Tíminn - 01.03.1995, Side 6
6
Mibvikudagur 1. mars 1995
UR HERAÐSFRETTABLOÐUM
EGILSSTÖÐUM
Skipbrots-
mannaskýlib í
Ingólfshöfba
endurbyggt
Ákveðib hefur verib að
byggja neyðarskýli í Ingólfs-
höfða, sem Magnús Ólafur
Hansson, formaður skýla-
nefndar S.V.F.Í., sat ásamt
félögum Slysavarnadeildar-
innar í Öræfum út í Ingólfs-
höföa þann 11. febrúar síð-
astliöinn. Gerð hefur veriö
kostnaðaráætlun fyrir verk-
ið, en áætlað er að það kosti
á bilinu ein og hálf til tvær
milljónir króna. Ekki hefur
enn verið gengið frá því
hvernig byggingin verður
fjármögnuð, en framlag
Slysavarnadeildarinnar í Ör-
æfum og Hofhrepps verður
samkvæmt áætlun á bilinu
fjögur til fimm hundruð
þúsund krónur.
Öræfingar hafa tekið að sér
að rífa innan úr tóttinni,
hlaöa nýja veggi og skaffa
rekavið í burðarvirki og á því
verki að vera lokið í endaðan
júlí. Stefnt er að því að end-
urbyggingu verði lokið 4.
nóvember í haust og þá fari
endurvígsla fram.
Skipbrotsmannaskýliö í
Ingólfshöfða var byggt árið
1912 ab tilhlutan Ditlefs
Thomsen kaupmanns, sem
var þýskur konsúll í Reykja-
vík. Mun strand þýska togar-
ans Friedrich Albert, sem
strandaði á Skeiðarársandi
1903, hafa verib hvati að
byggingu skýlisins, en þá lét-
ust átta skipverjar úr vosbúð
og kulda.
Átta árum fyrr hafði Ditlef
Thomsen beitt sér fyrir bygg-
ingu skýlis á Kálfafellsmel-
um og var það fyrsta skip-
brotsmannaskýlib sem reist
var hér á landi. Skýlið í Ing-
ólfshöfða var á sínum tíma
byggt af heimamönnum í
Öræfum og má til gamans
geta þess að kostnaður við
bygginguna var samkvæmt
reikningi 310 krónur.
Framkvæmda-
stjórl rábinn
til aö sjá um
„Drekann'
Sex umsækjendur sóttu
um starf framkvæmdastjóra
við iðnsýninguna „Drek-
ann", sem haldin verður í
íþróttahúsinu á Egilsstöðum
23. júní-2. júlí í sumar.
Stjórn Drekans hefur ákveð-
ið ab ganga til liðs við
Hrefnu Hjálmarsdóttur.
Hrefna er frá Neskaupstaö
og er að ljúka námi í mark-
aðsfræöi frá Lundarháskóla í
Svíþjób.
A sýningunni, sem er sam-
starfsverkefni Egilsstaðabæj-
ar og Atvinnuþróunarfélags
Austurlands, gefst fyrirtækj-
um í fjóröungnum tækifæri
til að kynna framleiöslu sína
og starfsemi. Sýning undir
sama nafni var haldin í
íþróttahúsinu á Egilsstöðum
sumarib 1989 og þótti takast
mjög vel.
AKUREYRI
íslandsmót unglinga í frí-
stældansi:
16 ára Sauöár-
króksmær sigraöi
„Ég átti nú ekki von á því ab
vinna þennan titil," sagbi Ragn-
dís Hilmarsdóttir, 16 ára Sauð-
árkróksmær og nýkrýndur ís-
landsmeistari í einstaklings-
keppni unglinga í frístældansi.
„Þab er samt ansi mikil hvatn-
ing fyrir mig að vinna til þess-
ara verðlauna og ég vona ab
þetta verði einnig hvatning fyr-
ir aðrar stelpur hér."
