Tíminn - 25.08.1994, Blaðsíða 11

Tíminn - 25.08.1994, Blaðsíða 11
11 Fimmtudagur 25. ágúst 1994 UllSftliSj 7 00 ára Pálljónasson frá Rimakoti Býli lítið syðst og austast í Aust- ur Landeyjum hét Rimakot. í Jarðabók Arna Magnússonar seg- ir: Bústofn 4 kýr, 5 aer, 2 sauðir og 3 hross. „Á engjar fýkur sand- ur". Túnið var afar lítið og með firna háum þúfum. Taðkvöm var sett ofan á hæstu þúfurnar á vorin og malaöur fjóshaugurinn frá haustinu. Svo var ausið yfir þýfiö með trogi. Forina báru tveir menn á milli sín í stampi og skvettu út. Tilunnindi fylgdu kotinu, stutt fjara, kölluð Gunnarsholtsfjara. Leiguliði mátti af náð hiröa stuttar spýtur, en öll tré þrjár álnir og lengri átti hann að flytja heim og geyma uns jarðar- drottni þóknaöist að saekja þau. Rimakot var sjóbær. Ábúendur áttu 4- og 6-manna för og öfluðu drjúgt. Fiskurinn hélt líftórunni í fólkinu þegar útmánaðasultur- inn svarf að. Á vertíð var stóru Landeyjaskipunum haldið úti frá Vestmannaeyjum. Þá er heim kom var farið að róa á vorbátun- um út frá Sandinum. Vorið 1893 fórust áhafnir tveggja Landeyja- skipa, 24 menn úr Áustur Land- eyjum, allir á góðum aldri. Þá drukknuðu bræður tveir frá Rimakoti, Guðmundur og Jón Þorsteinssynir, báðir Sandafor- menn og áttu fyrrnefnd 4- og 6- manna för. Heimilið leystist upp. — Þetta rifjast upp þegar blöð sögðu frá því, að Páll Jónas- son frá Rimakoti hafi átt hundr- að ára afmæli 12. maí 1994. Jónas Þorvaldsson (1849-1911) var um þessar mundir vinnu- maður á Tjörnum undir Eyja- fjöllum. Hann var einn skipverja Sigurðar Þorbjörnssonar, sem fórst þetta örlagaár, ásamt skips- höfn sinni. Jónas náði ekki til skips í tæka tíö þennan dag enda sjávargatan löng. Áður komst Jónas í mikinn háska þegar skipi Magnúsar á Búðarhóli barst á í lendingu við Sandinn og tíu týndu lífi en tveir komust af, Jónas og annar maður, meðan það barst til iands. Jónas fékk nú ábúð á kotinu og flutti þangað á fardögum 1893 ásamt konu sinni Jóhönnu Jóns- dóttur (1866- 1894), sem verið hafði vinnukona á Tjörnum. Jónas var þá tveimur árum betur en fertugur og Jóhanna 26 ára. AFMÆLI Hennar naut skammt viö búskap í Rimakoti því að hún andaðist 31. maí 1894. Jónas stóð nú einn uppi með Pál son sinn, kornabarn. Þá er Jónas flutti aö Rimakoti voru þar fyrir mæðgur, Sigríður Árnadótt- ir og Þorgerður, 16 ára. Sigríður bjó allmörg ár með Guðmundi Diðrikssyni, bróður Þórðar Mor- mónabiskups. Sigríður var fyrri kona Guömundar og áttu þau 8 börn. Jörðin var lítil og heimilið leystist upp sökum fátæktar. Sig- ríður var vinnukona í Rimakoti og Þorgerður fylgdi henni. Sig- ríður varð fljótlega bústýra hjá Jónasi bónda. Árið 1898 var Þor- gerður skráð ráðskona, þá 21 árs. Þá voru 7 manns til heimilis í Rimakoti. Þröngt hafa sáttir mátt sitja. Hinn 6. júlí 1902 gengu i hjónaband Jónas Þorvaldsson ekkill, 50 ára, og Þorgerður Guð- mundsdóttir, bústýra hans, 24 ára, gift í Krosskirkju í Landeyj- um. Börn þeirra voru fjögur: Guðjón smiður, vinnumaður nokkur ár í Landeyjum, bjó í Vestmannaeyjum en síðustu ár- in á Fáskrúðsfirði, Jóhann, f. í Rimakoti áriö 1906, Sigurveig og Karl, tvíburar, fædd 1909 í Rima- koti. Jóhann ólst upp í Gularási í Landeyjum. Hann var síðari árin veghefilsstjóri í Rangárvallasýslu og bjó í litlu húsi á bökkum Markarfljóts. Karl var vélsmiður, bjó á Selfossi og Eyrarbakka. Við Karl vorum leikfélagar. Hann var prúöur piltur, svo að aldrei slett- ist upp á vinskap okkar. Sigur- veig giftist