Tíminn - 08.02.1995, Síða 10

Tíminn - 08.02.1995, Síða 10
10 Miövikudagur 8. febrúar 1995 Rebekka Eiríksdóttir frá Sandhaugum Rebekka Ein'ksdóttir fœddist á Sandhakgum í Bárðardal 10. ág- úst 1912. Hún andaðist á Land- spítalanum 28. janúar síðastlið- inn. Foreídrar hennar voru Eiríkur Sigurðsson, bóndi, og Guðrún Jónsdóttir kona hans, bœði fœddir Bárðdœlingar. Rebekka var yngst fimm systra, en eini bróðirinn var yngri. Systumar vom: Anna, húsfreyja á Selfossi, gift Birni Sigurbjörns- syni baukagjaldkera, Guðrún, sem lengi var í Kaupmannahöfh, en nú á Akureyri, ein á lífi þeirra systk- ina, Kristín Jóhanna, Ijósmóðir í Aöaldal, gift Þórhalli Andréssyni, Sigríðufj Ijósmóðir á Stokkséyri, gift Sigteði Sigurðssyni. Eini bróð- irinn vai Sigurður, bóndi á Sand- haugun\ en kona hans var Stein- unn KjaTtansdóttir. Rebekka ólst upp í fóðurgarði. Hún vaf nemandi í héraðsskólan- um á Laugum 1929-1931 og í Húsmceöraskólanum þar 1940- 1941. Hún giftist 1941 Halldóri Krist- jánssyni á Kirkjubóli, Bjamardal í Önundarfirði, og fluttist þangað. Þar bjó hún óslitið í rúm 30 ár, að öðm leyti en því, að vetuma 1946- 1950 var hún í Reykjavík. Á þeim tíma var hún m.a. við nám í Söng- málaskóla Þjóðkirkjunnar. Haust- ið 1973 settust þau hjón að í Reykjavík. Þau hjónin ólu upp þrjú fóstur- böm, sem em: Ósk Elín fóhannes- dóttir, húsmóðir í Reykjavík, gift Ólafi Sverrissyni, sjö bama móðir, Sigríður Eyrún Guðjónsdóttir, hús- móðir í Grindavík, gift Scevari Sig- urðssyni og eiga þau sex dœtur og Sœvar Bjöm Gunnarsson, múrari í Reykjavík. Úfór Rebekku fer fram frá Foss- vogskirkju í dag. Kvebja frá fósturdóttur Ég sit hér við dánarbeð þitt og kveð þig í hinsta sinn, með tár á kinn elsku besta fósturmóðir mín. Guð taki þig í himin inn, sitji englar yfir þér. Guð blessi þig. Enginn þér gleymir. Guð þig geymir. Drottinn blessi þig og varðveiti þig. Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þigoggefi þérfrið, í Jesú nafhi, amen. Far þú í friði, friðurguðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Innileg samúö, Halldór minn. Ósk Elín Jóhannesdóttir Ég var stödd í Bandaríkjunum er ég frétti urn andlát elskulegrar ömmu minnar þann 28. janúar s.l. Mér var mjög brugðið, því ég átti von á því að við myndum hittast á ný er ég kæmi til baka. Amma var alltaf svo sterk og bjóst ég því við að hún næöi mjög háum aldri. Hún haföi átt við veikindi að stríða um nokk- urt skeið og hafði legið á Land- spítalanum síðastliðna tvo mán- uði. Ég átti því láni aö fagna að búa hjá afa og ömmu. 2ja ára bjó ég hjá þeim í eitt ár og var síðan hjá þeim á sumrin til ellefu ára ald- urs, en þá fluttu þau til Reykja- víkur. Éftir það varö ég tíður gestur hjá þeim og fluttist síöan til þeirra sem unglingur og bjó hjá þeim í sjö ár. Sterkasta minningin um ömmu er hversu einstaklega góð og umhyggjusöm hún var við t MINNING mig alla tíö. Ástríki hennar var mikið og ég minnist þess hversu auðvelt það var að rata í hlýjan faðminn hennar þegar ég var lítil og hversu beint lá við að þakka henni alltaf fyrir matinn með kossi. Hún hafði gaman af því að syngja og segja sögur og ég man hve ég naut þess að hlusta á vís- urnar og sögurnar í orði og tón- um. Amma var mjög dugleg aö prjóna og sauma á barnabörnin sín og síðan barnabarnabörnin. Það voru ófáar flíkurnar, sem ég hef stolt gengið í um dagana, sem báru handbragð hennar. Það var gaman að sjá hvað amma