Tíminn - 15.12.1994, Page 7
Fimmtudagur 15. desember 1994
MtHÍK
Franskir sjónvarpsmenn voru hér á landi á dögunum aö kvikmynda fyrir vinsœlan barnaþátt:
/
Island a frönskum sjónvarps-
skjám 16 daga í röð um jólin
Hér á landi var í síöustu viku
staddur hópur franskra sjón-
varpsmanna til aö taka upp
efni, sem sýnt veröur í ein-
um vinsaelasta barnaþætti í
Frakklandi í 16 daga í röb.
A5 sögn Filippusar Péturs-
sonar (Philippe Patay), leib-
sögumanns hópsins hér á
landi, en hann er franskur
ab uppruna, má gera ráb fyr-
ir ab um 10 milijónir manna
sjái þáttinn dag hvern. Hann
segir ennfremur ab margt
hafi komib sjónvarpsmönn-
unum á óvart hér á landi og
þá sérstaklega íslenska
grunnskólakerfib.
Alls komu hingab til lands
fimm manns vegna þáttagerð-
arinnar og unnu þau auk leiö-
sögumannanna, Filippusar
Péturssonar og Andra Ivars-
sonar, sem báöir eru franskir
aö uppruna en meö íslenskan
ríkisborgararétt, aö gerö þátt-
anna í 10 daga. Hópurinn
kom hingað til lands á vegum
skrifstofu Flugleiöa í París og
voru þeir Filippus og Andri
fengnir til leiösagnar.
Mun ná til 10 millj.
áhorfenda
Um er aö ræða aðila frá sjón-
varpsstöðinni RTL, en þaö er
einkarekin sjónvarpsstöö í
eigu franskra aðila sem nær til
4,5 milljón heimila í Noröur-
Frakklandi, Lúxemborg og
Belgíu. Þátturinn, sem um
ræðir, heitir „Junior" og er aö
sögn Filippusar vinsælasti
barnaþátturinn í Frakklandi,
meö aö jafnaði um 10 milijón
áhorfendur. Eins og áður sagði
verður efniö sýnt á 16 dögum í
jólafríi barnanna, í þrjár
klukkustundir í senn og er
þetta í fyrsta sinn sem grunn-
urinn aö þáttunum er tekinn
upp erlendis.
Filippus segir aö aðaláhersla
hafi verið lögö á aö sýna frá
daglegu lífi fólks hér á landi á
veturna og í kringum jólin og
þá sérstaklega frá sjónarhóli
barna. Reynt hafi verið aö
draga fram ýmsa dæmigerða
þætti, sem íslendingum þykja
jafnvel ómerkilegir, en eru at-
hyglisveröir í augum útlend-
inga. Meðal annars var fylgst
með lífi barna frá morgni til
kvölds. Kvikmyndað var þegar
snæddur var morgunverður
þar sem drukkið var lýsi, börn-
unum síöan fylgt í skóla í
Austurbæjarskóla þar sem
fylgst var með skóladegi
þeirra.
Alls voru tekin upp 72 atriði
á þessum tíu dögum, bæöi í
Reykjavík og annars staðar á
landinu. Fylgst var með börn-
um í bæjum og upp til sveita.
Fjallaö verður stuttlega um ís-
lensku sauðkindina og sýnt
hversu mismunandi þær geta
verið á litinn. Hreinsun á æð-
ardún var kvikmynduð, Bláa
lónið og Hveragerði heimsótt,
farið í Sundlaugarnar, Hús-
dýragarðinn, fylgst var með
upptöku á Stundinni okkar og
margt fleira. íslensku jóla-
sveinarnir, sem eru þrettán
talsins, vöktu athygli sjón-
varpsmannanna og höfðu þeir
á orði að þetta væri ekki þessi
Filippus Pétursson eöa Philippe Patay, á heimili sínu í Reykjavík. Hann hefur tekiö á móti mörgum frönskum
feröamönnum, leiöbeint þeim um landiö og frœtt þá um land og þjóö. Tímamynd cs
„kóka kóla jólasveinn" eins og
þeir þekktu, auk þess sem þeir
væru þrettán, sem væri fram-
andi fýrir börn í öðrum lönd-
um.
íslenskir skólar
ólíkir frönskum
Filippus segir að skólakerfið
hafi komið þáttagerðarmönn-
unum mjög á óvart, sérstak-
lega að í grunnskólanum skuli
vera kenndar greinar sem eru
ekki bóklegar, en það þekkist
ekki í frönskum grunnskólum.
„í frönskum skólum er
kannski kennd teikning og
leikfimi, en ekki greinar eins
og smíði, handavinna og
sund. Maður sér að ísienski
skólinn er að búa börnin und-
ir að standa sig sjálfstætt í
þessu þjóðfélagi," segir Filipp-
us. í frönskum skólum sé hins
vegar lögö ofuráhersla á bók-
leg fög, félagslíf lítið og and-
rúmsloft mjög þrúgað. Franska
skólakerfið hefur ab sögn Fil-
ippusar sætt mikilli gagnrýni,
en yfirvöld þar í landi hafa
ekki þoraö ab auka frelsi í skól-
um. „Þab vakti athygli hversu
létt var yfir börnunum í skól-
anum og gott dæmi um mun-
inn var að börnin voru t.d.
ekki hrædd vib skólastjórann.
Filippus segist þess fullviss
að þetta verði mikil landkynn-
ing fyrir ísland á því svæði
sem sjónvarpsstöðin nær til.
Þab hafi reynst erfitt að koma
Frönsku þáttageröarmennirnir aö
störfum viö listaverkiö Sólfar í
Reykjavík. Hér er veriö aö undir-
búa viötal viö Þorgeir Kjartansson,
sagnfræöing og tónlistarmann.
Tímamynd Filippus
því að erlendis að einungis
260.000 manns búi hér á landi
í mjög skipulögðu og nútíma-
legu þjóðfélagi, fólk með gríð-
arlegan vilja. Hann segist þess
fullviss að tekist hafi ab gefa
rétta mynd af landi og þjóð og
lífi fólks á þessum tíma árs.
Þættirnir höfði til barna og
segist Filippus þess fullviss ab
það skili sér á þann hátt að síð-
ar meir hafi einhver þeirra
áhuga á að koma hingaö til
lands og kynnast því af eigin
raun sem þau sáu í þáttunum.
Filippus hefur búið hér á
landi meira og minna í 22 ár,
er kvæntur íslenskri konu og á
þrjú börn. Hann er leiðsögu-
maður að atvinnu, bæði hér á
landi og erlendis, og talsvrrð-
ur tími hans hefur farib í að
taka á móti frönsku fólki, bæði
ferðamönnum og fólki í öðr-
um erindagjörbum. „Mér
finnst oft gleymast að sýna út-
lendingum hvernig daglegu
lífi er háttað hér á landi."
✓
Island fær meiri
umfjöllun
Filippus hefur tekið á móti
fleiri frönskum fjölmiöla-
mönnum sem komið hafa
hingaö til lands. Sem dæmi
má nefna að í sumar komu
hingað til lands blaðamenn og
Ijósmyndarar frá franska blab-
inu GEO, sem er sambærilegt
vib National Geographic, en
aprílhefti blaðsins verður
helgað íslandi og verður efni
þess eingöngu frá íslandi á
annað hundrað blabsíbum.