Tíminn - 29.09.1994, Page 11
FkT7R^9.uj;^
iír
yröingu hans dró ég nú alltaf í
efa. Hvab um þaö, en fáa menn
vissi ég fljótari aö nema vísu. Ef
hann heyrði snjalla stöku einu
sinni, var hún þegar lærð.
Hann var mikill bókamaöur
og las mikið. Átti mikið og gott
bókasafn og haföi mikinn
áhuga á eldri útgáfum fornra
bóka. Kannski var hann
ástríðusafnari, en hann gjöröi
og meira. Hann las sínar bækur
og unun var að sjá hve hann
fletti blöðum bóka sinna fim-
um fingrum og fór um þær
mjúkum höndum, líkt og elsk-
hugi ástmey sína.
í einkalífi sínu var hann mik-
ill hamingjuhrólfur. Heimili
þeirra Erlu bókstaflega ljómaði
af ást og umhyggju.
Þau voru í okkar hugum ekki
aðeins elskendur og ástrík hjón.
Þau báru einnig svo glöggt
vitni um gagnkvæma virðingu
hvort í annars garð.
Það var ekki síst af þessum
sökum að svo yndislegt var ab
eiga þau ab vinum.
Erla var ekkja og einstæð
móðir, þegar þau kynntust, og
átti þrjú börn ung. Þeim gekk
Sigurpáll í föburstað. Ég held
þau hafi notið hjá honum mik-
ils ástríkis og hann verið þeim
sem besti faöir.
Tengdamóður sinni aldrabri
var hann sem synir gerast best-
ir.
Einn son, Rúnar, eignuðust
þau hjónin saman. Hann virð-
ist sækja flest gott til foreldr-
anna beggja og þar af leiöandi
vera „drengur góður", sem var
til forna mest lof hverjum
manni er hlaut.
Við eigum á bak að sjá einlæg-
um vini, sem var svo ljúft að
leita til ef einhver áleitin spurn-
ing þarfnabist svars. Var þá
sama hvort það snerti ætt eba
uppruna einhvers eða notkun
orðs í setningu eða texta, ab
ekki sé talað um ef berja átti
saman bögu af einhverju til-
efni. Umsögn Sigurpáls var
dómsorb og varð ekki áfrýjað.
Þess gjörðist ekki þörf.
í þá smiöju verður ekki lengur
sótt. Rödd hans er þögnuð og
hann mun ekki hringja til okk-
ar oftar og hafa yfir nýjustu,
hnyttnustu stökuna sem rekið
hefur á fjörur hans. Það þarf
ekki lengur að taka penna eða
pappír.
Vib hittum hann síðast hérna
heima í lok júní í sumar. Við
vissum að vísu að hann hafði
átt við veikindi að stríða seinni
hluta vetrar og í vor, en ekki
hve alvarleg þau voru.
Svo var það ab dyrasíminn
hringdi. Þar var kominn Sigur-
páll. Þá sagði hann okkur án
allrar æbru að hann væri ab
koma frá lækni sínum á Land-
spítalanum.
Þar hefbi hann gengist undir
nákvæma rannsókn og læknir-
inn úrskurðað hann með þann
sjúkdóm, er síðan dró hann til
dauða tæpum þrem mánuðum
síðar..
Okkur brá illilega vib þessi tíb-
indi, en vildum þó ekki trúa að
svo fljótt tæki þetta af.
Og nú er hann allur, þessi lífs-
glaði öðlingur er átti svo mörgu
ólokið.
Hann sagði oft við okkur að
hann kviði í engu þeim árum
eftir að hann léti af fastastörf-
um. Þá gæti hann af alvöru
sinnt hugðarefnum sínum, svo
sem ættfræði og ýmsum þjóð-
legum fróðleik er hugur hans
stóð jafnan til.
Til þess kom ekki. Hann var
burtkallaður löngu áður en
dagsverki lauk.
Hann er öllum harmdauði er
hann þekktu, og hans mun sárt
saknab og mest af þeim er
þekktu hann best.