var stolt af barnabörnun- um sínum. Hún hafði gaman af því að segja frá því að hún ætti engin börn, en aö hún ætti 13 barna- börn og sjö barnabarnabörn. Ég'var alltaf svo örugg hjá henni ömmu, alltaf var gott að leita til hennar. Þau afi voru ein- staklega umburöarlynd og alltaf tilbúin að greiða götu mína. Amma studdi mig með ráðum og dáð. Hún hvatti mig þegar ég var að gefast upp á náminu. Þessi hvatning varð til þess að ég kláraöi stúdentspróf og hef ég alltaf verið henni þakklát fyrir það. Hún bar hag annarra mjög fyr- ir brjósti og reyndist öðrum ákaf- lega vel, hún vildi allt fyrir aðra gera. Amma var mikil félagsvera. Hún naut þess að vera innan um fólk og var jafnan hress á mannamótum. Hún var hnyttin í tilsvörum og stutt í grínið. Það var henni mikils virði að eiga góða vini í stúkunni Einingunni. Amma haföi ákveðnar skoðan- ir á hlutunum og við vorum ekki alltaf sammála, en alltaf var mik- ill kærleikur okkar á milli. Þó svo að við værum ekki blóðskyldar, var samt meö okkur djúpur and- legur skyldleiki. Þó svo hún amma mín sé horf- in úr þessum heimi, er hún ekki horfin mér, því hluti af henni mun ætíö lifa í mér, allt sem hún kenndi mér, allt sem hún gaf mér mun ávallt vera meö mér, vera hluti af mér, sem ég mun síöan koma áfram til minna barna. Elsku afi minn, ég bið guö um að styðja þig og styrkja á þessum erfiðu tímum, er þú nú kveöur ástkæra eiginkonu, þú sem ert nýbúinn að kveöja kæran fóst- bróður þinn, sem kvaddur var um aldur fram. Með sorg í hjarta, en jafnframt þakklæti í huga fyrir þá náð aö hafa fengið aö deila með þér þessum árum, kveð ég þig, elsku amma mín. Er ég sit hér og skrifa um þig, skil ég betur og finn hversu umhyggja þín og ástúð hafði djúp áhrif á líf mitt. Þú varst mér sem ljós í lífinu og þab ljós mun ætíð skína innra með mér og lýsa mér veginn. Þú gafst mér dýrmæta gjöf, þú gafst mér af hjarta þínú. Það var mér mik- ils virði að eiga þig að. Hjartans þakkir fyrir ánægjulega samleið gegnum lífið. Við kveðjumst í bili, en minn- ingin um þig mun ætíð verma og minna mig á það sem þú kenndir mér, og eftir stendur vissan um að við hittumst aftur í ljóssins heimi. Blessuð sé þín minning. Sigurlaug R. Sœvarsdóttir Það greri lítill kvistur í grýttu holti hér, sá granni sproti lifir og er falinn þér og mér. Hann á að geta vaxið og orðið meiður sá sem öryggi og heilbrigði og bless- un stafar frá. Oggaman er að lifa þeim granna kvisti með, sem gerir holtið betra svo allir geta séð að prúðir menn og heilbrigðir byggja Breiðholt hér. Þá blessun vilja að sjáifsögðu all- ir kjósa sér. Og hvað sem líður aldri og okkar fjölda hér þá œtlum við að berjast fyrir því sem betra er, við viljum ftelsa ísland frá vímu og eiturreyk, við viljum ekki taka þátt í mann- skemmandi leik. Já, gaman er að vaka á verði eins ogþarf og vita að smáum höndum er líka œtlað starf. Og það er okkar draumur og okk- ar mark og mið að tnegi batna heimurinn við jafhrétti og frið. (H.Kr.) Fundarslitasöngur okkar í Kvisti hljómar í huga mér nú, er ég kveð góba vinkonu, enda voru hugsjónir hennar bundnar í textanum. Kynni okkar Rebekku urbu í upphafi þegar undirbúningur ab stofnun barnastúku í Breibholti var haf- inn. Maður hennar, Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli, knúði dyra hjá mér dag nokkurn til aö falast eftir aðstoö minni. Lét ég tilleiðast og finnst mér í minningunni að upp frá því hafi