Tíminn - 29.09.1994, Síða 3

Tíminn - 29.09.1994, Síða 3
Fimmtudagur 29. september 1994 WSmiwm 3 VSÍ telur aö 7 miljaröa lántaka vegna vegafram- kvœmda geti ýtt undir vaxtahœkkun: Hugmyndir Davíðs ganga ekki í VSÍ í samþykkt framkvæmda- stjórnar VSÍ um áform í vega- málum kemur m.a. fram ab ekki sé rétt aö fara jafn hratt í uppbygingu samgöngu- mannvirkja og hugmyndir forsætisrábherra gera ráí> fyr- ir. Að mati samtakanna samrým- ist það illa hugmyndum um sveiflujöfnunarhlutverk opin- berra framkvæmda ab ákveða umfang þeirra til margra ára, auk þess sem fyrirhuguð fjár- mögnun geti leitt til vaxta- hækkunar og hækkunar verð- lags. Hinsvegar tekur framkvæmda- stjórnin undir mikilvægi þess ab brýnum og arðsömum fram- kvæmdum í vegagerð verði flýtt og aflað til þess lánsfjár og tekna, enda sé tryggt að umfang þeirra samrýmist stefnu stjórn- valda og aðila vinnumarkaðar- ins um stöðugleika í efnahags- lífinu á næstu árum. í því sam- bandi er minnt á að VSÍ hefur hvatt til ab framkvæmdum verði flýtt þar sem arðsemi ráði forgangsröðun þeirra. Jafnframt telja samtökin æskilegt að opin- berir aðilar auki við fjárfestingar á samdráttartímum en dragi úr þeim á uppgangstímum í efna- hagslífinu. Framkvæmdastjórn VSÍ telur að 7 miljarða króna lánataka til umræddra framkvæmda í vega- gerð geti valdið allt að 0,25% hækkun verðlags. Þetta sé mikil- vægt ab hafa í huga í ljósi mark- miba um að halda verðbólgu undir 2% á næstu árum og lág- um vöxtum. Því beri ab tak- marka umfang framkvæmda við það að lántökur leiði ekki til vaxtahækkana eða þensluáhrifa á afmörkuöu sviði atvinnulífs- ins, auk þess sem enga áhættu megi taka sem stefnt geti verð- lagsmarkmiöum og stöðugleika efnahagslífs í tvísýnu. Emil er leikinn af Kára Cunnarssyni, 7 7 ára nema úr Víbistabaskóla í Hafnarfirbi. Ný íslensk fjölskyldumynd: Framsóknarflokkurinn á Suöurlandi mun velja fólk á framboöslistann á kjördcemisþingi: Enn óljóst meó Jón Helgason Hjá Framsóknarflokknum á Suðurlandi verbur valib á fram- bobslistann á kjördæmisþingi dagana 28. og 29. október. Ólaf- ía Ingólfsdóttir, formabur kjör- dæmissambandsins, segir ab val á frambobslistann fari fram í skobanakönnun í tveimur um- ferbum. Fyrri umferbin fer þannig fram ab félögin eru beb- in um ab benda á einstaklinga og þá er eingöngu krossab vib nöfn. Síban í seinni umferbinni verbur rabab í sæti. Þeir abilar sem þegar hafa gefið kost á sér eru þau Guðni Ágústs- son alþingismaður og Þuríður Bernódusdóttir úr Vestmannaeyj- um. Jón Helgason, alþingismaður og fyrrv. rábherra, hefur enn ekki gefið upp hvort hann muni gefa kost á sér áfram eöa hvort hann hættir. Ljóst er að margir líklegir frambjóðendur munu bíða með að gefa kost á sér tii framboðs þangað til ljóst er hvab' Jón hyggst fyrir. Isólfur Gylfi Pálma- son, sveitarstjóri í Hvolhreppi, hefur verið nefndur sem líklegur frambjóðandi en talib er að hann muni bíða og sjá hvað Jón Helga- son ætlar sér. Sama má segja um Ólafíu Ingólfsdóttur, formann kjördæmissambandsins. Ekki er ólíklegt að Skaftfellingar muni jón Helgason vilja fá mann inn ef Jón hættir og þá hefur Gubmundur Elíasson frá Pétursey og vert í Víkurskála verið nefndur sem hugsanlegur eftir- mabur Jóns. Þorvaldur Snorrason, formaður FUF í Ámessýslu, Bergur Pálsson í Hólmahjáleigu og formaður Fé- lags hrossabænda, Sigurður Ey- þórsson, fyrrv. ritari SUF, og Sal- var Júlíusson, bóndi í Jórvík, hafa einnig verið nefndir til sögunnar og líklegt er að fleiri konur muni gefa kost á sér líka. ■ Prófkjör innan fulltrúaráösins Hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík verbur prófkjör innan fulltrúarábsins og verbur kosib um fjögur efstu sætin. Frestur til ab skila inn frambobi rennur út 10. október en prófkjörib mun fara fram dagana 5.