Nú er skarö fyrir skildi í hópi
vina og kunningja. Það var
mannbætandi að kynnast Sig-
urpáli.
En sárastur er harmur nánustu
ástvinanna, þeirra Erlu, Rúnars,
stjúpbarnanna og tengdamób-
urinnar öldnu.
Barnabörnin eiga á bak að sjá
umhyggjusömum afa.
Við hjónin sendum þeim öll-
um okkar innilegustu samúðar-
kvebjur. Megi góður Guð styðja
þau og styrkja í raunum þeirra.
En minnug skulum við þess
ab minningin um góðan dreng
mun lifa og aldrei gleymast.
Þar sem góðir menn ganga,
þar eru Guðs vegir. Þau skulu
lokaorð þessara sundurlausu
þanka.
Við hjónin sendum ykkur að-
standendum öllum enn og aft-
ur innilegar samúðarkveðjur.
Elladís og Jótias
frá Melum
Það syrtir að, er sumir kveðja.
(D.St.)
Einstakur ljúflingur hefur lokið
dvöl sinni á Hótel Jörö.
Sigurpáll Vilhjálmsson, ná-
inn vinur okkar hjónanna og
bekkjarbróðir minn, er látinn
eftir snörp en hörb átök.
Aðeins þrír mánubir eru síð-
an bekkurinn okkar hélt upp á
40 ára stúdentsafmæli á glæsi-
legri M.A.-hátíb þann 16. júní í
sumar. Þar hélt Palli okkar aðal-
ræbuna fyrir hönd bekkjarins,
glettinn og oröheppinn að
vanda. Fáa mun hafa grunað
þá, að þar færi sjúkur og sár-
þjáður maður. Það var ekki
hans stíll að kveinka sér eba
óróa aðra vegna eigin hags, slík
var háttvísi hans. Aftur á móti
veitti hann öðrum óspart af
tíma sínum, yfirvegabur, nær-
færinn en umfram allt glabvær
og spaugsamur. Ófáir hafa tjáð
mér, ab ættu þeir í erfiðleikum,
smáum sem stórum, hafi þeim
nægt að slá á þráðinn til Palla.
Hann var búinn þeim fágæta
eiginleika að geta breytt
dimmu í dagsljós.
Ég finn sárt til vanmáttar,
þegar ég nú freista þess að festa
á blað fátækleg orð um þennan
kæra vin.
Kynni okkar hófust þegar ég
ein og öllum ókunn settist í 3.
bekk í M.A. Þetta var fyrsti
bekkurinn, sem krafist var
landsprófs af. Þribji bekkur,
sem oftast hafði veriö stærsti
bekkur skólans, með um
hundrað manns, taldi nú ab-
eins 32 nemendur. Kvíðabland-
in virti ég hópinn fyrir mér.
Þarna voru nánast fermingar-
stúlkur og allt upp í fullvaxna
menn, sýndist mér. Aldurs-
munur var talsverður, fólk víða
að af landinu, frá sveit til sjáv-
ar. Þetta var hópur sterkra og
litríkra einstaklinga, engar
hópsálir. Vib okkur festist nafn-
ið Undri, líklega vegna þess,
hve kennurum og meistara
varð tíðrætt um þetta fyrirbæri.
Fyrir þessum hópi fór svo lág-
vaxinn, hæglátur og svipbjartur
piltur, hann Palli okkar. Hann
hafði strax í fyrsta bekk verið
kosinn inspector bekkjarins og
hélt því öll sex árin. Segir þetta
allt sem segja þarf um tiltrú
okkar á honum.
Nú er þetta sameiningartákn
okkar fallið í valinn og eftir
stendur stórt, stórt skarð og
mikið tóm.
