Tíminn - 15.12.1994, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 15. desember 1994
15
mál af okkar hálfu, um hrun
Sovétríkjanna, enda hefur hver
þjóðin af annarri síöan leitað
til íslendinga til að ryðja fyrir
sig braut til frelsis. Og auðvitaö
er Jón Baldvin þar alltaf fremst-
ur. Það hefur enginn maður
sem ég þekki haft menntun,
þekkingu eða skilning á við Jón
Baldvin í utanríkismálum.
• En hvers vegna er íslending-
um svona uppsigab vib Jón
Baldvin? Hefur honum meb
einhverjum hætti mistekizt ab
halda sambandi vib sína eigin
þjób?
- Eðlilega, eðlilega! Ef þú
gengur fyrst í stórri fylkingu þá
veiztu auðvitað ein um þann
hluta vegarins sem enginn hef-
ur gengið nema þú. Allir sem
ganga fyrstir vita meira en hin-
ir og það er ekki von að hinir,
sem koma kannski langt á eftir,
þekki þetta land. Þar af leið-
andi tortryggja þeir það eða
halda því einfaldlega fram ab
þaö sé ekki til, sé ímyndun ein.
En þú hefur séð það, af því að
þú hefur gengið yfir það. Og
þannig fer náttúrlega um alla
menn sem ganga á undan. Þeir
sjá meira en hinir og verða að
gjalda fyrir það.
Ég er ekki endilega að halda
því fram að stefna Jóns Bald-
vins þurfi að vera sú farsælasta.
Ég veit það ekki frekar en aðrir
menn. Til að svara því þyrfti ég
að þekkja ástandið eins og það
verður eftir marga áratugi.
Menn renna blint í sjóinn með
það. Þeir vita ekki hvað gerist
og því getum vib ekki svarað
spurningunni um það hver
okkar staða ætti að vera eða
hvernig okkar málum sé bezt
borgið.
•Tekur þú afstöbu til pólitískra
dægurmáia?
- Já, ævinlega. Til allra
manna og allra málefna. Ég er
aldrei hlutlaus. Nema í trúmál-
um. Ég leyfi hverjum manni að
trúa því sem hann vill, en þó
ekki í pólitík.
• Hvab finnst þér þá um þab
sem Jón Baldvin er skammabur
mest fyrir þessa stundina?
Finnst þér ab vib eigum ab
sækja um abild ab Evrópusam-
bandinu?
- Ég er enn að hugsa málið.
Fyrir mér er þetta svo flókiö
mál að ég hef ekki komizt að
niðurstöðu. Ég þyrfti að rýna
mikið og lengi í framtíð Évr-
ópu til að vita þetta. Maður sér
að þungamiðja valdsins er á
hreyfingu, ekki bara á íslandi
heldur um allan heim. Þab get-
ur verið að Evrópa sé ekki eins
vel staðsett í heiminum og
menn halda. Ef menn líta
svona sjötíu ár fram í tímann
og Evrópa verður oröin það
stórveldi aö hún heldur að hún
þurfi ekki á vinum sínum ab
halda, t.d. í Bandaríkjunum, og
einangrast í sínum franska og
þýzka mikilleika, að maður tali
nú ekki um brezkan mikilleika,
þá er þetta raunverulega orðið
skagi í hættu. Lítum á landa-
bréfið. Evrópa er ekki annað en
skagi út úr Asíu og af því ab við
höfum haft forystu í menning-
armálum í tvö þúsund ár þá
halda menn að það sé sjálfsagt
að þab verði ævinlega þannig.
En framtíðin er óráðin. Vib
þekkjum hana ekki.
• Þú hefur margt rætt og ritað
um menningu og listir og segir
m.a. í þessari bók ab í þeim
efnum snúist íslenzk þjób
nokkub eftir því hvaban vind-
urinn blæs. Sumir finna mikib
ab þessu væmna dekri vib
mebalmennskuna sem þeim
finnst koma mikib fram í sam-
bandi vib þennan þátt þjóblífs-
ins.
