Tíminn - 10.02.1995, Page 7
Föstudagur 10. febrúar1995
t-.^-VKfrrtvrr iTi^
iTt BXiinfliTí B
WWrirWW
7
Akureyri:
Sölumibstöö hrabfrystihúsanna
- Jákvæb spor í atvinnulífi
Hart deiit um máiib á pólitískum vettvangi
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar sibastli&inn þri&judag bar
Heimir Ingimarsson, bæjarfull-
trúi Alþý&ubandalagsins, fram
tillögu um a& vísa frá sam-
þykkt bæjarrá&s frá fimmtu-
deginum á&ur, þess efnis a& af-
urðasala Útger&arfélags Akur-
eyringa hf. verbi áfram í hönd-
um Sölumi&stö&var
hra&frystihúsanna, en þess í
sta& kannab til þrautar hvort
samsta&a geti ná&st um a&
flytja afurbasölumálin til ís-
Ienskra sjávarafur&a hf. Tillögu
Heimis var vísab frá, en þess í
sta& samþykkt tillaga frá Jak-
obi Björnssyni bæjarstjóra um
a& honum yröi falib a& ræ&a
vi& forsvarsmenn íslenskra
sjávarafur&a hf. um hvort til
greina geti komib a& flytja ein-
hverja starfsemi á þeirra vegum
til Akureyrar.
Ákvörbun bæjarráðs Akureyr-
ar frá 2. febrúar um ab fara svo-
nefnda SH-leið, kennda við til-
bob Sölumiðstöðvar hrabfrysti-
húsanna, í málefnum Útgerð-
arfélags Akureyringa hf. og við
atvinnuuppbyggingu í bænum
byggöist á að ekki var talinn
meirihlu.ti í bæjarstjórn fyrir
því að færa afurðasölu útgerö-
arfélagsins til íslenskra sjávar-
afurða hf. í tengslum við flutn-
ing fyrirtækisins norbur. Eftir
að Gísli Bragi Hjartarson, bæj-
arfulltrúi Alþýðuflokksins,
hafði kunngjört þá afstöðu að
hann styddi áframhaldandi
viðskipti útgerðarfélagsins við
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna var ljóst að einungis bæj-
arfulltrúar Framsóknarflokks-
ins myndu stybja tillögu um
flutning afurðasölu útgerbarfé-
lagsins til íslenskra sjávaraf-
urða hf. Jakob Björnsson bæjar-
stjóri sagði á bæjarstjórnar-
fundinum ab hjákátlegt væri
hjá Heimi Ingimarssyni ab
koma með tillögu um ís-leið-
ina, kennda við flutning ís-
lenskra sjávarafurða hf. til Ak-
ureyrar, á þessu stigi málsins og
á hann yrbi ekki hlustaö þegar
hann reyndi ab koma sök á
Framsóknarflokkinn vegna
framvindu málsins. Núverandi
meirihluti í bæjarstjórn Akur-
eyrar 'byggði á heilindum og
sanngirni og ekki yrði hlaupið
til, þótt annar bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins léti lobin
ummæli um stubning við ís-
leiöina falla í blaðaviðtölum.
Heimir ekki nægi-
lega ákveðinn í
byrjun
Þótt hugur bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins hafi stað-
ið til þess ab fá íslenskar sjávar-
afurðir hf. til Akureyrar — sem
þeir töldu vænlegasta kostinn
til eflingar viðskipta- og at-
vinnulífi á Akureyri — þá
nægðu fimm atkvæði af ellefu
ekki til þess að koma málinu í
höfn. Fyrir lá afstaða þriggja
bæjarfulltrúa Sjálfstæbisflokks
um að þeir greiddu áframhald-
andi viðskiptum við sölumið-
stöbina atkvæði sín og Sigríður
Stefánsdóttir, annar bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, hafði
einnig látið í ljós stuðning vib
SH-leiðina. Hinn bæjarfulltrúi
Alþýbubandalagsins, Heimir
Ingimarsson, hafði hinsvegar
lýst nokkrum stuðningi við að
fá íslenskar sjávarafurðir hf.
norður, en þó einnig látið þess
getið að hann myndi hlíta
flokksaga í málinu, hver sem
hann yrði. í raun hefði atkvæði
Heimis Ingimarssonar nægt til
viðbótar atkvæðum framsókn-
armanna til þess að fá ÍS-leið-
ina samþykkta í bæjarstjórn, en
eins og bæjarfulltrúinn lagði
málib upp — einkum með til-
vísan til flokkshollustu og
einnig í ljósi sjónarmiða hins
bæjarfulltrúa flokksins — töldu
bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins ekki unnt ab treysta á
stuðning hans, þótt hann hafi
hnykkt betur á þessari afstöðu
sinni eftir bæjarráðsfundinn 2.
febrúar.
