Tíminn - 29.09.1994, Page 8
8
Fimmtudagur 29. september 1994
Valdabarátto
sögö eiga sér
staö í Noröur-
Kóreu milli son-
ar og bróöur
Kim ll-sungs
Norbur-Kórea er áfram aö
flestra mati dularfyllsta
ríki jarðar, og hefur sú
dulúð heldur aukist en hitt frá
því að stofnandi ríkisins og
valdhafi þess um langan aldur,
Kim Il-sung, féll frá 8. júlí s.l.
Sonur hans, Kim Jong-il, hafði
þegar þetta var ritað ekki enn
veriö settur inn í embætti sem
eftirmaður föður síns og ekki
einu sinni sést opinberlega eftir
jarðarför hans.
Kínverjar eru taldir öðrum
fróðari um gang mála í Norður-
Kóreu og eftir heimildum í Pek-
ing, þ.á m. erlendum stjórnar-
erindrekum þar, er haft að um-
rætt grannríki Kína sé nú hrjáð
af erfðadeilum. Þar er ekkert lát
á efnahagsörðugleikum þeim,
sem upphófust meb hruni sov-
étblakkar. Kínverskir ráðamenn
eru sagöir reikna í fullri alvöru
með að valdakerfi norburkór-
eska kommúnistaflokksins
hrynji saman þá og þegar af
völdum örbugleika þessara.
Búast vib flótta-
mannaflóbi
Kínastjórn hefur undanfarna
mánuði látið fara fram undir-
búning aö því að reisa flótta-
mannabúöir í Mansjúríu við
Yalu-fljót, sem skiptir löndum
meb Kína og Norður-Kóreu. Það
er a.m.k. haft eftir heimildum í
Peking, kölluðum áreibanleg-
um. Einn téðra heimildar-
manna lét hafa eftir sér að kín-
versk stjórnvöld byggjust við
flóttamannaflóði yfir landa-
mærin, ef verulegt rask yrði í
Norður-Kóreu.
Fyrst í stab eftir lát Kims eldra
voru allar líkur á því aö Kim
Jong- il, sem er rúmlega fimm-
tugur að aldri, tæki við af hon-
um eins og fyrir löngu hafði
verið ákveðið. En ennþá hefur
Kim yngri hvorki verið út-
nefndur æðsti maður ríkisins
né aðalritari kommúnista-
flokksins.
Hann hefur ekki komib fram
opinberlega frá því að faðir
hans var jarðaður og var meira
að segja ekki viöstaddur hátíð-
lega athöfn, sem fór fram um
s.l. mánaðamót í tilefni þess að
þá voru 46 ár liðin frá stofnun
Lýöræðislega alþýðulýðveldis-
ins Kóreu (hið opinbera nafn
norðurkóreska ríkisins). Yfir-
hershöföingi Norbur- Kóreu var
þar ekki heldur vibstaddur.
Fleira hefur þótt benda til þess
aö ekki sé „allt með felldu" í ríki
þessu, sem hefur um 22 millj-
ónir íbúa og eitt kommúnískra
ríkja hefur til þessa haldið fast
við þesskonar stjórnarfar sem
kallað er stalínískt. Um miðjan
ágúst brá svo kynlega við, að
dreift var flugriti í hverfi því í
Pjongjang, höfubborg Norður-
Kóreu, þar sem sendiráðin þar í
stað eru. I riti þessu var því and-
mælt að verið væri ab koma
upp „konungsætt" í alþýðulýð-
veldinu. Sendiráðahverfisins er
stranglega gætt og þótti ólíklegt
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
að þetta hefði getað gerst nema
meb samþykki einhverra rába-
manna. Blöð landsins sögðu að
suðurkóreskir erindrekar hefðu
varpað dreifiriti þessu yfir
hverfiö úr lofti, en heldur þykir
það ósennilegt.
Hershöfbingjar á
móti Kim Jong-il
Opinberlega var tilkynnt eftir
lát Kim Il-sungs að formleg
ákvörbun um eftirmann hans
yrbi tekin þegar eftir jarðarför
„leiðtogans mikla", en síðar
kom fram ab því hefbi verið
slegið á frest þangað til 49 dög-
um eftir andlát leibtogans. Er
þetta hefðbundinn sorgartími í
Kóreu. En síöast hefur veriö gef-
ib í skyn að ákvörðunin um rík-
iserfðir verði ekki tekin fyrr en
100 dögum eftir lát Kim II-
sungs, þ.e.a.s. 16. október.
Kínverskir heimildarmenn
segja ab þetta 100 daga tímabil
eigi sér enga stoð í heföum og
að eðlilegt hefði verið að út-
nefning Kim Jong-ils hefði ver-
ið tilkynnt þegar daginn eftir
lát föður hans.
Ráöamenn í Peking hafa af
þessu talsverbar áhyggjur. Stöb-
ugleikinn er ekki alger hjá þeim
sjálfum og hætt er við að þeir
óttist að ólga í Norður-Kóreu
kynni ab breiðast út til þeirra.
Sagt er að í kínversku höfuð-
borginni telji sumir að helstu
rábamenn í noröurkóreska rík-
isflokknum — og þeirra valda-
mestir séu ab líkindum þeir
helstu af hershöfðingjunum —
séu því mótfallnir að Kim Jong-
il fái allar þær stöður og þar
með öll þau völd er faðir hans
hafði. Kim Jong- il sé dulur
maður, segja kínverskir heim-
ildarmenn, og aðrir ráðamenn
Vibskiptasamningur Bandaríkjanna og Kína
I för sinni til Kína í lok ágúst gerði
viöskiptamálaráðherra Bandaríkj-
anna, Ron Brown, viðskipta-
samning við Kína. Frá samningn-
um sagði Time 12. september s.l.:
„Viöskiptaför Browns virðist hafa
heppnast vel — að minnsta kosti
vib fyrstu sýn. Bandarísku fram-
kvæmdastjórarnir tuttugu og fjór-
ir, sem í fylgd með honum voru,
sömdu um sölur upp á nær 6
milljarða $ og mun þriðjungur
þeirrar upphæðar fara til atvinnu-
sköpunar. Taka þeir sölusamning-
ar til kaupa Shanghai Airlines á
II farþegaflugvélum af gerðinni
Boeing 757 fyrir um 1 milljarð $,
um 500 milljóna $ verksamnings
AT&T vegna uppsetningar fjar-
skiptabúnaðar í Guangdong-fylki
og 1 milljarðs $ verksamnings
Entergy Corp. vegna uppsetning-
ar raforkuverks í Shanxi-fylki."
„Gagnrýnendur voru þó fljótir
að benda á, ab samningur þessi
hafi verið á döfinni mánubum,
jafnvel árum saman. Og óleyst
væri vandræðamál: hallinn á við-
VIPSKIPTI
skiptum Bandaríkjanna við Kína.
... Gagnkvæm viðskipti þeirra
hafa aukist um 33% á fyrri helm-
ingi þessa árs, en í fyrra keyptu
Bandaríkin varning frá Kína fyrir
31,5 milljarba $, fyrir nálega fjór-
um sinnum meira en þau seldu til
Alþýðulýðveldisins. Upp í þann
halla hrekkur þessi 6 milljarba $
samningur skammt."
„Fram til aldamóta er vænst, að
Kína verji billjónum dollara til
kaupa á útlendum tæknibúnaði.
Bjóba þau upp á meiri hagnab en
svo, að nokkurt iðnvætt land hafi
ráð á ab sitja hjá. Til þess eins ab
lýsa upp þúsundir nýrra verk-
smiðja, þarf orkumálaráðuneytib
að setja upp 15 til 20 raforkuver á
ári hverju."
