Tíminn - 07.12.1994, Side 1
STOFNAÐUR 1917
78. árgangur Miövikudagur 7. desember 1994 231. tölublaö 1994
Alþýöubandalagiö í
Reykjavík:
Verkalýös-
armur inn
Bryndís Hlö&versdóttir, lög-
fræöingur ASÍ, og Ögmundur
Jónasson, forma&ur BSRB,
hafa samþykkt a& taka 2. og
3. sæti á lista Alþýöubanda-
lagsins í Reykjavík. Gu&rún
Helgadóttir alþingisma&ur
hefur samþykkt a& standa
upp úr sæti sínu fyrir Bryndísi
og taka 4. sæti á lista flokks-
ins í vor.
Gu&rún Helgadóttir geröi
þetta opinbert á blaöamanna-
fundi í Alþingishúsinu í gær.
Þar er gert ráö fyrir að Svavar
Gestsson alþingismaöur leiði
listann áfram, en alþýðubanda-
lagsmenn vonast til að nýir
vendir úr verkalýöshreyfing-
unni sópi til þeirra atkvæðum.
„Þetta er mjög sterkur listi og
ég tel mikla möguleika á að við
getum náö inn 4 þingmönnum
í Reykjavík," sagði Guðrún
Helgadóttir í gær, en hún telur
sig vera í baráttusæti listans eft-
ir þessar breytingar.
Kjörnefnd hefur þegar fengið
tilboðiö en Kjördæmisráð Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík
hefur síðasta orðið. Þab var hins
vegar búið að samþykkja próf-
kjör til uppröðunar á listann. ■
Haröur
árekstur
Harður árekstur tveggja bifreiða
varð á mótum Hörgárbrautar og
Hlíðarbrautar á Akureyri um klukk-
an 14 í gær. Farþegi í öðrum bílnum
viðbeinsbrotnaði við áreksturinn
en aðrir sluppu með skráínur. Ann-
ar bíllinn er talinn ónýtur. ■
Fulltrúaráb
Framsóknarflokksins:
Aöalfundur
eftir áramót
Á fundi stjórnar fulltrúaráðs Fram-
sóknarflokksins í gær var ákveðið
að fresta aðalfundi ráðsins fram yfir
áramót. Óskar Bergsson, starfsmað-
ur fulltrúaráðsins, segir að helsta
ástæða frestunarinnar sé að menn
vilji gefa sér betri tíma til aö undir-
búa fundinn. ■
Cubmundur Þóroddsson
(t.v.) heldur á fullunninni afurb en
Hannes jónsson hefur háfab upp
eldisála úr karinu.
Tímamynd CS
Rænd um
miöjan dag
Kona var rænd veski sínu í bíl-
skýli við Skeljagranda í Reykja-
vík um klukkan 14 í gær. Konan
var að leggja bílnum í skýlinu
þegar að minnsta kosti tveir
unglingspiltar veittust að
henni, hrifsuðu af henni veskið
og hlupu í burtu. Konan taldi
mögulegt að stúlka hefði einnig
verið í för með piltunum. I
veski hennar voru 30 þúsund
krónur í peningum. Konan
hlaut enga áverka við árásina
en var sem von er miður sín eft-
ir atvikiö. Málið verður sent til
rannsóknar til RLR. ■
17 dagar til jola
Ala upp ála í slátur-
stærb á Ártúnshöfba
íslenskur reyktur áll verður í
fyrsta skipti fáaniegur í
verslun í Reykjavík frá og
með næstu helgi. Állinn er
veiddur austur í Lóni í Lóns-
sveit og fluttur þaðan lifandi
til Reykjavíkur þar sem
hann er alinn upp í hæfilega
sláturstærð á Ártúnshöföan-
um.
Deilur um hátekjuskatt tefja tekjuhliö fjárlaga:
Hátekjuskattur í pattstöðu
Deilur stjórnarflokkanna um
hátekjuskatt eru enn óleyst-
ar, en fylgifrumvörp með
tekjuhlið fjárlaga hafa ekki
veriö lögö fram á Alþingi.
Þetta segja fulltrúar í fjár-
laganefnd óvi&unandi, en nú
er einungis rúm vika eftir af
þinghaldi á þessu ári sam-
kvæmt vinnuáætlun Alþing-
is.
