Tíminn - 03.01.1995, Side 2
2
marje^^x.-----
tFO tvFj
Þri&judagur 3. janúar 1995
Tíminn
spyr...
Hvernig líka&i þér áramótas-
kaup Sjónvarpsins í ár?
Árni Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Stjórnunarfélags íslands
og fyrrverandi borgarstjóri:
„Eg læt aðra dæma um hvernig
ég var tekinn fyrir, en þegar
gengið er að fjöískyldu manns
hugsar maður eðlilega ýmislegt.
En við munum auðvitað halda
áfram að vera samhent fjöl-
skylda, þrátt fyrir svona árásir.
Áramótaskaup hefur engin áhrif
þar um. Mér fannst árásir á Ólaf
G. Einarsson ómaklegar og eins á
forsetaembættið. Annars snerust
áramótin okkar ekki um skaup
Guðnýjar Halldórsdóttur,
kommúnista úr Mosfellsbæ, sem
hafði lýst því yfir að hennar
æösta takmark væri að fella
íhaldið. Ég hef á tilfinningunni
að hún vinni að því áfram eftir
að hafa séð þetta skaup hennar."
Séra Gunnlaugur Stefánsson
aljiingismaður:
„Á margan hátt líkaði mér skaup-
ið vel. En á ýmsan hátt fannst
mér þó allt of langt gengið gagn-
vart einstökum persónum. En
það er eins og alltaf er að þegar
verið er að fjalla um skaup að sitt
sýnist hverjum. Sérstaklega var
ómaklega vegið að Ólafi G. Ein-
arssyni og þar var gengið út fyrir
allt skaup. Hvort þar var verið að
finna útrás fyrir pólitískar hvatir
verba höfundarnir að svara sjálf-
Fjalar Sigur&arson
Dagsljóssmaður:
„Mér fannst það sprenghlægilegt
framan af en fór hratt niður á vib
og einhver beiskja sem braust út í
rætni of áberandi. Gísli Rúnar var
aö sprikla í mínu hlutverki —
fjölskyldunni þótti hann ná mér
vel. Ég var því mibur búinn að sjá
hann í mötuneytinu, fötin
manns voru líka farin að hverfa
úr búningasafninu og ég vissi á
hverju var von."
Embœtti fíyst til Akureyrar 1. febrúar:
Nýr veiöistjóri um
næstu mánaðamót
Össur Skarphé&insson um-
hverfisrá&herra setti í gær Ás-
björn Dagbjartsson líffræðing
í stö&u vei&istjóra frá og með
1. febrúar 1995 tii eins árs. Ás-
björn hefur m.a. starfað að
rá&gjafastörfum erlendis og
hefur grunnmenntun á sviði
líffræði en hefur starfað mest
á sviði matvælafræði. Ásbjörn
var valinn úr hópi þriggja um-
sækjenda.
Talsverbur órói hefur verið í
kringum veiðistjóraembættið í
kjölfar ákvörðunar umhverfis-
rábherra á síðasta ári ab flytja
embættið til Akureyrar og er
ljóst að þeir þrír sérfræbingar
sem við embættið hafa unnið,
þar á meðal Páll Hersteinsson
veiðistjóri, munu ekki flytja
meb norður og hætta því störf-
um. Aðrir starfsmenn veiði-
stjóraembættisins hafa veriö
sameiginlegir með Náttúru-
fræðistofnun og Náttúruvernd-
arráði þannig að þeir fara ekki
heldur norður. Á sínum tíma
kom fram gagnrýni frá sérfræb-
ingum veibistjóra um að ónóg-
ur undirbúningur hefði legið ab
baki ákvörðunar rábherra um
flutninginn. Samkvæmt heim-
ildum Tímans hefur ráðuneytið
rætt við sérfræöingana um ab
finna þeim önnur störf þannig
að sérþekking þeirra nýtist
Akureyri:
Róleg áramót
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri:
Óvenju rólegt var um áramótin
á Akureyri ab þessu sinni. Aðeins
gistu fimm manns fangageymslur
lögreglunnar á nýársnótt og tveir
voru teknir grunaðir um ölvun
við akstur.
Áramótin fóru fram í blíðskap-
arviöri á Akureyri eins og víðast
hvar um landiö og einnig með
fribi og spekt á mannamótum.
Margt fólk var á ferli og mikið um
flugelda. Engu líkara var en um
bjartan dag væri að ræba um mið-
nættib þegar flestir voru að
skjóta. ■
áfram en ekki mun komin nið-
urstaða í þau mál.
Áður hefur komið fram að
sérfræðingar veiðistjóra, sem
munu allir hætta um næstu
mánaðamót, hafi verið með
mikilvægar rannsóknir í gangi.
Eftir því sem næst verður kom-
ist er þó engin hætta á að nýtt
„Mógilsárævintýri" sé í uppsigl-
ingu og rannsóknir embættisins
verða kynntar og útskýrðar fyrir
nýjum mönnum. Engar upplýs-
ingar um þessi rannsókna- og
ráðningamál var að hafa hjá
starfsmönnum veiðistjóra en
hann var fjarverandi í gær.
Starfsmenn embættisins vísuðu
einfaldlega á ráðuneytið. Tím-
inn náði ekki í umhverfisráð-
herra vegna málsins seinni part-
inn í gær. Embætti veiðistjóra
mun flytja til Akureyrar frá og
meb 1. febrúar og mun nýr
veiðistjóri þá taka við eftir að
núverandi starfsmenn hætta.
Samkvæmt lögunum um vernd,
fribun og veiðar á villtum fugl-
um og villtum spendýrum á
veiðistjóri að hafa umsjón með
og stjórn á þeim aðgerðum af
opinberri hálfu sem ætlað er að
hafa áhrif á stofnstærð og út-
breiðslu villtra dýra eða tjón af
þeirra hálfu. Auk þess sér veiði-
stjóri um útgáfu veiðikorta og
ýmislegt fleira.
Aramótin í Reykjavík:
Engin stór-
slys á fólki
Um 70 manns komu á slysa-
deild Borgarspítalans á ný-
ársnótt en engir reyndust
miki& slasa&ir. Mest var um
áverka vegna slagsmála og
óhappa tengdum ölvun.
Ekki var mikið um bruna-
áverka en þó komu nokkur
tilfelli upp og m.a. hlaut
stúlka staðbundinn þriðja
stigs bruna eftir að flugeldur
komst inn undir klæði
hennar. Hún var flutt á
Landspítalann til meðferð-
ar.
Almennt var þó erilsamt
hjá lögreglunni þótt ekki hafi
verið mikib um alvarleg út-
köll. Raunar var rólegt vel
fram yfir miðnætti og það var
ekki fyrr en um 01:30 að út-
köllum fjölgabi og var talsvert
mikib að gera fram undir
morgun. ■
íslensk friöarsamtök, United Peace Foundation skora á jón Baldvin
ab beita sér i friöarmálum:
Allir herir aðildarlanda
SÞ undir eina stjóm
Samtökin United Peace Found-
ation sem stendur fyrir átaki
sem nefnist Peace 2000 — eða
Friður 2000, voru stofnuð um
borð í einkaþotunni Spirit of
Iceland sem er í eigu Ástþórs
Magnússonar athafnamanns
sem víða hefur lagt hönd á
Ákall um leikfangasöfnun fékk góbar undirtektir hér á landi og mun ís-
landsflug flytja leikföngin úr landi. Á myndinni má sjá Pétur Haflibason,
flutningsstjóra íslandsflugs, vib hluta af leikföngunum sem söfnubust.
Tímamynd CS
plóg við ýmis fyrirtæki, hér á
landi, í Danmörku og Eng-
landi.
Ástþór segir að samtökin hafi
verið stofnuð fyrir hálfu öðru ári
á flugi heim til íslands af nokkr-
um Islendingum. í stofnsamn-
ingi væri gert ráb fyrir að vinna
undirbúningsvinnu fram til 1.
apríl 1995, en þá hæfist eiginlegt
starf samtakanna.
Ástþór sagði í viðtali við Tím-
ann að samtökin væm í hópi um
2.200 samtaka víða um heim
sem vinna að fribi í heiminum.
En Ástþór telur að þessi íslensku
samtök, sem hafa skrifstofur í
Genf, eigi sérstakt erindi:
„Við teljum að ísland eigi að
láta ab sér kveöa á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna. Við vilj-
um í því efni skora á Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráöherra
að láta málið til sín taka og mun-
um skrifa honum bréf. Ein til-
lagna okkar er aö ísland vinni ab
því að Sameinuðu þjóbirnar taki
yfir varnarkerfi aðildarlanda
sinna í framtíbinni. Sú skipan
mála mundi gera heiminn frið-
vænlegri en hann er í dag," sagði
Ástþór Magnússon. Hann sagði
að heri landanna mæti nýta í
friðsamlegum tilgangi, til upp-
byggingar en ekki niðurrifs.
I jólafríi hér heima fékk Ástþór
þá hugmynd að safna leikföng-
um handa börnum í Hvíta Rúss-
landi, Chernobyl- börnunum,
sem svo hafa verið kölluð, en
fjölmörg þeirra búa viö örkuml
vegna geislunar á landssvæði þar
sem á þriðju milljón manna býr.
Sú söfnun fór fram milli jóla og
nýárs og tókst mjög vel og leik-
föngin send utan með flugi um
áramótin á vegum Chernobyl
Children's Project í Dublin.
„Hugmynd mín er sú aö ein-
beita mér algjörlega að þessu
starfi í framtíöinni. Auðvitað
þarf einhvern svona brjálaðan
mann eins og mig til að fara út í
starfsemi af þessu tagi og hætta í
viðskiptum. En ég hef mikinn
áhuga á aö vinna að málefnum
heimsfriðar og blöskrar að sjá
hvernig herir nútímans leika fólk
víða um heim", sagði Ástþór
Magnússon. ■