ESB landanna.
Þeir vilja fá aðild að rannsóknar-
og þróunaráætlunum sambands-
ins og minnka óhagstæð-
an vömskiptajöfnuð við Evrópu-
sambandsríkin en hann nam
um 5 milljörðum bandaríkja-
dala á síðasta ári.
Peres lýsti yfir á móti aö ísrael-
ar væm því fylgjandi að Þýska-
land léki stærra hlutverk á al-
þjóðavettvangi í framtíðinni en
verið hefur. Utanríkisrábherr-
ann tók sérstaklega fram ab
stjórn sín myndi styðja það ab
Þýskaland fengi fastasæti í Ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Þegar fréttamenn spurðu Peres
hvort ísraelsstjórn væri þvi virki-
lega samþykk ab Þýskaland fengi
fastasæti í Öryggisráðinu svaraði
hann: „Já. Maður á ekki lengur
ab horfa á Þýskaland í gegnum
sjóngler sögunnar heldur í ljósi
framtíðar." ■
eitt þeirra ríkja sem komist
hefur yfir geislavirkt efni til að
smíba kjarnavopn.
Samkomulagi
um sílikon-
seinkar
brjóst
Birmingham, Ala, Reuter
Staðfesting á samkomulagi
um skaðabætur vegna ísetn-
ingar sílikonpúða í brjóst
kvenna seinkaöi í gær eftir að
kona utan Bandaríkjanna full-
yrti að það væri útlendum
konum óhagstæðara en
bandarískum.
Sam Pointer, fylkisdómari,
sem stýrt hefur samningaum-
leitunum sem ná til 60 fyrir-
tækja og 90.000 kvenna víðs-
vegar um heiminn, segir
staðhæfinguna um mismun-
un fórnarlamba sílikonsins
eftir þjóðerni muni seinka
samkomulaginu um nokkra
daga. ■
Frá Borgarskipulagi
Reykjavíkur
Skólavörðuholt — skipulagstillaga
Á Borgarskipulagi, Borgartúni 3, 3. hæð er til sýnis
tillaga að deiliskipulagi af Skólavörðuholti. Tillagan
verður til sýnis alla virka daga frá kl. 8.30 til 16.00
frá 26. ágúst til 16. september. Mánudaginn 12.
september milli kl. 14 og 16 verða skipulagshöf-
undar á staðnum og svara fyrirspurnum. Athuga-
semdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega eigi
síðar en 17. september 1994.
Hagatorg — skipulagstillaga
Á Borgarskipulagi, Borgartúni 3, 3. hæð er til sýnis
tillaga að deiliskipulagi af hagatorgi. Tillagan verður
til sýnis alla virka daga frá kl. 8.30 til 16.00 frá 26.
ágúst til 16. september. Mánudaginn 12. septem-
ber milli kl. 14 og 16 verða skipulagshöfundar á
staðnum og svara fyrirspurnum. Athugasemdum, ef
einhverjar eru, skal skila skriflega eigi síðar en 17.
september 1994.
STOFNLANADEILD LANDBÚNAÐARINS
Laugavegi 120,105 Reykjavík
sími 91-25444
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1995 þurfa að berast Stofn-
lánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem
meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar svo og veðbókarvottorð.
Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir
væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru.
Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1995 þurfa að
senda inn umsóknir fyrir 31. desember n.k.
Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september n.k.
Það skal tekið fram, að það veitir engan forgang til lána þó fram-
kvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir.
Sérstök athygli er vakin á því, að Stofnlánadeild landbúnaðarins er óheimilt
lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum, en opinberum sjóðum.
Lántakendum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntan-
legrar lántöku frá Lífeyrissjóðum öðrum en Lífeyrissjóði bænda og öðrum
þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð.
Búnaðarbanki fslands
Stofnlánadeild landbúnaðarins