Tíminn - 14.09.1994, Qupperneq 14
14
Miðvikudagur 14. september 1994
DAGBOK
UUUUVAAAAAAAA^
Mibvikudagur
14
september
257. daqur ársins -108 daqar eftir.
3 7. vlka
Sólris kl. 6.47
Sólarlag kl. 19.58
Dagurinn styttist um
7 mínútur
Hafnargönguhópurinn:
Afmælisganga
Um þessar mundir er Hafnar-
gönguhópurinn tveggja ára.
Af því tilefni verður fyrsta
gönguferð hópsins endurtek-
in, en hún var farin 16. sept-
ember 1992 frá Hafnarhúsinu
að vestanverðu kl. 20. Gengið
var með Tjörninni suður í
Hljómskálagarð og Vatnsmýri
og komið við í Ráðhúsinu í
bakaleið.
í lok göngunnar um kl.
21.30 verður afmælisins
minnst í Miðbakkatjaldinu.
Þar verður dansað og ýmislegt
sér til gamans gert.
Allir, sem farið hafa í göngu-
ferð með Hafnargönguhópn-
um, eru velkomnir og gestir
þeirra. Ekkert þátttökugjald.
Ljób M.A.-stúdenta
Til stendur að gefa út safnrit
með ljóðum stúdenta frá
Menntaskólanum á Akureyri,
frá upphafi til dagsins í dag.
Ljóö, ásamt upplýsingum
um útskriftarár og útgefin
skáldrit, sendist til Tryggva V.
Líndal, Skeggjagötu 3, 105
Reykjavík, fyrir lok október
1994. Öllum bréfum verður
svaraö. Upplýsingar veitir
Tryggvi í síma 21625.
Silfurlínan
Silfurlínan, síma- og viðvika-
þjónusta fyrir eldri borgara, er
opin alla virka daga frá kl. 16-
18. Sími 616262.
Indverska barna-
hjálpin
Að gefnu tilefni vill Ind-
verska bamahjáipin koma því
á framfæri, að reikningsnúm-
er nefndarinnar er 72700 í
Búnaðarbankanum við
Hlemm.
ívan grimmi II.
í bíósal MÍR
Annar hluti kvikmyndar Ser-
geis Eisenstein „ívan grimmi"
verður sýndur í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, nk. sunnudag
18. september kl. 16.
Eisenstein byrjaði að vinna
að kvikmynd sinni um ívan
fjórða (1533- 1584), fyrsta
valdhafa Rússlands sem kall-
aði sig keisara, á árinu 1941.
Átti myndin upphaflega ab
vera í þremur hlutum. Vegna
innrásar Þjóðverja í Sovétríkin
og styrjaldarátakanna voru
höfubstöðvar Mosfilm-kvik-
myndaversins í Moskvu flutt-
ar til Alma-Ata í Kazakhstan,
og þar lauk Eisenstein við
fyrsta hluta myndarinnar
1944. Annar hlutinn var svo
fullgerður í Moskvu 1945, en
verkið hlaut svo harða gagn-
rýni, m.a. af hálfú stjórn-
valda, að áformin um 3. hluta
kvikmyndarinnar voru lögð á
hilluna. Og reyndar var þessi
2. hluti „ívans grimma" ekki
sýndur opinberlega í Sovét-
ríkjunum fyrr en á árinu
1958, 10 árum eftir andlát
höfundarins, Sergeis Eisen-
stein. Þetta var síðasta verk
hins mikla meistara kvik-
myndalistarinnar og er fyrir
löngu komið í tölu klassískra
meistaraverka.
Helstu samstarfsmenn Eisen-
steins við gerð kvikmyndar-
innar voru myndatökumenn-
irnir A. Moskvin og E. Tissé
og tónskáldið Sergei Pro-
kofiev. Titilhlutverkið lék Ni-
kolaj Tsjerkasov. Enskir skýr-
ingartextar eru meb mynd-
inni. Aðgangur ókeypis og öll-
um heimill.
Einleikstónleikar
Ger&ubergs
Guðni Franzson klarinettu-
leikari og Gerrit Schuil píanó-
leikari koma fram á fyrstu
Einleikstónleikum vetrarins í
Gerðubergi laugardaginn 17.
september kl. 17.
Guðni Franzson er þekktur
fyrir starf sitt meb CAPUT-
hópnum, Keltum og þátttöku
í leikhússtarfi. Gerrit Schuil er
hollenskur píanóleikari,
hljómsveitar- og óperustjóri
sem undanfarið hefur verið
búsettur vib Eyjafjörð. Hann
kemur m.a. fram sem stjórn-
andi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í vetur, auk þess ab taka
þátt í margvíslegum tónlistar-
viðburöum og leikhússtarfi.