- Það hefur náttúrlega oröið
hér mikil afturför á þessari öld
eftir aö rithöfundar fóru að
skrifa eftir forskrift, en hættu
að þora að vera einstaklingar
og skrifa bækur á sínum eigin
forsendum. Þá fóru þeir að
flokka sig undir stefnur og
strauma og lúta forræði ann-
arra, oftast nær marxismans og
heimslyginnar. Margir þeirra
gera sér ekki grein fyrir því að
þeir eru enn undir þessurn
áhrifum og nú eru komnar
þrjár kynslóðir. Þetta er ekkert
betra á íslandi en annars stabar
á Vesturlöndum og viö þurfum
raunverulega á svipaðri baráttu
að halda á Islandi og Soltsjenit-
sín er að heyja í Rússlandi, þar
sem hann kemur að eyðimörk
eftir sjötíu ára tímabil marx-
ismans, þar sem allt er mengað
og ekki sízt hugarfarið. Þar sem
fólkiö er orðið trúlaust og sið-
laust og búiö að glata góðum
gildum. Gildi batna hvorki né
versna við það að verða gömul,
en það eru til góö gildi og ill
gildi. Því miður finnst mér ým-
islegt benda til þess að þarna
séu þrjár kynslóðir eiginlega
heilþvegnar af stefnum sem
allar hafa endað í blindgötum.
Það er afskaplega mikil þoka í
höfðinu á þessum rithöfund-
um og ég sé ekki að þessari
þoku sé á nokkurn hátt ab
létta. Ég held þab sé alveg von-
laust að henni létti fyrr en upp
úr aldamótum. Menn verða
bara að bíða þolinmóðir eftir
einhverri skilningsglætu og
þekkingu sem er ekki sérhönn-
uð í einhverjum annarlegum
tilgangi.
• Þú talar um ab líta svo sem
sjötíu ár fram í tímann. Þab er
nokkub Ijóst ab þú verbur ekki
hér þá, ekki frekar en vib Hans
Kristján.
- Ja, Þórður á Dagveröará var
vanur ab segja: Ef ég dey, sem
óvíst er... Og við vitum ekkert
meira um þetta en Þórður.
TEXTI: Áslaug Ragnars
Tímamynd GS
DAGBÓK
Fimmtudaqur
15^
desember
349. dagur ársins -16 dagar eftir.
50 vlka
Sólris kl. 11.15
sólarlag kl. 15.30
Dagurinn styttist um
2 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og ná-
grenni
Bridskeppni, tvímenningur,
kl. 13 í dag í Risinu.
Á morgun, föstudag, er fé-
lagsvist kl. 14 og jólavaka kl. 20
í Risinu. Séra Sigurbjörn Einars-
son biskup flytur ávarp, Seljuk-
órinn og Kór eldri borgara
syngja, upplestur og kaffiveit-
ingar; fjöldasöngur, stjórnandi
er Pétur H. Ólafsson.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Aðventukvöld verður haldið í
Fannborg 8 (Gjábakka) í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30. Dagskrá:
Frá Digranessókn, Fíladelfíu-
söfnuði, Sjöundadags aðvent-
istum; hugvekja og einsöngur,
sönghópur og fjöldasöngur.
Happdrætti Bókatíb-
inda 1994
Happdrættisnúmer dagsins
er: 38807.
Garbyrkjuskólinn:
Kynningarfundur á
Reykjum
Garðyrkjuskóli ríkisins,
Reykjum, Ölfusi, heldur kynn-
ingarfund föstudaginn 16. des.
kl. 13.30. Efni fundarins er
„Frævun með hunangsflugum í
gróðurhúsum á íslandi". Þetta
er samstarfsverkefni Landbún-
abarháskólans í Kaupmanna-
höfn, Garðyrkjuskólans, garð-
yrkjubænda og innflutningsfyr-
irtækja þeirra. Verkefnisstjóri
var dr. Kristján Kristjánsson,
adjunkt við Landbúnaðarhá-
skólann í Kaupmannahöfn, og
einnig vann Gubrún Lárusdótt-
ir, líffræðinemi, að verkefninu
og vann hluta þess sem 5 ein-
inga rannsóknaverkefni við Há-
skóla íslands. Nýsköpunarsjóð-
ur stúdenta styrkti þann hluta
verkefnisins.
Akureyri:
Blysför sjúkraliba á
laugardaginn
Félagsfundur Deildar sjúkra-
liða á Norðurlandi eystra skorar
á viðsemjendur sjúkraliða að
ganga til samninga hið fyrsta.