Alls tóku 10 keppendur þátt í
einstaklingskeppninni, sem
fram fór í Tónabæ í Reykjavík
fyrir skömmu og sigraði Ragn-
dís með glæsibrag. Sigurdans-
inn kallar hún Soul Sacrifice og
samdi hún hann sjálf.
Ragndís'hefur stundað er-
óbikk í ein sex ár og kennir í
líkamsræktarstöðinni Hreyfingu
á Sauðárkróki. Auk þess stundar
hún nám í Fjölbrautaskóla Nl.
vestra. Þetta var í þriðja og síð-
asta sinn sem hún tekur þátt í
frístælkeppni, því keppendur
mega ekki vera eldri en 16 ára.
Hún varð í þriðja sæti í keppn-
inni í fyrra, öðru sæti árið áður
og því kom ekkert annað til
greina en sigur í lokatilraun-
inni.
Þetta var í 14. sinn sem þessi
keppni er haldin, og eins og áb-
ur var stemmningin í Tónabæ
góð. Einnig var keppt í hópa-
keppni og þar varð hópurinn
Fókus frá Selfossi hlutskarpast-
ur.
Camla skipbrotsmannaskýliö í Ingólfshöföa er komiö til ára sinna,
en þaö var byggt áriö 1912.
Skólastjórinn í Mývatns-
sveit hættir störfum:
„Ekki vinnandi
viö þetta"
Garðar Karlsson, skóla-
stjóri Grunnskóla Skútu-
staðahrepps, hefur ákvebið
að hætta sem skólastjóri í
Mývatnssveit aö afloknu
þessu skólaári og hverfa til
annarra starfa. Ástæðuna má
rekja til þeirrar illvígu deilu,
sem upp kom í sveitinni sl.
haust, og þess að ekkert hef-
ur veriö gert síðan til að
vinna úr þeim málum. Garb-
ar segir ab það sé einfaldlega
ekki vinnandi vib þessar að-
stæður. Sl. haust átti að færa
allt skólahald undir eitt þak í
nýju skólahúsi í Reykjahlíð
og leggja af skólahúsið á
Skútustöðum. íbúar í suður-
hluta sveitarinnar neituðu
ab senda börnin í skólann
og var loks komið upp skóla-
seli í sybri hluta sveitarinn-
ar.
Hluti af samkomulaginu
sl. haust var að skipa þriggja
manna nefnd, sem í væru
tveir heimamenn og einn frá
menntamálarábuneyti. Sú
nefnd hefur enn ekki fund-
ab. „Það er gersamlega óvið-
unandi að halda þessu
áfram, þar sem ekkert hefur
verið gert í tæpa fimm mán-
uði til að leysa málið. Við
stöndum í nákvæmlega
sömu spomm og í haust. Eg
neita því þriðja árið í röð að
fara að skipuleggja eitthvert
skólastarf, sem síðan gengur
ekki eftir. Þessi deila er með
þeim eindæmum að það er
ekki vinnandi við þetta og
ég er því farinn," sagði Garð-
ar.
Ragndís Hilmarsdóttir, íslandsmeistari í frístœlkeppni unglinqa, meö
sigurlaunin.
Félagar í karlakórnum Söngbræörum á æfingu í Logalandi. Tímamynd: tþ
Tapmiklir Söngbrœbur / Borgarfiröi:
Listagyðjan á greiða
leið að borgfirskum
bændahjörtum
Ekki verður annaö sagt en
listagyðjan eigi greiða leib aö
borgfirskum bændahjörtum,
en um þrjátíu piltar á öllum
aldri koma saman á hverju
fimmtudagskvöldi í Loga-
landi í Borgarfirði og æfa
söng. Þeir skipa karlakórinn
Söngbræbur, sem sungiö hef-
ur sig inn í hug og hjörtu
Borgfiröinga í á annan ára-
tug. Stjórnandi kórsins er Jac-
ek Tosik Warszawiak, en
hann er jafnframt píanó-
kennari viö Tónlistarskóla
Borgarfjaröar.
