Tíminn - 28.04.1995, Qupperneq 4

Tíminn - 28.04.1995, Qupperneq 4
4 Föstudagur 28. apríl 1995 IImii STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 5631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiöja hf. Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 150 kr. m/vsk. Nýir tímar — ný viðhorf Verkfall og vibvarandi verkfallshótanir flugfreyja og flugþjóna sýna hve brýn þörf er á aö endurskoða vinnu- löggjöfina og ekki síst þau ákvæöi hennar er varða rétt- indi og skyldur í vinnudeilum. Þaö er til aö mynda frá- leitt aö tiltölulega fámennt stéttarfélag hafi vald til að stööva allar flugsamgöngur frá landinu og til. Flugleiðir og starfsfólk veröa aö finna aðrar leiðir til aö útkljá deilumál sín en að einangra ísland frá umheiminum. Gjörræöi af því tagi veröur ekki þolað lengur. Það mikla vald sem flugfélag og stéttarfélag taka sér vegna deilu um kaup og kjör sýnist ekki skila miklum árangri þegar upp er staðiö. Að minnsta kosti lýsir for- maður Flugfreyjufélagsins því yfir aö hún sé óánægö með niðurstöðuna þegar hún samþykkti sáttatillögu í fyrrinótt. Verkfallsvopniö er ekki eins beitt og oft er af látið þótt það kunni að valda miklum skaða. Ummæli formannsins um að ef til vill hefbi verið hægt að ná hagstæbari samningum fyrir flugfreyjur með því að fara aftur í verkfall, sem hún vildi forðast, sýnir að félagið forðast að beita því ofurvaldi sem því er fengið í hend- ur. Sjaldan veldur einn þegar tveir deila og því er sökin á verkfalli og síðan verkfallshótun ekki eingöngu Flug- freyjufélagsins heldur hljóta vinnuveitendur þeirra ab bera einhvern hluta hennar, ef einhver er. Þegar endur- skoðun vinnulöggjafarinnar verbur oröin að veruleika ættu aöilar vinnumarkaðar og stjórnvöld ávallt að hafa í huga að ábyrgð á framkvæmd hennar hvílir á herðum allra þessara aðila. Ný og nútímalegri vinnulöggjöf verður ekki sett til höfuðs launþegum, vinnuveitendum né neinum öðrum. Heldur þarf að endurnýja leikreglur sem hæfa breyttum tímum og öðrum viðhorfum en þeim sem giltu í kreppunni á fjórða áratugnum, en nú- verandi löggjöf um stéttarfélög og vinnudeilur gekk þá i gildi. Eitt fyrsta verk Páls Péturssonar í embætti félagsmála- rábherra er að boba forseta ASÍ á sinn fund og kynna honum þann þátt sjórnarsáttmálans er varðar endur- skoðun vinnulöggjafarinnar. En að sjálfsögðu verða ekki gerðar róttækar breytingar á svo mikilvægum málaflokki nema að hafa samráð við aðila vinnumark- aðar og hlusta á athugasemdir þeirra og tillögur. Sé vikib aftur að lyktum kjaradeilu Flugleiða og hluta starfsliös félagsins, er athyglisvert hve mikla áherslu flugfreyjur lögðu á aukin eftirlaunaréttindi fremur en beina kauphækkun. Var þeim kröfum mætt að hluta með skrýtnum og flóknum greibslum inn á séreigna- reikninga. Er líklegt að þau ákvæði hafi orðið til að leysa deiluna. Það vekur aftur upp þá spurningu hvort ekki sé allt eins ástæba til að endurskoða lífeyrssjóðakerfin og að- laga þau breyttum viðhorfum, eins og ab endurskoða vinnulöggjöfina. Óskir fiugfreyjanna um að fá að leggja niður störf fyrr á æfinni en þeim var áður mögulegt ættu að stjaka við þeim sem ávallt tönnlast á að skapa störf fyrir ungt fólk, enda sé atvinnuleysið bæbi böl og mannréttindabrot. Stytting vinnutíma og skemmri starfsæfi einstakling- ana er þab sem koma skal hvort sem mönnum líkar bet- ur eða ver. Ab þessu skyldu aðilar vinnumarkaðar og stjórnvöld hyggja ekki síður en að lagfæra löngu úrelta vinnulöggjöf. Handbolta — ekki íshokký! BIóð, sviti og tár! I ► Wílrtl »•':■<.• i>X«4t>»::3«; »í<Ó4 ;<>it>/*> :»♦>!>: ■*»■*> (>«:< )>»•' >3>”::< íi>j Hamlboltinrv er eivöru ii><ó;t l>«> ««n> jnvrtingin trkipilr t>Vll<nili. t>»ð S lik.t oið jvtg wra ihðrfanrf.t. (nkiu |>:t(‘. > l:»::«s<r>®i<‘.-t><ii:ej>i;‘iinn> 7. ■ 7t <«íf • i >toí«v>». ?.<-»»» Vtríttt M Áh*t* l»‘«ndf >0*v«.» »t > Wl ___ vVEímondwwt ssrær rH;"r 8<<k«Cur hélCIAur — :$Í4 f«< úr »xl»rt:S :*'>t «t(i«r>**l> I<<9« killx (<>>:» ^iueooiK : oiaxv-uiu«x>6»t Nú eru menn farnir að tala um ab hótun flugfreyja um verkfall hafi verib libur í sálfræbihern- abi íslendinga gegn Svíum og öbrum skeinuhættum andstæb- ingum á handknattleiksvellin- um. Þetta hafi verib tilraun til ab koma þeim úr jafnvægi svo þeir ættu erfibara meb ab ein- beita sér vib æfingar vegna þess ab þeir væru alltaf ab velta því fyrir sér hvort og hvernig þeir kæmust til íslands. Hvort sem þab er nú rétt eba ekki þá er greinilegt ab forrábamenn ís- lensks handknattleiks virbast ætla ab leggja mikib undir til ab ná árangri á mótinu og er svo komib ab líkamleg snerting og harkan í leiknum og meibsli leikmanna eru orbin ab sérstök- um áhersluatriðum í kynning- unni á mótinu og handboltan- um. Forustumenn handknatt- leiksins hafa kosib þá leib ab varpa dýrbarljóma á þá hlib handknattleiksins sem snýr ab líkamlegum átökum og hugsan- legum meibslum leikmanna í þeim átökum. Því meiri meiðsl og átök því meiri „alvöru íþrótt" verður handboltinn. HSÍ í ofbeldisdýrkun Þessi skilabob voru send landsmönnum í heilsíbu aug- lýsingu í Morgunblabinu í gær. Þar var birt mynd af Hébni Gils- syni og hin ýmsu meibsli sem hann hefur hlotib á ferlinum kortlögb sérstaklega og undir- strikab ab nánast enginn hluti líkama hans hafi sloppib. Textinn meb þessu óvenju- lega meiblsakorti af Hébni und- irstrikar þessa nýju stefnu hand- knattleiksforustunnar. Þar segir m.a.: „Blób, sviti, og tár! í hörb- um heimi handboltans verba jafnvel mestu jaxlar fyrir því ab eitthvab gefur sig. HANDBOLT- INN ER ALVÖRUÍÞRÓTT ÞAR SEM SNERTINGIN SKIPTIR LYK- ILMÁLL..." Auglýsingin á ab hvetja fólk til ab koma og horfa á keppnina á stabnum og komast þannig í beina og millilibalausa snert- ingu vib leikinn þar sem átökin og ofbeldið á sér stab. Þab ab höfba til þessara hvata hjá fólki, löngunina ab sjá ofbeldib, hörk- una og jafnvel slys er þekkt úr ýmsum öbrum íþróttagreinum GARRI og eru hnefaleikar og kappakst- ur e.t.v. augljósasta dæmib. Ishokký slagsmál íshokký hefur ekki verið mik- ib stundab á íslandi en í N-Am- eríku er þetta vinsæl íþrótt sem m.a. hefur þróast í þá átt sem forusta HSÍ er ab reyna ab beiría handboltanum núna. Þar eru ofbeldi og slagsmál fastur hluti af leiknum, sem og meibsli leik- manna og líkamleg snerting. í Ameríku er algengt ab stöbva verbi íshokkýleik vegna þess ab allt logar í slagsmálum hjée leik- mönnum. í Evrópu hins vegar hefur þessi ofbeldisdýrkun ekki náb tökum á hokkýinu meb sama hætti og vestan Atlantsála og eru mjög margir sammála því sjónarmibi ab ofbeldib skemmi fyrir ameríska hokký- inu í samanburbi vib það evr- ópska. Ofbeldib hefur beinlínis spillt fyrir og skyggt á leikinn sem slíkan. Handboltinn þarf ekki ab vera gróf íþrótt eba ofbeldiskennd en aubvelt er ab skemma leikinn meb ofuráherslu á líkamleg átök. HSÍ virðist ætla ab varpa dýrbarljóma á ofbeldi og grófan handknattleik meb því ab segja ab meibsli leikmanna séu mæli- kvabri á að handbolti sé „alvöru íþrótt". Handboltaforustan ætti að muna ab heilbrigba sálin er í hrausta líkamanum og þab ber ekki vott um heilbrigbi ab dá- sama líkamleg meibsli. Lands- menn munu njóta handboltans þó honum sé ekki breytt í amer- ískt íshokký. Garri Undir Ljósufjöllum Á annasamri tíb undanfarinna vikna barst mér í hendur bók sem inniheldur ljób eftir séra Rögnvald Finnbogason á Staba- stab. Bókin ber nafnib „Hvar er land drauma". Séra Rögnvaldur er að mínum dómi einn af okkar bestu fyrir- lesurum og ég legg ávallt vib hlustir þegar hann flytur erindi sem mörg hafa fjallab um trúar- leg málefni. Ég hef hins vegar ekki kynnst honum sem ljób- skáldi en þótti bókin forvitnileg vegna þess sem hann hefur látib frá sér fara í óbundnu máli. „Hvar er land drauma" er myndskreytt bók og ab öllum frágangi fallegur gripur. Myndir þess ágæta listamanns Tryggva Ólafssonar lyfta henni ab útliti og frágangi, en þab finnst mér mikils virbi þó vissulega sé inni- haldib abalatribib. Ljóbin í bókinni eru byggb upp af þremur meginþáttum. í fyrsta lagi uppgjör sveitaprests vib þjónustu vib kirkju sína, í öbru lagi ljó© tieinkub Snæfells- nesinu og í þribja lagi ljób sem eiga rætur ab rekja til ferðalaga höfundar um heiminn einkum í austurveg allt til Japan. Þab er skemmst frá því ab segja ab lestur þessara ljóba er einkar hugþekkur og þau eru þétt í sér ab efni og frágangi. Höfundurinn stendur vel undir nafni sem ljóðskáld. Ferbakvæbi hans eru lengri og fyrirferbarmeiri í forminu, en kvæbin frá heimahögunum á Á víbavangi Snæfellsnesi eru ygldari og rík- ari af myndmáli. Þau eru eink- um fallegur óbur til þessa lands- svæbis og bætast í hóp þeirra mörgu fallegu ljóba sem kvebin hafa verib til lands og náttúru. Þau greina frá manninum sem gengur um hreibur maríuerl- unnar meb nærfærni jafnvel þó hún hafi hreibrab um sig í kirkjuturninum, gengur til ab vitja um net sín á kyrrum vor- degi og kallar á grafarann í kaffi þegar hríbin og skafrenningur- inn lemur kirkjugarbinn um vetur og daubinn er nálægur. Um manninn sem langar til ab flytja jökulinn meb sér er hann lyftist í góbvibrinu vib hafs- brún. Yrkisefnin einkennast af næmri náttúruskynjun og koma andblæ stundarinnar í orb en þab er ekki á færi nema skálda. Sem dæmi um myndríkt ljób sem sýnir vel tilfinningu augna- bliksins má nefna þetta: Tutiglið kastar til mín reipi úr Ijósi þarsemþað siglir skýjahafið yfir brimsorfin sker í vesturátt á vit fökulsins. Þetta ljób er einfalt, myndríkt og eitt af mörgum sem tilfæra mætti úr bókinni. Það er fengur ab þessari bók fyrir ljóbaunnendur og hún er höfundi sínum og útgefendum til mikils sóma. Jón Kristjánsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.