Tíminn - 30.03.1995, Page 11

Tíminn - 30.03.1995, Page 11
11 ■ ... -i _ . -:~t Fimmtudagur 30. mars 1995 ómenguðu umhverfi og sé sér- stök. En það þarf ansi mikiö til að koma þessu til neytenda. Fyrir nokkrum árum var mikil umræða um óhollustu kindafit- unnar í sambandi við hjarta- sjúkdóma. Hverttig metur þú þá um- rceðu ttú? Það hefur mjög slegið á þann orðróm að kindakjöt, sérstak- lega feitt kjöt, sé óheppilegt meö tilliti til hjartasjúkdóma. Það var t.d. gerð samanburðar- rannsókn á bændum sem voru upprunnir af Fljótsdalshéraði, annars vegar á þeim sem bjuggu vestur í Kanada, Vestur- íslendingum, og hins vegar þeim sem bjuggu áfram á Her- aðinu. Niðurstaðan var sú að þeir sem bjuggu heima höföu miklu sjaldnar fengið hjarta- sjúkdóma en hinir sem fluttu. Ennfremur kom í ljós að kinda- kjötið inniheldur svokallaöa Omega-3 fitusýru, sem dregur mjög úr hjartsjúkdómum, en þetta er nú veriö að rannjaka áfram og við höfum svo sem ekki fengið fullnaðarniðurstöð- ur sem hægt hefur verið að nota beint í þetta. Óvissan felst einkum í að menn vita ekki hvernig á þessu stendur en vís- indamenn vilja meina að þessi Omega-3 fitusýra verði ekki til nema í sjónum svo að væntan- lega tengist þetta fiskimjöls- og lýsisgjöf, sérstaklega á með- göngutíma. Síðan er það gagn- vart matreiðslunni að nú er miklu meiri tilhneiging, t.d. á veitingastööum á borð við Hót- el Sögu, að nota vöðva af feit- um skepnum og steikja í eigin feiti. Hér áður vildu mentt sem feitast kjöt, á undanfórnum árum magurt og nú kannski aftur feitt kjöt. Hvernig er brugðist við þessu í rcektun- inni? Það er nú þannig að þessi lausa fita utan á skrokknum er ekki söluvara og kannski verður svo að vera með lægra verð á feitu kjöti að það verður aö vera hægt að skera svolítið utan af vöövunum. Ný tækni gefur aukna möguleika í ræktuninni, það er ómsjáin, þar sem hægt er að skoða hryggvöövann í lif- andi kindum og mæla annars vegar þykktina á vöðvanum og hins vegar þykktina á fitulag- inu utan á honum. Þetta er gert við langflesta lambhrúta og töluvert mikið við ásetnings- gimbrar líka og það hefur orðið verulegur árangur, þannig að fitan verður í vöðvunum en liggur ekki utan á þeim. í þessu eru því kynbæturnar fólgnar. Annars er margt óljóst um þetta, t.d. af hverju fitan safn- ast utan á skrokkinn og trúlega er eitthvert náttúrulögmál að verki. Þegar lömb fá trénað gras sem farið er að falla á haustin og þá fariö að innihalda minna prótein, séu skilaboð náttúr- unnar um að nú þurfi að fara að undirbúa sig undir veturinn og undirbúningur undir ís- lenskan vetur er auðvitað fyrst og fremst sá að safna fitu utan á skrokkinn, til varnar kulda og sem næringarforði. Margir telja að svarið við þessu sé að hafa fóðurkál eða áborin tún sem beint framhald af vorgróðrin- um, lengja einfaldlega sumarið, þannig að lambið haldi áfram að stækka í stað þess að safna utan á sig fitu. Eins telja ýmsir að flýta mætti sláturtíðinni, bæði vegna þessa og til að dreifa sölutímanum meir og lengja hann þannig til sölu á fersku kjöti. Hvað er haegt að segja um gcerur og ullina? Á tímabili var mjög erfitt að selja gcerur, ekki satt? Jú, jú en þær hafa yfirleitt selst, en á mjög lágu verði, en þar varð í rauninni nokkur breyting á haustið 1993 þegar erlendir aðilar, aðallega Spán- verjar, fóru að sækjast eftir gær- um. Menn héldu fyrst í stað, að minnsta kosti, að um yfirboð væri að ræða til að gera út af við íslenskan skinnaiönað sem er í beinni samkeppni við þá um mokkaskinnsmarkaðinn á Ítalíu. Á síðasta ári hækkaði verð á mokkaskinnum talsvert þannig að siðastliöið haust treystu verksmiðjurnar hér sér til að greiða u.