Tíminn - 24.01.1995, Page 4
4
Þribjudagur 24. janúar 1995
ttMmt
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: jón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans
Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf.
Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Ráðherra utan
ríkisstjórnar
Atburöir þeir, sem þjóðin hefur fylgst með í
bæjarmálum Hafnarfjarðar að undanförnu,
hafa tekið á sig einkennilega mynd, og það
er greinilegt að forsætisráðherra er kominn í
einkennilega stöðu vegna afskipta sinna af
þeim málum. í íslenskri stjórnsýslu er skilið
á milli stjórnsýslustiganna tveggja, ríkis-
valds og sveitarstjórna. Framboð til þeirra
hefur að mestu verið á vegum stjórnmála-
flokka. Hins vegar hefur það verið svo að
sveitarstjórnarmönnum hefur verið af flokk-
unum treyst til þess að taka sínar eigin
ákvarðanir um samstarf við aðra flokka. Op-
inber afskipti stjórnmálaforingja þar af eru
ekki algeng. Tíminn vill ekki fullyrða um
hvað gerist á bak við tjöldin, en það vekur
óneitanlega athygli varðandi átökin um
meirihlutann í Hafnarfirði að formenn
þriggja stjórnmálaflokka skuli verða beinir
þátttakendur í þeim og sáttafundir skuli fara
fram á skrifstofu forsætisráðherra.
Nú er útlit á því að núverandi meirihluti í
Hafnarfirði haldi áfram, en eftir stendur að
hann hefur krafist rannsóknar á viðskiptum
Hagvirkis og Jóhanns G. Bergþórssonar við
fyrrverandi meirihluta Alþýðuflokksins á
síðasta kjörtímabili. Rannveig Guðmunds-
dóttir félagsmálaráðherra hefur tekið þá
skynsamlegu ákvörðun að segja sig frá því
máli vegna tengsla við Alþýðuflokkinn í
Reykjaneskjördæmi og eftir þetta kemur
upp einkennileg staða. Fulltrúar Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði krefjast þess að Davíð
Oddsson og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
komi ekki nálægt málinu. Þessi krafa virðist
eðlileg í ljósi beinna afskipta Davíðs Odds-
sonar af meirihlutasamstarfinu í Hafnar-
firði.
Því hefur heyrst fleygt að skipa verði sér-
stakan ráðherra utan ríkisstjórnarinnar til
þess að sinna þessu máli. í ljósi allra mála-
vaxta væri það rétt ákvörðun. Ef svo yrði, þá
væri það endir við hæfi á eindæma skraut-
legum ferli ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar.
Það er greinilegt að forsætisráðherra er í
mjög erfiðri stöðu í þessu máli. Hann getur
auðvitað sjálfum sér um kennt, því engin
nauð rak hann til afskipta af því. Þessi ofur-
áhersla á að viðhalda samstarfi við Alþýðu-
bandalagið í einu stærsta sveitarfélagi lands-
ins hlýtur hins vegar að vekja mikla athygli.
Ef til vill er það vísbending um hvert hugur-
inn stefnir eftir kosningar á sviði landsmál-
anna.
Óháðir alþýöubandalagsmenn
Óhábir félagshyggjumenn hafa
nú ákvebib ab ganga til banda-
lags vib Alþýðubandalagib í
Reykjavík og munu reykvískir
allaballar ganga til kosninga
undir formerkjunum „alþýðu-
bandalagsmenn og óhábir".
Handritið ab þessari framvindu
var skrifab af Gubrúnu Helga-
dóttur rithöfundi, sem kynnti
það meb pompi og pragt á
blaðamannafundi í þinghúsinu
í vetur og hratt þar meb af stað
mikilli breytingaskribu í íslensk-
um vinstristjórnmálum. Síðan
þetta framlag Gubrúnar kom
fram hafa allaballar verið ab
rekja sig eftir handritinu og nú
er semsé búið að ákveða að Ög-
mundur komi inn á listann sem
fulltrúi óháðra félagshyggju-
manna gagngert til þess, vænt-
anlega, að vinna ab framgangi
hagsmunamála félagsmanna
BSRB og annarra launamanna
innan þingflokks Alþýbubanda-
lagsins.
Laumukommar?
