Tíminn - 07.12.1994, Blaðsíða 6

Tíminn - 07.12.1994, Blaðsíða 6
6 Wfaúvtu Miövikudagur 7. desember 1994 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM HAFNARFIRÐI Sala á landa í grunnskólum: Alltaf ab koma upp slík tilvik Gissur Guðmundsson rann- sóknarlögreglumaður er sam- mála formanni Vímuvarna- nefndar um að sala á landa í grunnskólum baejarins sé mik- ið vandamál. „Það eru alltaf að koma upp tilvik hjá okkur á þessum vettvangi," segir Gissur. Sem kunnugt er af frétt Fjarðarpóstsins nýlega, telur Ragnheiður H. Kristjánsdóttir, formaður Vímuvarnanefndar, að um skipulagða dreifingu á landa í grunnskólum sé að ræða og þetta var eitt af um- ræðuefnunum á foreldra- fræðslufundum nefndarinnar, sem haldnir vom nýlega. Gissur nefnir sem dæmi að á föstudaginn fyrir tveimur vikum hafi tveir 14 ára ung- lingar verið teknir með landa sem þeir höfðu keypt í skólan- um. Mibbærinn opnaður: Bylting i verslun- arrekstri Fjölmargir Hafnfirðingar lögðu leið sína í Miðbæ Hafn- arfjarðar þegar verslunarhúsið var formlega opnað. Segja má Laufey Eiríksdóttir klippti á borb- ann vib opnunina. að tilkoma verslunarhússins marki tímamót í verslunar- sögu bæjarins, því með því eykst verslunarrými í bænum um rúmlega 5000 fm. Gert er ráð fyrir aö 30 verslunar- og þjónustufyrirtæki verði til staðar í Miöbænum og var að- eins tveimur plássum óráð- stafað við opnunina. Bygging hússins hófst í mars 1993, en áður hafði stað- ið mikill styr um framkvæmd- ina og voru bæjarbúar ekki á eitt sáttir um hana. Heildar- kostnaður við bygginguna er um 800 milljónir. Núna er verslunarrýmið, sem hefur verib tekiö í notkun, tæplega helmingur af húsinu. í heild er húsið rúmlega 11.600 fm að stærb, ef bílakjallari er mebtalinn. FDÉTTAiunmn SELFOSSI Reykinganám- skeib lyrir grunn- skólanemendur á Selfossi Síðustu vikur hafa nokkrir nemendur í 9. og 10. bekk Sólvallaskóla á Selfossi setið námskeið í því skyni að hætta reykingum. Einn kennari skól- ans, Ingveldur Gyða Kristins- dóttir, hefur skipulagt og stað- ið fyrir námskeiðinu, en hún er einnig starfsmabur Krabba- meinsfélags Árnessýslu. Forsaga málsins er sú að könnun var gerð meöal ung- linganna um tóbaksnotkun þeirra. Þá kom í ljós að tób- aksnotkun unglinganna var töluverð og einhverjir orbnir háðir henni. Formaður nem- endafélagsins, Eyja Líf Sævars- dóttir, var fengin til að ræða málið við unglingana og kanna viðbrögð þeirra. Tölu- verður hópur hefur mætt á námskeiðið og var H-dagur fyrir skemmstu, þ.e. þá átti að hætta reykingum. Að sögn Ingveldar Gyðu hafa ekki allir hætt strax, en allir hafa breytt sínu reykinga- mynstri og dregið úr þeim. Ýmis fræðsla hefur verið á námskeiðinu, t.d. um sjúk- dóma í kjölfar reykinga, mata- ræði og hreyfingu og einnig hefur sálfræðingur heimsótt hópinn. Kartöfluverksmiðjan Þykkvabæ: Kaupir 700 tonn af íslenskum kartöflum í stab innfluttra Kartöfluverksmiðjan í Þykkvabæ hefur hafib fram- leiðslu á „frönskum kartöfl- um" úr íslensku hráefni. Hingab til hefur aðeins verið hægt að nota íslenskar kartöfl- ur í framleiðsluna í fáar vikur á ári, síösumars, þar sem þær hafa dökknað mikið er líður á haustið. Þegar kartöflur kólna nibur fyrir 8 grábur á celsíus fara þær að sykra sig, sem er hin náttúrulega vörn kartaflna gegn kulda. Þetta gerist oft þegar kartaflan er enn ofan í