Framsókn — stuðn-
ingur við ab leiöa
málib til lykta
Dagana fyrir hinn sögulega
fund bæjarráðs Akureyrar
höfbu bæjarfulltrúar stjórn-
málaflokkanna átt fundi með
flokksfélögum sínum. Afstaba
sjálfstæbismanna var kunn fyr-
ir mánaðamótin og eftir fund í
alþýðuflokksfélaginu á Akur-
eyri í síðustu viku var ljóst hver
afstaða bæjarfulltrúa flokksins
yrði. Afstaða sem hæglega gat
fellt meirihlutann í bæjar-
stjórn. Á fundi í Framsóknarfé-
lagi Akureyrar að kvöldi mið-
vikudags 1. febrúar kynnti Jak-
ob Björnsson bæjarstjóri þá
stöðu málsins að ekki væri
meirihluti fyrir því á meðal
bæjarfulltrúa að færa afurða-
sölu Útgerðarfélags Akureyr-
inga hf. frá sölumiðstöðinni til
íslenskra sjávarafurba hf. Jafn-
framt óskaði hann eftir stuðn-
ingi fundarmanna til þess að
vinna málið til enda. í því fólst
í raun og veru ósk um stuðning
við að taka annan kost en
flutning íslenskra sjávarafurða
hf. norður, fremur en lenda í
minnihluta og afhenda and-
stæbingum ÍS-leiðarinnar mál-
ib til endanlegrar afgreiöslu.
Samþykkti fundurinn einróma
að fela bæjarstjóra og öbrum
bæjarfulltrúum flokksins að
leiða þetta mál til lykta á þann
hátt sem best yrði á kosið í ljósi
framkominna upplýsinga og
aðstæbna.
Reynt ab mynda
nýjan meirihluta
Til fundarins í framsóknarfé-
laginu bárust einnig þær fregn-
ir ab verið væri ab reyna að
mynda nýjan meirihluta í bæj-
arstjórn Akureyrar á bakvið
bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokksins. Að þeirri meirihluta-
myndun áttu bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins og Sjálfstæð-
isflokksins að standa og fá Gísla
Braga Hjartarson frá Alþýbu-
Akurcvringar bU» I cftirvantingu eflir tkvartun
'ogmeirihj.
'utínn
'~SSr~^iys,u
Meirihluti bæjat
Afruða Alþýðuba'
ilitum um ikvön i
j>um
1 Ddun nýs mcirihluta
rfaleysi
MÁLEFNl ÚA
^Vibræður við SH
stjórnar 1 hættu
lákiurflokkilba TTZyamdoi
!ð. fii alþýðuflok. un,dlkl Sv«ln»»o". y
aðknarmönnum i -pi / . ^ fW
gtrðarfélagi Akui mTUUA
(ilvarafurða. skrií 11 ^ ^
íSton taa&vi^
.staðat'v,-,/„ ðun Wn
n*stu viku
l*-
5553SÍ Bæjarstjóra fabð að
ræðaviðlSumfluto^
- ing að hlui^eðalhfíi
06rinn i
5*
:-5 Völd
Sláiinu
flokki til liðs við sig. Á fundi
bæjarstjórnar á þriðjudaginn
staðfesti Gísli Bragi að haft hafi
verið samband við sig vegna
hugmynda um nýjan meiri-
hluta, en kvabst jafnframt
aldrei hafa ljáð máls á að taka
þátt í slíku samstarfi.
FRÉTTASKÝRINC
ÞÓRÐUR INCIMARSSON, AKUREYRI
Klofningur hjá
Alþýbubandalagi
Alþýðubandalagsmenn fund-
uðu einnig í vikunni fyrir bæj-
arráðsfundinn 2. febrúar og
sátu á fundi í félagsheimili sínu
í Lárusarhúsi á sama tíma og
framsóknarmenn funduðu í
Hafnarstræti 90 miðvikudags-
kvöldið 1. febrúar. Á þessum
fundi urðu miklar umræður og
átök um hvernig taka ætti á
málinu. Vildu margir fundar-
manna ab bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins fylktu sér
um íslenskar sjávarafurðir hf.,
sem þeir töldu mun vænlegri
kost í ljósi þess ab um flutning
höfuðstöðva öflugs útflutn-
ingsfyrirtækis væri að ræba.
Einnig komu þau sjónarmið
fram að ekki væri skynsamlegt
fyrir Alþýðubandalagið að
ganga erinda Sölumiðstöbvar
hraðfrystihúsanna í þessu máli,
þar sem flokksforystan og
flokksmenn hafi oft gagnrýnt
ákveðin hagsmunatengsl nokk-
urra öflugra fyrirtækja í Reykja-
vík og talið þurfa að mynda
mótvægi gagnvart þeim — ekki
síst á landsbyggðinni. Tíminn
hefur heimildir fyrir því að hart
hafi verið lagt að Sigríði Stef-
ánsdóttur, bæjarfullrúa flokks-
ins, að styðja íslenskar sjávaraf-
urðir hf. í þessu máli. Hún mun
þó ekki hafa látið undan óskum
samflokksmanna, en talið að
verið væri ab ráðast ab sann-
færingu sinni, sem hún myndi
ekki breyta. Á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar á þriðjudag
gagnrýndi hún meirihluta bæj-
arstjórnar harðlega og sagði að
keyra hafi átt ákveðna niður-
stöbu, það er ís-leiðina, í gegn-
um bæjarstjórn án samráðs við
minnihlutann og einnig án
samráðs við stjórn og stjórn-
endur útgerbarfélagsins, sem
máliö hafi aldrei verib rætt við.
Stjórnendur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa hf. höfðu lagst á sveif
meb áframhaldandi viðskipt-
um viö sölumiðstöðina og beitt
sér nokkuð í því máli. Mebal
annars hafði Gunnar Ragnars,
framkvæmdastjóri félagsins,
látið þá skobun í Ijósi í blaða-
grein að varhugavert væri að
hrófla vib afurðasölu félagsins.
Sömu skobunar var Erlingur
Sigurðarson, íslenskufræbingur
og kennari, sem á sæti í stjórn
Útgerðarfélags Akureyringa hf.,
en hann er einnig eiginma&ur
Sigríðar Stefánsdóttur bæjar-
fulltrúa.
Fullur hugur ab
baki tilboði sölu-
mibstöbvarinnar
í blabagreinum og einnig
viðtölum við. fólk á Akureyri
hefur komið fram óánægja
með lyktir þessa máls, þótt
skoðanir séu vissulega skiptar. I
vibtölum við bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins hefur
komið fram að þótt þeir hafi
talið ÍS-leiðina betri kost, megi
ekki gleyma því að Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna hafi
gert bæjaryfirvöldum á Akur-
eyri athyglisvert tilboð, sem
teljast verði annar besti kostur
sem fram hefur komið í at-
vinnumálum um langan tíma.
í tilboði sölumiðstöðvarinnar
felst meðal annars stofnun SH-
Akureyri, sem verður útibú frá
fyrirtækinu með um 30 stöðu-
gildi og mun mynda nokkurn
þverskurð af starfsemi þess sem
heildar. Gert er ráð fyrir að
starfsemi SH-Akureyri muni
hefjast uppúr miðju sumri og
starfsemi umbúðafyrirtækis á
hennar vegum hefjist að stór-
um hluta innan sex mánaða og
að fullu innan eins árs. Þá er
gert ráð fyrir að flutningamið-
stöð Eimskips taki til starfa inn-
an níu mánaba og sett verði á
stofn prófessorsstaða í sjávarút-
vegsfræöum við Háskólann á
Akureyri um leib og stofnunin
er tilbúin til þess að taka við
henni. Þá er einnig til umræöu,
í tengslum við tilboð sölumið-
stöðvarinnar, kaup Jökla hf.,
Málningar hf., og DNG hf. á
hluta Landsbanka íslands í
Slippstöðinni hf. á Akureyri, en
með tilkomu flotkvíar sem Ak-
ureyrarbær hefur þegar fest
kaup á og væntanlegra niður-
greiðslna í skipaiðnaði ab dæmi
Evrópuþjóða má gera ráb fyrir
gerbreyttri verkefnastöðu þess
fyrirtækis, sem átt hefur í um-
talsverðum rekstrarerfiðleikum
eins og annar skipaiðnaður að
undanförnu.
Ekki ástæba til ab
óttast vanefndir SH
Nokkurra efasemda hefur
gætt á mebal fólks á Akureyri
um hverjar efndir SH-manna
muni verða, þegar ákvörðun
um abra staðsetningu íslenskra
sjávarafurða en á Akureyri hef-
ur verib tekin. Jakob Björnsson
bæjarstjóri segir að um van-
efndir þurfi ekki ab óttast af
hálfu sölumiðstöðvarinnar.
Slíkt fyrirtæki geri ekki stóru
bæjarfélagi á borð við Akureyri
tilbob af þessu tagi án þess að
fullur hugur og meining fylgi
máli. Auk þess séu allar fyrir-
hugaðar framkvæmdir sölu-
miðstöbvarinnar á Akureyri
tímasettar í bréfum meb á-
kveðnum dagsetningum. Akur-
eyringar munu eflaust deila á-
fram um þetta mál á meðan
forráðamenn Sölumiðstö&var
hraðfrystihúsanna undirbúa
flutning á hluta starfsemi þess
norður og haldib verður áfram
viðræðum við íslenskar sjávar-
afurðir hf. um hugsanleg aukin
viðskipti á Norbausturlandi og
möguleika á einhverri starfsemi
á þeirra vegum á Akureyri. En
hvaö sem öllum umræðum og
skobanaskiptum um þetta mál
líður, er ljóst að atburðir und-
anfarinna vikna munu skilja
eftir sig jákvæð spor í atvinnu-
lífi á Akureyri. ■