Sigurpáll var alla tíö tengdur
heimahögunum í Öxarfirði
traustum böndum. Eftir próf í
viðskiptafræðum hélt hann aft-
ur á heimaslóðir, uns hann
fluttist til Akureyrar. Þessi prúði
og eilítiö feimni maður var
gæddur fjölbreyttum gáfum og
ótrúlega góðu minni. Þaö var
því ekki að ófyrirsynju sem
Þingeyingar leitubu til hans,
þegar útvarpið hóf 1965-66
spurningakeppnina „Sýslurnar
svara". Seinna, þegar sjónvarp-
ið kom til og hélt ámóta
keppni, varð hann enn fyrir
valinu, nú fyrir Akureyri, ásamt
Gísla Jónssyni menntaskóla-
kennara og Guðmundi Gunn-
arssyni skattstjóra. Þekking
hans var afar yfirgripsmikil og
spannaði ólíkustu svið. Hann
var jafnt heima í skák, ætt-
fræði, lausavísum, örnefnum
sem og sætaskipan í Garðs-
kirkju í Kelduhverfi anno 1848,
svo fátt eitt sé nefnt. Þá hafði
hann á hrabbergi nöfn maka
okkar skólafélaganna, barna og
jafnvel barnabarna.
Nú, er ég kveð hinstu kvebju
vin minn Sigurpál, er brjóst
mitt barmafullt af þökk, þakk-
læti fyrir að hafa átt samleið og
vináttu þessa góba manns.
Erla mín! Þér, börnum ykkar
og öðrum ástvinum sendum
vib Björn dýpstu samúðar-
kveðjur. Þið vitið hug okkar.
Flýt þér, vinur! í fegri heitna;
krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vcengjum morgun-
roðans
meira að starfa Guðs utn geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Jóhanna D. Skaftadóttir
DAGBÓK
Fimmtudaqur
29
september
273. dagur ársins - 93 dagar eftir.
39. vika
Sólris kl. 7.30
sólarlag kl. 19.05
Dagurinn styttist
um 6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni, tvímenningur, í
Risinu kl. 13 í dag. Fjögurra
skipta keppni í félagsvist í októ-
ber spilast á fimm dögum, alla
sunnudaga í óktóber. í fyrsta
skipti n.k. sunnudag kl. 14. Opið
öllum.
Ný dögun — Samtök um
sorg og sorgarvibbrögb
í kvöld, fimmtudaginn 29. sept.,
verður opib hús hjá Nýrri dögun,
samtökum um sorg og sorgarvið-
brögð. í opnu húsi fer fram sjálfs-
hjálparstarf meö þeim hætti ab
syrgjendur og aðstandendur
þeirra hitta aðra í sömu stöðu og
ræða reynslu sína yfir kaffibolla.
Engar skuldbindingar fylgja mæt-
ingu á opið hús og þeir, sem ekki
treysta sér til að tala um sjálfa
sig, geta engu að síður notið sam-
vistanna vib aðra syrgjendur.
Sjálfboðaliðar úr röðum syrgj-
enda taka á móti nýju fólki. Fram
að jólum verða opin hús samtak-
anna í Geröubergi kl. 20-22 eftir-
talin fimmtudagskvöld:
29. sept., 20. október, 17. nóv-
ember, 1. desember og 15. des-
ember.
Að öðru leyti verður dagskrá
samtakanna fram að jólum á þá
lund að 6. október verður fyrir-
lestur um barnsmissi og í fram-
haldi af honum geta foreldrar,
sem misst hafa börn, skráð sig í
nærhóp (hóp 7-9 manna) sem
hittist í 5 skipti og vinnur mark-
visst meö reynslu sína. Þann 3.
nóvember verður fyrirlestur um
makamissi og þá getur fólk, sem
misst hefur maka sinn, skráð sig í
nærhóp um makamissi. Hinn
hefðbundni jólafundur Nýrrar
dögunar verður 8. desember í
Seljakirkju og veröur þá leitast
við ab undirbúa fjölskylduna fyr-
ir jólahátíbina.
Kvenfélag Óhába
safnabarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins
heldur fund í Kirkjubæ í kvöld,
29. sept., kl. 20.
