Tíminn - 27.06.1995, Blaðsíða 2
2
Wmivm
Þri&judagur 27. júní 1995
Tíminn
spyr...
Hefur launastefna ASÍ brugb-
ist?
Hrafnkell A. Jónsson, formaöur
verkalýösfclagsins Árvakurs á Eski-
firöi:
Nei. Ég tel ab launastefna ASÍ hafi
ekki brugðist. Árangur kjarabaráttu
mibast við abstæður á hverjum tíma
og t.a.m. hafa starfsmenn álversins í
Straumsvík lykilaöstöðu til að knýja
fram launahækkanir. Menn geta svo
deilt um hvab langt skuli ganga í að
beita slíkri aöstöðu. Ég er ánægður
fyrir hönd starfsmannanna í
Straumsvík, en kannski hafa þeir teflt
á tæpasta vað hvað varöar aðra hags-
munaþætti. Launasamningar þeirra
nýverið eru ávinningur allra launa-
manna, því þótt þeir séu núna með
bundna samninga mun iaunahækk-
unin í álverinu vafalaust verða við-
miðun í næstu samningum. Þannig
get ég ekki séð að launastefna ASÍ
hafi brugði$t, en aðilar sambandsins
eru ekki í góðri aðstöðu til að knýja
fram miklar launabreytingar.
Ögmundur Jónasson, formabur
BSRIJ og alþingismabur:
Þab, sem hefur brugðist á allra síð-
ustu árum, er að menn hafa reynt ab
standa að heildarkjarasamningum,
jafnvel reynt að kenna þá viö þjóðar-
sátt án þess að nógu breið samstaöa
væri að baki. Staöreyndin er sú ab
láglaunafólkið hefur fengið lág-
markshækkanir, en aðrir meira. Ég er
hlynntur heildarkjarasamningum til
að stuðla að kjarajöfnuði, en ef heild-
in kemur ekki samstíga að slíkum
samningum er hætt vib ab góður
ásetningur um jöfnuð snúist upp í
andhverfu sína. Það hefur því miður
gerst á síöustu árum.
Benedikt Davíbsson, forseti ASÍ:
Nei. Þegar verkalýðsfélögin ákváðu
aö semja á þessum grundvelli í vetur,
voru þeirra viðhorf þekkt og einnig
aö ef brygði frá á öðrum vettvangi á
tímabilinu yrði að endurskoöa málib.
Þannig stendur málið í dag og næsta
endurskoðun er í nóvember. Þannig
held ég að ekkert hafi gerst í þessu
máli sem menn hafi ekki gert ráð fyr-
ir ab gæti gerst.
Göngufólk hreppti hríöarveöur á Fimmvöröuhálsi:
Komust við illan
leik í Þórsmörk
Ferbalangar á leib yfir Fimm-
vörbuháls til Þórsmerkur lentu í
talsverbum hrakningum á leib-
inni abfaranótt laugardagsins.
Tveir hópar voru á ferbinni þetta
kvöld og nótt, mebal annars 30
manna lið frá endurhæfingar-
deild Landspítalans í Hátúni, sem
ferbabist meb Útivist, og hópur á
vegum Ferbafélags íslands. Fólkib
frá Útivist lagbi upp kl. 20 á laug-
ardagskvöld og hreppti aftaka-
vebur, glórulausa blotahríb. Hóp-
ur FÍ fór abeins seinna af stab.
Gangan yfir tók 12 tíma og tók
alla Jónsmessunóttina, enda höfb
vibdvöl í bábum sæluhúsunum á
hálsinum, sem er í 1120 metra
hæb yfir sjávarmáli.
„Veðrið var brjálað á leiðinni frá
neðri skálanum, Fúa, eins og hann
er kallaönr, og alveg yfir í Þórsmörk.
Tímaáætlanir stóðust ekkert og
nánast allt fór úrskeiðis hjá okkur
sem fórum með Útivist, nema farar-
stjórinn sem var frábær," sagði einn
göngugarpurinn, Ingimar Guð-
mundsson, í samtali við Tímann í
gær. Fararstjórinn var Hermann
Valsson og fór hann með báða hóp-
ana yfir, en hinn fararstjórinn vildi
snúa til baka til Skóga.