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra las á Alþingi í gær
upp lista yfir frumvörp sem á
eftir að leggja fyrir þingið fyrir
jól í tengslum við afgreiðslu
fjárlaga. Ráöherra nefndi ekki
framlengingu á hátekjuskatti
sem eina af tekjulindum ríkis-
sjóðs næsta ár, en sú heimild
sem verið hefur til að leggja á
sérstakan hátekjuskatt undan-
farin tvö ár rennur út um ára-
mót. Líklegast er að slíkt
ákvæði kæmi fram í bandorm-
inum svokallaða, en bandorm-
urinn er frumvarp þar sem
safnað er saman lagabreyting-
um sem þarf að gera í tengsl-
um við endanlega afreiðslu
fjárlaga.
Sigbjörn Gunnarsson, þing-
flokksformaður Alþýðuflokks
og nefndarmaöur í fjárlaga-
nefnd, staðfesti í gær að tekju-
hlið fjárlaganna væri ennþá
óútkljáð á milli stjórnarflokk-
anna. Eftir því sem næst verð-
ur komist er hátekjuskatturinn
eina atriðib sem eftir stendur.
Sigbjörn og fleiri í þingflokki
krata hafa lýst yfir að þeir
standi ekki ab afgreiðslu á
tekjuhlið fjárlaga ef hátekju-
skatturinn verði felldur niður.
Aðspurður um málið eftir upp-
talningu fjármálaráðherra í
gær sagði Sigbjörn málið skýr-
ast á næstu dögum og tók fram
að afstaða sín stæði óbreytt.
í sama streng tóku fleiri
fylgjendur hátekjuskatts innan
þingflokks Alþýðuflokks í gær.
Meirihluti þingflokksins er á
þeirri skobun ab innheimta
beri hátekjuskattinn áfram, en
náist ekki samkomulag um
málið milli stjórnarflokkanna
gætu kratar staðiö á sínu með
því að mynda nýjan þing-
meirihluta í þessu máli meb
stjórnarandstöðunni.
Þeir sem standa að álaeld-
inu á Ártúnshöfðanum heita
Hannes Jónsson og Gub-
mundur Þóroddsson. Þótt
áhugamál þeirra sé ansi
óvenjulegt eru þeir ekki fyrstir
íslendinga til að reyna að ala
ál. Állinn sem veiðist í íslensk-
um vötnum er smár og því
nauðsynlegt að ala hann
áfram til að hann verði vænleg
söluvara. Tilraunir til þess hafa
hins vegar strandað, því hing-
ab til hefur állinn ekki viljaö
taka fóður. Þeim félögum hef-
ur nú tekist að vinna bug á
þessum vanda og ætla að láta
reyna á viðtökur íslendinga
fyrir jólin.
Hannes segir álaeldi vera
erfiðara en eldi margra ann-
arra fisktegunda að því leyti að
ekki sé unnt að klekja út
hrognum í eldisstöðvum. Evr-
ópski állinn hrygnir eingöngu
á miklu dýpi í Þanghafinu og
því er ómögulegt að nálgast
hrognin. Af þessum sökum er
ekki unnt ab fá ódýr seibi til að
ala upp eins og til dæmis við
laxeldi heldur verður að veiða
ungan ál og ala hann upp í
hæfilega stærb. Þessir erfið-
leikar við eldið eru ekki síst
þab sem gerir þab að spenn-
andi atvinnugrein, að mati
þeirra félaga, því fyrir vikið er
lítil hætta á að offramboö
verði af álseldi.
„£nn sem komið er, er eldið
á tilraunastigi. Ef vib sjáum að
þetta gengur væri hins vegar
spennandi að fara út í alvöru-
eldi, með því að kaupa ál af
bændum, ala hann og gera úr
þessu' atvinnugrein," segir
Gubmundur.
Fyrsti afrakstur tilrauna-
starfsins verður á boðstólum í
verslun Hagkaups í Kringlunni
frá og með næstu helgi. Þar
verða seld um 50 kíló af reykt-
um áli, en hefð er fyrir því ab
borða álinn reyktan í Evrópu.
Hannes segir að állinn sé mik-
iö lostæti enda sé hann seldur
á yfir þrjú þúsund krónur kíló-
ið í fríhöfninni á Kastrup flug-
velli í Kaupmannahöfn.
Reyktur áll er gjarnan borðað-
ur meb rúgbrauði og hrærðu
eggi og þannig fram borinn er
hann einn af þjóðarréttum
Dana. Stærsti markaðurinn
fyrir ál er hins vegar í Japan og
Kóreu og þar er hann borðað-
ur ferskur, gufusoöinn eða
grillaður. ■