Deildin lýsir yfir fullum stuðn-
ingi við kjarabaráttu sjúkraliba
í stéttarfélagi sjúkraliða.
Samúðarverkfall sjúkraliða
mun ekki verða á Norðurlandi
eystra, en til að sýna samhug
munu sjúkraliðar ganga blysför
frá Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri niður á Rábhústorg,
næstkomandi laugardag kl. 15.
Þeim, sem vilja sýna sjúkralib-
um stuðning, er velkomiö að
slást í hópinn.
Haraldur Reynis í
jólaskapi á „Feita"
„Jólasveinninn" verður á
Feita Dvergnum um helgina ...!
Nei. Það er stórtrúbadorinn
Haraldur Reynis sem skemmtir
gestum dvergsins, á föstudag og
laugardag. Lítill fugl hvíslabi
því aö mönnum á „Feita", að
margir hefbu í huga ab líta til
þeirra um helgina og því ætti,
reyndar eins og alltaf, að vera
mikið fjör um helgina.
Munið! Enski boltinn og bjór
á boltaverði. Starfsfólkið verður
í ótrúlega léttu skapi og Halli
Reynis í góðu formi, segir í
fréttatilkynningu frá Feita
dvergnum, Höfðabakka 1.
Spænskt kvöld í Deigl-
unni á Akureyri
í kvöld, fimmtudag, verður
spænskt kvöld í Deiglunni, sal
Gilfélagsins í Listagilinu á Akur-
eyri. Nokkrir kunnir listamenn
munu þar leggja sitt af mörkum
til aö skapa sérstætt spánskt and-
rúmsloft og gefa fólki tækifæri til
að gleyma jólaönnunum við
ljúfa tóna og upplestur.
Einar Kr. Einarsson gítarleikari
flytur spænska og suður-ameríska
tónlist. Arnar Jónsson leikari les
úr nýútkomnum Andalúsíuljóð-
um arabískra skálda í þýðingu
Daníels Á. Daníelssonar læknis á
Dalvík. Áður hafa komið út í
þýðingu hans sonnettur Shake-
speares og vöktu þær mikla at-
hygli. Rósa Gubný Þórsdóttir
leikkona les úr þýðingum Guð-
bergs Bergssonar á úrvali
spænskra ljóða og Viðar Eggerts-
son leikari les úr þýöingu Þor-
geirs Þorgeirsonar á Tataraþulum
eftir Federico Garcia Lorca.
Vegna framkvæmda við inn-
ganginn í Deigluna verður geng-
ið inn um Café Karólínu. Dag-
skráin hefst kl. 21, en salurinn
verður opnaður kl. 20.30 þar sem
hægt verður að njóta veitinga.
Aðgangseyrir er kr. 500.
Sýningar í Hafnarborg
í desember
í aðalsal Hafnarborgar er sýn-
ingin „Hreyfimyndir", samsýn-
ing þeirra Ingu Lísu Middleton,
Kristínar Maríu Ingimarsdóttur
og Siguröar Arnar Brynjólfssonar.
Á sýningunni er leitast við aö
kynna bæði listamennina þrjá,
sem taka þátt í henni, og list-
formið sjálft, því hreyfimynda-
gerb verbur ab teljast til nýjunga
í íslenskum listum. Alls eru níu
hreyfimyndir kynntar og eru þær
sýndar af myndbandi í hlibarsal.
í aðalsal eru síðan sýndar frum-
myndir sem notaðar voru viö
gerð myndanna og eru þær settar
upp þannig að áhorfendur geti
áttað sig á vinnsluferlinu. Sýn-
ingin stendur til 23. des.
I Sverrissal er ljósmyndasýn-
ingin „Hafnarfjörbur fyrr og nú",
myndir teknar af hjónunum
Guðbjarti Ásgeirssyni og Herdísi
Guðmundsdóttur á árunum
1922-1960, og nýjar myndir
teknar af dóttursyni þeirra Magn-
úsi Hjörleifssyni. Sýningin stend-
ur til 23. des.
Sýningarsalir eru opnir frá kl.
12- 18 alla daga nema þriðju-
daga.
Kápa tímaritsins Andblœs. Myndina
gerbi Kristín Arngrímsdóttir.