Ingimar sagði aö hópurinn hefði
yfirleitt verið vel klæddur, en það
sama hefði ekki átt við ýmsa í hópi
Ferðafélagsins, sem varð samferða
Útivistarhópnum á göngunni í of-
viðrinu, sumir bara í þunnum jogg-
inpöllum, haugblautir og kaldir.
I Þórsmörk kom göngufólkið yfir
sig uppgefið og rennblautt inn að
skinni. Þar tók ekki betra við. Lofað
haföi verið að geyma föggur göngu-
fólksins innanhúss. Það reyndist
liggja í kös úti á flöt rennandi blautt
og óhrjálegt. Fyrir þá sem kusu ekki
að fara yfir Fimmvörðuháls en bíða
í Mörkinni reyndust tjaldstæöi
langt í burtu, hálftíma gang í það
minnsta. Lofað hafði verið tjald-
stæði í nágrenni við skálann í Bás-
um.
Það fyrsta sem ferðalangarnir
geröu við komuna til Þórsmerkur
var að verða sér úti um rútu til
Reykjavíkur. Um annað var ekki að
ræða eftir volkið. Varð Merkurtúr-
inn því endasleppur, en Jónsmessu-
nóttin án efa eftirminnileg öllum.
Árbœjarsafn meö sýninguna „Mix 5" á Ingólfstorgisem síöan fer í
3ja sumra Noröurlandaferö:
Veröld unga fólksins
í gámum á Ingólfstorgi
Mix 5 er nafn á allsérstæðri far-
andsýningu, sem Árbæjarsafn
stendur fyrir á Ingólfstorgi um
þessar mundir. Hún er hönnub
inn í tvo gáma, sem feröast milli
Norðurlandanna í þrjú sumur.
Vibfangsefnib er „veröld unga
fólksins" og hvernig er ab lifa og
hrærast í norrænni borg. Sýningin
er samstarfsverkefni borgarminja-
safna á Norburlöndunum fimm og
á ab gefa mynd af því sem æsku-
fólk er ab fást vib, bæbi í einkalífi
og opinberlega, í Helsinki, Kaup-
mannahöfn, Ósló, Reykjavík og
Stokkhólmi, segir í tilkynningu
frá Árbæjarsafni.
í öllum borgunum hafa 15-22ja
ára ungmenni tekib þátt í undirbún-
ingi sýningarinnar. Allar eiga þær
það m.a. sameiginlegt að liggja að
sjó, að þar er kalt á veturna og að
íbúar þeirra bíða vorsins meö
óþreyju. Og í öllum borgunum eru
margir staðir þar sem ungmenni
hafa safnast saman í gegnum árin. í
Reykjavík var „Halló" einn þessara
staða. Þar stendur nú Ingólfstorg þar
sem sýningunni hefur verið valinn
staður til 23. júlí n.k., en þá heldur
hún til Óslóar. í öbmm sýningar-
gámnum er innrétting með 24 skáp-
um og skúffum, sem eiga að tákna
klukkustundir í einum ímynduðum
sólarhring. í hinum gámnum eru
gatan og sjoppan. ■
Tilitsemi við sjávarutvegs-
ráðherra réði stuðnmgi
iiKúAuhnndalae'
ETNAR Oddur Kristjina»on, þing-
maður Sjálf«t*ðUf»okkan» iVert-
fíörAum saedi við aðra umrœðu um
I ndtveitatjíniufrumvwpiaíAl^*1
1 mericvöMi. aí Þ*8 ’,æn •* uiltoemi
v^^ivinítvegvráðherra að ton
I hefði ákveðið að styðja álit
Einar Oddur aagöt að þritt ^tr
að flestir nefndarmenn heföu hatt
fyrir þvl góð rök að það ettt að atefna
að róöradagakerfi 1.
hefði ^jávarút'-'
þingmaður Alþýðubandalagsins og \
formaður sjávarútveesTv*^^"'
OSXOP £R MMPMPP
/VÓ GÓÐOP V/£) lui/p /
Sagt var...
Of mlkil snyrtivörunotkun
Um 90% húbvandamála sem ég hef
séb hjá konum stafa af of mikilli snyrti-
vörunotkun."
Snyrtifræbingurinn Janet Fielderman í
Mogga.
Biskup haldi uppi aga
„Það er afar eðlilegur hlutur, og í raun
skylda biskups, ab halda uppi aga
meðal prestastéttarinnar, því slíkt er
hans hlutverk og hefur verið allar götur
frá tímum frumkristninnar."