Kreppir að japönsk-
um bílaiönaöi
„í japönskum bílasmiðjum voru
Brown, vibskiptarábherra Banda-
ríkjanna, og Wu Yi, vibskiptaráb-
herra Kína.
1990 og 1991, hvort ár um sig,
settir saman um 10 milljónir
fólksbíla, en í ár veröa þeir tæp-
lega 8 milljónir.... Hlutdeild inn-
fluttra bíla á japönskum markaði,
sem saman hefur dregist, fer vax-
andi þótt hún sé enn lítil. í ár vex
hún sennilega um 25%, þ.e. upp í
6% markaðarins, en var 5% hans
1993. Jafnframt hefur veriö mikill
flutningur á bílaframleiðslu úr
landi. ... Japönsk fyrirtæki hafa
búið vel um sig í Asíu. Nýjar
hömlur á vibskiptum knýja þau
þó til ab setja bíla saman í við-
skiptalöndum sínum í Asíu, frem-
ur en ab flytja þá þangab." Svo
sagði Time frá 8. ágúst s.l. og enn:
„Engu aö síður kappkosta nú jap-
anskar bílasmiöjur að ná fyrri arb-
semi sinni á heimamarkaöi. ...
Isuzu lét 1993 ab miklu leyti af
framleiðslu fólksbíla og sneri sér
því meira að framleiðslu vörubíla.
Hinar nýju árgerðir Suzuki-bíla
draga dám af Honda-bílum, því
að bílasmiðjan sparaði sér fé með
því ab kaupa framleiðsluleyfi á ár-
geröum Honda, keppinautar síns.
Nissan hyggst loka Zama-smiðju
sinni 1995."
séu því óvissir um hverju megi
búast við af honum.
Einhverjir sérfræbingar um
Norður-Kóreu telja ab hers-
höfðingjar þar vilji heldur fá
Kim Yong-ju, bróður Kim II-
sungs, á forsetastól. 21. ágúst
fór norðurkóreska útvarpið
hörðum orðum um hinar og
þessar „dularfullar aðgerðir,
sem metnaðargjarnir aðilar og
samsærismenn standa að".
Sumra mál er að þar hafi örlað á
yfirborðinu fyrir valdabaráttu á
milli sonar og bróður einræðis-
herrans látna.
Kapítalismi Kínverja
fordæmdur
Kim Yong-ju var raunar út-
nefndur „krónprins" um miðj-
an áttunda áratug, en féll síðan
í ónáð, aö því er virtist, og var
þá Kim Jong-il útnefndur ríkis-
erfingi í staðinn. En í fyrrasum-
ar kom þessi föðurbróðir hans
opinberlega fram í fyrsta sinn í
18 ár. í des. s.l. var Kim Yong-ju
kjörinn í stjórnmálanefnd
kommúnistaflokksins og
skömmu síðar útnefndur vara-
forseti með umsjón með utan-
ríkismálum. Það bendir til þess
að hann sé kominn í tölu
helstu ráðamanna Norbur-Kór-
eu. Utanríkismálin vega þungt í
stjórnmálum Norður-Kóreu um
þessar mundir, er landið leggur
allt kapp á að rjúfa einangrun
sína á alþjóðavettvangi, meðal
annars með því að reyna að
koma á eðlilegum samböndum
vib Bandaríkin.
Það hefur að líkindum undan-
farið orbið sérlega áríðandi í
augum norðurkóreskra ráða-
manna, þar eð samskipti þeirra
og Kína hafa versnað síðustu
tvö árin. Að sögn Kínverja staf-
ar þetta af því ab Norður-Kórea
sé farin að gera kröfu til héraða
nokkurra í Mansjúríu, þar sem
margt Kóreumanna býr. Þá er
sagt í Peking að skömmu fyrir
dauða sinn hafi Kim II-sung far-
ið einkar hörðum orbum um
„kínverska kapítalismann" og
gefið í skyn að Yalu-fljót væri
orðin „víglína" ekki síður en
landamæri Norður- og Suður-
Kóreu. ■