Á fundi óhábra um helgina,
þar sem formleg ákvörbun var
tekin um samstarf vib Alþýðu-
bandalagið, mátti sjá fjölmörg
kunnugleg andlit. Garri hélt
raunar um tíma að myndirnar,
sem sýndar voru í sjónvarpinu,
væru frá fundi í Alþýðubanda-
laginu sjálfu, því þarna voru
menn sem alla jafna hafa talist
til þekktra alþýðubandalags-
manna, s.s. fyrrum fram-
kvæmdastjóri flokksins. Mynd-
irnar voru hins vegar frá fundi
óháðra, en samsetning fundar-
manna skýrir e.t.v. hvers vegna
þeir sem jafnan kalla allaballa
„komma" segja að ef þessir til-
teknu óháðu félagshyggjumenn
séu ekki einfaldlega venjulegir
kommar, þá séu þeir í það
minnsta laumukommar. En
hvort sem „laumukommar" er
réttnefni eða ekki, þá er það yf-
irlýst staðreynd að þessir óháðu
félagshyggjumenn hafa aö
GARRI
mestu tekið við málefnagrunni
allaballa og gert hann að sínum.
Þannig að þó þeir hafi ekki vilj-
að stíga skrefið til fulls og ganga
í flokkinn og kalla sig flokks-
menn, þá eru þeir í það minnsta
svo skyldir flokknum að þeir
hljóta að teljast „óháðir alþýðu-
bandalagsmenn". Óneitanlega
hlýtur það almennt að teljast
fengur að fá Ögmund í pólitík-
ina. Forustumenn Álþýðu-
bandalagsins hafa líka haft vit á
því að taka fagnandi við hand-
riti Guörúnar Helga þar sem Ög-
mundur og BSRB eru skrifuð inn
í atburðarásina sem sérstök
annexía allaballanna. Einkum
má reikna með að Ólafur Ragn-
ar, sem lengi hefur haft Guð-
rúnu Helga í sínu stuðnings-
mannaliði, hafi verið ánægður
með frammistöðu þessa sam-
herja síns, því „Ögmundaður"
G- listi er auðvitað skrambi gott
svar við pólitísku hryggbroti frá
Jóhönnu Siguröardóttur. Hins
vegar er ekki víst að Þjóðvaka-
menn muni að sama skapi
kunna að meta að Alþýðu-
bandalagið sé orðinn sérstakur
vettvangur fyrir óháða félags-
hyggjumenn og launafólk.
Gagnsókn?
Einvígi Alþýðubandalagsins
og Jóhönnu um óháða félags-
hyggjusinnaða kjósendur
stendur nú sem hæst og ekki
veröur annað séö en allaballar
séu á ný að ná vopnum sínum
og hefja gagnsókn. Næst hljóta
menn að velta því fyrir sér hvort
Alþýðubandalagið nái ekki að
slá sér upp á Ögmundi og hin-
um launþegaforingjunum og
„stela" fyrrum Birtingarmönn-
um eins og Merði Árnasyni og
Kjartani Valgarðssyni til baka
frá Þjóðvakanum og fá þá til að
ganga til liðs við Alþýöubanda-
lagið á ný.
Átök Þjóðvaka og allaballa eru
farin að minna dálítið á baráttu
maóistahópa í framhaldsskól-
unum á áttunda áratugnum. Þá
voru til ótal mismunandi sam-
tök, sem öll kölluðu sig marx-
lenínista og gerðu kröfu til að
vera einu samtökin sem voru
sannir, réttir og hreintrúaðir
marx-lenínistar samkvæmt
hugsun Mao Tse Tungs. í dag
keppa menn um það hver sé
hreinasti, sannasti og rétttrúað-
asti sameiningarflokkur félags-
hyggjumanna. Er það Þjóðvak-
inn, Alþýðubandalagið eða
jafnvel Alþýðuflokkurinn?
Það skyldi þó aldrei vera aö
niöurstaðan yrði eins í dag og
hjá marx-lenínistunum á sínum
tíma: rifrildin voru vissulega
fjörug milli hópanna, en það
höföu bara engir aðrir en inn-
vígðir áhuga á þeim. Garri
Fitlað vib stjörnumerkin
Konunglega breska stjarnfræðifé-
lagið er nú farið ab ástunda laus-
ung og léttúbarfullar skobanir
eins og annab konunglegt í
úrkynjuðu heimsveldi, þar
sem prinsar og prinsipissur
leggja lag sitt við lausgirtar frama-
nornir og lauslætisgopa af uppa-
standi.
Konunglegir stjarnfræbingar
eru nú farnir ab fitla vib stjörnu-
merkin og gera ab engu tuttugu
alda vísindi og spádóma sem
byggja á stjörnumerkjunum 12
sem ráða örlögum manna og
kvenna í fortíö, nútíð og framtíð.