Á efnisskránni eru Phant-
asiestykki op. 73 og Rómöns-
ur op. 94 eftir Robert Schu-
mann (1810-1856) og Sónöt-
ur op. 120 nr. 1 og 2 eftir Jo-
hannes Brahms (1833-1897).
Efnisskráin hefur hlotið
vinnuheitið „Hvar er Clara?"
og er þar vísað til Clöru Schu-
mann, eiginkonu Roberts, og
þeirra áhrifa sem hún kann að
hafa haft á tónverk eigin-
manns síns og Brahms, sem
hún átti í vináttusambandi
við um margra ára bil.
TIL HAMINGJU
Þann 6. ágúst 1994 voru gefin
saman í hjónaband í Stafafells-
kirkju af sr. Baldri Kristjánssyni,
Herborg Þuríðardóttir og
Gunnar Bragi Þorsteinsson.
Heimili þeirra er að Hlíðartúni
12, Hornafirði.
Ljósm.st. Jóh. Valg.
Þann 23. júlí 1994 voru gefin
saman í hjónaband í Fríkirkj-
unni í Reykjavík af séra Eiríki
Jóhannssyni, Lilja Rós Óskars-
dóttir og Þorsteinn Sigmars-
son.
Ljósm. Slgr. Bachmann
Þann 6. ágúst 1994 voru gefin
saman í hjónaband í Kópa-
vogskirkju af séra Ægi Fr. Sigur-
geirssyni, Ólöf Guðmunds-
dóttir og Fredrik Ljungholm.
Heimili þeirra er í Svíþjóð.
Ljósm. Sigr. Bachmann
Daaskrá útvaros oq siónvarps
Miðvikudagur 14. september 6.45 Veburfregnir ^ 6.50 Bæn 7.00 Fréttir 7.30 Fréttayfirlit og ve&ur- fregnir 7.45 Heimsbyggö 8.00 Fréttir 8.10 A& utan 8.20 Músík og minningar 8.31 Tíöindi úr menningarlífinu 9.00 Fréttir 9.03 Laufskálinn 9.45 Segbu mér sögu, „Sænginni yfir minni" 10.00 Fréttir 10.03 Morgunleikfimi 10.10 Árdegistónar 10.45 Veburfregnir 11.00 Fréttir 11.03 Samfélagib í nærmynd 12.00 Fréttayfirlit á hádegi 12.01 Ab utan 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Ve&urfregnir 12.50 Aublindin 12.57 Dánarfregnir og auglýsingar 13.05 Hádegisleikrit Utvarpsleikhússins, Ambrose í París 13.20 Stefnumót 14.00 Fréttir 14.03 Útvarpssagan, Endurminningar Casanova 14.30 Óhlýbni og agaleysi um aldamótin 1700 15.00 Fréttir 15.03 Mi°istónlist 16.00 Fréttir 16.05 Skíma - fjölfræ&iþáttur. 16.30 Ve&urfregnir 16.40 Púlsinn - þjónustuþáttur. 17.00 Fréttir 17.03 Dagbókin 17.06 í tónstiganum 18.00 Fréttir 18.03 Þjóöarþel - úr Sturlungu 18.30 Kvika 18.48 Dánarfregnir og auglýsingar 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Auglýsingar og ve&urfregnir 19.35 Ef væri ég söngvari 20.00 Hljóbritasafnib 21.00 Hátfb í vitund kirkju og þjó&ar 21.30 Kvöldsagan, Ab breyta fjalli 22.00 Fréttir 22.07 Tónllst 22.15 Heimsbyggb 22.27 Or& kvöldsins 22.30 Ve&urfregnir 22.35 Tónlist á si&kvöldi 23.10 Þrír píanósnillingar 24.00 Fréttir 00.10 í tónstiganum 01.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns Mibvikudagur 14. september ^ 18.15 Táknmálsfréttir 18.25 Pétur kanína og vinir hans(1:4) 18.55 Fréttaskeyti 19.00 Lei&in til Avonlea (13:13) 20.00 Fréttir 20.30 Ve&ur 20.35 Vestfjarbavíkingurinn Mynd frá keppni kraftakarla á Vest- fjörbum sem fram fór í júlí á þessu ári. Sterkustu menn íslands á einum stab. Dagskrárgerb: Steingrímur Þór&ar- son. Framlei&sla: Mega-film. Um- . sjón: Samúel Örn Erlingsson. 21.15 Saltbaróninn (7:12) (Der Salzbaron) Þýsk/austurrískur myndaflokkur um ungan og myndarlegan riddarali&s- foringja á tímum Habsborgara í aust- urrísk-ungverska keisaradæminu. A&- alhlutverk: Christoph Moosbrugger og Marion Mitterhammer. Leikstjóri: Bernd Fischerauer. Þýbandi: jóhanna Þráinsdóttir. 22.10 Þorsklaust þorskvei&iland Ólafur Sigur&sson fréttamabur var á ferö vestan hafs fyrir skömmu og kynnti sér ástandib í fiskvei&imálum vi& Nýfundnaland og austurströnd Kanada, en þar hefur verib í gildi þorskvei&ibann í tvö ár. 22.40 Evrópsk knattspyrna Sýndar ver&a svipmyndir úr knatt- spyrnuleikjum í Evrópu. 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok Miðvikudagur 14. september ^ 17:05 Nágrannar , 17:30 Halli Palii I^SJIJOÍ 17:50 Lfsa f Undralandi W 18:15 VISASPORT 18:45 Sjónvarpsmarka&urinn 19:19 19:19 19:50 Víkingalottó 20:15 Eiríkur 20:35 Melrose Place (6:32) 21:30 Matgla&i spæjarinn (Pie in the Sky) (9:10) 22:25 Tfska(29:39) 22:50 Hale og Pace (6:7) 23:20 Thelma og Louise Vel ger& og sérstök kvikmynd um tvær konur sem eru or&nar lei&ar á lífsmynstri sínu og ákveba a& breyta til, meb ófyrir- sjáanlegum afleibingum. Abalhlutverk: Susan Sarandon og Ceena Davis. Leik- stjóri: Ridley Scott. 1991. Bönnub börn- um. 01:25 Dagskrárlok
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reyklavlk frá 9. september tll 15. september er I
Reykjavlkur apótekl og Borgar apótekl. Það apótek
sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00
að kvöldl tll kl. 9.00 aö morgnl vlrka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Slmsvari
681041.
Hafnarfjöröur: Halnarfjaröar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt-
is annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartima búöa. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort að sínna kvökH nætur- og helgidagavörslu.
Á kvöldin er opió í því apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00- 12.00 og
20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræöingur á bakvakt.
Upplýsingar eru gefnar í síma 22445.
Apótek Keflavlkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaó í hádeginu rmlli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opió til kl. 18.30. Opió er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opió virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opió rúmheiga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1.september1994
Mánaðargrelðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)........ 12.329
1/2 hjónalífeyrir...........................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega.........22.684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega.......23.320
Heimilisuppbót...............................7.711
Sérstök heimilisuppbót........................5.304
Bamalífeyrir v/1 bams.......................10.300
Meðlagv/1 bams............................ 10.300
Mæöralaun/feóralaun v/1 barns................1.000
Mæðralaun/feöralaun v/2ja bama...............5.000
Mæðralaun/feóralaun v/3ja bama eða fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða.............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaóa............11.583
Fullur ekkjulífeyrir........................12.329
Dánarbætur f 8 ár (v/slysa).......:.........15.448
Fæðingarstyrkur.............................25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga..............10.170
Daggrelðslur
Fullir fæóingardagpeningar................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings..............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings...............665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
Enginn tekjutryggingaraiid er greiddur í september og eru
bætur þri lægri nú en í júli og ágúst.
GENGISSKRÁNING
13. september 1994 kl. 10,52 Opinb. Kaup viðm.gengi Sala Gengi skr.fundar
Bandarfkjadollar 67,62 67,80 67,71
Sterlingspund ....106,00 106,28 106,14
Kanadadollar 49,90 50,06 49,98
Dönsk króna ....11,095 11,129 11,112
Norsk króna 9,979 10,009 9,994
Sænsk króna 9,031 9,059 9,045
Flnnskt mark ....13,625 13,667 13,646
Franskur franki ....12,798 12,836 12,817
Belgfskur frankl ....2,1282 2,1350 2,1316
Svissneskur frankl. 52,53 52,69 52,61
Hollenskt gyllinl 39,05 39,17 39,11
Þýsktmark 43,81 43,93 43,87
ítölsk Ifra ..0,04300 0,04316 0,04308
Austurrfskur sch 6,223 6,243 6,233
Portúg. escudo ....0,4300 0,4316 0,4308
Spánskur pesetl ....0,5272 0,5290 0,5281
Japansktyen ....0,6825 0,6843 0,6834
írsktpund ....104,35 104,69 104,52
Sérst. dráttarr 99,06 99,36 99,21
ECU-Evrópumynt.... 83,53 83,79 83,66
Grfsk drakma ....0,2877 0,2887 0,2882
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar