Tíminn - 08.10.1994, Blaðsíða 15

Tíminn - 08.10.1994, Blaðsíða 15
Laugardagur 8. október 1994 15 um tveggja, trútt við nóttu dag- inn leggja. Við hróður okkar mætu manna er minna getið hús- freyjanna." Nú eru þáttaskil. Við sem eftir stöndum eigum öll dálítið erfitt með að átta okkur á því. En slík eru örlög okkar allra, að heilsast og kveöjast. Vinur minn Þórður missti mikið, þegar kona hans dó eftir langa vanheilsu. En hann á góð börn, sem veittu honum góða umhyggju og gerðu honum lífið eins létt og hægt var. Fyrir stuttu síban sátum vib Þórður saman á fundi, þar sem mál kirkju og kristindóms voru rædd. Þar haföi Þórbur alltaf eitthvað gott fram að færa, enda hugur hans til kirkju og kristindóms brennandi af áhuga og trúfesti á þann sanna guð sem gefur okkur líf og hefur okkar líf í hendi sinni. í lok þessa fundar fórum viö öll í kirkjuna á Fáskrúðarbakka, þar sem prófastur sleit fundi með ritningarlestri og bænarorðum. Allir tókust í hendur í stórum hring í kirkjunni og sungu „Son guðs ertu með sanni". Röddin hans Þóröar, sú fagra og hreina, ómar mér enn í eyra, þótt hann ætti þá aðeins eftir tvö ár í átt- rætt. Slíkur söngmaður var Þórð- ur ab fáir gjörast betri. Nú óma hans tónar á æbri stöðum, en minningin geymist þótt mabur- inn falli. Við hjónin þökkum af alhug og einlægni alla vináttu og geymum góðar minningar í hjörtum okkar um Þórð og Margréti á Ölkeldu. Gub gefi aðstandendum hans styrk á sorgarstund. Páll Pálsson, Borg Nú haustar að og fjallatindar grána í næturnepjunni. Löngu og góbu sumri, sem vermdi vanga, er lokib. Sólin, móbir okkar allra, hopar af braut sinni yfir háan himin til aö safna krafti í nýja sókn fyrir lífið ab vori. Og ein- mitt á þessu hausti kveöur þenn- an heim kær vinur. Við slíka fregn herðir á vetrinum í sálinni, allt virbist napurra en áður. Minningin um Þórð Gíslason verður mér ævinlega dýrmæt. Allt frá því að ég kynntist honum fyrst, þá er ég hóf störf að skóla- málum fyrir vestan, varð mér ljóst að þar fór mikill öðlingur. Einlægur áhugi hans og þekking á skóla- og uppeldismálum vakti athygli mína og mér varð drjúgur stuðningur hans og uppörvun í sviptingafullu starfi. Hann sagði mér ávallt hreinskilnislega til syndanna þegar honum féllu ekki störf mín, en hvatti mig til betri verka. Það var gott að hlýba ráð- um hans, hann var veraldarvanur og hollráður. Ég taldi hann snemma vin minn og ætíö síðan. Og nú er hann allur, hverfur af sjónarsvibinu með sínu lagi, um- búbalaust. Hann var aldrei tvíl- ráður né seinn að búa sig til ferð- ar. Snöfurlegur hefur hann axlab sín skinn og hafið þá göngu sem bíður vor handan næsta leitis. Á meöan viö hin höldum áfram að tutla hrosshárið okkar. Öllum ástvinum Þórðar Gísla- sonar votta ég samúb mína. Blessub sé hans minning. Sveinn Kristinsson Elsku afi. Nú ertu farinn til ömmu og viö vitum að nú líður ykkur vel. Þið gátuð aldrei án hvors annars ver- ib, og viö vitum að þú saknabir ömmu aflt of mikið. Það hjálpar okkur mikið að vita að þú varst sáttur við að fara og þurftir ekki að þjást. Með þessum fátæklegu orðum viljum við kveðja ykkur í hinsta sinn, elsku afi og amma. Þið gáfuð okkur svo margt. Við minnumst allra sumranna í sveit- inni hjá ykkur, Ölkelda var okkar annaö heimili. Við vissum ekki Jóhanna Stefanía Gubjónsdóttir frá Gilsfjarbarmúla þá hvað við vorum heppin ab eiga ykkur að. Það eru ekki margir krakkar sem hafa tækifæri til að vera í sveit, og sannaðist það best á kunningjum okkar, sem oft á tíðum fengu aö fljóta með. Sumir hverjir höfðu aldrei litið íslenska kú augum og allir voru yfir sig hrifnir af sveitinni. Þá vorum við sko veraldarvön. Allir voru alltaf velkomnir að Ölkeldu og fengu sömu höfðing- legu móttökurnar, hvort sem það var presturinn, ferðamennirnir sem komu í ölib, eða fuglarnir sem afi hafði svo mikið dálæti á. Þegar hart var í ári, gleymdi hann aldrei fiðruðu vinum sínum. Aldrei varb neinn svangur í sveit- inni. Amma bakabi og eldaði af miklum eldmóði og