Bókmenntakynning
Tvö ný bókmenntatímarit hafa
litið dagsins ljós á þessu hausti:
Andblcer sem flytur frumsaminn
skáldskap og draumbókmenntir
og Jón á Bœgisá sem er tímarit
þýðenda og birtir þýddar sögur
og ljób, auk fræbilegra greina um
þýðingar og þýðendur.
Útgefendur beggja rita hafa
ákveðið að kynna þau sameigin-
lega á opnu bókmenntakvöldi á
Kaffi Reykjavík (í Koníaksstofu,
niöri) í kvöld, fimmtudag, kl.
20.30.
Dagskrá: Andblœr: Bjarni
Bjarnason ritstjóri kynnir ritið.
Gunnar Hersveinn, Steinunn Ás-
mundsdóttir og Þórarinn Torfa-
son lesa úr efni þess. Jón á Bœg-
isá: Ingibjörg Haraldsdóttir
kynnir, en Þorsteinn Gylfason og
Karl Guðmundsson lesa upp. Sig-
ríður Friðjónsdóttir syngur texta
í þýbingu Kristjáns Árnasonar
viö lög eftir Míkís Þeoborakís við
undirleik Halldórs Ólafssonar gít-
arleikara.
APÓTEK
Kvfild-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavlk Irá 9. desember tll 15. desember er I
Vesturbæjar apótekl og Háaleltls apótekl. Það apó-
tek sem tyrr er nefnt annast eltt vðrsluna frá kl.
22.00 aó kvfildl tll kl. 9.00 aó morgnl vlrka daga en
kl. 22.00 á sunnudðgum. Upplýslngar um læknls-
og lyfjaþjónustu eru gefnar I slma 18888.
Neyóarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækl um helgar og á stórhátlóum. Símsvari
681041.
Hafnarfjðróun Hafnarfjaróar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eni opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt-
is annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjórnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búóa. Apótekin skiptast á sína
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu.
Á kvóldin er opið í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19.00. Á helgidögum er opió Irá kl. 11.00-12.00 og
20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bakvakt.
Upplýsingar eru gefnar í síma 22445.
Apótek Keflavlkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. desember 1994.
Mánaóargrelðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)......... 12.329
1/2 hjónaltfeyrir ...........................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega..........35,841
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........36.846
Heimilisuppbót...............................12,183
Sérstök heimilisuppbót........................8,380
Barnalífeyrirv/1 barns ......................10.300
Meðlagv/1 barns..............................10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1 bams..................1.000
Mæðralaun/leðralaun v/2ja bama................5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða..............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ............11.583
Fullur ekkjulífeyrir.........................12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)................ 15.448
Fæðingarstyrkur............................ 25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreiðslur
Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á Iramfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
í desember er greiddur 58% tekjutryggingarauki á
tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilis-
uppbót, 30% vegna desemberuppbótar og 28%
vegna láglaunabóta. Tekjutryggingaraukinn er
reiknaður inn i tekjutrygginguna, heimilisuppbótina
og sérstöku heimilisuppuppbótina og skerðist á
sama hátt._______________________
GENGISSKRÁNING
14. desember 1994 kl. 10,49 Opinb. Kaup vidm.gengi Sala Gengi skr.fundar
Bandarfkjadollar.... 68,78 68,96 68,87
Sterlingspund ....107,46 107,76 107,61
Kanadadollar 49,55 49,71 49,63
Dfinsk króna ....11,154 11,188 11,171
Norsk króna ....10,018 10,048 10,033
Sænsk króna 9,088 9,116 9,102
Finnskt mark ....14,063 14,105 14,084
Franskur franki ....12,691 12,729 12,710
Belgfskur franki ....2,1267 2,1335 2,1301
Svissneskur franki 51,74 51,90 51,82
Hollenskt gyllini 39,06 39,18 39,12
Þýsktmark 43,75 43,87 43,81
ítölsk Ifra ..0,04198 0,04212 0,04205
Austurrfskur sch.... 6,213 6,233 6,223
Portúg. escudo ....0,4257 0,4273 0,4265
Spánskur peseti ....0,5193 0,5211 0,5202
Japanskt yen ...0,6848 0,6866 0,6857
irsktþund ...105,58 105,94 105,76
Sérst. dráttarr 99,80 100,10 99,95
ECU-Evrópumynt.... 83,37 83,63 83,50
Grfsk drakma ...0,2829 0,2839 0,2834
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar