Tíminn - 14.09.1994, Síða 3
Mi&vikudagur 14. september 1994
9Mmi
3
Hugaö aö loönuleit:
25% verölækk-
un á lýsi
Á sama tíma og enga loðnu er
aö fá á miðunum og flest skip
í höfn, hefur verð á lýsi á
heimsmarkaði lækkað um
25% frá sama tíma í fyrra
vegna mikils framboðs frá
Perú. Aftur á móti er verð á
mjöli svipað og veriö hefur.
Þórður Jónsson, rekstrarstjóri
SR-Mjöls hf. á Siglufirði, segir að
lýsismarkaðurinn hafi nánast
farið á hvolf þegar framleiðsla
Perúmanna jókst um 140 þús-
und tonn vegna þess að lýsis-
nýting þeirra varð l,5%-2%
betri en reiknað hafði verið
með.
Afar rólegt hefur verið á loð-
numiðunum síðustu missseri og
hafa skipin veriö að koma með
slatta í land, eða allt niður í 20
tonn. Þá munu t.d. öll norsku
loönuveiðiskipin vera farin til
síns heima, en tvö færeysk skip
þrauka enn. Rekstarstjóri SR-
Mjöls á Siglufirði segir að menn
„ Þjóövegahátíöin "
17. júní sl.:
Kostnaöurinn
enn á huldu
Guðmundur Árnason, deildar-
stjóri í forsætisráöuneytinu,
segir að enn liggi ekki fyrir
hver endanlegur kostnaður
veröi vegna lýöveldishátíðar-
innar á Þingvöllum 17. júní sl.
Greint var frá því í Tímanum
fyrir stuttu aö hátíðin hefði farið
60 milljónir umfram fjárlög en í
þeim voru 70 milljónir ætlaðar
til hátíðarhaldanna. Samkvæmt
upplýsingum fjármálaráðuneyt-
isins er kostnaður hins vegar
kominn í 130 milljónir.
Guðmundur Árnason segir ljóst
að ýmsir liðir hátíðarhaldanna
hafi reynst dýrari en ætlað var
en endanlegur kostnaður liggi
ekki fyrir. Hann bendir á aö auk
70 milljónanna á fjárlögum hafi
verið 15 milljóna króna heimild
í fjáraukalögum fyrir árið 1993.
Hann segir að starfsmenn ráðu-
neytisins séu þessa vikuna aö
ganga frá fjáraukalagabeiðnum
til fjármálaráðuneytisins og því
ætti kostnaðurinn að liggja fyrir
í næstu viku. ■
Nýtt ferm-
ingakver
Samferða heitir nýtt kver til
undirbúnings fermingar. Það er
unnið á vegum Fræðslu- og
þjónustudeildar þjóðkirkjunnar
en útgefandi er Skálholtsútgáf-
an. Höfundur texta er séra Jón
Ragnarsson, en fermingarstarfa-
nefnd kirkjunnar undir forystu
séra Jakobs Á. Hjálmarssonar
hefur starfaö með honum að
mótun efnis og texta. Þá hafa
prestar og fræðarar í tíu presta-
köllum notað efnið við til-
raunakennslu sl. vetur.
Kveriö er um 100 blaðsíður og
myndir í því eru nálægt 400 aö
tölu. Kverinu fylgir fræðslulýs-
ing og verkefni fyrir 22 kennslu-
stundir.
ítarefni frá m.a. Kristniboðs-
sambandinu, Biblíufélaginu og
Hjálparstofnun kirkjunnar
fylgja efninu, að því er segir í
fréttatilkynningu um ferming-
arkverið. V.'
séu farnir að ræða það viö ein-
staka útgerðir að skip verði send
á miðin til loðnuleitar. Ef af því
verður munu menn nýta sér
ráðgjöf og þekkingu Hafrann-
sóknastofnunar.
Þórður segir að það sé í sjálfu
sér ekkert óeðlilegt við þetta
loðnuleysi á miðunum og þetta
sé hlutur sem menn þurfi að
vera viðbúnir að takast á við.
Hann segir að enn sem komið er
hafi engum verið sagt upp störf-
um í verksmiðjunum vegna
aflaleysis. Hinsvegar sé viðbúið
að einhverjir sem ekki gátu nýtt
sér áður ákveðin frí í sumar
vegna Íslandssíldarinnar, muni
notfæra sér þennan dauða tíma
til frítöku. ■
„Því skagfirskt blób er í þeim öllum..."
Bœndur íAkrahreppi ÍSkagafirði smöluðu afrétt sinn á Öxnadalsheiði um helgina og ráku til réttar. Sauðfé og hross
söfnuðust saman á hálsinum framan við Valagilsá, áður en safnið var rekið niður í rétt við bœinn Silfrastaði. Og
það er ekki bara að íþessum hrossum sé skagfirskt blóð, heldur tilheyra þau austanvatnakynstofninum svonefnda,
en afþeim meiði eru líklega frœgust Svaðastaða- og Kolkuóshross. rimomynd Ágúst b.
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags Islands
var stofnaður 1955. Fyrsta reglugerð sjóðsins var samþykkt 29. mars 1955.
AJlir verkfræðingar geta orðið sjóðfélagar, og cinnig er stjóminni heimilt að veita þeim, sem lokið hafa námi úr Háskóla
íslands með 90 eininga B.Sc. gráðu, eða sambærilegu námi, inngöngu í sjóðinn.
Með lögum nr. 55/1980 er mönnum gert skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði sinnar starfsstéttar eða starfshóps.
Nú eiga rúmlega 1400 sjóðfélagar réttindi í sjóðnum.
Meginniðurstöður ársreiknings lífeyrissjóðsins sbr. 7. mgr. 3.gr. laga nr. 27/1991.
Efnahagsreikningur 31. dcsember 1993:
Veltufjármunir
Skammtimaskuldir
Hreint veltufé
Fastafjármunir
Langtímakröfur
Áhættufjármunir
Eignarhlutir í sameignarfélögum
Varanlegir rekstrarfjármunir
Langtímaskuldir
Hrein eign til greiðslu lífeyris
Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 1993:
Fjármunatekjur, nettó
Iðgjöld
Lífeyrir
Kostnaður (rekstrargjöld-rekstrartekjur)
Matsbreytingar
Hækkun á hreinni eign á árinu
Hrein eign frá fyrra ári
Hrein eign í árslok, til greiðslu lífeyris
Ýmsar kennitðlur:
Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum
Kostnaður í hlutfalli af iðgjöldum
Kostnaður í hlutfalli af eignum (meðaltali hreinnar eignar í árslok og ársbyijun)
Starfsmannafjöldi (slysatryggðar vinnuvikur / 52)
Tryggingafrseðileg úttekt hefúr verið gerð árlega ffá og með 1990.
Niðurstöður úttektarinnar pr. 31.12.1993 eru:
Skuldbindingar
Lífeyrisþegar 268,0 milljónir
Uppsöfnuð réttindi annarra 2.669,0 milljónir
Til uppbóta á lífeyri 117,0 milljónir
Varasjóður 22,4 milljónir
Hrein eign - útistandandi iðgjöld _________________
Samtals 3.076,4 milljónir
í þús. kr.
138.574
- 726
137.848
2.983.155
17.892
0
48,800
3.049.847
________0
3.187.695
151.426
279.564
- 25.842
-21.503
90.854
474.499
2.713,196
3.187.695
9,24%
7,69%
0,73%
4,75
Eignir á móti skuldbindingum
3.148.1 milliónir
3.148.1 milljónir
Hagnaður til ráðstðfunar
71,7 milljónir
Aðalfúndur sjóðsins 30. maí 1994 ákvað að deila út 65 milljónum af hagnaði ársins til aukinna lifeyrisréttinda nú, og
setja 6,7 milljónir í varasjóð til næsta árs.
í stjóm Lífeyrissjóðs VFÍ
Jónas Bjamason Þórólfúr Ámason
Eysteinn Haraldsson Hafsteinn Pálsson
Hilmar Sigurðsson
Framkvæmdastjóri er Jón Hallsson