Tíminn - 22.02.1995, Blaðsíða 9
Mi&vikudagur 22. febrúar 1995
mr£..-í-—
wvRtvni
9
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
24.350 borg-
arar fallnir í
Grosníu
Moskvu - Reuter
Tölfræ&ileg skýrsla um manntjón
í Tsétsenju síðan Rússar gerðu þar
innrás fyrir tíu vikum var birt í
Moskvu í gær og segir þar -a&
24.350 óbreyttir borgarar í Grosníu
hafi látiö lífib í bardögunum.
Það voru sérfræðingar á vegum
Rússnesku mannréttindastofnunar-
innar sem unnu skýrsluna og telur
Interfax-fréttastofan að hér sé um
áreiðanlegar upplýsingar að ræða.
Tala látinna skiptist þannig að
börn innan fimmtán ára aldurs eru
3.700. Konur eldri en fimmtán ára
eru 4.650, karlar yfir fimmtugu
2.650 og óvopnaðir karlar á aldrin-
um fimmtán til fimmtíu ára eru
13.350. Þá segir í skýrslunni að auk
þess hafi 650 vopnaðir menn fallið,
og mun þar átt við bardagamenn úr
liði abskilnaðarsinna.
Ekki kemur fram í skýrslunni hve
margir úr liöi Rússa hafi fallið í
átökunum, en rússnesk yfirvöld
hafa lýst því yfir að þeir séu rúm-
lega þúsund. Rússar hafa ekki birt
tölur um þá óbreytta borgara í Tsét-
senju sem hafa látið lífið í bardög-
unum, en ab sögn Interfax kemur
fram í skýrslunni að sambærilegt
mannfall meðal óbreyttra borgara
hafi ekki orbið síðan í heimsstyrj-
öldinni síðari og þá í Póllandi. Megi
þó líta svo á að mannfallið í Gro-
sníu sé mun meira en þar varð, er
litið sé til þess að þessir 24.350 hafi
fallib á abeins tíu vikum en atburð-
irnir í Póllandi hafi tekib margfalt
lengri tíma. ■
Þakkar langlífið léttri lund
Arles - Reuter
Hún fæddist árið sem Anna
Karenína eftir Tolstoj kom út.
Það var sama ár og óperan Car-
men eftir landa hennar, Georg-
es Bizet, var frumsýnd, og ári
áður en Bell fann upp tals-
ímann.
Hún var sjötug þegar hún
fékk kosningarétt og hélt upp á
120 ára afmaelið sitt í gær. Hún
snæddi hádegismat ásamt nán-
ustu vinum sínum, krabba og
andarsteik sem skolað var niður
með kampavíni, eins og vera
ber á stórafmælum.
Jeanne Calment er elsti íbúi á
jarbríki, eftir því sem best er vit-
að. Hún var í heiminn borin 21.
febrúar 1875 og Michel Allard
sem er öldrunarsérfræðingur
ségir að þab sé ekki fyrst og
fremst hinn hái aldur, í árum
taliö, sem undrun sæti, heldur
það hve ern hún sé og andlega
hress.
Þegar hún var fjórtán ára hitti
hún Vincent van Gogh í eigin
persónu, en listmálarinn dvald-
ist langþmum saman í Arles og
málaði þar margar af sínum frá-
bærustu myndum. Þar var hann
líka þegar hann skar af sér eyrað
í örvæntingarkasti, svo sem
frægt varb, en þegar Jeanne Cal-
ment hitti hann fyrir var hann
enn meö bæbi eyrun. Hún segir
að hann hafi verið forljótur,
vibskotaillur og angandi eins og
spritttunna.
Þegar hún var um nírætt gerði
hún samning um það við fast-
eignaspekúlant nokkurn í Arles
Jospin sækir í sig vebrib
París - Reuter
Lionel Jospin sem franskir sósíal-
istar bjóða fram í forsetakosning-
um hefur höggvið mjög í fylgi for-
sætisráöherrans og hægrimannsins
Edouards Balladurs, ef marka má
niðurstöður skoðanakönnunar
sem birtar voru í dag. Samkvæmt
þeim fær Jospin 21-22% atvæða í
fyrri lotu kosninganna sem fram
fara 23. apríl og er þab um 1%
meira en Balladur fær í þessari
könnun.
Samkvæmt kosningaspá hefur
Balladur vinninginn yfir Jospin í
síöari lotunni sem verður 7. maí,
en þar munar þó ekki nema 6% á
þeim. í síðustu könnun sem fram
fór fyrir viku munabi 16% þannig
að með þessu áframhaldi gæti vel
farið svo að Jospin sigraði í forseta-
kosningunum. ■
Aðalfundur
1995
Aöalfundur Hampiðjunnar hf.
verður haldinn í funcjarsal
félagsins, Bíldshöfða 9,
Reykjavík, föstudaginn
24. febrúar 1995
| og hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
; 1. Venjuleg aöalfundarstörf.
j 2. Breytingar á samþykktum
félagsins til samræmis við
ný lög um hlutafélög.
j 3. Önnur mál,
Iöglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur,
svo og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn
verða afhent á fundarstað.
wm
að hann greiddi henni sem svar-
ar ríflega 30 þúsund ísl. krónum
á mánuði gegn því að íbúðin
yrði hans eign er hún félli frá,
en þangað til hefði hún fullan
og óskoraðan afnotarétt ab fast-
eigninni. Spekúlantinn er bú-
inn að margborga íbúðina og er
nú sjálfur kominn hátt á áttræð-
isaldur án þess að hafa haft ann-
að en útgjöld upp úr krafsinu.
Jeanne Calment hefur lifað af-
komendur sína, einkadóttur
sem dó úr lungnabólgu 1934, þá
36 ára að aldri, og dótturson
sem andaðist árið 1963. Hún
hefur verið ekkja í hálfa öld og
varð það eftir 54ra ára hjóna-
band.
Hverju þakkar hún langlífið?
Léttlyndi og hláturmildi, segir
hún. Ekki eru nema þrjú ár síð-
an hún hætti að reykja, en þeg-
ar hún var hundraö ára lagði
hún reibhjólinu sínu.
Skemmtilegasta endurminn-
ingin? Þegar hún flaug í þyrlu
árið 1939. „Mér fannst ég vera
orðin aö litlum fugli sem sveim-
aði í skýjunum. Það var óvib-
jafnanleg tilfinning," segir hún.
Einu fegrunarlyfin sem hún
hefur notað um dagana eru
ólífuolía og andlitspúður.
Augnaháralit segist hún ekki
hafa getað notað þar sem hún
haft svo oft grátið af hlátri.
Daginn fyrir afmælið höfðu
henni borist um fimm þúsund
bréf og a.m.k. fimm bækur um
hana eru að koma út í tilefni af
afmælinu.
Ellimörkin eru helst þau að
hún er blind og nær heyrnar-
laus, en þegar hún er búin að
jafna sig eftir hádegisverðinn og
kampavínið er von á áttatíu
gestum í kaffi og súkkulaðitertu.
Meðal gestanna verður franski
heilbrigðisráðherrann. ■
Fimmtán
ára mafíósi
gripinn
Napólí - Reuter
Fimmtán ára heróínsali hef-
ur verið handtekinn og mun
hér um ab ræða eitt yngsta
handbendi mafíunnar í Na-
pólí og nágrenni sem komist
hefur undir manna hendur.
Lögreglan gefur ekki upp
fullt nafn drengsins, sem
gengur þó undir nafninu Ciro.
Hann hefur stjórnað eitur-
lyfjasölu í heimabæ sínum,
Ercolano, sem er í næsta ná-
grenni við hina fornu borg
Herculaneum sem gjöreyði-
lagðist þegar fjallið Vesúvíus
gaus árið 79 e. Kr.
Ciro á tvo eldri bræður sem
afplána nú fangeisisdóma fyr-
ir þátttöku í skipulagðri
glæpastarfsemi. ■
Frá fimmtudegi til fimmtudags
Opið virka daga 9-20, laugardag 10-17, sunnudag 13-17
7
tilbobsdagar
Bílahússins
/ húsi Ingvars Helgasonar hf.
að Sœvarhöfða 2.
Þarfœrð þú nota&an bíl áfrábœru
tilbobsverbi og jafnvel engin
útborgun fyrstu 6-8 mánuðina.
Visa eða Euro greiðslukjör.
Frí ábyrgbartrygging
fyrsta hálfa áriðfylgir bílnum og
frítt bensín fram á sumar,
miðað við meðalakstur á meðalbíL
NÆST SÍÐASTI DAGUR
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2, SÍMI 91-674000.