fengum við að njóta þess í ríkum mæli. Alltaf til kleinur eða kanelsnúðar í búr- inu. Afi var mikill brandarakarl og hafði mikið gaman af ab stríða okkur krökkunum. Hann átti einn uppáhaldsleik, „músina", sem ég held að öll hans barna- börn kannist við. Er við uxum úr grasi, gátum við alltaf reitt okkur á ráðleggingar ykkar, og ég veit að allir okkar vinir, sem nokkurn- tíma hittu ykkur, kunnu vel við ykkur. Afi var alltaf búinn að komast ab því að hann þekkti afa eða ömmu viðkomandi og búinn að stofna til hrókasamræðna. Þab er stórt tómarúm í hjörtum okkar nú, er þib eruð farin. Þið munuð samt aldrei hverfa úr minningunni og verðið alltaf hluti af okkar fegurstu bernsku- minningum. Ykkar barnabörn, Margrét, Helga og Gísli Fædd 2. janúar 1902 Dáin 30. september 1994 Jóhanna Stefanía Guðjónsdótt- ir er látin. Hún var fædd að Gilsfjarðarmúla 2. janúar 1902, dóttir hjónanna Gubjóns Jóns- sonar og Sigrúnar Eyjólfsdóttur, er bjuggu þar. Börn hjónanna í Múla voru alls sjö; var Jóhanna næst yngst og er nú síðust af þessum stóra hópi sem hverfur yfir móðuna miklu. Jóhanna dvaldi mestan hluta ævi sinnar í fæðingarsveit sinni og nú síð- ustu árin á dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum, þar sem hún andaöist 30. septem- ber s.l, Samstarf okkar Jóhönnu var langt og farsælt. Hún vann í sláturhúsi Kaupfélags Króks- fjarðar á haustin í tugi ára. Hún vann ennfremur gott brautryðj- andastarf vib smjörsamlag kaupfélagsins, sem var undan- fari ab mjólkursölu úr hérað- inu. Þá var Jóhanna skólaráðs- kona barnaskólans í Króksfjarb- arnesi í marga vetur. Ég vil ekki láta þess ógetiö að t MINNING Jóhanna veitti okkur hjónum heimilishjálp, þegar mest lá á. Fyrr á árum var hún í nokkur sumur kaupakona í Króksfjarð- arnesi hjá Jóni Ólafssyni, móð- urbróöur mínum. Jóhanna var um margra ára skeið í stjórn Kvenfélags Geira- dalshrepps og vann þar mikið og gott starf til heilla sveitinni. Öll störf hennar einkenndust af smekkvísi og vandvirkni, sam- fara góöum afköstum. Jóhanna eignaðist tvo syni, þá Halldór og Guðjón Gunnars- syni, sem sýndu móöur sinni mikla umhyggju og ástúb. Jóhanna var vel greind kona, háttprúð í allri framkomu, hafði gott geb og hlýtt viðmót. Nú að leiðarlokum viljum við hjónin og börn okkar þakka henni af heilum hug fyrir langa samfylgd, vináttu og tryggð. Minningin um góða konu geymist, en gleymist ekki. Jóhanna fær í dag hinstu hvílu í Garpsdalskirkjugarði, væntanlega kvödd af fjolda vina og vandamanna. ÓlafurE. Ólafsson Absendar greinar, afmælis- og minningargreinar sem birtast eiga í blaðinu þufa að hafa borist ritstjórn blaðsins, Stakkholti 4, gengið inn frá Brautaholti, tveimur dögum fyrir birtingardag, á disklingum vistað í hinum ýmsu ritvinnsluforritum'sem texti, eða vélritaðar. sími (91) 631600 DAGBÓK Laugardaqur 8 október 281. dagur ársins - 84 dagar eftir. 40. vlka Sólris kl. 7.56 sólarlag kl. 18.33 Dagurinn styttist um 7 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni sunnudag, fimmti og síðasti dagur í tví- menningskeppni kl. 13 í Ris- inu. Annar dagur í fjögurra sunnudaga keppni í félagsvist kl. 14. Dansað í Goðheimum kl. 20 sunnudagskvöld. Lögfræðingur félagsins er til viðtals fyrir félagsmenn fimmtudag 13. okt. Panta þarf viðtal á skrifstofu félagsins, s. 28812. Félag eldri borgara Kópavogi Spiluö verður félagsvist að Fannborg 8 (Gjábakka) á morgun, sunnudag, kl. 15. Allir velkomnir. Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna halda fund um íslenska mannanafnahefð í dag kl. 14 að Vatnsstíg 10. Ræðumenn Halldór Ármann Sigurðsson, formaður mannanafnanefnd- ar Alþingis, og Þórunn Magn- úsdóttir sagnfræðingur. Veit- ingar á staðnum. Allir vel- komnir. Safnaðarfélag Ásprestakalls Fundur verður háldinn þriðjudaginn 11. okt. n.k. í safnaðarheimilinu og hefst hann kl. 20. Sýndar verða myndir úr sumarferðinni ásamt myndum úr safni Hilmars Böðvarssonar. Myndagetraun og kaffiveit- ingar. Þeir, sem eiga myndir úr sumarferðinni, eru hvattir til að taka þær með. Villibráðarkvöld á Akranesi í kvöld, laugardag, verður boðið upp á glæsilegt og óvenju fjölbreytt villibráðar- kvöld að Langasandi á Akra- nesi. Úrvalið á matseðlinum veröur með þvílíkum ólíkind- um að tíðindum hlýtur að sæta. Undir borðhaldinu munu Gleðigjafarnir, ásamt Ellý Vilhjálms og André Bach- mann, flytja Söngperlur Sig- fúsar Halldórssonar og Úrval íslenskra dægurlaga síðastlið- inna 50 ára. Norræna húsið: Tveir fyrirlestrar Sunnudaginn 9. október kl. 16 heldur Auður Leifsdóttir cand. mag. fyrirlestur um dönsku skáldkonuna Karen Blixen í fyrirlestraröðinni „Orkanens oje" í Norræna húsinu. Fyrirlesturinn er einnig liður í dagskránni „Danskir haustdagar", sem eru að hefjast í Reykjavík um þessar mundir. Mánudaginn 10. október kl. 20 bjóða Menningar- og fræðslusamband alþýðu og Norræna húsið til fyrirlestrar og umræðu í Norræna hús- inu. Þar mun Jannik Augs- burg, verkefnisstjóri í Vejle í Danmörku, ræða um þá hæfi- leika sem helst muni vera þörf fyrir á vinnumarkaði framtíðarinnar og hvernig þeir hæfileikar verði efldir. Fyrirlesturinn fer fram á dönsku og eru umræður á eft- ir. Þátttaka er heimil öllum sem áhuga hafa, en væntan- legir þátttakendur eru vin- samlegast beðnir um að skrá sig á skrifstofu MFA, Grensás- vegi 16A, sími 814233. Að lokum má minna á að málverkasýningu Hafsteins Austmanns í Norræna húsinu lýkur um helgina. Hún er op- in kl. 14-19 í dag og á morg- un. Háskólafyrirlestur Svend Áge Madsen, rithöf- undur frá Danmörku, flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar H.í. mánu- daginn 10. okt. kl. 18 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn nefnist „At fortælle menne- skerne" og fjallar um það hvernig hægt er að nota frá- sögn og hvernig hann hefur notað frásögn í verkum sín- um. Fyrirlesturinn verður fluttur á dönsku og er öllum opinn. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Dagskrá um Langston Hughes Á mánudagskvöldið verður flutt nýstárleg dagskrá í Lista- klúbbi Leikhúskjallarans. Leikararnir Jóhanna Jónas og Helgi Skúlason flytja efni frá árunum 1945-55 eftir banda- ríska skáldið James Langston Hughes og Tríó Ólafs Steph- ensen leikur djass í anda Harl- em og New York. Jóhanna mun flytja efni sitt á ensku á mállýsku sem tíðkaðist í Harl- em á þessum árum. Mállýska þessi er nú útdauð. Dagskráin hefst um kl. 20.30. Aðgangs- eyrir er kr. 500, en kr. 300 fyr- ir félaga Listaklúbbsins. Ljósmyndasýnlng í Hátúni 10 Húsnæðisstofnun efnir til ljósmyndasýningar í tilefni af því að um þessar mundir er um aldarfjórðungur frá því að stofnunin hóf að veita lán til öryrkja. Ljósmyndasýningin ber yfirskriftina: Húsnæðislán til samtaka öryrkja í rúman aldarfjórðung. Sýningin er haldin í húsnæði Öryrkja- bandalagsins og stendur til 23. október. Sýningin er opin alla daga frá 9-18. Skákþing íslands: Urslitakeppnin haldin í Eyjum Frá Þorsteini Gunnarssyni, Vestmannaeyjum: Á Skákþingi íslands í landsliðs- flokki 1994, sem lauk 3. sept. sl. í Vestmannaeyjum, urðu stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson allir jafnir að vinningum. Af þeim ástæð- um þarf að fara fram sérstök úr- slitakeppni milli þeirra félaga. Skáksamband íslands hefur óskað eftir því að þessi úrslita- keppni fari fram í Eyjum og hefur verið ákveöið að keppnin fari fram 23. til 28. október nk. Úrslitakeppnin fer fram í fundarsal Sparisjóös Vest- mannaeyja, en Sparisjóðurinn er einn af helstu styrktaraðilum Skákþingsins ásamt fjölmörg- um aðilum innanbæjar og ut- an. Að sögn Arnars Sigur- mundssonar, eins af skipuleggj- endum Skákþingsins, er Eyja- mönnum sýndur mikill heiður að fela þeim aö sjá einnig um úrslitakeppnina. Þessari úrslita- keppni fylgir þó töluverður kostnaður umfram það, sem gert var ráð fyrir, og verður leit- að eftir stuðningi til þess að þessi skák- og menningarvið- burður veröi Eyjamönnum til sóma á sama hátt og Skákþing íslands.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.