Ármanni Guðmunds- syni frá Akurey í V- Landeyjum. Hún er nú ein á lífi barna Þor- gerðar og Jónasar, býr að Eyrar- bakka. Guðjón Jónasson andað- ist á Fáskrúðsfirði 1965 og bræð- urnir Karl og Jóhann árið 1980. Allir voru þeir bræður miklir hagleiksmenn. í lágum og loftlitlum sveitabað- stofum réðust örlög kynslóð- anna. Þar leit mannfólkið fyrst sól, lifði og dó. í Rimakoti and- aðist unga konan Jóhanna árið 1894 frá Páli syni sínum nýfædd- um og eiginmanni. Árið 1903 dó þar ungur piltur, systursonur Jónasar bónda og Sigríður, móð- ir Þorgerðar, andaðist vorið 1910. Jónas bóndi rak lestina ári síðar, vorið 1911, hinn síðasti sem kvaddi heiminn í Rimakoti. Foreldrar mínir þekktu Pál. Þau fóru að búa í Rimakoti eftir aö Þorgeröur hætti búskap. Ég sá Pál einu sinni; það var eftir 1920. Hann kom að Úlfsstöðum þar sem foreldrar mínir áttu þá heima. Ég man enn ab hann sat á rúminu mínu, vib babstofu- borðið og drakk kaffi. Hann var líflegur mabur og skemmtilegur, hló hressilega. Mér fannst þessi góöi gestur blátt áfram glæsileg- ur. Hann var aufúsugestur í fá- breytni tilverunnar á þessum ár- um. Páll segir svo frá, ab þá er faðir hans dó leystist heimilið upp. Hann geröist þá vinnumaður átj- án ára á næsta bæ, Önundarstöð- um. Þar bjuggu þá sæmdarhjón, Ársæll ísleifsson og Anna Þórðar- dóttir. Ársæll fáskiptinn hæglæt- ismaður og Anna húsmóðirin hlýleg og góðlynd. Kona í Hafn- arfirði var kaupakona á Önund- arstöðum eitt sumar fimmtán ára. Hún sagði, „ég held að ég gleymi aldrei hvað Anna á Ön- undarstöðum var mér góð hús- móöir þetta sumar". Eftir vinnumennsku á Önund- arstöðum tæp tvö ár hélt Páll til Vestmannaeyja, vaxandi útgerb- arbæjar, þar sem sumir menn urðu efnabir á skömmum tíma. Ungir menn úr Landeyjum, Fjallamenn og fleiri sóttu út þangað til að afla sér fjár og kannski frama. Fljótt vaknabi áhugi Páls á vél- um. í Vélstjóratali, Rv. 1974, seg- ir svo frá að Páll Jónasson frá Rimakoti í Landeyjum hafi tekib mótorvélstjórapróf Fiskifélagsins árið 1916 í Reykjavík. Þetta hefur verið með fyrstu námskeiðum fé- lagsins og Páll þá verið fyrsti Landeyingurinn sem tekur vél- stjórapróf. Um 1920 varð Páll vélstjóri í Eyjum, jafnvel fyrr, og gegndi því starfi þar næstu ár. Fyrir nokkru spurði ég gamlan Eyja- mann hvort hann mundi Pál frá Rimakoti sem mótorista í Eyjum. Hann kvað svo ekki vera. En ég man vel eftir mótorhús- DAGBÓK 237. dagur ársins -128 dagar eftir. 34. vlka Sólris kl. 5.48 Sólarlag kl. 21.09 Dagurinn styttist um 7 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni, tvímenningur í Risinu kl. 13 í dag. Síbustu forvöb að komast með í Básaferðina. Síbasta sýningarhelgi í Hafnarborg Úr landslagi í afstrakt í aðalsal Hafnarborgar stendur nú yfir sýning úr listaverkasafni Hafnarborgar. Tema sýrýngar- innar er samband íslensks landslagsmálverks við afstrakt- list — uppbrot landslagsmynda og ómur af landslagi í annars óhlutbundnum myndum. Á sýningunni er teflt saman verk- um úr ýmsum áttum til að skerpa þessa undarlegu tvíræðni og sýna fram á hin nánu tengsl sem oft eru milli landslags- mynda og afstraktlistar. Kjarvalsmyndir úr Háholti í Sverrissal Hafnarborgar stendur nú yfir sýning á teikn- ingum og vatnslitamyndum eft- ir Jóhannes Kjarval sem fengnar hafa verið að láni úr safni Þor- valdar Gubmundssonar í Há- holti í Hafnarfirði. Eins og margir vita á Þorvaldur af- bragðsgott safn mynda eftir Kjarval og á þessári sýriingú' e'r aðeins um að ræða lítið brot úr því safni. Myndirnar eru af ýms- um toga og frá ýmsum tíma, en veita þó góða innsýn í mynd- hugsun Kjarvals og þá stefnu sem hann mótaði sér í listinni. Leirlistafélagiö sýnir bolla í kaffiskála Hafnarborgar sýna meðlimir úr Leirlistafélaginu nýstárlega bolla. Með sýning- unni er lögð áhersla á það hvernig jafnvel hversdagsleg- ustu hlutir geta umbreyst í höndum listamannsins og kveikt með okkur nýja tilfinn- ingu fyrir umhverfi okkar og daglegu lífi. Sýningarsalir Hafnarborgar eru opnir frá klukkan 12.00 til 18.00 alla daga nema þriðju- daga, en kaffistofan og sýning- arnar þar eru opnar frá klukkan 11.00 til 18.00 virka daga og frá klukkan 12.00 til 18.00 um helgar. inu hjá honum. Þar var allt svo gljáfægt og lágt að þaö vakti undrun okkar ungra manna sem gerðum okkur ferð til þess að kíkja ofan í vélarhúsið. Og þar var nú ekki plássið stórt í þessum sjö til tíu tonna bátum. — Slík var snyrtimennska Páls vélstjóra. Páll kvæntist 12. desember 1920 Margréti Eyjólfsdóttur (1895-1982). Heimili þeirra var í húsinu Mörk vib Hásteinsveg. Þau áttu einn son, Sigurb Hún- fjörð (1921-1964). Dóttir Páls, Guðbjörg Jóhanna, býr á Sel- fossi. Páll sótti sjó í Eyjum, vélstjórn- in féll honum vel, réttur mabur á réttum stað. Framtíðin gaf góbar vonir áð ætla má. Nokkur ár líöa. Þá hendir Pál þab óhapp að hann veiktist af brjósthimnubólgu. Páll leitar þá til nafna síns, Páls Kolka læknis, sem var maður skjótráður og hafbi orb á sér sem fær læknir. — Hann leggur bann vib því ab Páll verði til sjós lengur. Þetta varb til þess að Páll og Margrét flytja til Reykjavíkur. En Páll sagði á hundrað ára afmæli sínu: „En ég sá alltaf eftir því að fara frá Eyj- um. Þar var gott að vera." Um 1920 settist Páll að á Eyrar- bakka, bjó lengst af í Stíghúsi. Á Eyrarbakka stundaði Páll hin aðskiljanlegustu störf, fjölhæfur í. besta lagi, almenna verka- mannavinnu, fiskvinnslu, sjó- sókn, húsasmíðar og bílavið- geröir. „Ég kunni alltaf vel við smíðarnar," sagði Páll. Og hann lét ekki deigan síga, vann fram að áttræðu en varð þá fyrir áfalli svo halda varð til hlés. Var nokk- ur ár vistmaður á Kumbaravogi á Stokkseyri. Flutti síðar á elli- heimilið Ljósheima á Selfossi. Hreppsnefnd Eyrarbakka sýndi Páli þann verðskuldaða heiður að halda honum samsæti á hundrab ára afmælinu. Að loknum þeim mannfagnaði sendi Páll þakkarávarp vinum og vandamönnum og hreppsnefnd- inni. Þar segir orðrétt í samræmi við lífsmottó Páls: „Með léttri og góðri lund minnumst vib gam- alla og góbra daga." Og Páll mundi sjálfsagt taka undir með skáldinu: „Samt er gaman að hafa / lifað svo langan dag". Haraldur Guðnason APÓTEK Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I Reykjavfk frá 19. ágúst tll 25. ágúst er I Hraunbergs apótekl og Ingólfs apótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 aó morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnu- dögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I sfma 18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórtiátíóum. Símsvari 681041. Hafnarfjðrður: Hafnarfjarðar apótek og Norðurbæjar orú- tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upptýsingar í símsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið i þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-12.00 og 20.00- 21.00. Á öðrum tfmum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upptýs- ingar eru gefnar f sima 22445. Apótek Keflavfkun Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., helgidaga og almenna frfdaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannæyja: Opið virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokað f hádeginu mMi kl. 12.30-14.00. Selfoss: Selfoss apótek eropiðtil kl. 18.30. Opið er á laug- ardögum og surwudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til Id. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-13.00 og surmud. kl. 13.00-14.00. Qarðabær: Apótekið er opið rumhelga daga kl. 9.00- 18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. águst1994. Mánaðargrefðslur Elli/örorkulffeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329 1/2 hjónalífeyrir............................11.096 Full tekjutrygging ellilífeyrisþega.........27,221 Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega........27,984 Heimilisuppból................................9,253 Sérstök heimilisuppbót........................6,365 Bamalífeyrir v/1 bams........................10.300 Meðlagv/1 barns..............................10.300 Mæðralaun/leóralaun v/1 bams..................1.000 Mæðralaun/leðralaun v/2ja bama................5.000 Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583 Fullur ekkjulífeyrir.........................12.329 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)..................15.448 Fæðingarstyrkur..............................25.090 Vasapeningar vistmanna ......................10.170 Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170 Daggrelðslur Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00 Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20 Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings................665.70 Slysadagpeningar fyrir hverl barn á Iramlæri ....142.80 f ágúst er greiddur 20% tekjutryggingarauki (oriofsuppbót) á tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisupp- bót. T ekjutryggingaraukinn er reiknaður inn i tekjutrygging- urra, heimilisuppbótina og sérstöku heimilisuppbótina í júlí var greiddur 44.8% tekjutryggingaraugi. Bætur eru því heidurlægri núenfjúlí GENGISSKRÁNING 24. ágúst 1994 kl. 10,58 Oplnb. vlðm.gengl Gengi Kaup Sala skr.tundar Bandarfkjadollar.....67,87 68,05 67,96 Sterlingspund.......105,35 105,63 105,49 Kanadadollar.........49,33 49,49 49,41 Dönsk króna.........11,000 11,114 11,097 Norsk króna..........9,986 10,016 10,001 Sænsk króna..........8,864 8,892 8,878 Flnnsktmark.........13,440 13,480 13,460 Franskur franki.....12,820 12,860 12,840 Belgfskur frankl....2,1298 2,1366 2,1332 Svissneskur frankl...52,11 52,27 52,19 Hollenskt gyllini....39,15 39,27 39,21 Þýsktmark............43,96 44,08 44,02 ítölsk Ifra........0,04317 0,04331 0,04324 Austurrfskur sch......6,244 6,264 6,254 Portúg. escudo......0,4292 0,4308 0,4300 Spánskur peseti......0,5262 0,5280 0,5271 Japanskt yen.........0,6878 0,6896 0,6887 írsktpund............103,89 104,23 104,06 Sérst. dráttarr.......99,40 99,70 99,55 ECU-Evrópumynt.......83,61 83,87 83,74 Grfsk drakma.........0,2900 0,2910 0,2905 TIL HAMINGJU Gefin voru saman þann 06.08.94 í Fríkirkjunni í Hafn- arfirði þau Ágústa Kristleifs- dóttir og Eggert Þór Kristófers- son af séra Sigfinni Þorleifssyni. Þau eru til heimilis í Slétta- hrauni 32, Hafnarfirði. Ljósm.st. MYND, Hafnarfirði. BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ MUNIÐ ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVfK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.