Jacek tók við stjórn kórsins af
Sigurði Guðmundssyni á
Kirkjubóli sl. haust. Sigurður
hefur stjórnað kórnum frá upp-
hafi og var einn af stofnendum
hans, en ákvað að taka sér hlé
frá stjórninni í vetur.
Eins og Gunnar Örn Guð-
mundsson, formaður kórsins,
orðaði það í samtali við Tím-
ann þá byrjaði kórinn ekki meb
því að menn sögðu: „Hæ, nú
skulum við stofna kór," heldur
hófst þetta meb því að nokkrir
piltar í Hálsasveit byrjuðu að
raula saman og Sigurður Guð-
mundsson var þeim til aðstoð-
ar. Upp úr því var kórinn stofn-
aður og kallaöur Söngbræður,
en nafnið er m.a. til minningar
um kór sem hét Bræðurnir og
var starfandi í Borgarfjarðarhér-
aði á árum áður.
Kórfélagar stefna að því að
taka þátt í karlakóramóti, sem
haldið verður á Höfn í Horna-
firði í maí næstkomandi. Útlit
er þó fyrir að ekki eigi allir kór-
félagar heimangengt, þar sem
sauðburður verður um það bil
að fara á fulla ferð. Auk þess
kemur kórinn til með að halda
árlega vortónleika og heim-
sækja nágrannakóra. Meðal
annars á kórinn heimboð á
Lóuþrælunum í Húnavatns-
sýslu.
TÞ, Borgamesi
Akureyri:
Gamla Sjalla-
stemningin á ný
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara
Tímans á Akureyri:
Hugmyndir em um að endur-
vekja gömlu Sjallastemninguna
á Akureyri, sem vinsæl var á
fyrri árum og eftirlæti Akureyr-
inga og ekki síður ferðamanna.
Þab er Þórhallur Arnórsson,
fyrrum þjónn á Hótel KEA og
eigandi Listhússins-Þings á Ak-
ureyri, sem ætlar að takast á við
þetta verkefni ásamt Elíasi
Árnasyni, matreiðslu- og kjöt-
iðnabarmanni. Elías starfaði
einnig hjá Hótel KEA á árum
áður, en undanfarin ár hefur
hann starfab við veitingahúsið
Brekku í Hrísey.
Þeir Þórhallur og Elías hafa
tekið Sjallann á leigu og hefja
reksturinn 1. mars næstkom-
andi. Þeir ætla að leggja áherslu
á að endurvekja þá gömlu,
góbu daga þegar Sjallinn var
eitt vinsælasta skemmtihús
landsins. Verður það meðal
annars gert með því ab hækka
aldurstakmark á laugardags-
kvöldum úr 18 ámm í 20 ár og
leggja þannig áherslu á
skemmtun fyrir eldra fólk, en
miða fremur við yngra fólk á
föstudagskvöldum og hafa 18
ára aldurstakmark þar áfram.
Þeir hyggjast einnig hefja rekst-
urinn með sérstakri skemmti-
dagskrá, sem nefnist „Norðan
grín og garri". Hún er eftir
Gísla Rúnar Jónsson og flutt af
Þórhalli Sigurðssyni, ööru nafni
Laddi, þar sem hann mun
bregða sér í hin margvíslegustu
gervi eins og honum einum er
lagið.
Ætlunin er að bjóba upp á
þríréttaða máltíö, skemmtidag-
skrá og dansleik á eftir.
Viðbrögð við þessari ný-
breytni þeirra félaga ætla að
verba góð og fólk þegar fariö að
bóka sig á fyrstu sýningarnar.
Sjallinn er með stærri skemmti-
húsum landsins, tekur um 230
manns í sæti í aðalsal, um 75 í
hliðarsal og um 125 á Dátan-
um, sem er krá í sama húsnæði
og rekin í tengslum við Sjall-
ann. ■