þ.b. 30% hærra verð fyrir gærurnar, þ.e.a.s. svipað og Spánverjarnir hafa boðið og því var mjög lítið flutt út af gærum nú síðast. Þetta með ullina er nú svolít- ið merkilegt líka, en það var nú þegar ég fór að starfa að þessum félagsmálum og geröist formað- ur Landssamtaka sauðfjár- bænda 1991, þá var fyrirtækið Álafoss farið á hausinn og ekki tekið á móti neinni ull í land- inu. Upp úr þessu var stofnað fyrirtækiö ístex, íslenskur text- íliðnaður hf. sem er nú al- menningshlutafélag og meðal hluthafa eru fyrrverandi starfs- menn Álafoss og bændur. Fyrir- tækið tekur sem sé við ullinni frá bændum, þvær hana í ullar- þvottastöð í Hveragerði og vinnur hana í band eða lopa uppi í Mosfellsbæ. Þetta hefur gengið vel, það hefur verið mikil aukning á sölu, sérstak- lega handprjónabandi, þannig að þetta er svona dálítið í sömu átt og með gærurnar. Hve stórt þarf fjárbú að vera til að geta framfleytt meðalfjöl- skyldu? Það er náttúrlega ákaf- lega misjafnt en segja má að þeir bændur, sem byggðu upp rétt áður en verðtrygging lána komst á og eiga þá eignir sínar skuldiausar, standi best að vígi. Þó er miðað við að 400 kindur gefi 1,6 ársverk. Hvað með framtíðina, hvernig verður staðan um ncestu aldamót? Nú er mikið talað um kinda- kjötið sem vistvæna fram- Ieiðslu í óvanalega ómenguðu umhverfi. Með nægri kynningu getur verið að fólk í löndum sem eru orðin mjög mikið menguð af allskonar efnum, fari að sækja í þessa framleiðslu og þá eru þarna möguleikar sem gætu líka gefið sanngjarnt og raunhæft verð. Viðtal: Stefán Böövarsson DAGBOK |V/UV/L/U\J\JUVJVA/LAJ| Fimmtudaqur 30 mars X 89. daqur ársins - 276 dagar eftir. 13-vika Sólris kl. 6.54 sólarlag kl. 20.12 Dagurinn lengist um 7 mínútur. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Bridskeppni, tvímenningur, kl. 13 í Risinu. Hressingarleikfimi á mánudögum og fimmtudögum kl. 10.30 í Víkings- heimilinu Stjömugróf. Latvija, vináttufélag ís- lands og Lettlands Aðalfundur félagsins verður hald- inn í Námsflokkum Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, á morgun, föstu- dag, kl. 17. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Mætum stundvíslega. Félag kennara á eftirlaunum Félagsvist verður í Kennarahúsinu laugardaginn 1. apríl kl. 14. Þórdís Elín Jóelsdóttir sýnir í Gallerí Úmbru í dag, fimmtudag, opnar Þórdís El- ín Jóelsdóttir sýningu í Gallerí Úm- bru, Amtmannsstíg 1, kl. 17-19. Þórdís stundaði myndlistarnám á listasviði Fjölbrautaskólans í Breið- holti 1982-'85 og útskrifaðist úr graf- íkdeild Myndlista- og handíðaskóla íslands vorið 1988. Hún er meðlimur myndlistarhópsins Áfram veginn, sem rekur grafíkverkstæði í Þing- holtsstræti 5. Hópurinn hefur haldið nokkrar samsýningar, síðast í Ás- mundarsal 1990. Þetta er þriðja einkasýning Þórdísar. Myndirnar á sýningunni em unnar með gouache- og vatnslitum á gler- plötu og þrykktar á þunnan pappír. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga kl. 13-18, sunnudaga kl. 14-18, skírdag og annan í páskum kl. 14-18. Lokað föstudaginn langa og páskadag. Samtök herstöðvaandstæðinga: Fundur í Risinu í kvöld Samtök herstöðvaandstæðinga boða til fundar í kvöld, fimmtudag, til að vekja athygli á baráttumálum sínum. Fundurinn verður í Risinu, Hverfisgötu 105, og hefst dagskráin kl. 20.30. Á fundinum stýrir Silja Aðalsteins- dóttir dagskrá um ættjarðarljóð Guð- mundar Böðvarssonar skálds á Kirkjubóli, en eins og kunnugt er hlaut bók hennar „Skáldið sem sólin kyssti", sem er ævisaga Guðmundar, íslensku bókmenntaverðlaunin 1994 í flokki fræðirita. Meöal ræðumanna á fundinum em þau Soffía Sigurðar- dóttir formaður Samtaka herstööva- andstæðinga, Guðrún Halldórsdóttir alþingiskona Kvennalista, Mörður Árnason íslenskufræðingur (Þjóð- vaka) og Svavar Gestsson alþingis- maður Alþýðubandalagsins. Einar Kristján Einarsson leikur á gítar og loks mun Þorvaldur Örn Árnason stýra fjöldasöng. Fundurinn er opinn öllum og aögangur ókeypis. Eru allir herstöðvaandstæðingar eindregið hvattir til að koma. Fundur hjá Þjóbvaka í kvöld í kvöld, fimmtudag, kl. 20 heldur Þjóðvaki opinn fund í kosningamið- stöðinni Hafnarstræti 7. Umræöuefn- ið verður tímamótayfirlýsing Þjóð- vaka um myndun félagshyggjustjórn- ar eftir kosningar og þarafleiðandi um að hafna stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Fátt hefur vakið jafnsterk viðbrögö í kosningabarátt- unni og þessi yfirlýsing og líklegt