Tíminn - 07.12.1994, Side 2

Tíminn - 07.12.1994, Side 2
2 Mibvikudagur 7. desember 1994 Tíminn spyr... Spurning dagsins: Er þab áhyggjuefni ab námsmönnum erlendis hefur á skömmum tíma fækkab um allt a& 40% í nær öllum greinum nema list- námi? Sigmundur Gu&bjarnason pró- fessor: „Það þarf ekki a& vera. Það er mjög sennilegt að hluti af skýringunni liggi í því að nú er boðið upp á mun fjölbreyttara grunnnám við Háskóla íslands en áður var. Áður urðu þeir að saekja bæði grunn- námið og framhaldsnámið til er- lendra háskóia. Nú geta þeir fengið þetta grunnnám hér heima og fara þá síðar til framhaldsnáms í er- lenda háskóla. Þetta kann að vera hluti af skýringunni." Gunnar I. Birgisson, verkfræð- ingur og formaður LÍN: „Það er auðvitað áhyggjuefni. En meginskýringin er sú, að eftir að við hættum að lána í grunnhá- skólanám erlendis þá fækkar nem- endum þar verulega. En þeir hafa þá nýtt sér háskólanám hér heima áður en þeir fara út í framhalds- nám. Á hinn bóginn hef ég áhyggj- ur af því ef nemendum í listgrein- um fækkar ekki þegar fækkar í öðr- um greinum. Það er kannski ekki heillavænleg þróun. Því þjóðfélag- ið lifir ekki á listinni einni saman. þótt hún sé góð í og með. Þjóðin lifir á því að framleiða og selja og væri því fagnaðarefni ef fólki mundi fjölga í þeim greinum." Dagur B. Eggertsson, formaður Stúdentaráðs: „Ég held ab þetta sé tvímælalaust mikið áhyggjuefni. Þjóðin hefur búib ab því gegnum árin ab fjöldi íslendinga hefur sótt menntun, þekkingu og reynslu til annarra landa. Ég held að það sé öllum þjóöum hollt að fá ólík viðhorf inn í umræbuna. En þessi þróun endur- speglar nákvæmlega stefnu stjóm- valda í menntamálum, ekki síst málefnum Lánasjóðs ísl. náms- manna. Það er líka mjög stórt áhyggjuefni að þessi fækkun er- lendis hefur ekki skilað sér til námsmanna hér heima." Sjúkraliöar segja fjármálaráöherra bera ábyrgb á því ástandi sem skapast hefur á sjúkrastofnunum: Friðrik frosinn víðar en á olnboga „Ég kalla fjármálará&herra til ábyrg&ar fyrir framhaldinu og því sem er a& gerast á sjúkrastofnunum. Hann er lykilma&urinn í þessu dæmi hvort verkfalliö heldur áfram næstu vikur," sag&i Kristín Á. Gu&mundsdóttir, forma&ur Sjúkrali&afélags ís- lands, a& afloknum fundi meö Friöriki Sophussyni fjár- málará&herra í gær. Hún segir að engin samnin- gaumræða hafi átt sér stað á sáttafundi í gær að öðru leyti en því að ákveða annan fund í dag. „Það viröist vera sem fjár- málaráðherra hafi frosið á fleiri stöðum en í olnboganum," segir Kristín. En fjármálaráð- herra er með vinstri hendi í fatla vegna krankleika í oln- boga. Sighvatur Björgvinsson, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, segir að það liggi ekkert fyrir á þessu stigi hvort ríkisstjórnin geti liðkað til fyrir því að lausn finnist á verkfalli sjúkraliða. Unnið sé að lausn deilunnar og engin ákvörðun hafi verið tek- in um að breyta þeim farvegi sem sú vinna hefur verið í. Hann segir að innan ríkis- stjórnar hefur það ekki komið til tals að leysa verkfall sjúkra- Iiða með lagasetningu. Hins- vegar sé ljóst að samningar sjúkraliða muni hafa fordæm- isgildi fyrir aðra. Ráðherra telur ekki ólíklegt að ástæðan fyrir því hvaö seint miðar til lausnar í sjúkraliöadeilunni sé vegna þess að kjarasamningar séu nær almennt lausir um ára- mótin. Formaður Sjúkraliðafélagsins og landlæknir funduðu meö Sighvati Björgvinssyni í gær um það ástand sem skapast hefur á sjúkrahúsum og sjálfs- eignarstofnunum vegna verk- falls sjúkraliða. Kristín Á. segir að það sé bæöi heilbrigðisyfir- valda og fjármálaráðuneytisins að taka af skarið í þessu máli. Sighvatur segir að ástandið sé ekki aðeins orðið alvarlegt á sjúkrahúsum heldur einnig í hjúkrunarmál- unm aldraðra. Álagið væri orðið mikið á því fólki sem vinnur við hjúkrun- arstörf og „hver dagur sem líð- ur knýr á um að það veröi sam- ið," sagði Sighvatur. Hann sagði að áskorun verkalýðsmálanefndar Alþýðu- flokksins hefði verið rædd í þingflokknum þar sem skorað er á þingmennina að ganga fram fyrir skjöldu til lausnar kjaradeilu sjúkraliða. Sighvatur segir að ráðherralið krata komi ekki nálægt samningagerð rík- isins, heldur sé hún undir for- ræði fjármálaráðherra og samninganefndar ríkisins. ■ Sam- þykkt ab ráða Lilju Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt samhljóða tillaga stjórnar SVR um að ráða Lilju Ólafsdóttur sem forstjóra SVR frá og með áramótum. Lilja er fædd 28. mars 1943. Hún á aö baki langan feril sem stjórnandi bæði hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Skýrsluvélum ríkisins. Lilja var valin úr hópi alls 22 umsækjenda en alls voru 12 boðaðir í viðtöl. í greinar- gerð stjórnar SVR segir að mælt sé meö Lilju í starf forstjóra SVR sökum starfsreynslu, þekkingar og viðhorfa hennar til stjórn- unar. ■ Dagsbrún hvetur stéttarfélög til aö styöja sjúkraliöa gegn láglauna- stefnunni: Misræmi í orðum og geröum stjómvalda „Ef ríkisstjórnin fer ekki aö semja vi& sjúkraliða, þá verða aflei&ingarnar gífurlegar. Bæöi fyrir hana sjálfa og ástandið almennt," segir Guð- mundur J. Gu&mundsson, for- maður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir tvöfeldni í sinni launastefnu og fyrir að vera ekki samkvæm sjálfum sér í því sem þau segja og gera. Hann segir fá- ránlegt að heyra það frá ráðherr- um ríkisstjórnar að hægt sé aö bæta sérstaklega kjör þeirra lægst launuðu, án þess að það hafi keðjuverkandi áhrif í för með sér, á sama tíma og ríkis- stjórnin neitar láglaunastétt eins og sjúkraliðum að fá sam- svarandi launahækkanir og rík- ið hefur verið að semja um við stéttir sem betur mega sín. Stjórn félagsins skrifaði ný- lega stéttarfélögum í Reykjavík, Hafnarfirði og á Suðurnesjum þar sem þau voru hvött til að styðja við bakið á sjúkraliðum í baráttu þeirra fyrir bættum kjör- um. Guömundur J. segir að stjórn félagsins hafi ákveðið að stíga þetta skref vegna þess að þeim hefði verið farið að blöskra hversu lítinn stuðning sjúkra- liðar hafa fengið frá öðrum fé- lögum og þá einkum innan ASÍ. Hann telur að Alþýðusamband- ið eigi aö hafa forgöngu um að hvetja aðildarfélög sín til að styðja við bakið á sjúkraliðum í baráttu þeirra fyrir bættum kjör- um. Örn og Örlygur: Virt bókaútgáfa skiptir um eigendur: Samþykktu 20% greiðslu Örn & Örlygur, einhver virt- asta bókaútgáfa landsins, fékk í gær samþykkt frumvarp a& nau&asamningum. Kröfuhaf- ar samþykktu a& taka vi& 20% upp í kröfur sínar, sem námu alls 263 milljónum króna. Jafnframt taka stærstu lánar- drottnar Arnar og Örlygs vi& fyrirtækinu, en þeir eru I&n- þróunarsjóður me& 16% krafnanna, Prentsmiöjan Oddi, Prentstofa G.Ben hf., ýmis bókbandsfyrirtæki og aðrir aðilar tengir bókaíram- lei&slu. Örlygur Hálfdánarson bóka- útgefandi hefur rekið fyrirtækið á þriðja áratug og var það mjög vaxandi fyrirtæki lengst af. Metnaöur fýrirtækisins var mik- ill og útgáfubækurnar eftir því. Tvö verk voru þó sýnu stærst, fyrst Ensk- íslensk orðabók, geysimikið verk sem mikil þörf var fyrir í þjóðlífinu og síðan kom íslenska alfræðiorðabókin, geysimikið verk í þrem bindum sem fékk góðar viðtökur. Viö báðar þessar bækur unnu tugir manna í nokkur ár. Kostnaður við útgáfur þessara bóka var meiri en nokkru sinni hafði þekkst í íslenskri bókaútgáfu. „Þetta er auðvitað enginn gleöidagur hjá mér," sagöi Ör- lygur í gær. „Reksturinn snerist við árið 1992 þegar söluskattur var aftur lagður á bækur og það dróst saman í atvinnulífinu. Nú geng ég héðan út á miönætti og aðrir taka við," sagði hann. Ör- lygur segir að salan á Alfræði- bókinni sem mestu máli skipti fyrir fyrirtækið hafi fallið úr 6.000 eintaka sölu 1991 í 1.200 ári 1992. Það var í raun dauða- dómurinn. Örlygur Hálfdánarson mun sem fyrr reka fyrirtæki sitt, Bókaklúbb Arnar & Örlygs, sem er aöskilið fyrirtæki frá móður- fyrirtækinu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.