Námskeib í túlkun sönglaga
Dagana 3. og 4. október verður
námskeiö í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi í túlkun söng-
laga. Námskeiðið er libur í dag-
skrá Geröubergs um íslenska ein-
söngslagið á 50 ára lýöveldisaf-
mælinu og er í umsjón Kristins
Sigmundssonar.
TIL HAMINGJU
Gefin voru saman þann
20.8.1994 í Dómkirkjunni í
Reykjavík þau Bryndís Krist-
jánsdóttir og Jóhann Örn Arn-
arson af séra Þóri Haukssyni.
Þau eru til heimilis í Luxem-
burg.
LjósmM. MYND, Hafnarflrdl.
Meb Kristni veröur, eins og oft
áður, Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari.
Námskeiðið verður hvorn dag
frá kl. 10-12 og 13.30-16 og er
öllum velkomið að fylgjast með.
Upppantað er á námskeiðið fyr-
ir þátttakendur í leiðsögn.
Síminn í Gerðubergi er 79166.
Gefin voru saman þann
20.8.1994 í Seljakirkju þau
Svava Rögn Þorsteinsdóttir og
Garbar Þór Ingvarsson af séra
Valgeiri Ástráðssyni.
Þau eru til heimilis að Hrís-
rima 4.
Ljósm.st. MYND, Hafnarflrdl.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavfk Irá 23. tll 29. september er I Lyfjabúólnnl
Iðunnl og Garðs apótekl. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll
kl. 9.00 aö morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnu-
dögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjónustu
eru gefnar I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á slórhállðum. Símsvari
681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Norðurbæjar apó-
lek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt-
is annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar i símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu.
Á kvöldin er opió i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu,
6I kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og
20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræóingur á bakvakt.
Uppiýsingar eru gefnar i sima 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opid virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opió virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1.september1994
Mánaðargrelðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)........ 12.329
1/2 hjónalífeyrir ..........................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega.........22.684
Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega.......23.320
Heimilisuppbót...............................7.711
Sérstök heimilisuppbót..................... 5.304
Bamalífeyrir v/1 bams..................... 10.300
Meólagv/1 bams....................:.........10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns................1.000
Mæðralaun/feðralaun v/2ja bama...............5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða'.............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbæturf2mánaða..............11.583
Fullur ekkjulífeyrir........................12.329
Dánarbætur 18 ár (v/slysa)..................15.448
Fæðingarstyrkur.............................25.090
Vasapeningar vistmanna .....................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga..............10.170
Daggrelðslur
FuHir fæðirtgardagpeningar................1.052.00
Sjúkradagpeningar ánstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hverf bam á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings...............665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80
Enginn tekjutryggingarauki er greiddur f september og etu
bætur því lægri nú en I júlf og ágúsL
GENGISSKRÁNING
28. september 1994 kl. 10,50 Opinb. Kaup viðm.gengl Sala Gengl skr.fundar
Bandarfkjadollar 67,50 67,68 67,59
Sterlingspund ....106,55 106,85 106,70
Kanadadollar 50,26 50,42 50,34
Dönsk króna ....11,133 11,167 11,150
Norsk króna 9,978 10,008 9,993
Sænsk króna 9,079 9,107 9093
Finnskt mark ....13,834 13,876 13,855
Franskur franki ....12,803 12,841 12,822
Belgfskur franki ....2,1257 2,1325 2,1291
Svissneskur franki. 52,75 52,91 52,83
Hollenskt gyllini 39,02 39,14 39,08
Þýskt mark 43,71 43,83 43,77
ítölsk líra ..0,04344 0,04358 6,231 0,04351 6,221
Austurrfskur sch ....„6,211
Portúg. escudo ....0,4290 0,4306 0,4298
Spánskur peseti ....0,5266 0,5284 0,5275
Japanskt yen ....0,6844 0,6862 0,6853
....105,32 105,68 99,35 105,50 99,20
Sérst. dráttarr 99^05
ECU-Evrópumynt.... 83,50 83,76 83,63
Grfsk drakma ....0,2868 0,2878 0,2873
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar