Tíminn - 28.04.1995, Blaðsíða 2
2
WlWítUl
Föstudagur 28. apríl 1995
Tíminn
spyr...
Hafa deilur sérfræbinga og
heimilislækna skaöaö tiltrú
fólks á læknum?
Sighvatur Björgvinsson, þing-
mabur og fyrrverandi heilbrigö-
isrábherra:
Nei, þab held ég ekki. Deilumar
hafa hinsvegar skaöað samskipti
lækna innbyrðis mjög mikið. En ég
held þær hafi ekki skaðab tiltrú
fólks á læknum almennt. Hinsveg-
ar ef ekki verður tekið á þessu
vandamáli, sem er hinn sjálfvirki
aðgangur sérfræðinga að ríkissjóði,
þá neyðast menn til að grípa ann-
ars staðar niður og þá er hætt við
aö þaö verbi viðkvæmara fyrir sjúk-
linga.
Matthías Halldórsson, abstobar-
landlæknir:
Fyrst og fremst hafa þessar deilur
skaðað samband heilsugæslulækna
og sérgreinalækna. Þegar togstreita
ríkir milli starfsfólks í heilbrigðis-
þjónustunni er óhjákvæmilegt að
sjúklingar líði fyrir þab að ein-
hverju leyti. Það verður verkefni
lækna að lokinni þessari deilu að
reyna ab stilla saman strengina til
hagsbóta fyrir þá sem kerfið á að
þjóna.
Gunnar Ingi Gunnarsson, heilsu-
gæslulæknir á Heilsugæslustöb-
inni í Árbæ:
Já, ég tel að svo sé. í þessu grímu-
lausa kjarastríði sérfræðinga hefur
verið stundaður augljós hræbslua-
róbur. Þab hefur jafnvel verið látð í
það skína að áhættusamt sé ab
leggja vandamál í hendur heilsu-
gæslu- og heimilislækna. Yfirlýs-
ingar sérfræðinganna í mörgum til-
fellum hafa verið á skjön við þá
reynslu sem þorri skjólstæðinga
heilsugæslunnar hefur reynt hjá
þessum sömu mönnum. Og í vib-
ræðum mínum við skjólstæbinga
mína sem koma á stofuna til mín,
hef ég orbib var vib að þetta kjara-
stríð sérfræðinga hefur orðiö til
þess að viðhorf margra í þeirra garð
hefur breyst til hins verra.
Ásdís Thoroddsen, ab Ijúka tökum á Draumadísum:
Gengiö á ýmsu
Um helgina lýkur tökum á ann-
arri kvikmynd Ásdísar Thorodd-
sen í fullri lengd, Draumadísum.
Ýmis vandamál hafa skotið upp
kollinum á tökutímanum og seg-
ir Ásdís kærkomib ab sjá hylla
undir endinn, þótt allt hafi farib
vel ab lokum.
Á meðal óvæntra uppákoma við
tökurnar má nefna ab keyrt var á
filmu sem send var utan til fram-
köllunar. Þar skemmdust tvær tök-
ur sem átti að nota. Þá hvarf átekin
filma af tökustab og segir Ásdís að
kvikmyndagengið hafi atast í
börnum og geðfötluðum sem nær-
staddir voru við leitina, en þeir
hafi ab sjálfsögðu engan þátt átt í
hvarfinu. Auk þess má nefna að
stórt tjald fauk út í hafsauga í Viö-
ey og alþjóö er kunnugt um krana-
uppákomuna í Austurstræti á dög-
unum. „Allt fór þó vel að lokum,"
segir Ásdís og hefur henni að
mestu tekist ab halda sig við upp-
haflega tímaáætlun.
Ásdís vill ekki tala mikib um
innihald myndarinnar en segir
mikið laumuspil í henni, hún
gangi meira og minna út á svik og
pretti á alla kanta. „Þab má segja
að myndin sé spennumynd með
gamansömu ívafi."
í aðalhlutverkum eru Silja
Hauksdóttir, Ragnheiður Axels-
dóttir, Baltasar Kormákur, Margrét
Ákadóttir og Bergþóra Kristinsdótt-
ir.
Fra upptöku a Draumadisum Asdisar.
Ef allt gengur ab óskum er búist
viö að myndin verði frumsýnd hér-
lendis í Iok nóvember eða um jól-
in. Draumadisir veröa svo á næsta
ári teknar til sýninga í þýsku sjón-
varpi og hjá franskþýsku sjón-
varpsstöðinni Arte, auk þess sem
hún mun ganga í kvikmyndahús-
um í Þýskalandi. Myndin er fjár-
mögnuð af annarri opinberu sjón-
varpsstöðinni í Þýskalandi, ZDF,
Arctic Canal Section, Kvikmynda-
sjóði Berlínar og íslenska kvik-
myndasjóðnum. Þá em íslenska
kvikmyndasamsteypan hf. og
Gjóla hf. með hlut í myndinni.
Áður hefur Ásdís gert kvikmynd-
ina Inguló sem hlaut góba dóma
og fékk fjölda viðurkenninga á
kvikmyndahátíðum erlendis. ■
Forsœtisrábherra verbur ekki heima og abalfundi vinnuveitenda því frestab um
viku. Innanbúbarmenn í VSI segja ástœbuna abra — stjórnarkreppu:
Formannsefnið ófundið
Vinnuveitendur hafa frestab
abalfundi sínum um viku til 16.
maí. Ástæban er sú ab sögn Þór-
arins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSÍ ab Davíb
Oddsson, forsætisrábherra,
verbi ekki í landinu 9. maí. Fyr-
ir því sé rík hefb ab forsætisráb-
herra ávarpi samkomuna. Inn-
anbúbarmenn í VSÍ telja þó ab
ástæban sé trúlega önnur — ab
stjórnarkreppa sé innan sam-
bandsins. Þab vantar formann í
stab Magnúsar Gunnarssonar,
sem Iætur nú af formennsku.
Þórarinn hafnabi þessari kenn-
ingu hins vegar í gær í spjalli
vib Tímann.
Nefnd hafa verið tvö formanns-
efni hjá VSÍ, Eysteinn Helgason
framkvæmdastjóri hjá Plastprenti
hf. og Víglundur Þorsteinsson for-
stjóri í BM-Vallá. Innan stjórnar
VSÍ hefur ekki náðst nein sam-
staða um þessi formannsefni og
talsverður ágreiningur um þá.
Enn er því leitað í röðum vinnu-
veitenda að formanni og mun
dvöl forsætisráðherra erlendis því
gefa vinnuveitendum kærkom-
inn tíma til að vanda valið.
Magnús Gunnarsson hefur
starfað sem formaður VSÍ í þrjú ár
og framkvæmdastjóri þess þar áð-
ur. Hann segir ab sínar kringum-
stæbur hafi breyst á þann veg að
hann er nú sjálfstætt starfandi í
ráðgjöf við fyrirtæki. Ljóst hafi
verið í fyrra að hann hefði ekki
lengur þann tíma sem til þarf í fé-
lagsmálastörf.
„Nú er unnið að því að setja
saman nýja stjórn og finna nýjan
formann. Það er ekkert óeðlilegt
aö séu skobanaskipti um það. Það
sýnir bara að merin meta Vinnu-
veitendasambandiö mikils og
vilja því leggja töluvert á sig aö fá
samstöðu um niöurstöðuna,"
sagði Magnús Gunnarsson í vib-
tali við Tímann í gær. ■
Sagt var...
„ Þaö var einu sinni prestur sem sagöi
aö þetta vœri andlegt og mjög iíflegt
starf. Þaö má kannski segja aö íþví
felist sannleikskorn."
Rúnar Geirmundsson útfararstjóri í Al-
þýbubla&inu, a&spur&ur um hvort
hann væri ekki alltaf eins og dau&inn
uppmála&ur í vinnunni.
•
„Konur sitja nú aö kosningum loknum
sem algjörar aukaleikkonur eöa klapp-
stýrur. Þœr fengu umboö til aö vinna
fyrir flokkinn og klappa fyrir strákun-
um"
Elín G. Ólafsdóttir, kvennalistakona um
Sjálfstæ&ar konur í Morgunbla&inu
•
„Húmorinn, hann skaöar nú engan!"
Gestur Einar Jónasson á Rás 2 í gær
•
„ Eini gallin viö Pál er sá aö hann skuli
ekki vera landbúnaöarráöherra í dag,
en þar er svosem ekki viö hann aö
sakast."
Eggert Haukdal í Helgarpóstinum
um Pál Pétursson, félagsmálará&herra
•
„ Þú sagöir viö mig þegar þú varst
bara líffrœöingur aö fiskar hlytu aö
hafa tilfinningar."
Magnús Skarphé&insson í samtali vi&
bró&ur sinn, Össur líffræ&ing, alþingis-
mann og fyrrum rá&herra í Helgar-
póstinum í gær.
•
„Þjóöin hlýtur öll aö hafa oröiö agn-
dofa og furöu lostin þegarþœr fréttir
voru fluttaraö Ólína vœrigegin úr
Þjóövaka. Hvar ber þennan storm-
sveip niöur nœst? Hvaöa áhrif hefur
brottför Ólínu á ríkisstjórnarsamstarf-
iö?"
Dagfari í Dagbla&inu í gær
í heita
pottinum...
... fréttist að framsóknarmenn
á Reykjanesi ættu í sínum fór-
um tvö lög sem samin hafi
verið í tilefni kosingabarátt-
unnar. Annað var spilab nokkr-
um sinnum opinberlega, m.a. í
útvarpi en hinu var stungið
undir stól, það var nefnilega
„country- lag" og sveitasöngur
þótti ekki við hæfi í þeirri þétt-
býlissókn sem var hjá Reyknes-
ingunum.
... er rætt um að eitt síðkvöld í
vikunni sem leið, á meðan
stjórnarmyndunarviðræður
stóðu sem hæst og áður en
ráðherrahlutverkunum var út-
deilt, fóru Einar Oddur Krist-
jánsson og Kristján Ragnarsson
í kaffi til Þorsteins Pálssonar til
að útskýra fyrir honum hvernig
þeim skipa ætti sjávarútvegs-
málum á kjörtímabilinu. Bjarg-
vætturinn ab vestan kortlagði
hvernig byrjab yrbi á því að
vinda ofan af kvótakerfinu,
m.a. með lagabreytingum
þegar á vorþinginu.
Mun Þorsteinn þá hafa ámálg-
ab ab hann vildi helst losna úr
sjávarútvegsráðuneytinu en
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, leiddi honum þá fyrir
sjónir ab þab gengi ekki og
klykkti út með því gengiö
hefði verið frá því að Einar
Oddur yrði formaður sjávarút-
vegsnefndar.
... eru menn á því að á kom-
andi þingi verbi stjórnarflokk-
arnir ekki alveg eins rausnar-
legir við stjórnarandstöbuna
og á því síðasta og eftirláti
stjórnarandstöbunni aðeins
formennsku í tveimur nefnd-
um, en síbast átti stjórnarand-
staðan þrjá nefndarformenn.
Tala menn um að slíkt væri í
samræmi vib ríflegri meirihluta
stjórnarflokkanna núna.