Ab leggja upp hóróskóp og spá
fyrir daglátum hvers manns eftir
afstöðu stjörnumerkis hans til
sólar er eins örugg leið til að sjá
inn í framtíðina eins og ab treysta
á stefnuskrár stjórnmálaflokk-
anna og aö hægt sé að reka þjób-
arbúið samkvæmt samþykktum
fjárlögum.
Þar sem konunglegir Bretar
geta hvorki séö neinar dyggðir né
æruverbuga pilsfalda í friði er
varla von til að þarlendir stjarn-
fræðingar geti setið á strák sínum
þegar tækifæri býðst til að spjalla
stjörnuspávísindin.
Dellan leibrétt
Samkvæmt kokkálabókum
breskra eru stjörhumerkin þrettán
í stab tólf og færast ljón í meyjar-
merki og meyjar í sporðdreka og
er þetta nú allt orðið í einu Ginn-
ungagapi, þar sem hvorki er sær
né upphiminn, en hórdómur
gríðarlegur, eins og stendur í nor-
rænni spádómsbók.
Má vera ab þrettán stjörnu-
merki gildi meðal konunglegra
Breta, sem sínkt og heilagt eru að
setja öbrum þjóbum gubs og
manna lög, og ibka svo konung-
legar siðvenjur heima hjá sér, en
fráleitt annars stabar. Stjörnu-
merkin eru tólf eins og daglega
kemur fram í Tímanum og Mogga
og þar meö basta.
Á víbavangi
Á blómaskeiði þeirrar syndugu
Babylonar voru stjörnumerkin
þrettán samkvæmt boði konung-
legra stjörnuspámanna og líferni
borgarbúa ekki par fínt, eins og
lesa má um í helgri bók. í þúsund
ár héldu menn stjörnumerkin
vera þrettán og flest fór í handa-
skolum þar sem allar þjóðhags-
spár og framreikningar byggöust
á hégiljum um stjörnumerkið
naðurvalda sem konungleg hind-
urvitni, bresk, vilja nú fara að
byggja framtíöina á.
Þab var Júlíus Sesar sem leið-
rétti delluna og síðan hafa hóró-
skópin byggst á tólf stjörnumerkj-
um. Visku sína sótti keisarinn til
Egyptalands, eins og íslenskir pír-
amítaspámenn síöar. Að minnsta
kosti einn austurlandafræðingur
telur ekki óhugsandi að Sesar hafi
lagt tíðahring Kleópötru til
grundvallar stjörnumerkjunum
tólf, en þau áttu innilegt sam-
neyti á sínum sögulegu tímum.
Þá hófst júlíanska tímatalið.
Harmóní Tíma og
Mogga
Moggi fer með stablausa stafi
þegar hann segir að hinn siðlausi
stjörnuhringur konunglegu
stjörnufræbinganna sé nýr. Þab er
alrangt; hann er eldgamall og
reyndist illa, enda byggður á
fölskum forsendum.
Stjörnuspámaður Tímans brást
hinn versti við þegar hann sá
hvaða áform þeir konunglegu
bresku falsspámennirnir hafa
varðandi stjörnuhringinn. Hann
bendir á hiö hárfína jafnvægi
milli tóif merkja spánna í Mogga
og Tíma. í Tímanum sagði um
ljónin á laugardag: Afstaða him-
intunglanna veldur því að kyn-
hvöt þín er hættulega mikil um
þessar mundir. Viðhöldin njóta
góbs af en makinn verður svibinn
sem endranær. Moggi um ijón á
laugardag: Gagnkvæmur skiln-
ingur ríkir í samskiptum félaga í
dag og þeir eiga ánægulegar
stundir saman.
Hér harmónerar stjörnuspáin
eins og hún hefur gert í tvö þús-
und ár og er mikill ábyrgbarhluti
að fara að rugla með hóróskópið
og gang himintunglana og kann
ekki góöri lukku ab stýra.
Lesendur Tímans þurfa ekki aö
óttast að farið verið að krukka í
stjörnuhringinn sem spáin er
byggö á, fremur en landbúnaöar-
stefnu Ingólfs frá Hellu sem blað-
ið stendur traustan vörð um,
hvernig sem veröldin annars velt-
ist. Konunglegar siðvenjur, bresk-
ar, geta þeir átt heima hjá sér en í
almáttugs bænum látið stjörnu-
hringinn í friði. Sjáið bara hvern-
ig fór fyrir Babylon og þrettán
stjörnumerkjum hennar.