Tíminn - 12.01.1995, Síða 7
Fimmtudagur 12. janúar 1995
1H1 iMT rtbfr'jTLfr
swtnii
7
Þróunarsjóöur sjávarútvegs haföi um áramótin
greitt útgeröum 90 báta samtals 811 miljónir króna
i úreldingarstyrki:
4 miljaröar
í úreldingu
Um nýli&in áramót haf&i Þró-
unarsjó&ur sjávarútvegsins
greitt útgerðum 90 báta um
811 miljónir króna í úrelding-
arstyrki. Hinrik Greipsson
starfsmaður sjóösins segir a&
búi& sé a& samþykkja úreld-
ingu fleiri hundruö báta og
telur ekki ólíklegt a& sam-
þykktir úreldingarstyrkir sl.
árs nemi allt a& 4 miljöröum
króna.
í ársbyrjun gekk í gildi ný
reglugerð um Þróunarsjóbinn
þar sem gerö var sú breyting ab
styrkhlutfall vegna úreldinga á
fiskiskipum var lækkab úr 45%
af húftryggingarverbmæti fiski-
skips í 40%. Hinrik telur líklegt
ab eitthvab hægi á innlögbum
umsóknum um úreldingarstyrki
á þessu ári eftir ab þessi breyting
var gerb á styrkhlutfallinu.
Hinsvegar hefur stjórn sjóbs-
ins ekki enn ákvebib hvernig
stabib verbur ab úreldingu fisk-
vinnsluhúsa, en þegar hafa ver-
ib lagbar inn umsóknir um úr-
eldingu sex vinnslustöbva. Hin-
rik býst vib ab stjórnin muni
móta vinnureglur varbandi úr-
eldingu fiskvinnsluhúsa á
stjórnarfundi sem haldinn verb-
ur nk. mánudag, 16. janúar.
Meirihluti samþykktra úreld-
ingarstyrkja og umsókna er frá
útgerbum smábáta. Til marks
um þab eru heildarrúmlestir
þeirra 90 báta, sem þegar hafa
fengib greibslu, eitthvab um
2600 rúmlestir í heildina. Hin-
rik segir ab þessi mikli fjöldi
smábáta sé til marks um þá erf-
ibleika sem eru í útgerb smábáta
og þá einkum þeirra sem eru á
aflamarki. Hann segir ab þab
sé ekkert landsvæbi öbru fremúr
sem sker sig úr í fjölda umsókna
um úreldingarstyrki, sótt sé
um styrki frá öllum landshorn-
um.
Þá hafa vibbrögb bátaútgeröa
verib töluverb vib þeirri ákvörö-
un stjórnar Fiskveibasjóös ab
lána allt aö 1800 miljónum
króna vegna erfiöleika í bátaút-
gerb. Engin lánsumsókn hefur
enn veriö afgreidd hjá Fisk-
veiöasjóbi en lánin eru til nokk-
urra ára, afborgunarlaus fyrstu 3
árin, meb 7,5% vexti og gengis-
tryggö. Búist er vib ab þessir
vextir muni hækka um ein-
hverja punkta á næstunni því
vextir af erlendum lánum hafa
fariö hækkandi.
Þótt útgeröir allt ab 500 báta
geti sótt um þessi lán hjá Fisk-
veiöasjóöi, þá er ekki þar meb
sagt ab allar þeirra sæki um né
hafi burbi til ab bera viökom-
andi lán, vegna þeirra erfiöleika
sem hafa veriö í bátaútgeröinni
á liönum misserum. ■
Frá Vestmannaeyjum.
Fœkkaö hefur um 16 skip í Eyiaflotanum á 4 árum. Magnús Kristins-
son, formabur Útvegsbœndarélags Vestmannaeyja:
Botninum er ekki náb
Frá Þorsteini Cunnarssyni, fréttaritara
Tímans í Vestmannaeyjum:
Á sí&asta ári fækka&i bátum í
Eyjaflotanum um 8, þar af 6
frá 1. september sl. Þetta er
jafn mikil fækkun og á árun-
um 1990-1993, þannig aö á 4
árum hefur fækka& í Eyjaflot-
anum um alls 16 báta, en úr-
elding báta er þarna me&tal-
in.