er aö áhrifa hennar gæti í íslenskum stjórnmálum langt fram yfir kosning- ar. Til aö ræða þessa yfirlýsingu, ástæður hennar og áhrif á íslensk stjórnmál, koma til fundarins þau Ásta R. Jóhannesdóttir, 2. maður á lista Þjóövaka í Reykjavík, og dr. Svanur Kristjánsson, prófessor við HÍ. Að loknum framsögum verða al- mennar umræður. Fundarstjóri er Páll Halldórsson. Stefnt er að fundar- slitum fyrir kl. 22. Fundurinn er öllum opinn og kaffi verður á boðstólum. Framsókn í Reykjanesi: Morgunverðarfundur um atvinnumál Framsóknarmenn í Reykjaneskjör- dæmi boða til opins fundar um at- vinnumál á veitingastofunni Kæn- unni, Hafnarfirði, í dag, fimmtudag, kl. 9.30 f.h. Frummælendur verða Halldór Ás- grímsson og Siv Friðleifsdóttir. Kynntar verða tillögur flokksins í atvinnumálum og menn hvattir til skoðanaskipta um þetta mikilvæga málefni. Músiktilraunir Tónabæjar 1995 Fjórða Músiktilraunakvöld Tóna- bæjar verður í kvöld, fimmtudag, og byrjar kl. 20. Hljómsveitirnar, sem leika á þessu tilraunakvöldi, eru: Border, ]elly belly, Allt í hönk, 200.000 Naglbítar, Morð, Three city flavours, Kuffs, Blunt, Tartarus. Gestahljómsveit kvöldsins er Un- un. Úrslitakvöld Músiktilrauna verður annað kvöld, föstudag. Gestahljóm- sveit á úrslitakvöldinu verður ]et Black Joe. SPOON á ísafiröi Hljómsveitin SPOON mun spila í Sjallanum á ísafirði föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin var útnefnd bjartasta vonin og söngkonan sem besta söng- konan. Hljómsveitina skipa: Höskuldur örn Lárusson söngur og gítar, Ingi Skúlason bassi, Hjörtur Gunnlaugs- son gítar, Friðrik Júlíusson G. tromm- ur og söngkona er Emiliana Torrini. Konukvöld á Hótel Blönduósi Fjölbreytt konukvöld verður haldiö á Hótel Blönduósi annað kvöld, föstudag. Konur verða sóttar í glæsilegri lím- ósínu frá Eðalvögnum (á tímabilinu kl. 20 til 22) og ekið eins og prinses- sum heiman frá sér og að Hótel Blönduósi. Tekið verður á móti konunum með kvöldverði úr pastaréttum, á meðan Carl Möller leikur ljúfa tóna á píanó- ið. Skemmtiatriði: Feröakynning meö happdrætti frá Úrvali-Útsýn (verslun- arferð til Skotlands í vinning). Svo mun nektarsýningardrengurinn Tom Cruise íslands hinn ógurlegi leika listir sínar og á rrieöan fær enginn karl- maður að vera í salnum, ekki einu sinni karlkyns þjónustufólk. Laust fyrir miðnætti verður þeim karlmönnum, sem vilja njóta kvölds- ins með konunum, hleypt inn í hús- ið. Þá hefst almennur dansleikur með Gleðigjöfunum André Bachmann og Carli Möller. Aðgangseyrir með akstri, fordrykk, kvöldverði og skemmtiatriðum er að- eins kr. 1500, en að skemmtun lok- inni (áður en ballið byrjar) aöeins kr. 1000. Harmonikutónlist í Rábhúsinu Nokkrir félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur flytja skandinavíska tón- list og létta sveiflu í Ráðhúsi Reykja- víkur næstkomandi sunnudag, 2. apríl, kl. 15 síödegis. Flytjendur eru á öllum aldri. Meðal annarra koma fram Karl | Jónatansson, Sveinn Rúnar Björnsson og Léttsveit Harmonikufélags Reykja- víkur. Aðgangur ókeypis og allir vel- komnir. íslandsmót í Taekwondo íslandsmótið í Taekwondo (Kvon- dó), kóreskri sjálfsvarnaríþrótt, verð- ur haldiö sunnudaginn 2. apríl í íþróttahúsi Fjölnis, Grafarvogi. Mótiö byrjar kl. 11 og stendur til 17. Óvenju margir hafa skráð sig til þátt- töku að þessu sinni, sem er merki um síauknar vinsældir íþróttarinnar, að S)ví er segir í frétt frá Kvondonefnd SÍ. Opiö vísnakvöld í Listaklúbbnum Vísnavinir efna til svokallaðs opins vísnakvölds í Listaklúbbi Leikhús- kjallarans mánudagskvöldið 10. apríl n.k. Á opnu vísnakvöldi gefst nýlið- um á öllum aldri tækifæri til að stíga á svið og sýna hvað í þeim býr. Opin vísnakvöld hafa verið haldin af og til á vegum Vísnavina, en á þeim hafa þó nokkrir tónlistarmenn stigið sín fyrstu skref á tónlistarbrautinni. Tón- listarfélagið Vísnavinir hefur starfað í nær tvo áratugi og haldið vísnakvöld af ýmsu tagi. Félagið hefur þab meðal annars á stefnuskrá sinni að vekja at- hygli á efnilegu tónlistarfólki, sem ekki býbst annar vettvangur til að kynna sig á. Þeir, sem hafa hug á ab koma fram á opna vísnakvöldinu í Leikhúskjall- aranum, geta haft samband við stjórn félagsins í símum 565-1572 eöa 565-8384. APÓTÉK Kvöld-, nætur- og hðlgldagavarsla apóteka I Reykjavfk Irá 24. tll 31. mars er I Reykjavlkur apó- tekl og Garðs apótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vðrsluna frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á sunnu- dögum. Upplýsingar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I sfma 18888. Neyðar rakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Slmsvari 681041. Hafnarfjðróur: Hafnarljarðar apótek og Norðurbæjar apó- tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skipt- is annan hvem laugardag Id. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyrt: Akureyrar apótek og Stjómu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina vikuna hvod að sinna kvóid-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvökfin er opið í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, 61 kl. 19.00. Á helgidögumer opið frá kl. 11.00-12.00 on 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfjafræóingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í s'ma 22445. Apótek Keflavfkun Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00. laugard., helgidaga og almenna fridaga ki. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30-14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudógum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. Id. 13.00-14.00 Garóabær: Apótekið er opið rúmhelga daga kl. .00- 18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. ALMANNATRYGGINGAR HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. mars 1995. Mánaóargrelóslur Elli/örotkulifeyrir (grunnlifeyrir)......... 12.329 1/2 hjónalífeyrir............................11.096 Full tekjutrygging ellilíleyrisþega..........22.684 Full lekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320 Heimilisuppbót......'........................7.711 Sérstök heimilisuppbót........................5.304 Barnalífeyrir v/1 bams .................... 10.300 Meðlagv/1 bams ............................ 10.300 Mæöralaun/teðralaun v/1 bams..................1.000 Mædralaun/feðralaun v/2jabarna................5.000 Mæðralaun/feðraiaun v/3ja barna eða fleiri..10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ...........11.583 Fullur ekkjulífeyrir.........................12.329 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)..................15.448 Fæðingarstyrkur..............................25.090 Vasapeningar vistmanna............................10.170 » Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170 Daggrelóslur Fullir fæðingardagpeningar.................1.052.00 Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20 Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80 Slysadagpeningar einstaklings................665.70 Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80 GENGISSKRÁNING 29. mars 1995 kl. 10,53 Opinb. Kaup Bandarfkjadollar 63,24 vlóm.gengi' Gengl Sala skr.fun r 63,42 63,33 Sterlingspund ...102,07 102,35 102,21 Kanadadollar 44,99 45,17 45,08 Dönsk króna ...11,477 11,515 11,496 Norsk króna .. 10,245 10,279 10,262 Sænsk króna 8,589 8,619 8,604 Finnskt mark ...14,539 14,587 14,563 Franskurfrankl ...12,965 13,009 12,987 Belglskur franki ...2,2262 2,2338 2,2300 Svissneskur franki. 55,68 ■ 55,86 55,77 Hollenskt gyllini 40,95 41,09 41,02 45,89 46,01 0,03728 6,531 45,95 0,03720 6,529 hölsk llra .0,03712 Austurrfskur sch ..„6,517 Portúg. escudo ...0,4338 0,4356 0,4347 Spánskur peseti ...0,4956 0,4978 0,4967 Japanskt yen ...0,7164 0,7186 0,7175 írskt pund ...102,35 102,77 98,74 102,56 98,55 Sérst. dráttarr. 98,36 ECU-Evrópumynt.... 83,61 83,89 83,75 Grfsk drakma ...0,2797 0,2807 0,2802 BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ MUNIÐ ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVtK 91-686915 AKUREYRl 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.