Tíminn - 12.01.1995, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 12. janúar 1995
3
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Starfsmenn lýsa
áhuga á hluta-
fjárkaupum
Frá Þórði Ingimarssyni, fréttaritara Tímans
á Akureyri:
Fjórði aðilinn hefur nú bæst í
hóp þeirra sem sýnt hafa áhuga á
hlutabréfum Akureyrarbæjar í Út-
gerðarfélagi Akureyringa. Er það
starfsmannafélag Útgerðarfélags-
ins, en fulltrúar þess afhentu Gísla
Braga Hjartarsyni, varaforseta bæj-
arstjórnar Akureyrar, bréf þess efn-
is í upphafi fundar bæjarstjórnar á
þribjudag. í bréfi starfsmannafé-
iagsins er vísað til frétta um hugs-
anlega sölu hlutabréfa í Útgerðar-
félaginu og í framhaldi af því
óskað eftir að koma að málinu
með möguleikum á hlutabréfa-
kaupum, ákveði bæjarstjórnin að
selja af hlut bæjarins í félaginu. í
ályktun frá stjórn starfsmannafé-
lagsins varðandi þetta mál kemur
fram það sjónarmið að umræða í
fjölmiðlum undanfarna daga hafi
skapað mikla óvissu og óöryggi á
meðal starfsmanna Útgerðarfé-
lagsins og þeirra fjölmörgu fjöl-
skyldna, er tengjast starfsemi þess
með einum eða öðrum hætti. í
ályktuninni segir einnig að fari
svo aö bærinn sjái sér ekki fært ab
halda meirihlutaeign sinni í félag-
inu, þá treysti stjórn starfsmanna-
félagsins því að þannig verði um
hnúta búiö að enginn einn aðili
verbi þar rábandi.
Fyrir fundi bæjarstjórnar á
þriðjudag lá tillaga frá bæjarráði
um ab skipa fimm manna nefnd
Biskup vísi-
terar í
Reykjavík
Næstkomandi sunnudag
hefst vísitasía biskups ís-
lands, hr. Ólafur Skúlasonar, í
Reykjavíkurprófastdæmi
Vestra, en þab verður í fyrsta
sinn í 200 ár sem biskupinn
vísiterar prófastdæmiö.
Reykjavíkurprófastdæmi
vestra nær frá Seltjarnarnesi að
Elliðaám og eru í því 10 sóknar-
kirkjur. Vísitasíurnar verða á
sunnudögum og hefjast með
guðsþjónustu á hverjum stað,
þar sem biskup prédikar.
Síðan er fundur með sóknar-
presti eða prestum, sóknar-
nefnd, starfsfólki kirkjunnar,
fulltrúum félaga innan safnað-
arins og skýrsla gefin um störf
og starfsmannahald. ■
til þess að annast viðræður við þá
aðila er sýnt hafa kaupum á hluta-
bréfum í félaginu áhuga. Var mál-
inu vísað til bæjarrábs aö nýju, ab
tillögu Jakobs Björnssonar bæjar-
stjóra, en gert er ráð fyrir að í við-
ræðunefndina verði skipaðir full-
trúar allra flokka er sæti eiga í bæj-
arstjórninni. Þá hefur verið ákveð-
ið að láta fara fram athugun á
hvaða áhrif breytingar á eignarað-
ild að Útgerðarfélagi Akureyringa
kunni að hafa á félagið og starf-
semi þess og einnig hvaða áhrif
þab hefði á framleiöslu- og sölu-
starfsemi þess verði tekin upp út-
flutningsvibskipti við íslenskar
sjávarafurðir í stað Sölumiðstöbv-
ar hraðfrystihúsanna, verði höfuð-
stöbvar ÍS fluttar til Akureyrar.
Nokkrar umræbur urðu um Út-
geröarfélagsmálið á fundi bæjar-
stjórnar og kom skýrt fram í máli
þeirra bæjarfulltrúa, er til máls
tóku, að í þessu máli yrði hags-
muna Akureyrarbæjar og bæjar-
búa gætt til hins ýtrasta.
Svandísi afhent verölaunin „Sunnlendingur ársins".
Svandís valin Sunnlendingur ársins
Svandís Gubmundsdóttir, 25 ára
húsmóðir á Selfossi, hefur verib
valin Sunnlendingur ársins af les-
endum blaðsins Dagskrárinnar á
Selfossi. Hún vann í apríl á síb-
asta ári frækilegt björgunarafrek,
þegar hún bjargaði tveggja ára
dreng frá drukknun í húsgrunni,
fullum af vatni.
Það var að morgni 18. apríl á síð-
asta ári sem Orri Davíðsson, tveggja
ára, féll ofan í húsgrunn fullan af
vatni. Svandísi tókst að ná drengn-
um upp úr köldu vatninu og segir
hún að ekki hafi mátt tæpara
standa. Drengnum varð ekki meint
af. Svandís segir þaö hafa valdið sér
vonbrigðum að þetta atvik hafi ekki
orðið til að gangskör yrði gerð að
endurbótum á öryggismálum barna
og unglinga á Selfossi. Hættur leyn-
ist afar víða — og hvergi þykir börn-
um skemmtilegra að vera að leik en
þar sem hætturnar eru mestar.
Svandísi voru veitt verðlaun frá
Dagskránni í tilefni þess að hún var
kjörin Sunnlendingur ársins. Ekki
var Svandís sú eina sem fékk at-
kvæði í kjörinu um Sunnlending
ársins. Meðal annarra sem atkvæði
fengu voru Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupfélags Árnes-
inga, sr. Þórir Jökull Þorsteinsson
sóknarprestur á Selfossi, og Guðrún
Svanhvít Magnúsdóttir, sem vann
frækilegt björgunarafrek í bruna á
Stöllum í Biskupstungum á nýárs-
nótt fyrir rúmu ári.
-SBS, Selfossi
Cylfi Arnbjörnsson: í þeim stööugleika sem menn sjá fyrir sér er 0,23% hœkkun framfrœslu-
kostnaöar gríöarlega stór hlutur:
Gjaldib ákveöiö án samhengis
viö áhrif þess á umhverfiö?
„Þetta sýnir ab þeir sem
ákvábu þessa gjaldtöku (hol-
ræsagjaldið) virbast taka þá
ákvörbun án þess ab setja hana
í samhengi vib þab sem er ab
gerast í umhverfinu. Maður
varb a.m.k. ekki var við að þab
hafi verib hluti af vangavelt-
unum hvaba áhrif þetta
mundi hafa, t.d. á skuldabyrbi
Reykjavíkurborgar, eba þá
landsmanna allra. En í því
efnahagsástandi og þeim stöb-
ugleika sem menn eru ab sjá
fyrir sér þá er 0,23% hækkun
framfærslukostnabar gríbar-
Iega stór hlutur," sagbi Gylfi
Arnbjörnsson, hagfræbingur
ASí.
Tíminn leitaði viðbragða
Gylfa gagnvart þeim miklu vísi-
töluhækkunum sem leiða af
upptöku holræsagjalds í Reykja-
vík og þeim mörg hundruð (400)
milljóna króna hækkunnum,
sem þær valda á skuldum lands-
manna um næstu mánaðamót,
eins og Tíminn sagði frá í gær.
Hann tekur fram ab ekki megi
kenna vísitölunni um þessa
hækkun. Vísitalan mæli einung-
is áhrifin af af ákvörbun ein-
hverra aðila — í þessu tilfelli
borgarstjórnar Reykjavíkur.
Gylfi segir ýmiss félög innan
ASÍ, m.a. Trésmiöafélagið og Raf-
iðnaðarsambandib, hafa sam-
þykkt harðorð mótmæli gegn
auknum álögum. Vísab sé til
þess ab gjaldtaka og skattlagning
á landsmenn — höfuðborgarbúa
í þessu tilfelli — sé meb þeim
hætti að ekki sé þar á bætandi.
Ákvörðun um holræsagjaldið
gangi í berhögg vib þetta.
Gylfi segir að vel kunni að vera
ab Reykjavíkurborg sé í erfibri
stöðu og hægt að færa ákvebin
rök fyrir nauðsyn aukinna tekna
til ab takast á vib þá erfiöleika.
En samt sem áður verbi ab líta til
þess að þeim, sem ætlað sé ab
borga þetta, hafi engan tekjuaf-
gang til að standa undir aukinni
gjaldtöku. Væntanlega sé því
með sama hætti hægt að færa
rök að því, að launþegum sé
nausynlegt að afla sér aukinna
tekna — og þar með að fara fram
með kauphækkunarkröfur gagn-
vart Reykjavíkurborg. Vegna
þess að staða heimilanna sé
þannig að ekki verði tekið á
henni nema með auknum tekj-
um, meb öðrum orðum launa-
hækkunum. ■
Framfœrsluvísitalan ekki hcekkaö meira síöan í ágúst 7 993:
Jólaveislunni nú lokiö
Sú tæplega 2% lækkun sem
varö á matar- og drykkjarvör-
um fyrir jólin (nóvember og
desember) er nú gengin til
baka, samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar. í byrjun janúar
höfðu þessar nauðsynjavörur
hækkað aftur um 1,8% að með-
altali. Það olli um 0,3% hækk-
un framfærsluvísitölunnar í
mánubinum. Hækkun húsnæb-
iskostnaðar (2%) ýtti vísitöl-
unni einnig upp um 0,3% og
veröhækkun á bílum um 0,1%.
Alls hækkabi framfærsluvísital-
an um 0,8% í janúarbyrjun —
og verður ab fara allt aftur til
ágúst 1993 til ab finna dæmi
um svo mikla hækkun milli
mánaða.
Samsvarandi hækkun (0,8%) í
hverjum mánuði mundi þýða
hátt í 10% verðbólgu á heilu ári.
En vegna þess að verðhækkanir
voru nær engar á nýliðnu ári er
framfærsluvísitalan núna í
janúar aðeins 1,7% hærri heldur
en hún var fyrir ári. Minni verð-
bólgu mun óvíða að finna í öbr-
um löndum. í nóvember sl. var
ísland raunar eina landið í ver-
öldinni með 12 mánaða verb-
bólgu neðan við núllib — þ.e.
framfærslukostnaö örlitlu lægri
en í sama mánuði ári áður. Með-
altal ESB-landanna var á hinn
bóginn 3% á sama 'tíma.
Aðurnefndar verbhækkanirn-
ar frá desember til janúar voru
mestar á kartöflum 9,9%, græn-
meti og ávöxtum um 8,9% ab
meöaltali, sykri 5%, kjötvörur
hækkuðu um 2% að meðaltali
og kaffi/súkkulaði litlu minna.
Traustar
vörur frá
Bílavörur
Sjúkravörur
Glærur
Post-lt
Disklingar
Hljóðbönd
Endurskinsefni Myndvörpur Rykgrímur
Límbönd Slípivörur
193 tegundir
Tölvubönd
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 568 7222 • MYNDRITI 568 7295