garðinum. Þegar það gerist, verða þær dökkar og vib steik- ingu enn dekkri og hætta þá ab standast innfluttum kart- öflum snúning. Þess vegna hefur orðið að flytja inn hrá- efni í „franskar kartöflur". Nú hefur mjög hátt verö á kartöflum úti í Evrópu orðið til þess ab verksmibjan í Þykkvabæ er hætt ab flytja Eyja Líf Sœvarsdóttir, nemandi í 10. bekk, vill hœtta ab reykja. inn kartöflur í þessa fram- leiðslu. Jafnvel erlendir fram- leiðendur eru farnir að nota „sykrabar" kartöflur í fram- leiðsluna. Kartöfluverksmiöjan í Þykkvabæ er eini innlendi framleiðandi franskra kart- aflna. Að sögn Auðuns Gunn- arssonar hjá Kartöfluverk- smiðjunni fara um 700 tonn í þá framleiðslu á ári og er nýt- ing þeirra um 50%. Eystra-| hornl Ferski humarinn bragbast vel Frysti humarinn, sem flutt- ur var út ferskur á þessu hausti, kom nýlega á markab í Belgíu og stóöst þar allar gæðakröfur vandlátra kaup- enda. Erlingur SF 65 kom úr fyrsta humarróðrinum með 200 kg af hölum. Humarinn er send- ur út heill í frauðplastsöskjum meb ísmolum og frosnum ein- angrunarmottum ofan á. Þab er Eskey hf. sem fékk leyfi fyrir humarveiðum og gerir út Erling eins og hún hefur alltaf gert, en vinnsla og útflutningur aflans er í um- sjón Hrellis. Tvö staösetning- artæki ab gjöf Minningarsjóbur Ingibjarg- ar Guömundsdóttur hefur gef- ið Björgunarfélagi Hornafjarð- - ar tvö GPS staðsetningartæki. Tækin eru mesta þarfaþing og auka þægindi vib leitir og annað. Þeim má líkja við átta- vita nema hvað þau em mun fullkomnari. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem björgunarsveitin tekur á móti höfðinglegum gjöfum úr minningarsjóði Ingibjargar Guðmundsdóttur. Eins og nærri má geta er sveitin þakk- lát fyrir stuðninginn. Sveitarfélögin á höfuöborgarsvœbinu gera tillögur aö nýrri vegaáœtlun: Framkvæmdir fyrir fimm millj- arða næstu 4 ár Forsvarsmenn sveitarfélaga á höfubborgarsvæðinu hafa sent frá sér tillögur ab nýrri vega- áætlun á svæbinu til ársins 1998. Þar er gerb mislægra gatnamóta vib Vesturlands- veg/Höfbabakka sett fremst í forgangsröbina, en sú fram- kvæmd er reyndar þegar hafin. í tillögunum er gert ráb fyrir framkvæmdum fyrir tæpa fimm milljarba króna á næstu fjórum árum. Vegaáætlun verður nú unnin í fyrsta sinn samkvæmt nýjum vegalögum, sem taka gildi um ára- mótin. Stefán Hermannsson borg- arverkfræðingur segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæöinu samræmi óskir sínar í þessum efnum, en þaö sé meining Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins að skilgreina höfuðborgarsvæðið sem sjálfstætt svæði við vegaáætlun. Vib röbun verkefna í forgang var litið til ástands umferðarinnar eins og það er á þessu ári og gerð áætlun um það til ársins 1998, að sögn Stefáns Hermannssonar. Verkefnunum var síðan raðab eftir flutningsgetu og umferðarmagni á hverjum stað. Auk þess var litið á aðra þætti, eins og abgengi að nýj- um íbúðahverfum, arðsemi fram- kvæmdanna, sem í flestum tilfell- um var nokkuö há, og áhrif þeirra á kostnaö vegna óhappa og slysa. Niburstaðan var sú að mislæg gatnamót við Vesturlandsveg og Höfbabakka eru sett fremst í for- gangsröðina. Sú framkvæmd er þegar hafin og er gert ráð fyrir aö 100 milljónum verði variö til hennar á þessu ári. í tillögunum er lagt til að framkvæmdinni verði lokið á næsta ári og gert ráð fyrir að 360 milljónir fari til hennar á árinu. í öðru sæti lendir breikkun Vesturlandsvegar-Miklubrautar til vesturs frá Höfðabakka að Skeiðar- vogi, sem er reiknaö með að kosti alls 820 milljónir. Sú framkvæmd felur í sér tvöföldun Vesturlands- vegar um Ártúnsbrekku, nýja brú yfir Elliðaár og endurbætur á gatnamótum Vesturlandsvegar við Sæbraut/Reykjanesbraut, meöal annars með gerð nýrrar brúar. Auk þess undirgöng við Breið- höfða og rás fyrir vestari kvísl Ell- iðaáa. í tillögunum er einnig lagt til að gert verði nokkurt átak í gerð göngubrúa og undirganga. Fremst í forgangsröðinni í þeim efnum er gerö göngubrúar yfir Kringlumýr- arbraut í Fossvogi, yfir Miklubraut við Rauðageröi og göng undir Arnarnesveg. Tillögur sveitarfélaganna hafa verið sendar samgönguráðherra, samgöngunefnd Alþingis og þing- mönnum Reykjavíkur- og Reykja- neskjördæma. í tillögunum er ekki gert ráð fyrir frestun neinna þjóð- vegaverkefna, sem þegar eru til- greind í samþykktri vegaáætlun. Samtals ráöstafað til vegafram- kvæmda og fyrirhugað samkvæmt tillögunum eru 6.460 milljónir króna. Af þeim er gert ráð fyrir að framkvæmt veröi fyrir 4.945 millj- ónir á næstu fjómm ámm. Stefán Hermannsson segir að sveitarfé- lögin geri sér vonir um að fá fram- kvæmdir fyrir 3,5 milljarða á sama tíma. ■ Maraþontónleikar í Akureyrarkirkju Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím- ans á Akureyri: Maraþontónleikar fóru fram í Akureyrarkirkju síðastliðinn sunnudag. Á tónleikunum flutti Björn Steinar Sólbergsson, organ- isti og stjórnandi kirkjukórs Ak- ureyrarkirkju, verk frá ýmsum tímum. Efnisskrá tónleikanna var þrískipt, þannig að fyrstu þrjá stundarfjórðungana lék Björn Steinar verk eftir Johann Sebasti- an Bach. Aö loknu 15 mínútna hléi hófst annar hluti tónleik- anna, sem byggöist upp af orgel- verkum eftir íslensku tónlistar- höfundana Pál ísólfsson, Jón Nordal, Björgvin Guðmundsson, Jóhann Ó. Haraldsson, Jón Hlöb- ver Áskelsson og Þorkel Sigur- björnsson. Á síðasta hluta tón- leikanna flutti Björn Steinar verk eftir frönsku tónskáldin Charles Marie Widor og Léon Boéllmann. Tildrög þessara tónleika voru fyrst og fremst þau að nú stendur fyrir dyrum viðamikil viögerb á orgeli Akureyrarkirkju, sem sett var upp á árinu 1961. Orgelið er mjög vandað hljóbfæri og hefur enst mun lengur en sambærileg hljóðfæri víða um heim. Auk nauösynlegs viöhalds hefur verið ákvebib að breyta smíöamáta orgelsins nokkuö, en á þeim tíma sem þab var byggt hafbi raftækni aö nokkru verið látin leysa gaml- ar hefðir vib smíði pípuorgela af hólmi. Síöar hafa ákvebin vanda- Björn Steinar vib orgelib. mál komið fram samfara notkun rafmagns og einnig orbið erfitt að fá nauðsynlega varahluti í orgel- ib. Nú hafa orgelsmiðjur horfið frá þessum smíðamáta og pípu- orgel smíðuð að mestu sam- kvæmt þeim aðferöum er tíðkast hafa í gegnum aldir, þótt nútíma tækni sé einnig beitt. Tónleikarnir á sunnudag voru því liður í undirbúningi viðgerð- arinnar meb því ab vekja athygli á nauðsyn hennar og einnig ab afla nokkurra tekna í orgelsjóð Akureyrarkirkju. Tilkoma orgels- ins á sínum tíma gerbreytti öllum aðstæðum til tónlistariðkunar við kirkjuna, bæði hvað varöar kirkjulegar athafnir og tón- leikahald, og með viðgerð á orgelinu nú munu þeir mögu- leikar haldast. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.