Tíminn - 28.04.1995, Side 13

Tíminn - 28.04.1995, Side 13
Föstudagur 28. apríl 1995 13 ^gfirð^ Sjúkrahús Skagfirð- inga, Sauðárkróki Okkur bráðvantar hjúkrunarfræðinga og nneinatækni til sumárafleysingastarfa. Einnig bjóðum við velkomna þriðja árs hjúkr- unarnema til starfa á öldrunardeildum. Tilvalið tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga og meinatækna að breyta aðeins til og dvelja sumarlangt í Skagafirði. Uppiýsingar um laun og fleira veitir hjúkrun- arforstjóri í síma 95-35813. Verkamannafélagið Dagsbrún Aðalfundur Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður hald- inn laugardaginn 6. maí kl. 13:15 í Súlnasal Hótel Sögu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Endurskoðabir reikningar liggja frammi á skrifstofu fé- lagsins frá 28. apríl. Stjórn Dagsbrúnar. Búskapur Jörðin Ásgarður í Grímsneshreppi er laus til ábúbar frá 1. júní næstkomandi. Framleiðsluréttur: 42.911 Itr mjólk og 2.053 kg sauðfé. Bústofn og vélar geta fylgt. Umsóknarfrestur er til 9. maí. Upplýsingar á skrifstofu Grímsneshrepps kl. 9-13, sími 98-64400. Hreppsnefnd Grímsneshrepps. rm K I N ;• T 30 ur Vinn ngstölur miðvikudaginn: 26.04.1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING [1 6af6 2 108.180.000 ÚV 5 af 6 La+bónus 2 727.010 5 af 6 12 64.050 a -,6 625 1.950 3 af 6 EÆ+bónus 2.380 220 n vinninqur fór til Danmerkur og Noregs BONUSTOLUR 8 31 46 Heildarupphaeð þessa viku: 220.324.970 áísi, 3.964.970 UPPLYS|NGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYRIflVARA UM PRENTVILLUR Nýleg könnun Cosmopolitan á ástum rússneskra stúlkna: F j örugt kynlí f Samkvæmt óbirtri kynlífs- könnun í tímaritinu Cosmo- politan, rússnesku útgáf- unni, eru rússneskar tánings- stúlkur öllu kræfari í ástamál- unum en stöllur þeirra víðast annar staðar í heiminum. í könnuninni kemur m.a. fram að ein af hverjum tíu stúlkum á tvítugsaldri hafi sofið hjá 26 karlmönnum eða fleirum og flestar stúlkn- anna segjast hafa áhuga á auknu kynlífi. Alls var úrtakið í könnun- inni 2600 stúlkur frá Moskvu og Pétursborg og þær voru nokkuð samhljóða: ástar- fundir rússneska kvenpen- ingsins voru miklu fleiri en aöstandendur könnunarinn- ar hafi grunað. Meir en 40% svarenda sögðu ánægjuna helstu ástæðuna fyrir hinu fjöruga kynlífi og mikill hluti hafbi haldið fram hjá kærust- um með öðrum mönnum. „Rússneskar stúlkur eru orðnar kröfuharðari í rúminu en áður," er það eina sem Ye- lena Myasnikova, ritstjóri Rússlandsdeildar Cosmopo- litan, hefur um málið að segja. ■ Rússneskar konur biöja um meira og fjölbreyttara kynlíf. Nicole í skýjunum Nicole Kidman ættleiddi ný- lega annað barn sitt ásamt Tom Cruise, dótturina Conn- or. Systirin Isabella fær því fé- lagsskap og em allir fjölskyldu- Nicole meö Connor. meðlimirnir afar ánægðir meö nýja heimilismanninn. Tom Cruise er hins vegar fjarri góðu gamni, þar sem hann er við tökur á stórmynd- inni Mission Impossible. ■ í SPEGLI TÍMANS Neeson í íra- Hinn vinsæli leikari Liam Nee- son mætti í skotapilsi með kas- óléttri konu sinni, Natöshu Ri- chardson, á frumsýningu nýj- ustu myndar sinnar, Rob Roy. Þegar Liam var spuröur af blaðamanni hvað hann væri að gera í skotapilsi, svaraði hann: „Þetta er ekki skotapils, þetta er írapils." Ekki vita menn hvað Liam gekk til. Liam og Natasha eiga von á barninu innan nokkurra vikna og er mikil eftirvænting. Hjónaband þeirra hefur verið talið sérlega farsælt, enda eru þau lítið gefin fyrir sviðsljósið og hafa ekki breyst neitt, þrátt fyrir ört stígandi frægð. Þess má geta aö þau léku saman í Nell ásamt Jodie Foster og er það í fyrsta skipti sem þau starfa saman. ■ Liam Neeson ásamt konu sinni kasóléttri, Natöshu Richardson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.