Alþýöusamband Vestfjaröa krefst 7% hœkkunar á alla kaupliöi og
samninga er taka miö afbreyttum aöstœöum / sjávarútvegi:
Launajöfnun verbi
tryggb meb lögum
„Þá launajöfnun sem við semj-
um um á hverjum tíma á aö
tryggja me& lögum ef ekki er
hægt a& gera þa& á annan
hátt," segir Pétur Sigurbsson,
forseti Alþýbusambands Vest-
fjarba. Hann segir ab þa& ver&i
aö leita allra lei&a til ab koma í
veg fyrir a& hærra launaðir
hópar fái hlutfallslegar launa-
hækkanir og geri þar me& a&
engu árangur um launajöfnun.
í kröfugerb verkalýösfélaganna
á Vestfjöröum um breytingar á
kjarasamningi ASV, Vinnuveit-
endafélags Vestfjarba og Vinnu-
málasambands samvinnufélaga
er m.a. fariö fram á ab mánaöar-
laun hækki aö lágmarki um 10
þúsund krónur og almenn kaup-
hækkun á alla kaupliöi verbi 7%.
Lánskjaravísitölunni veröi enn
fremur breytt þannig ab launa-
hækkanir hafi ekki margfeldis-
áhrif á vísitöluna. Vestfirskt
launafólk krefst þess einnig aö
fiskverkafólki sem unniö hefur í 2
mánubi hjá sama fyrirtæki veröi
tryggöur réttur til launa, þótt
vinna falli niður vegna hráefna-
skorts eða annarra orsaka.
Þá er þess krafist aö stjórnvöld
eybi því misrétti sem er í verð-
mun á orkuver&i, skattleysismörk
verði hækkuð í 60.655 krónur og
tekjuskattsprósentan verbi lækk-
uð verulega. En síbast en ekki síst
telur ASV ab viöræður vib stjórn-
völd eigi að snúast um aukna at-
vinnu.
Athygli vekur ab í kröfugerö-
inni koma fram atribi sem taka
mið af breyttum aðstæðum í sjáv-
arútvegi á Vestfjörðum. M.a. er
farib fram á endurskoðun á
ákvæöum samninga um landanir
á ísfiski úr togurum og geröur
verði samningur um löndun úr
frystitogurum. Þá vilja verkalýbs-
félögin ab geröur verbi nýr samn-
ingur um vinnu í rækjuverk-
smiðjum, sem m.a. feli í sér
ákvæöi um vaktafyrirkomulag.
Desemberuppbót verði rúmar
20 þúsund krónur og verkafólk
sem unnið hefur í 5 ár hjá sama
atvinnurekenda eigL rétt á 25
daga orlöfi og 10,64% orlofsfé.
Eftir 10 ára starf verði orlofsdagar
26 og 11,11% orlofsfé. Ennfrem-
ur er þess krafist ab foreldrum
verði tryggður réttur til ab verja
allt aö 14 vinnudögum á hverju
12 mánaöa tímabili til aðhlynn-
ingar á sjúkum börnum. Einnig
að ákvæði komi í samninga aö
fólk haldi fullum launum í
ákveöinn tíma viö andlát nán-
ustu ættingja. ■
Magnús Kristinsson, formað-
ur Utvegsbændafélags Vest-
mannaeyja, segir að „þetta
hörmulega slys" á síbasta ári í
fækkun flotans hafi kostað um
80 sjómenn atvinnuna. Um
helmingur þeirra hafi komist á
önnur skip, sem hafa bætt vib
sig skipverjum, því kvóti hefur
flust yfir á þá í staðinn. Jafn-
framt því hefur aðkomusjó-
mönnum fækkaö og afleysinga-
pláss verið aukin á mörgum
bátum, þannig að áhrifin hafa
ekki verið eins víðtæk og marg-
ir hafa óttast.
Magnús segir að botninum sé
því miður ekki náð og líklega
eigi Eyjamenn eftir ab sjá á eftir
2 til 3 bátum til vibbótar ábur
en árið er á enda og þessi koll-
steypa stöðvast. „Þaö, sem er ab
gerast núna, er engin nýlunda.
Þab hefur alltaf gengib upp og
ofan, verið uppgangur í einni
tegund af útgerðarmynstri og
niburgangur í öðru. A árunum
1988-90 var t.d. mikill upp-
gangur í þessum svoköllubu
gámafiskveibum. Þá voru há
verb á erlendum mörkuðum og
flestir þessir bátar, sem við er-
um að missa núna, komu á því
tímabili. Síöan þá hefur verö er-
lendis lækkab verulega og
gámaútflutningur í dag er mjög
óverulegur. í dag er uppsveiflan
í rækjuveiðum og margir bátar,
sem hafa farib héban, hafa ein-
mitt farið á rækju. Þessi þróun á
eftir ab halda eitthvaö áfram.