- 6. nóvember. Finnur Ingólfsson og Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir skipubu fyrsta og annab sætib í kosningun- um 1991. Þau hafa bæbi gefib kost á sér áfram í sömu sæti. ðlafur Örn Haraldsson, fyrrv. framkvæmda- stjóri Gallup á íslandi, hefur gefib kost á sér í annað sætib. Hallur Magnússon sagnfræðingur gefur kost á sér í þriðja sætið, Arnþrúbur Karlsdóttir hefur einnig gefið kost á sér en hefur ekki tiltekib neitt ákvebib sæti ennþá. Þá hefur Bjarni Einarsson, fyrrv. abstobarforstjóri og bæjarstjóri á Akureyri, gefib kost á sér í fyrsta til fjórba sæti. Skýj ahöllin frumsýnd í dag Ný íslensk fjölskyldumynd, Skýjahöllin, verður frumsýnd í Bíóhöllinni í dag. Frumsýn- ingin er ætlub leikurum og aðstandendum myndarinnar og gestum þeirra. Fyrsta al- menna sýningin á Skýjahöll- inni, kl. 19.00 í Bíóhöllinni, er sérstök hátíöarsýning fyrir Barnaspítalasjóð Hringsins, en sjóðurinn fær allan ab- gangseyri á þá sýningu. Abalpersóna Skýjahallarinnar er hinn átta ára Emil sem á sér þann draum heitastan að eign- ast hund. Foreldrar hans standa í byggingu einbýlishúss og eiga í stöðugu stríði vib víxla og gjalddaga. í fyrstu neita þau Emil um ab eignast hund á þeim forsendum að hundur kosti of mikið. Að lokum veita þau honum með semingi leyfi til að kaupa hann — geti hann safnað fyrir honum sjálfur. Þau lifa í þeirri trú að það geti dreng- urinn ekki. Fullur atorku ræðst Emil í það mikla verk að eignast pening fyrir hundi. Hann selur blöð af miklum móö og handlangar fyrir húsgagnasmið og ab lok- um á hann nægilega fjármuni fyrir hvoipi. Þá kemur babb í bátinn, pabbi er ekki alveg á þeim buxunum að standa við gefiö loforð. Emil grípur þá til örþrifaráða til að halda hundinum og hristir með aögerðum sínum svo um munar upp í nánasta umhverfi sínu. Þorsteinn Jónsson leikstýrir Skýjahöllinni ásamt því að semja handritið. Þorsteinn er enginn nýliöi í íslenskri kvik- myndagerð, hann hefur áður leikstýrt tveimur kvikmyndum í fullri lengd. Það eru Punktur, punktur, komma, strik árið 1981 og Atómstöðin árið 1984. Hann var framkvæmdarstjóri Kvikmyndasjóðs frá 1990 til Skundi, hundur Emils. 1993. Þorsteinn útskrifaðist með próf í kvikmyndaleikstjórn frá Kvik- myndaakademíunni í Prag árið 1971 og stundaði nám við kvik- myndadeildina í Nipponhá- skóla í Japan á árunum 1977 og 1978. Kvikmyndatakan er í höndum Sigurðar Sverris Pálssonar sem er einn reyndasti og virtasti kvikmyndatökumaður íslands. Höfundur bókarinnar sem myndin er byggð á er Guð- mundur Ólafsson. Hann kom mörgum á óvart er hann sigraði í barnabókasamkeppni Vöku Helgafells áriö 1986 með sög- unni um Emil og Skunda. Bókin var gefin út fyrir jólin 1986 og vann strax hug og hjörtu heillar kynslóðar og er enn í dag í hópi vinsælustu og best metnu barnabóka íslands. Kári Gunnarsson, sem leikur Emil, er ellefu ára nemi við Víði- staðaskóla í Hafnarfirði. Kári var valinn úr hópi mörghundruð drengja til ab fara með hið vandasama hlutverk Emils. Em- il er aðalsöguhetja myndarinnar og því er hlutverk hans vanda- samt og erfitt fyrir tíu ára dreng að valda því. Kári þurfti oft að vinna tólf tíma vinnudag og haft er á orði að ef sama vinnu- löggjöf fyrir börn gilti hér og í Holywood hefði þurft þríbura í hlutverk Emils og hefði þá hver um sig unnið í fjóra tíma á dag. Gubrún Gísladóttir leikur mömmu Emils. Kvikmyndafer- ill Guðrúnar er ekki langur, en gjöfull. Hún lék eiginkonu Magnúsar í samnefndri kvik- mynd Þráins Bertelssonar sem hlaut einróma lof og prís gagn- rýnenda og Evrópuverðlaunin sem besta mynd ársins 1987 og nú leikur hún móbur Emils í kvikmyndinni Skýjahöllin. Pabbi Emils, sem Hjalti Rögn- valdsson leikur, er síþreyttur málmsmiður, sem er af dugnaöi og einurð ab reyna ab koma þaki yfir höfuð fjölskyldu sinn- ar. Hann lofar Emil að fá hund, en svíkur svo barniö með ófyrir- sjáanlegum afleiöingum. ■ Gubmundur Karl tekur viö af Jóni Karlssyni Guðmundur Karl Jónsson hef- ur verið skipaöur af Sighvati Björgvinssyni heilbrigðisráð- herra sem formaður Stjórnar- nefndar ríkisspítalanna frá og meö 1. október nk. Guðmund- ur Karl tekur við af Jóni H. Karlssyni, aðstoðarmanni Guðmundar Árna Stefánsson- ar félagsmálaráöherra. Guðmundur var stjórnarfor- maður Ríkisspítalanna þegar Sighvatur var áður í heilbrigöis- ráðuneytinu, eða frá október 1992 til ársloka 1993. Guðmundur Karl er fæddur 1940 og er lögfræðingur frá Há- skóla íslands. Hann hefur verib forstjóri Fríhafnarinnar á Kefla- víkurflugvelli frá 1981. ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.