ég verið tíður gestur á heimili þeirra hjóna. Barnastúkan Kvistur nr. 170 var stofnuð 6. nóvember 1977 í Fellahelli. Frá upphafi var Rebekka lifandi þátttakandi í starfi stúkunnar. Hún var söng- elsk og spilaöi á orgel. Hún var óþreytandi viö að láta börnin syngja og bauð gjarnan heim til sín nokkrum börnum til ab kenna þeim lögin. Margt var gert skemmtilegt í Kvisti og mannvænleg börn glöddu okk- ur með athafnasemi sinni. Leik- in voru leikrit og um tíma átt- um við mjög skemmtilegan sönghóp, sem Rebekka æfði og leiðbeindi. Oft lá leibin heim til Rebekku og Halldórs til að ræða málin og oft var börnum stefnt til fundarins, því vissulega áttu þau að vera með í ráðum, enda vænlegt til þroska einsr.aklings- ins. Ohætt er aö segja að Rebekka náði góðum tengslum við börnin, ekki síst þau sem erfitt áttu með að sitja kyrr og hlusta. Hún var óþreytandi ab spjalla við þau og vissi um þeirra hæfileika og góðu hliðar og benti þeim á vænlegar leibir til að lifa vel. Veit ég að mörg þeirra minnast hennar í hjarta sínu alla tíð. Samstarfið í Kvisti þróaðist fljótt í góba vináttu og fylgdist Rebekka náið með mínum hög- um. Mat ég þab mikils hve gób- ur hlustandi hún var og eins þab sem hún lagbi til málanna, sem góö vinkona, þegar það átti við. Hún var tilfinninganæm og mikill náttúruunnandi og blóm- in hennar voru einhver þau feg- urstu sem ég hafbi séð. Margan afleggjarann fékk ég hjá henni og tókst ab koma sumum til þroska og njóta fegurðar þeirra. Rebekku var frændrækni í blóð borin og tryggð hennar vib frændur og vini einstök. Hún bar mikla umhyggju fyrir fóstur- börnum sínum og var hreykin af ömmu- og langömmubörn- unum og sýndi mér gjarnan myndir af þeim og sagði frá þeirra ágæti. Oft ræddi hún um sveitirnar sínar, bæbi Bárðardalinn, þar sem hún ólst upp, og Önundar- fjörðinn, þar sem hún bjó lengst af, og flest eöa öll sumur sóttu þau Halldór bába staðina heim eftir að þau fluttu til Reykjavíkur. í seinni tíð dvöldu þau hjón einnig á hverju sumri vikutíma í Galtalækjarskógi, sumarparadís okkar góbtempl- ara, þar sem Rebekka fylgdist meb gróðri og fuglalífi. Þau Rebekka og Halldór ræktu vel stúkufundi og hygg ég að varla hafi verið haldinn fundur hér í Reykjavík um árabil þar sem þau hefur vantað. Allt þar til hún lagbist á sjúkrahús í lok nóvember sl. fór Rebekka á stúkufundi og svo ríkur þáttur var það í hennar lífi að þó heils- an leyfbi ekki þátttöku lengur, var hugur hennar þar. Fársjúk spurbi hún um mitt fólk þegar ég leit til hennar. Hún hafði alla tíb fylgst grannt með heilsufari okkar, einkum þó dóttur minnar og hélst sú umhyggja allt til enda. Kvistur var ofarlega í huga hennar alla tíb og sætti hún sig aldrei til fulls við ab ekki var hægt ab halda starfinu áfram, en ýmsar aöstæður urðu þess valdandi og þar, sem víða ann- arstabar, skorti aöstobarfólk. Þau ár, sem barnastúkan var við lýði, voru gefandi og góður tími og er von okkar og bæn ab börnin hafi fengið hollt vega- nesti, sem þau búa að í framtíð- inni. Rebekka taldi-sín störf ekki eftir og eru ómældar þær stund- ir sem hún varði í þágu Góð- templarareglunnar, ekki síst fyr- ir Kvist. Rebekka var trú hugsjónum sínum alla tíð og vann að þeim af heilum hug. Hún átti sterka trú og eitt sinn, er ég leit við á sjúkrahúsinu, var henni, þá stund er hún vakti, efst í huga dásemd trúarinnar og ég veit hún sofnaði hinsta svefni með fullvissuna um eilíft