Það má segja ab við séum ab
fara í gegnum hreinsunareld í
Eyjum, en það eru mörg önnur
píáss sem hafa gengið í gegnum
þetta. Þab voru mætir stjórn-
málamenn, sem vitnuðu í það á
sínum tíma aö uppgangurinn í
Eyjum væri óeðlilegur. Ég held
að Vestmannaeyingar ættu ab
hugleiða þau orb sem þá voru
látin falla. Nú erum við ab líba
fyrir að þessi skip eru aö fara."
Magnús segist alls ekki svart-
sýnn á framtíð Eyjanna. Hann
sjái ekki fram á algjört hrun, en
neiti því ekki að hann sé
áhyggjufullur yfir þróuninni í
fækkun Eyjaflotans á síðasta
ári. Það, sem af er þessu ári, er
þegar einn bátur farinn, Sigur-
borg VE ásamt 600 þorskígild-
um, til Hvammstanga. En
Magnús bendir á aö mikil hag-
ræðing hafi átt sér staö á und-
anförnum misserum í frystihús-
um í Eyjum. Nú séu þar tvö stór
frystihús í stab sex fyrir nokkr-
um árum, en reyndar hafi þab
haft í för meb sér aö kvóti og
vinnslan hafi færst á færri
hendur. ■
Oddviti Alþýöubandalagsmanna á Sigufiröi styöur Ragnar Arnalds stefnir sjálfur á annaö sœti á lista flokks-
ins í kjördœminu:
Ragnar öraggur í fyrsta sæti
Verulegar líkur eru á a& efstu
sætin á frambo&slista Alþý&u-
bandalagsins á Norðurlandi
vestra ver&i óbreytt. Forval um
uppstillingu fer fram á laugar-
dag, en þar er flokksbundnum
félögum heimilt að kjósa. Sigl-
fir&ingar rá&a nánast lögum og
lofum í flokknum í kjördaem-
inu eftir vel heppna&a smölun
fyrir forvaliö og þeirra þing-
mannsefni segist sty&ja Ragnar
Arnalds í 1. sæti og stefna sjálf-
ur á annaö sæti.
Ragnar Amalds er eini þing-
maður Alþýöubandalagsins á
Noröurlandi vestra, en varamað-
ur hans er Siguröur Hlöðversson á
Siglufirði. Anna Kristín Gunnars-
dóttir, bæjarfulltrúi á Sau&ár-
króki, var í þribja sæti listans fyrir
síbustu kosningar, en hún hefur
þrýst á um að verða færð upp um
eitt sæti. Forval Alþý&ubanda-
lagsins í kjördæminu fer fram í
tvennu lagi. Hib fyrra var haldið
um miðjan desember en í því
hafnaði Anna Kristín í öðru sæti á
eftir Ragnari meö átta atkvæba
mun. Siglfirðingar brug&ust vib
þessu meö því að fylkja sér um
sinn kandídat, Sigurð Hlöðvers-
son, og fyrir seinni umferö forvals
gengu 60-70 nýjir félagar í flokk-
inn á Siglufirði. Nú eru um 115
manns flokksbundnir Alþýðu-
bandsmenn á Siglufirði. Þab er
rétt tæpur helmingur flokksbund-
inna í kjördæminu öllu, en um
250 manns eru í Alþýöubandalag-
inu á Norðurlandi vestra. Með
góöri samhæfingu hafa því Sigl-
firöingar úrslit seinna forvals
nánast í hendi sér.
Ragnar Arnalds.
Að sögn Sigurðar Hlö&versson-
ar er hér um stu&ningsfólk Al-
þýðubandalagsins að ræða, sem
hingað til hefur ekki verið flokks-
bundið. Hann segist hins vegar
ekki hafa í hyggju ab ógna Ragn-
ari Amalds í fyrsta sæti listans.
„Ég sækist eftir ööru sæti og
styö Ragnar í þab fyrsta," sagbi
Siguröur í samtali viö Tímánn í
gær. Innan Alþýöubandalagsins
hefur veriö á kreiki orðrómur um
að Ragnar Arnalds muni láta af
þingmennsku á miðju næsta kjör-
tímabili, en hann hefur setib
samfleytt á þingi frá 1963 aö und-
anskildu einu kjörtímabili, 1967-
1971. Sigur&ur segir þetta ekki
upp á borðinu. „Vib höfum rætt
þaö og hann hefur boriö það al-
fariö til baka. Þetta eru bara sögu-
sagnir og tilbúningur." ■