Sigurbur Líndal lagaprófessor í HP.
Einstæbar abstæbur RÚV
„RÚV býr vib einstæðar abstæöur á
markabinum. Þab fær ab keppa undir
fána markabshyggjunnar en tekur pen-
ingana inn meb skattheimtu."
Úr leiöara HP.
Bara tveir sem „moonubu"
„Þab voru bara tveir úr hópnum sem
gerðu þetta en löggan fullyrti ab þaö
hefbu fimm „moonab" og þeir skrif-
uðu nibur fimm nöfn."
Frásögn pilta í DV sem gruna&ir eru um
a& hafa „moona&" fyrir framan háttsetta
kínverska sendinefnd.
Manninum ekki hent burt
„Ráðningin er til eins árs og hvað ger-
ist þá? Þá þarf ab fastrába í stöbuna og
þab segir. sig sjálft ab rábherra er búinn
ab taka ákvörbun fyrir okkur. Ekki för-
um vib ab henda þessum manni burt
þegar búib er ab rába hann á annað
borð."
Arni Þór Sigur&sson, varaforma&ur skóla-
málará&s, úm rábningu Gubmundar Sig-
hvatssonar í stö&u skólastjóra Austurbaej-
arskóla.
önnur vitlaus, en hin ekki
„Önnur er heimsk pía sem hefur til-
hneigingu til ab drekka sig fulla og
bora í nefib. Hin er klók og vill öllu
rába."
Björk um sjálfa sig íWild Magazine.
Gób ríma
„Uppistandib á Raufarhöfn, meb til-
heyrandi rifrildi oddvitans, sveitarstjór-
ans og formanns jeppaklúbbsins ann-
ars vegar og landeigendanna hins veg-
ar, er au&vitab alveg ótrúlega íslenskt
fyrirbæri og vekur upp svipabar þjób-
erniskenndir í brjósti manns og að
heyra góba rímu kveöna."
B.G. í Tímanum.
í heita
pottinum...
í hinum heita Hafnarfirbi hafa funda-
höld staðið meb litlum hléum frá því
ab bæjarfulltrúar tíndust heim frá vina-
bæjamóti. Með komu Ingvars Viktors-
sonar, oddvita krata, til landsins á
fimmtudag breyttist tónn krata ab sagt
er í garb Magnúsar Gunnarssonar,
hins eina og sanna fulltrúa íhaldsins.
Ingvar mun ófús til ab vinna meb
Magnúsi, enda átti hann sinn þátt í ab
kæra kratana fyrir meint lögbrot fyrir
stuttu síban, enda þótt Magnús Jón
bæjarstjóri hafi verib öllu meiri frum-
kvö&ull ab kærumálunum. Kratar íhuga
því Jóa Begg og Ellert Borgar sem
framtíöar samstarfsmenn...
•
Sportveibiblabib sendir áfengisvörnum
þjóbarinnar enn langt nef. í síbasta
eintaki blabsins er ab finna opnu um
Gordons gin. Fyrri sí&an er söguleg
skýring á uppruna þessa áfengis — en
síban á móti er auglýsing á ensku um
„ginib sem hressir heiminn." Þeir fé-
lagar, Gunnar Bender og Snæbjörn
Kristjánsson, eru greinilega ákvebnirí
ab láta lög og reglur sem vind um eyru
þjóta...
- •
Mikib er rætt um Austurbæjarskólamál-
ib í heita pottinum þessa dagana og
þá ekki síst þann vandræ&agang sem
kominn er upp í R-listanum. Sigrún
Ágústsdóttir, sem ekki fékk stöbuna,
nýtur mikils stubnings Kvennalistans
og Árna Þórs Sigur&ssonar sem er fé-
lagi Sigrúnar úr Kennarasambandinu. í
foreldrafélaginu hins vegar eru líka
miklir stubningsmenn R-listans, eins og
Einar Valur Ingimundarson, en þeir
vildu fá Gubmund Sighvatsson í stöb-
una til ab halda fribinn. Þab mun hafa
rábib úrslitum hjá rábherra ab hópur
kennara úr skólanum fór á hans fund á
fimmtudaginn og lag&i ab honum ab
rába Gubmund, ella myndi bresta
flótti í reyndasta kennarali&ib.