líf. Ég kveð svo Rebekku mína í Drottins nafni! Katrín Eyjólfsdóttir Það var mikið lán fyrir samtök okkar góötemplara í Reykjavík þegar Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli og hans mæta kona, Rebekka Eiríksdóttir, gerðust fé- lagar stúkunnar Einingar. Sá liðskostur, sem okkur í Eining- unni bættist með tilkomu þeirra ágætu og samrýndu hjóna, hef- ur auðgað og bætt starfsemi hennar á marga vegu um tæp- lega hálfrar aldar skeið. Nú hefur Rebekka Eiríksdóttir horfið okkur sjónum. Hún lést, eftir nokkra legu á sjúkrahúsi, að morgni Iaugardags 28. janúar s.l., á 83. aldursári. Vib í Eining- unni sjáum því nú að baki ein- um úr hópi bestu félaga hennar. Á kveðjustund rifjast upp ýmis- legt tengt persónulegum kynn- um af Rebekku og framlagi hennar til starfs í Einingunni um áratuga skeið. Rebekka var hlý og vel gerð manneskja, sem kom fram af hispursleysi viö alla, jafnt háa sem lága, og glaðværð sveif yfir vötnunum þegar það átti við. Hún átti gott með ab tjá sig og hafði yfir að búa þeim hæfileika að segja fróðlega og skemmti- lega frá ýmsu sem hafbi á daga hennar drifið í starfi og leik. Eft- irminnilegt verður hversu stolt og hlýlega hún talaði um sveit- ina sína, æskustöðvarnar í Bárð- ardalnum og fólkið þar. Stund- um spurbi hún þann, sem þess- ar línur ritar og sinnti erindum fyrr á árum í Suður-Þingeyjar- sýslu, um menn og málefni, sem snertu á einn eða annan hátt Bárðardalinn. Var ekki laust við að undirritaður, sem borgarbarn, öfundabi þá, sem áttu slíkan minningasjóö, sem fólst í dalnum hennar og lífinu sem lifab var þar á fyrstu áratug- um aldarinnar. Fáir félagar hafa verið jafn trú- ir stúkunni sem Rebekka, hvað þátttöku í starfi hennar snerti. Hljómlistin var hennar sérgrein og aubgabi hún fundi meb org- elleik. Oft leiðbeindi hún minni og stærri hópum um söng, sem komu fram á samkomum gób- templara. Auk þess lét hún stundum að sér kveða, þegar mál voru rædd í stúkunni, og lagði ávallt gott til mála. Við Einingarfélagar minnumst Rebekku Eiríksdóttur með virb- ingu og þakklæti fyrir allt þab góða og ljúfa sem hún lét okkur í té meb vináttu sinni og í ánægjulegu samstarfi um langt skeið. Hugurinn leitar nú til Halldórs okkar, sem misst hefur mikið, en þau Halldór og Reb- ekka áttu að baki rúmlega hálfr- ar aldar farsælan hjúskap. Við sendum honum hugheilar sam- úðarkveðjur sem og öðrum ást- vinum Rebekku. Blessuð sé minning Rebekku Eiríksdóttur. Einar Hannesson Kvebja frá Kvenfélagi Mosvallahrepps Nú hverfur sól í haf og húmið kemur skjótt. Eg lofa góðan Guð, sem gefur dag og nótt, minn vökudag, tninn draum og nótt. Þú vakir, faðir vor, og vemdar bömin þín, svo víð sem veröld er og vonarstjama skín, ein stjama hljóð á himni skín. (Sigurbjörn Einarsson) Það var fyrir rúmum fimmtíu árum ab hún Rebekka kom norðan úr Bárðardal í Þingeyjar- sýslu og settist ab hér í Önund- arfirði. Það var þegar hún hitti hann Halldór og hóf með hon- um búskap á Kirkjubóli í Bjarn- ardal. Okkur kvenfélagskonum er ljúft ab minnast hennar, og þá ekki síst vegna þess ab hún var mikill hvatamaður að stofnun kvenfélags hér í sveit. Hún hafði ung kynnst kvenfé- lagsstarfi í Bárðardal og var sannfærð um að þesskonar fé- lagsskapur kvenna væri nauð- synlegur í okkar samfélagi. Það má því með sanni segja að með stofnun Kvenfélags Mosvallahrepps árið 1960 hafi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.